Morgunblaðið - 26.06.1988, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 26.06.1988, Blaðsíða 10
10 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 1988 I I Ragnhildur yngri sýnir Kára og ömmu hvernig menn bera sig að. Tíkin Úa fylgist áhyggju- full með. Með Gott að hjúfra sig að fnu ömmu. Morgunblaðið/Sverrir Ömmurnar með barnabörnin. ína Gissurardótt- ir (t.v.) með Halldór Heiðar og Ragnhildur Eggertsdóttir með Kára. sólina Voffi beit hann oggulítið í puttann. Þ AÐ ER sama hvar þau eru með afa eða ömmu, á rölti í bænum, á hestbaki upp í sveit, í sundi eða bara í stof uhominu heima, andlitin ljóma engu síður en sólin. Og ef horft er á eftir þeim þramma stuttum skrefum við hlið þeirra má lesa öryggið og trúnaðartraustið út úr baksvipnum litla. Stundum má líka lesa mont úr svipnum, þá skjóta þau neðri vörinni svo skringilega fram, en sá svipur kemur þegar þau eru að sýna viðstöddum veldi sitt, vitandi að afi og amma standa með þeim ef í harðbakkann slær. Og maður segir ekki eitt aukatekið orð þótt þau séu þreytandi, en þakkar einungis skaparanum fyrir alla góða afa og góðar ömmur. Hlutverk afa og ömmu hefur vissu- lega breyst frá því sem áður var, en það er ekki síður mikil- vægt núna þegar foreldrar vinna myrkranna á milli og hafa lítinn tíma aflögu. Afi og amma vinna kannski engu síður en foreldrarnir, en þau standa þó kannski ekki í „Koma á hestbak með ömmu?“ húsbyggingum og hafa ekki eins mikið að gera heima að vinnudegi loknum. En eitt hefur þó ekki breyst í gegnum tíðina og það er vináttan. Og við höfum öll rétt til að eiga bamabamið að vini.“ Þessi orð mælir friðaramman Ragnhildur Eggertsdóttir sem ný- lega stofnaði samtökin „Frið- arömmur“ ásamt fleiri ömmum. ína Gissurardóttir er ein þeirra og ætla þær tvær að rabba við mig um hlut- verk afa og ömmu, aðallega ömmu- hlutverkið í þetta sinn. Ragnhildur er 4ja barna móðir og á þrjú barna- böm, 2ja ára, 4ra ára og 8 ára. ína á 3 böm, varð amma fyrir tveimur árum og segist því ekki hafa jafn- mikla ömmureynslu og Ragnhildur en hefur þó ýmislegt til málanna að leggja. Ómannúðlegar kröfur til ungra kvenna Vís maður sagði: Það versta við bamauppeldið er, að þegar maður er útlærður í faginu er maður búinn að missa atvinnuna. Ég spyr ömm- urnar hvort fólk sé að reyna að bæta sér upp eitthvað með barna- bömunum sem hafi mistekist í upp- eldi eigin barna, og þær segjast álíta að flestir sjái eitthvað sem þeir hefðu viljað hafa öðruvísi. Þol- inmæðin er meiri við bamabömin, viðurkenna þær, en þó bjuggu þær við allt aðrar aðstæður en ungar mæður gera í dag. „Við vorum heima með börnum okkar og nutum Svo leiddist Uu þófið, tók í tau- mana og óskaði vinsamlegast eftir mynd líka. þess. Þá þótti það sjálfsagður hlut- ur að fyrirvinnan væri eiginmaður- inn eingöngu og jafnvel þótti sum- um þeirra það býsna niðurlægjandi ef konan þurfti að fara út að vinna. Það er gífurleg pressa á ungum konum núna og eiginlega skiljum við ekki hvernig þær fara að þessu. Það er ætlast til að þær mennti sig, komist áfram í atvinnulífinu, eignist húsnæði, bíl og innbú, en séu jafnframt fullkomnar mæður og uppalendur. Við þetta bætast síðan kröfur um fullkomið útlit og þykir sjálfsagt að þær þjóti í heilsu- ræktina í hádeginu. Þetta em ómannúðlegar kröfur sem vitanlega bitna á bömunum. Það er nóg að sinna einu starfi í einu og þegar við vorum heima þá var nóg að gera jafnhliða bama- uppeldinu, því allt var búið til heima, frá fatnaði og upp í lampa- skerma. Nú er allt keypt, bömin líka. Keypt með sælgæti, sjónvarpi, allt gefið annað en tíminn." Ekkí gamlar konur með prjóna — Fannst ykkur þið verða gaml- ar þegar þið urðuð ömmur, breytt- ist sjálfsímyndin eitthvað? Ragnhildur: Mér fannst ég alls ekki verða gömul en ég veit að það er mörgum sem finnst svo. Ég átti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.