Morgunblaðið - 05.06.1988, Side 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
SUNNUDAGUR 5. JUNI 1988
B
BLAÐ
VESTMANNAEYJAR:
FERALDBEIÍFÝLU,
SAMA HVER DJÖFULUNN
GENGURÁ
Rætt við Guðjón
í Gerði sem hefur
stundað sjóinn
í 65 ár
Hann er eitt af sterku ankerun
um í mannlífi Vestmannaeyja,
varð 80 ára 10. mai, og er búinn
að vera sjómaður í 65 ár. Enn
rær þessi aldna kempa sem er
síungur þrátt fyrir háan aldur,
alitaf hress og skemmtilegur og
fetar leiðina sína daglega um
bryggjur og bæ hvemig sem
viðrar. Þessum indæla manni
hefur aldrei fylgt hávaði, en þó
er bræla í röddinni, harður tónn
eins og í norðanþytnum við Kleif-
ar. Hjartalagið er hins vegar í
takt við sunnanvindinn, hlýtt og
aðlaðandi. Stóisk ró hans er sér-
stæð og ef hann skiptir skapi þá
rifst hann ekki, hefur þótt far-
sælla að leggja sig og sofa úr sér
ólundina og ergelsið og þarf ekki
nema stutta kríu til. Guðjón
Björnsson, eða Gaui gamli í Gerði
eins og vinir hans kalla hann
dags daglega, fæddist 10. maí
1908 í Gerði í Vestmannaeyjum.
Þá var þar drífandi búskapur,
30 kýr og hörkufólk á Gerðis-
býlunum, þvi þaðan hafa komið
traustustu stofnar. Ungur nam
Gaui þvi markviss vinnubrögð
án allrar ævintýramennsku.
Sjá næstu síðu.
Gaui og Siggi í Bæ
i léttu spjalli á Bæjarbryggjunni.
Morgunblaðið/Sigurgeir í Eyjum
Jón Ingi
og sá gamli i löndun
Léttur og hress að
vanda hvort sem
hann er til sjós eða
lands.