Morgunblaðið - 26.06.1988, Qupperneq 11
0 MOHGUNBLAÐIÐ, ,SUNNUDAG«Rí26j IÚNÍ' :1868
RB «11
mín börn á aldrinum frá 17 til 33ja
ára og þegar síðasta bamið mitt
kom og ég þurfti að endurtaka þetta
allt saman aftur, fara með það í
skólann og þess háttar, þá hélt það
mér bara ungri. Þegar svo bama-
bamið kom sjö ámm seinna þá
hélt þetta áfram. Því þetta er það
sem heldur manni virkilega lifandi!
En það þarf að breyta
ömmuímyndinni, því hún er svo
sannarlega ekki lengur gömul kona
mej) pijóna.
Ina: Eg varð hreint ekki gömul,
ég varð rígmontin! En það er rétt,
margar konur fyrirverða sig fyrir
að verða ömmur, þær afneita því
ekki en eru alls ekki að flíka því.
Kannski er kona sem orðin er amma
ekki svo spennandi í þjóðfélagi þar
sem æskudýrkun ríkir. En við emm
nú allar að verða hundleiðar á þess-
ari æskudýrkun.
Það var stórkostleg tilfinning að
verða amma og halda á þessu brot-
hætta kríli í fyrsta sinn. Maður
varð hálf klaufalegur, sérstaklega
þegar kom að því að skipta um
bleyju, þessar nýju bleyjur era allar
með lími og mesti vandinn var að
líma ekki höndina fasta inni í bleyj-
unni í öllum átökunum.
Röflið í þessum ömmum
íslenskar friðarömmur em frið-
arsamtök sem hófu göngu sína í
janúar síðastliðnum. Ragnhildur var
lengi búin að bíða eftir því að á
íslandi yrðu stofnuð friðarsamtök
amma, hafði heyrt um slík samtök
í Noregi, en þegar hún eitt kvöldið
heyrði hræðilega frétt um fangels-
anir og pyntingar á bömum í Suð-
ur-Afríku, þá sá hún ekki minnstu
ástæðu til að bíða, hún gæti allt
eins átt fmmkvæðið að stofnun
slíkra samtaka sjálf. Hún hafði
samband við nokkrar ömmur sem
hún þekkti og þeim fannst þetta
góð hugmynd. „Við stöndum nú
frammi fyrir þeirri nöturlegu stað-
reynd að bamabömin okkar geti
orðið síðasta kynslóðin sem lifír hér
á jörðu og ofbeldi og stríðsógnir
vofa yfír sömu kynslóð. Þetta ætl-
um við okkur ekki aðgerðarlausar
að horfa upp á. Því munum við
beita okkur fyrir vemdun bama
með áherslu á að vinna gegn
stríðsógnum sem á þeim bitna
ásamt áherslu á uppeldi til friðar.
Við héldum opinn fund á Hótel
Sögu þann 8. maí síðastliðinn og
þar komu ömmur á öllum aldri, úr
öllum stéttum þjóðfélagsins. í
framtíðinni munum við halda fund
fyrsta þriðjudag hvers mánaðar kl.
20.30 á Hótel Sögu og þangað em
allar ömmur velkomnar. Þær sem
hafa áhuga geta einnig haft sam-
band við mig símleiðis."
Friðarömmurnar sendu utanrík-
isráðherra áskomn um að viðskipta-
bann yrði tafarlaust sett á Suður-
Afríku af íslands hálfu en ekki
beðið til haustsins um að slíkar
ráðstafanir yrðu gerðar meðan böm
þar og unglingar sættu fangelsun-
um og pyntingum. Varð ríkisstjóra-
in við beiðni þeirra.
Einnig hafa þær sent áskoran til
sjónvarpsstöðva um að sýna ekki
ofbeldismyndir fyrri part kvöldsins.
„Við búumst ekki við róttækum
breytingum svona fyrst í stað,“ seg-
ir ína. „Röflið alltaf í þessum ömm-
um segir kannski einhver, en við
vitum af kraftinum í okkur og það
verður ekki svo auðvelt að henda
okkur út!“
Að leysa vandamál
án ofbeldis
Þær munu einbeita sér að friðar-
fræðslu á næstunni og vinna að því
að námsefni þar að lútandi verði
samið. Þær hafa heyrt að Samein-
uðu þjóðimar hafí slíkt námsefni
undir höndum, en gera sér fulla
grein fyrir að slíku námsefni er
ekki hægt að bæta á kennarann
nema að á móti komi einföldun á
öðm námsefni. Þær segjast til
dæmis vel geta sætt sig við það að
bamabömin læri Örlítið minna í
mannkynssögu og landafræði.
„Það er svo mikilvægt að böm
læri að leysa vandamál sín án of-
beldis," segir Ragnhildur. „Að þau
læri það, að það er einungis sam-
vinnan sem gildir og að þau verði
að taka tillit til hvers annars og
bera virðingu fyrir annarri menn-
ingu, því þannig ná þau tengslum
við aðrar þjóðir. Sjónvarpið gæti
gert mikið gagn með því að vera
með efni um aðrar þjóðir, böm hafa
yfírleitt gaman af slíkum myndum.
Við ætlum einnig að snúa okkur
að því að myndbandaleigur flokki
efni sitt þannig að hægar verði fyr-
ir starfsfólk að afgreiða ekki böm
með ofbeldismyndir. Hjá kvik-
myndahúsum era sumar myndir
bannaðar bömum og ég get ekki
séð hvers vegna slíkt ætti ekki að
vera hægt hjá myndbandaleigum.“
„ Við þurfum að ná til foreldranna
líka,“ segir ína. „Það er lítil viska
í því að fylla leikskóla og dag- -
heimili af góðum og þroskandi leik-
föngum meðan alls kyns miður
æskileg leikföng em heima fyrir."
Ragnhildur: Tilfellið er að þetta
em ung og ný samtök, en eftir því
sem fleiri koma inn í myndina og
við hittumst oftar er ég sannfærð
um að þessi samtök verði öflug.
Fólk getur ekki lokað eyrum fyrir
því sem afar og ömmur hafa til
málanna að leggja, því þau hafa
reynsluna. Það verður erfítt að
þagga niður í okkur. Ég verð að
fá góð rök fyrir því að ekki verði
hægt að koma á friðarfræðslu."
— En hvers vegna era ekki
afarnir með í samtökunum?
„Við bíðum nú eftir að heyra um
að stofnuð verði afasamtök," segja
þær brosandi. „En okkur fínnst við
þurfa að fá tíma til að þróa og
móta samtökin út frá okkar reynslu.
Þeir þyrftu líka að móta sín samtök
án okkar íhlutunar, því sennilega
mundu þeir vinna öðmvísi að mál-
inu. En svo væri gott ef við samein-
uðumst."
Bestu vinirnir
Flestir afar og ömmur em á kafí
í atvinnulífínu og ég spyr þær hvað
þau geti nú gert til að halda góðum
tengslum við bamabamið sitt?
„Þróa vináttuna," segir Ragn-
hildur. Ekki bara þeirra vegna held-
ur einnig fyrir sjálfa þig. Þegar ég
heimsæki hana Evu, bamabamið
mitt sem er 4ra ára og býr fyrir
austan, þá fer ég yfírleitt inn í
bamaherbergið og þar leikum við
okkur saman.“
— Þú ferð sem sagt niður á
hennar plan?
„Ja eða upp á hennar plan! Svo
hringir sú stutta í mig að minnsta
kosti tvisvar í viku svona til að
ræða heimsmálin. Það mikilvæg-
asta er að gefa sér tíma. Tíma til
að leika við þau, lesa með þeim og
síðast en ekki síst horfa á sjón-
varpið með þeim og ræða um það
sem fram fer á skjánum svo þau
sitjiekki „með eitthvað inni í sér“.
Ég held að fólk sé búið að missa
sjónar á því sem skiptir máli, en
það em börnin og fjölskyldan, það
að vera saman. Böm era alin upp
í þessu samkeppnisþjóðfélagi þar
sem allir verða að eignast allt og
að þessu lífí verða þau að aðlaga
sig. Ég á bágt með að sætta mig
við þetta.“
— Hvers fara þeir á mis við sem
ekki hafa tíma fyrir bamabömin?
„Þeir sem ekki hafa lagt rækt
við að ná tilfínningasambandi og
trausti við bamabam sitt, þeir fara
á mis við einstakling og góðan vin.“
ína bætir við: Sumir em kannski
hræddir um að þeir séu að skipta
sér af uppeldinu. En við reyndum
að gera okkar besta á sínum tíma
sem foreldrar og við vitum að þau
era að reyna það líka."
— En hvað í ósköpunum er það
sem gerir afa og ömmu svona vin-
sæl?
„Ja ekki em það kleinumar svo
mikið er víst!
En við þurfum ekki að standa í
uppeldinu og getum því nálgast þau
á annan hátt — sem vini."
Viðtal: Kristín Marja
Veggskápasamstæður
frá Finnlandi.
Vandaðar og
ódýrar.
m.
HUSGOGN OG
INNRFTTINGAR
SUÐURLANDSBRAUT 32
ir
68 69 00
TILBOÐ ÓSKAST
í MMC Pajero Long S/W Turbo diesel árgerð '85 (ekinn 37 þús. km),
Ford Escort L árgerð '84, Suzuki Fox SJ 410V. árgerð '83, ásamt öðrum
bifreiðum, er verða sýndar á Grensásvegi 9 þriðjudaginn 28. júní kl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
SALA VARNARLIÐSEIGNA.
FORELDRAR ■ BÖRN
Reiðnámskeið verður haldið á félags-
svæði Andvara í júní og júlí.
Upplýsingar hjá
leiðbeinanda,
Svanhildi
Kristjánsdóttur
ísíma 689189 milli
kl. 11.30 og 12.30.
Hestamannafélagið Andvari
Garðabæ