Morgunblaðið - 26.06.1988, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.06.1988, Blaðsíða 20
2Q, B Rí»C MORGUNBUA£)I£),[ SUNNUDA*3URí26: TJÓNÉ1988 Áfram, í allar áttir! Margir kannast án efa víð lagið Mústafa um Tyrklandsför Svav- ars Gests. Nýlega barst plöturýni í hendur platan Shopping með tónlistarmönnum sem kalla sig 3 Mustaphas 3 og eiga það sam- eiginlegt með laginu, auk nafns- ins, að vera ekki af alvarlegra taginu. Allir sveitarmeðlimir bera eftir- nafnið Mustapha, þó öruggar heimildir séu fyrir því að þeir séu ekki bræður, frændur, eða yfirleitt skyldir á neinn hátt. Fornöfnin eru og grunsamleg ög ótúlegt þykir mér ef nokkur maður heitir Ex- pensive Mustapha, þó svo hann leiki á gylltan lúður með kögri. Tónlistin sem leikin er á plötunni er ekki siður einkennileg, einskon- ar blanda af vestrænní, tyrkneskri, líbanskri og indverskri tónlist. Gott dæmi er lagið Shika, Shika (Haltu mér, haltu mér), sem sungið er á swahili og líkist mikið dæmigerðri líbönsku ástarlagi, en á köflum bregður fyrir bresku poppi og ind- verskum ghazal-söng. Annað lag, sem gerir mann ráðvilltan, er lagið Xamenh Evtexia / Fiz’n, sem sung- ið er á blöndu af ensku og serbó- króatísku og eins mætti kalla fyrir- taks rap-lag, ef ekki væru innskot af allskyns tónlistarbrotum á ólík- legustu stöðum. Ekki bætir úr að textinn fjallar að mestu um nauð- sýn þess að koma ísskáp inn á hvert heimili á Balkanskaga. Strax á eftir þvi lagi er áheyrandinn síðan kominn aftur til Líbanons í laginu Musafir, sem sungið er á hindi. Hljóðfæraskipan er fjölbreytt sem vonlegt er, en á meðal hljóð- færa má nefna fiðlu, harmonikku, jassflautu, albanskt kaval, bouz- ouki, darbouka, búlgarskt kaval, víólu, cúmbiis og tenórbanjo, auk allra venjulegra (og óvenjulegra) rafmagnshljóðfæra. Ekki er vel Ijóst hvað 3 Mustaph- as 3 ætlast fyrir, en það mega þeir eiga að platan Shopping, er ein skemmtilegasta plata sem rýn- andi hefur komið höndum yfir lengi, lengi. Ekki er úr vegi að enda þessa rýni á vígorði þeirra Mustapha- manna: Áfram, í allar áttir! ÞÓRSMÖRK - SJÁLFBOÐALIÐAR Ungmennahreyfing Rauöa kross íslands gengst fyrir landgræðsluverkefni í Þórsmörk dagana 3.-10. júlí nk. Þátttakendur verða frá öllum Norðurlöndum og eru á aldrinum 16-25 ára. Enn er hægt að bæta við nokkrum þátt- takendum. Nánari upplýsingar um ferðina eru gefnar í síma 91-26722 frá kl. 8.00-16.00. Rauði Kross'lslands Ljósmynd/Gyða Simon Nkabinde, Malathini, dansar fyrir áheyrendur. Mbaqanga frá Soweto Átónleikum með Malathini, Mahotella-drottningunum og MakgonaTsohle-hljómsveitinni Mbaqanga er suður-afrisk dans- tónlist sem lifað hefur í Soweto og víðar í yfir þrjátíu ár. í dag er tónlistin vinsælli en nokkru sinni þar syðra, eftir að diskó- og rokk- æðið rénaði. Mbaqanga-tónlist nýtur nú vaxandi hylii í Vestur- Evrópu, þá helst fyrir tilstilli söngv- arans snjalla Simon ’Nkabinde, sem er þekktari undir nafninu Malathini. Fyrir skemmstu hélt Malathini tónleika í Lundúnum með söng- flokknum Mahotella-drottningunum og Makgona Tsohle-hljómsveitinni og barst Rokksíðunni þessi frásögn með myndum frá tónleikunum: Soweto-dans Malathini og Mahotella-drottn- ingarnar voru aðalnúmer kvöldsins á danshátíð í South Bank 10. júní sl. Tónleikastaðurinn er hringlaga með sætaröðum utan við hringinn, en í miðju var mikið dansgólf. Þegar fyrstu hljómsveitirnar, Badoo Int- ernational og Dagarti Arts, höfðu lokið sér af var dansgólfið þéttskip- að, en uppselt var á tónleikana og voru um þúsund manns á staðnum, auk þess sem fjöldi manns var fyrir utan og hlustaði á tónlistina í gegn- um þunna veggina. Fimm manna Makgona Tsohle- hljómsveitin kom á sviðið (tveir gítarleikarar, trommuleikari, saxó- fónleikari og bassaleikari) og lagði þéttan rytmagrunn sem bar uppi hlæjandi saxófóninn. Þá dönsuðu drottningarnar þrjár inn á sviðið til að syngja og dansa á sinn afslapp- aða hátt. Malathini kom á svið í þriðja lag- inu, skrautlegur með fléttaða leður- kórónu. Hvernig innkoma hans var undirbúin minnti mig á það er ég fór á Muddy Waters-tónleika fyrir mörgum árum. Þá spurði ég einn nærstaddan, eftir að hafa horft á hljómsveitina leika í tuttugu mínút- ur, hver þeirra væri Muddy. „Stóll- inn,“ muldraði einhver. í þá mund kom gamall maður inn á sviöið, sett- ist í stólinn, einhver rétti honum gítar og hann kom hljómsveitinni, sem var búin að hita sig upp, inn á rétta braut með meiri krafti en áður. Svo var og með Malathini, sem leiddi hljómsveitina í hálfa aðra klukkustund í samfellda Soweto- danstónlist. Stórkostleg blanda af dimmu urri hans, háum samfelldum röddum drottninganna og þéttum takti. Þetta var hinn ósigrandi taktur Soweto, drífandi og glaðvær. Þessa tónlist hafa þau leikið í þrjátíu ár og það mátti sjá á því hvernig þeim tókst að halda áheyrendum gersam- lega hugföngnum. Hljómsveitar- meðlimir voru brosandi og hlæjandi allan tímann og skemmtu sér greini- lega yfir andrúmsloftinu í salnum, sem var í samræmi við tónleikaferö þeirra um Evrópu, en uppselt hefur verið á alla tónleika í þeirri ferð. Á tónleikunum mátti heyra að þótt nýja platan sé góð vantar í hana örlítið meira líf. Mahotella-drottningarnar. Rótartónlist af þessu tagi hlýtur að hjálpa við að brjóta niður þröngt skipulag tónlistariðnaðarins, sem beinist allur að unglingapoppi. í Afríku leika Malathini og hljómsveit hans danstónlist fyrir alla; einu tak- Ljósmynd/Gyða mörkin eru stjórnmálalegs eðlis. Frábærir tónleikar og ég hlakka til að sjá þau aftur. Texti: Peter Bishop Myndir: Gyða Jónsdóttir Tarsan var blúsmaður Timbuk 3, sem er dúett þeirra Pat McDonald og Barböru K. McDonald (talan 3 var tilkomin vegna þess að þriðji hljómsveitar- meðlimurinn var Sony Ghettoblast- er segulband með trommuheila), vakti mikla athygli í Bretlandi og hór á landi fyrir fyrstu plötu sína, sem bar heitið Greetings from Tim- buk 3. Þau Pat og Barbara, sendu nýve- rið frá sér sína aðra plötu, Eden Al- ley, sem gagnrýnenda barst í hendur fyrir skemmstu. Á Eden Alley halda þau að mestu sömu stefnu, enda hafa þau náð að skapa sér sérstakan stil úr blöndu af blús, rokki og bandarískri sveita- tónlist. I textagerð er Pat, sem sem- ur naer öll lög og texta, og samur við sig, því textarnir eru sambland af meinhaeðnum athugasemdum um bandarískan veruleika (þó enginn texti jafnist á við Life is Hard af Gre- etings from ...) og vangaveltum um lífiö og tilveruna almennt. Tónlistar- lega hefur hann þó veitt inn nýjum straumum, því breiddin er meiri á nýju plötunni en þeirri sem áður var út komin, um leið og einfaldleikinn er í hávegum hafður. Fyrsta lag plöt- unnar, Tarsan Was a Bluesman, er nokkuð dæmigert fyrir Timbuk 3, haröur taktur gefur grunninn fyrir þéttan söng og munnharpan gefur fyllingu, en textinn, sem er hreint fyrirtak, segir frá Tarsan, hvítum blúsmanni, sem berst við syndina í anddyri Holiday Inn. Á plötunni er annað lag sem á sitthvað skylt með mýtunni um Tarsan, lagið A Sinful Life, sem segir frá spámönnunum Bob Marley, Moses og Jesú og þar er þvi haldið fram að næst himnaríki verði komist með því að lifa í synd með þeim sem maður elskar. A Sinf- ul Life hefur og það sér til ágætis að i því er leikið lipurlega á harmonikku. Önnur lög sem vert að taka eftir eru Reckless Driver, hratt lag með góð- um samlíkingum f textanum, Eden Alley, gott lag þó textinn sé í það væmnasta, og Sample the Dog, sem í er leikið skemmtilega á stálgítar og notaöur „sampler", en textinn gerir einmitt gys að samplera-notk- un, sem tröllríður breskum og bandarískum poppheimi um þessar mundir. Lag það sem mest hefur heyrst, Easy, er einna venjulegast þeirra laga sem á plötunni eru, en gott engu að síður. I heild er Eden Alley ágætis plata og fylgir vel á eft- ir Greetings from ..., án þess þó að falla í þá gryfju að herma baraéftir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.