Morgunblaðið - 26.06.1988, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 26.06.1988, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 1988 nauðsynlegt fyrir mann eins og hann til að fá vegabréf til útlanda, fékkst ekki. „Þeir sögðu mér, að væri ég lélegur vísinda- maður, þá myndu þeir leyfa mér að fara. En þar sem ég væri mjög góður vísindamaður, þá vildu þeir ekki gera Bandaríkjamönnum þann greiða að leyfa mér að fara. Sjálfír eru ' þeir lélegir vísindamenn. Þeir geta ekki keppt við mig og þess vegna fékk ég ekki leyfí til að fara.“ Eftir hávært rifrildi við tvo meðlimi akade- míunnar kvaðst Maksim hafa sent kvörtun til Gorbatsjovs. Maksim var síðan kallaður rakleiðis á fund með mönnum úr miðstjóm kommúnistaflokksins. „Við stjómum þessum málum ekki lengur," var honum sagt af manni, sem fór þar með vísindamálefni. „Þetta er fræðileg deila milli þín og starfs- bræðra þinna.“ „Þetta var það furðulegasta, sem ég hef nokkru sinni heyrt,“ sagði Maksim við mig. „Þessir menn eru starfsbræður mínir. Þeir em reyndir vísindamenn og til þess er ætlazt, að þeir leiðbeini, vemdi og hjálpi mér. Þeir eiga að vera fyrirmynd. Allur sá árangur, sem ég hef náð á mínum ferli, hefur náðst þrátt fyrir það, að þeir vom til staðar. Helmingur- inn af tíma mínum fer í að plata kerfíð, svo að rannsóknastofan geti starfað. Ég myndi aldrei gerast meðlimur í akademíunni jafnvel þó að þeir bæðu mig um það. Mundu hvemig þeir hundeltu Sakharov, þegar þeim var sagt að gera það, sinn eigin félaga og þann bezta, sem þeir hafa nokkm sinni átt. Þetta er sið- laus stofnun, sem hefur þann eina tilgang að viðhalda valdinu." A meðan ég hlustaði á hann gat ég ekki varizt þeirri hugsun, að þetta væm sams konar vonbrigði og sömu siðferðilegu vanda- málin og þau sem knúið hefðu marga vísinda- menn okkar kynslóðar til að gerast andófs- menn eða fara úr landi. En á síðasta áratug lét enginn maður það einu sinni hvarfla að sér að reyna að breyta kerfinu. Annaðhvort varð að aðlagast því eða fara burt eða vera undir það búinn að eiga á hættu fangelsisvist fyrir „andsovézkan áróður". „Ert þú að verða að andófsmanni, Mak- sim?“ spurði ég. „Nei, alls ekki. Ég er þjóðhollur sovézkur þegn, sem er að gera nákvæmlega það sem Gorbatsjov biður mig að gera: Að ráðast á skriffínnskukerfíð neðan frá. Það eina er, að ég virðist ekki komast langt. Ég er líka í sjálfsmorðssveit „perestroika", ef þú vilt kalla það svo.“ Eftir viku umhugsun ákvað utanríkismála- deild vísindaakademíunnar að veita Vadim Nikiforov heimild fyrir málþingið, þar sem ég skyldi halda fyrirlestur minn. Vinir mínir töldu þetta í hæsta máta óvenjulegt og fóru að geta sér til hver hefði ákveðið að leyfa mér að tala og hvers vegna. Sumir töldu að þessi ákvörðun hefði komið frá miðstjóminni og að þetta væri gert í áróðursskyni rétt áður en fyrirhugað var að Gorbatsjov færi til Washington. Aðrir töldu að ákvörðunin kæmi frá meðlimum akademíunnar, sem vildu ekki spilla fyrir samkomulagi því er gert hafði verið milli Bandaríkjanna og Sovétríkj- anna um skiptiferðalög vísindamanna. Enn var þriðja skoðunin uppi á þann veg, að öll heimsókn mín, þar á meðal málþingið, væri tilraun KGB, sem ekki yrði endurtekin, til að kanna hversu langt mætti fara í því að losa um hömlumar. Hver svo sem ástæðan var, þá bárust fréttir um fyrirhugaðan fyrir- lestur minn fljótt um Moskvu með atbeina síma og handskrifaðra tilkynninga. Ráðstefnusalur erfðafræðistofnunarinnar reyndist of lítill til að geta tekið alla gestina. Fyrir þau 200 manns, sem komu til að hlýða á mig tala þessa síðdegisstund í október, var þessi atburður ekki síður fullur af pólitískri spennu en fyrir mig. Það sem aðallega dró fólk að, var að sjálfsögðu einsdæmi atviks- ins. Þama var maður, er komið hafði heim aftur frá Bandaríkjunum, þaðan sem þess var ekki vænzt að nokkur maður sneri til baka. Ámm saman hafði það verið stefna flokks- ins, að þeir, sem yfírgæfu Sovétríkin, væm í rauninni svikarar við föðurland sitt. Þeir, sem sóttu um vegabréfsáritun til útlanda, vom brennimerktir í fjölmiðlum og reknir úr vinnu sinni. Fyrir 15 ámm hafði ég sagt sam- herjum mínum frá því í þessum sömu húsa- kynnum, að ég hefði ákveðið að segja af mér starfí minu til að afstýra þvi að þeir yrðu fyrir vandræðum og hlífa þeim við því að þurfa að ræða „hina óþjóðholiu framkomu mína“ á fundum með samstarfsfólki sínu. Allir áheyrendumir að þessu sinni höfðu setið slíka fundi undir árvökm eftirlitsauga embættismanns frá flokknum og lyft hendi sinni í fullkominni hlýðni, er að því kom að fordæma „svikarana“. Nú sat flokksfulltrúinn í fyrstu sætaröð við hliðina á forstöðumanni stofnunarinnar og af svip hans mátti ráða, að hann vissi hvorki upp né niður. „Hvað okkur varðar mátti segja að þú hafir verið talinn af,“ sagði einn af vinum mínum síðar. „Við vomm hræddir við að skrifa þér og skömmuðumst okkar fyrir þessa Fundur í nýstofnuðu fólagl gyðlnga í Moskvu, sem haldinn var í íbúð Júríjs Sokol, fyrrverandl ofursta í hernum. að tollverðimir flýttu fyrir afgreiðslu bandarísks vísindamanns, sem flytti með sér efni fyrir sameiginlega rannsóknaráætlun. Það tók tollvörðinn ekki nema augnablik að gera sér grein fyrir því að vísindamaðurinn, sem var að koma, var landflótta Rússi á leið heim aftur. Háttsettur embættismaður hjá tollyfírvöld- unum kom á staðinn í fylgd tveggja leynilög- reglumanna frá KGB. Áthygli þeirra beindist þó fyrst og fremst að Maxim. Vegna skeggs síns og vestræns klæðaburðar leit hann næst- um út fyrir að vera tvíburabróðir minn og á meðan hann var yfírheyrður, rugluðu lög- reglumennimir okkur stöðugt saman. Svipur- inn með mér og Maxim gerði hann helmingi grunsamlegri. Hann gæti hafa falsað bréfíð, komizt inn í tollinn undir fölsku yfirskini eða verið þátttakandi í samsæri milli andófs- manna heima fyrir og „landflóttahópa". Eftir fleiri símtöl tókst þó að fá það stað- fest hver hann var og okkur var sleppt laus- um. Það sem mér kom svo á óvart á meðan þetta allt stóð yfir, voru viðbrögð Maksims. Hann var ekki hið minnsta hræddur. Satt að segja þá hrópaði hann til embættismann- anna:„Eg er prófessor úr vísindaakademíunni og þið skulið verða kallaðir til ábyrgðar, ef þið spillið fyrir þessu mikilvæga samstarfi." „Er þetta „glasnost", Maksim?" spurði ég, þegar við fórum frá flugvellinum. „Þetta er hættuspil," svaraði hann óræður á svip. Morguninn eftir fór ég með honum á rit- stjómarskrifstofur blaðsins Moskvufréttir, sem var málgagn fyrir „glasnost" og hafði það orðspor, að því er mér var sagt, að „vera jafnvel enn áhugaverðara en útvarpsútsend- ingamar hjá Rödd Bandaríkjanna (Voice of America)." Maksim átti þama grein, sem verið var að athuga. Á leiðinni til baka kom leigubílstjórinn með sitt eigið mat á umbóta- stefnunni. „Gorbatsjov," sagði hann, „er bara einn vindbelgurinn til viðbótar," sem „talar mik- ið“, á meðan ekkert breytist. Eftir sem áður væm sömu biðraðimar eftir matvælum, hús- næði og nú væri talað um að hækka verðlag- ið. „Glasnost" væri enn ein staðfestingin á því, sem hann hefði vitað allan tímann, að flokkurinn væri „hópur þjófa". Nei, hann myndi ekki ganga í flokkinn til að hjálpa Gorbatsjov og tryði því ekki, að umbótastefna hans ætti eftir takast. „Perestroika er goðsögn," sagði Vadim Buzychkin, ritstjóri Moskvufrétta. „Allt sem við prentum, er óskhyggja. Við emm að blekkja fólk og veita því falska öryggistilfinn- ingu. Fólk trúir því, að gagmýni sé leyfð og verið sé að hvetja allt og alla til að sýna frum- kvæði. Fólk setur sig í hættu, lendir i vand- ræðum og við getum ekkert gert til að vemda það. Við eigum í stríði við skrifræðið. Það em aðeins fáeinir menn á meðal æðstu ráða- mannanna, sem beijast fyrir umbótum. „Glasnost" getur tekið enda hvenær sem er og höfuð okkar verða þá þau fyrstu, sem fá að fjúka. Við emm sjálfsmorðssveitir fyrir „glasnost". Buzychkin þagnaði til að kanna, hvaða áhrif orð hans hefðu á mig. Ég hafði gengið inn í skrifstofu hans nánast beint utan af götunni og smeygt mér fram hjá verðinum með Maksim. Það var útilokað að Buzychkin væri undirbúinn undir þennan fund eða að KGB hefði talið hann á það að blekkja mig. „Óttast þú það ekki, að eitthvað kunni að verða haft eftir þér í New York TimesV spurði ég. „Ég sagði ekkert, sem var nýtt,“ svaraði Buzychkin. „Gorbatsjov segir það sama í hverri einustu ræðu sinni. Þar að auki mjmdi bæði hér og þó einkum á Vesturlöndum verða litið svo á, ef blaðinu okkar yrði lokað, að það væm endalokin á „glasnost" og að þar væri um pólitíska ákvörðun að ræða. Það sem við prentum í blaðinu gengur miklu lengra en það sem ég hef sagt við þig.“ „Hafíð þið frelsi til að birta allt sem þið viljið?" „Algerlega. í gamla daga var allt ritskoðað af eftirlitsmönnum. Nú emm það við sjálfír, sem ráðum. Ef við göngum of langt, þá fær aðalritstjórinn tilka.ll frá Tse- Ka,“ miðstjóm Kommúnistaflokksins. „Hann verður að út- skýra, hvers vegna við gerðum það. Fyrir skömmu var hann tvisvar kallaður á teppið, svo að við höfum verið varkárari upp á síðkas- tið. En við emm að minnsta kosti ekki lengur háðir smáskriffínnunum, sem em bara að sýna vald sitt. „Gætuð þið gagnrýnt utanríkisstefnu stjómarinnar?" „Við gætum það, en það myndum við ekki vilja gera.“ Þeir vildu ekki heldur birta grein Mak- sims, sem bar fyrirsögnina: „Hvers vegna þegja vísindamennimir?" Þar var miðstjómar- kennt fyrirkomulag á undirstöðurannsóknum í vísindum gagnrýnt, en því er stjómað í hinu geysiumfangsmikla stofnananeti Vísindaaka- demíunnar. Akademían er klúbbur nokkurra hundraða forréttindamanna en um leið of- boðsleg skrifræðisstofnun með fjárhagsáætl- un, sem nemur mörgum milljörðum og tugum þúsunda starfsmanna. í grein Maksims var því haldið fram, að til að gera sovézk vísindi samkeppnishæf yrði að dreifa völdunum þar á meðal þúsunda vísindamanna, sem í reynd væru að fást við vísindastörf. Þessi áætlun, sem samsvarar nokkum veginn bandaríska kerfinu fyrir vísindastyrki, myndi ná að draga úr því skrifræði sem stjómað er af meðlimum vísindaakademíunnar. „Aðalritstjórinn las greinina þína tvisvar og honum fannst mikið til um hana,“ sagði Buzychkin við Maksim. „En hún er of eldfím. Meðlimir akademíunnar bíta harkalega frá sér og þeir hafa mjög góð sambönd. Hvers vegna reynir þú ekki hjá öðru blaði?“ „Þetta er það, sem ég kalla „glasnost- jafnvægi“,“ útskýrði Maksim fyrir mér yfír heitu te í eldhúsi systur minnar. „Þetta er óstöðugt jafnvægi, það skaltu vita. Ég á í stríði við mafíuna í akademíunni, eftir að hún kom í veg fyrir ferðalag mitt til Banda- ríkjanna sl. sumar. Allir á stofnuninni bíða eftir því að sjá hversu langt verður þangað til þeir farga mér. En nú á dögum verður ekki svo auðvelt að eyðileggja mig — t. d. með því að loka rannsóknastofunni minni. Staðan milli okkar er því patt." Rannsóknir Maksims á samsetningu DNA hafa hlotið viðurkenningu út um allan heim. Honum hafði verið boðið að halda fyrirlestur um þetta efni við ríkisháskólann í Albany í New York og hafði fengið leyfí til fararinnar frá nefnd þeirri, sem sér um ferðalög til út- landa. Það þýddi, að kommúnistaflokkurinn og KGB höfðu ekkert á móti því að hann færi. En samþykki akademíunnar, sem var í helmsókn hjð gömlum vlnl og lœrlfööur, Andrej Sakharov.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.