Morgunblaðið - 26.06.1988, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 26.06.1988, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26, JÚNÍ 19,88 B 7 gripabúskapur er t.d. heppilegur þegar mikil landsvæði hafa verið tekin til skógræktar því nautgripir eru sáralítið hafðir á úthaga leng- ur. Mjólkurframleiðslan í landinu er ekki lengur háð úthaganýtingu. Kúabúskap þyrfti því ekki að skerða mikið þó upp yrði komið verulega mikilli nytjaskógrækt. Sauðfjárbúskap þyrfti að skipu- leggja með tilliti til skógarins á sama hátt, og einnig gæti hrossa- búskapur þrifist jafnhliða skóg- rækt með góðu skipulagi. Það er ekki alls staðar jafn heppilegt að rækta skóg. Ég er sannfærður um, eftir þeim gögnum sem ég hef séð frá Skógræktinni, að nytjaskógrækt ætti að geta gengið vel á völdum stöðum. Menn tala um sem heppileg svæði t.d. Fljótsdalshérað, uppsveitir Árnes- sýslu, jafnvel uppsveitir Borgar- fjarðar og hluta Eyjafjarðar. Hvað snertir heppilegar tegundir til ræktunar þá ræða menn um lerki og verulega ræktun á víði á Aust- urlandi en á Suðurlandi ræða menn um greni og Alaskaösp, svo stiklað sé á stóru. Ég er sannfærður um að fái bændur á þessum stöðum sem hér hafa verið nefndir nægi- lega launalega hvatningu, þá sé fyrir hendi möguleiki á nytjaskóg- rækt sem gæti gefið af sér tekjur. Ef við lítum til nágrannalanda t.d. Bretlands, þá er það svo að skógræktin er þar annars vegar á vegum ríkisins og hins vegar á vegum auðmanna sem hafa gjam- an tekjur af einhveiju allt öðru en landinu. Ég held að skógrækt sé það mikið langtímaverkefni að það sé ekki á færi einstaklinga að stunda slíkt uppá eigin spýtur, nema að um sé að ræða vellaugð- uga menn sem ekki eru háðir skóg- rækt sem lifibrauði. Eigi nytja- skógrækt hins vegar að koma í stað hefðbundins búskapar þá get ég ekki séð annað en koma verði til launagreiðslur í einhveiju formi frá hinu opinbera til viðbótar þeim styrk sem gert er ráð fyrir við stofnkostnað. En hver yrði þá eigandi skógar- ins? Að mínu mati væri það óeðli- legt að skógur sem væri ræktaður þannig væri eign bóndans alger- lega. Um þetta yrði að gera samn- ing milli Íandeigenda og ríkisins. Það mætti t.d. hugsa sér að ríkið ætti tilkall til afurðanna í ein- hveijum ákveðnum hlutföllum. Landeigandinn fengi þá greidda leigu fyrir landið fyrst og fremst og að auki ákveðnar tekjur í sinn hlut. Það er hins vegar varla farið að ræða þessi mál á þessum grund- velli. En mín skoðun er sú að eigi að rækta nytjaskóg á þessu landi þá sé þar um að ræða fjárfestingu sem hið opinbera eða öll þjóðin leggur í, annað hvort í gegnum Skógrækt ríkisins eins og gert hefur verið hingað til í nokkrum mæli, eða þá í gegnum vinnu bænda. Mér finnst eðlilegt að bændur í sveitum landsins, sem margir hveijir eiga í erfiðleikum með að fá vinnu vegna samdráttar í búskap, fái að taka þátt í þessu. Sé réttlætanlegt að styrkja Skóg- rækt ríkisins til að rækta nytjaskóg þá finnst mér í sama mæli réttlæt- anlegt að styrkja bændur til þess arna. Mín skoðun er sú að það sé meira en réttlætanlegt að rækta nytjaskóg og ég tel að nota eigi tækifærið meðan fólk býr enn í sveitunum og fá það til að rækta skóg þar sem heppileg svæði eru til þess, það kann að launa sig vel seinna. Nú er talað um fyrirsjáan- legan skort á viði í heiminum, ræktun nytjaskógar er langtíma fjárfesting, *neð henni erum við að skapa verðmæti fyrir framtí- ðina. Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir Pennavinir Tvær stúlkur óska eftir penna- vinum á íslandi. Önnur er 13 ára og frá Noregi. Með bréfi hennar fylgdi mynd og óskar stúlkan eftir pennavinkonu á líkum aldri. Nafn hennar og heimil- isfang er: Barbro Hardersen, Skolum 28, 9500 Alta, NORGE. Hin stúlkan er 15 ára og býr á Grænlandi. Hún óskar sömuleiðis eftir pennavinkonu á sama aldri. Aðaláhugamál hennar er handbolti. Nafn hennar og heimilisfang er: Johanne Zethsen, Solbakken 2A, BOX 135 3900 Nuuk GR0NLAND Brazilískur frímerkjasafnari sem safnar eingöngu ónotuðum frímerkjum og býður brazilísk merki í stað íslenzkra: Carlos Andre Gavinho, Avenue Joaquim Nabuco, 1094 Manaus, Amazonasa 69013, Brazil. Frá Japan skrifar 29 ára kona sem vill eignast íslenzka pennavini. Áhugamálin eru tónlist, bókalestur, frímerkja- og póstkortasöfnun: Takako Haniuda, 12-111 Kodan, 2- 45 Kasugigoten-cho, Nakahara-ku, Kawasaki, Kanagawa, 211 Japan. Sautján ára finnsk stúlka með áhuga á skíðum og öðrum íþróttum, ferðalögum, frímerkjum o.fl.: Vappu Lassila, Kivikatu 3-5A, 96400 Rovaniemi 40, Finland. Sautján ára japönsk stúlka með áhuga á bókalestri og saumaskap: Sachi Inosaka, 3- 310-103 Fujisawadai 1 chome, Tondabayashi-shi, Osaka, 584 Japan. Átján ár Ghanapiltur með áhuga á íþróttum, bréfaskriftum, tónlist, Ijósmyndun o.fl.: Mark Asiatu, c/o Post Master, Chiraa-Syi-B/A, Ghana. Tólf ára finnsk stúlka með áhuga á tónllilst o.fl.: Marjukka Jásberg, Kalliontie II, 20660 Littoinen, Finland. Frá Japan skrifar 28 ára kona með áhuga á ferðalögum, bóka- lestri, bréfaskriftum og garðyrkju: Wakako Otsuki Nimura, 1-4-504 Icchowari, Kanieshinden Kanie-cho, Ama-gun Aichi 497, Japan. Bandarísk húsmóðir og hjúkrun- arkona á fertugsaldri vill skrifast á við íslenzkar konur. Hefur m.a. áhuga á ferðalögum: Janice Monteleone, 7 Dogwood Court, Glen Head P.O., Upper Brookville, New York 11545, U.S.A. Frá Filippseyjum skrifar 27 ára gömul stúlka sem vinnur á sjúkra- húsi og hefur margvísleg áhugamál: Edna C. Marikit, Business Office, Cebu General Hospital, F. Ramos street, Cebu City, Philippines. BREYTT KÍLÓMETRAGJALD OG DAGPENINGAR í STAÐGREÐSLU FRÁ 1. JÚNÍ 1988 KÍLÓMETRAGJALD Frá og með 1. júní 1988 breytist áður auglýst skattmat á kílómetragjaldi, sbr. auglýsingu ríkisskattstjóra nr. 3 frá 4. janúar sl. og auglýsingu hans nr. 7 frá 25. maí sl. Mattil tekna á endurgjaldslausum afnotum launamanns af bifreið sem launagreiðandi hans lœtur honum I té hœkkar þannig: Fyrirfyrstu 10.000 km afnot úr 16,55 pr. km f kr. 16.85pr.km. Fyrir nœstu 10.000 km afnot úr 14,85 pr. km f kr. 15,10 pr. km. Yfir20.000 km afnot úr 13,10 pr. km í kr. 13,30 pr. km. Mat á endurgreiddum kostnaði til launamanns vegna afnota launagreiðanda af bifreið hans, sem halda má utan staðgreiðslu, hœkkar þannig: Fyrirfyrstu 10.000kmafnotúrl 6,55 pr.kmfkr. 16,85pr.km. Fyrirnœstu 10.000kmafnotúr 14,85 pr. kmíkr. 15,10pr. km. Yfir20.000kmafnotúr l3,10pr.kmíkr. 13,30pr.km. Fái launamaður greitf kílómetragjald frá opinberum aðilum vegna aksturs í þágu þeirra sem miðast við „sérstakt gjald" eða „torfœrugjald" sem Ferðakostnaðamefnd ákveður má hœkka kílómetragjaldið sem hér segir: Fyrir 1 -10.000km akstur-sérstaktgjaid hœkkun um 2,60 kr. pr. km. toríœrugjaid hœkkun um 7,00 kr. pr. km. Fyrir 10.001 -20.000 km akstur - sérstakt gjald hœkkun um 2,30 kr. pr. km. torfærugjald hœkkun um 6,25 kr. pr. km. Umfram 20.000 km akstur-sérstaktgjald hœkkun um 2,05 kr. pr. km. torfœrugjald hœkkun um 5,55 kr. pr. km. DAGPENINGAR Frá og með 1. júní 1988 breytist áður auglýst skattmat á dagpeningum, sem halda má utan staðgreiðslu, sbr. auglýsingu ríkisskattstjóra nr. 3 frá 4. janúar sl., þannig: Almennir dagpeningar vegna ferðalaga erlendis; NewYorkborgSDR 150, óbreyttSDR 150 Noregur og Svfþjóð úr SDR165ÍSDR170 AnnarsstaðarúrSDR 150ÍSDR155 Við það skal miða að almennir dagpeningar vegna ferðalaga erlendis skiptist þannig: Vegna gistingar 50%. Vegna fœðis 35%. Vegna annars kostnaðar 15%. Sé hluti af ferðakostnaði erlendis greiddursamkvœmt reikningi frá þriðja aðila ogjafnframt greiddir dagpeningar skal miða við framangreinda skiptingu við mat á þvl hvort greiða beri staðgreiðslu af hluta greiddra dagpeninga. Dagpeningar vegna þjálfunar, náms eða eftirlitsstarfa: New York borg SDR 95, óbreyttSDR 95. Noregur og Svipjóð úr SDR105 f SDR 110. Annars staðar úr SDR 95 f SDR100. Dagpeningar vegna ferðalaga innanlands: ? RSK RÍKISSKATTSTJÓRI Gisting og fœði í einn sólarhringúr kr. 3.960,- í kr. 4.665,- Gistingíeinnsóiarhringúrkr. 1.890,-íkr. 1.915,- Fœði hvern heilan dag, minnst Wtfrna ferðalag úrkr. 2.070,- f kr. 2.750,- Fœði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag úr kr. 1.035,-íkr. 1.375,-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.