Morgunblaðið - 05.06.1988, Síða 20

Morgunblaðið - 05.06.1988, Síða 20
20 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚNÍ 1988 4- ffclk í fréttum SDailvBimc Al Dzlda predlcts supersonlc success Morket bigb Jor Bob Keuter idta Frimwli ar* raarijr to driak m toaat Uetm t tmutmg/etr Playoffs: Lakers can’t handle Qary Fraser Serits tied al 1-1 going to Utab BUSINESS C1 II QOOD LUCK, STEINI 11 ]| SPORTS H1 || Steini Gudmundsson retiring 200 áhorfendur á frumsýningu Brúðubílsins Tólfta starfsár Brúðubílsins hófst á miðvikudag, 1. júní, með sýningu í Hallargarðinum. Um 200 börn og fullorðnir höfðu komið sér þægilega fyrir á grasinu við Fríkirkjuveg 11 er amma og Lilli riðu á vaðið, en þau hafa verið í Brúðubílnum frá upphafi og eru því aðdáend- um hans að góðu kunn. Áhorfendumir, sem voru velflest- ir af yngstu kynslóðinni, voru orðn- ir spenntir þegar dró að frumsýn- ingunni og hlökkuðu greinilega mikið til. Ekki brást sýningin von- um þeirra og var mikið klappað, sungið og hrópað, þegar það átti við, á meðan sýningu stóð. Þess á milli sátu áhorfendumir grafkyrrir og áhuginn skein úr hverju andliti. Amma og Lilli sýndu töfrabrögð og kenndu bömunum að þekkja lit- ina og síðan tóku við hrekkjalóm- amir Kalli og Palli en allar §órar brúðumar hafa sést áður í Brúðubflnum. Fyrstu sýningu sum- arsins lauk síðan með frumsýningu á leikritinu „í fjörunni" eftir Helgu Steffensen, sem fjallar um litla stúlku sem er á gangi í fjörunni þegar allt lifnar við í kringum hana. Sýningar brúðubflsins standa út júlímánuð og verður sýnt tvisvar sinnum á hverjum gæsluvelli Reykjavíkurborgar. Reuter Drottningin á veðreiðum Elísabet Englandsdrottning sést hér láta í ljósi tilfinningar sínar þar sem hún var stödd á hinum þekktu Derby veðreiðum nú í vikunni. Veðreiðamar þóttu einstaklega tvísýnar að þessu sinni, og sigurinn var ekki tryggður fyrr en á síðustu metrunum. Nafn hests- ins sem fyrstur kom í mark er Kayhasi og knapinn heitir Ray Cochrane. Forsíða dagblaðsins The Daily Breeze er að mestu leyti helguð umfjöllun um Steina Guðmunds- son. Áhorfendur skemmtu sér dável á sýningu brúðubilsins. LINDA EVANS Gifting í sjón- máli? Dynastyleikkonan Linda Evans og hinn 51 árs gamli Richard Cohen eru um þessar mundir í gift- ingarhugleiðingum. Linda hefur af þessu tilefni látið hafa það eftir sér að þau ætli að búa saman í hálft ár til reynslu, og ef vel tekst til þá munu þau ganga í hjónaband. Þrátt fyrir aldur sinn er Linda ákveðin í því að eignast bam ef samband hennar og Cohens gengur vel. _ „Úr því að Ursula Andress getur orðið ófrísk 45 ára, þá get ég það líka,“ segir Linda. Ef draumar leikkonunnar rætast, þá ætlar hún að hætta að leika í Dynasty og helga sig börnum og búi um aldur og ævi. Linda á að baki tvö misheppnuð hjónabönd, en vonar að allt fari vel í þetta sinn. Linda Evans og Richard Cohen í hálfs árs reynslusambandi. Co-workcrs bid fareweli lo ‘Iceman’ IWSIDE TODAY || *TrUI ef Oeee Alexa Kon Propemlch stars in court drama in Camera Koom/D4 Norm Pouitn 's HK HJts Dodgers. Clevtland's Bruce Kamsey sbuts dou-n Angels/Dl COSPER LOS ANGELES Islendingur lætur af störfum Plans to travel, attend classes Breeze retiret may Join famous 'Uoneydew Club’ — Það er leiðinlegt fyrir pabba að við skyldum gleyma tjaldsúlunni. Nýlega barst Fólki í fréttum í hendur dagblað frá Los Ange- les, The Daily Breeze, og þar er þess getið í forsíðufrétt að íslenskur starfsmaður á blaðinu sé að hætta eftir 31 árs starf. í fréttinni kemur fram að íslend- ingurinn, sem heitir Steini Guð- mundsson, hafi byijað að starfa sem setjari hjáThe Daily Breeze árið 1957. Hann hafi einnig unnið sem prófarkalesari, og í seinni tíð séð um tölvusetningu blaðsins. Sonur hans, Erick, starfar einnig á dag- blaðinu, en hann hóf störf í fram- leiðsludeild þess fýrir nokkrum árum. Steini býr í Redondo Beach ásamt eiginkonu sinni Margréti, sem hefur starfað við skreytingar, en lét af störfum í mars síðastliðnum. Þau eiga fjögur uppkomin böm, dóttur sem heitir Siga, og þijá syni, Erick, Pavl og Harold. Nú þegar Steini er sestur í helgan stein, þá hyggst hann fyrst og fremst nota tímann til ferðalaga, og ætlar jafnvel að byija á því að heimsækja Island. Steini ólst upp á Lindargötu 23 í Reykjavík, en foreldrar hans voru hjónin Guðmundur Matthíasson og Sigurrós Þorsteinsdóttir. Hann lærði prentiðn í ísafoldarprentsmiðju og starfaði þar áður en hann hélt vest- ur um haf. Þau hjónin fluttu til Kanada árið 1954, og bjuggu þau þar í þijú ár, en atvikin höguðu því síðan þannig, að þau tóku sig upp og fluttust til Kalifomíu þar sem þau hafa búið síðan. í

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.