Morgunblaðið - 26.06.1988, Side 12

Morgunblaðið - 26.06.1988, Side 12
12 B ■MCTRGUNBLAÐIÐ,’ SUNNUDAGtm 26. .IIJNÍ 1988 HUSGÖGN OG » INNRETTINGAR CO CQ .SUÐUHLANDSBRAUT 32 UO 09 Afmæliskveðja: Sigríður Arna- dóttir, Akranesi I dag, sunnudaginn 26. júní, fagnar 90 ára afmæli sínu — Sigríð- ur Árnadóttir, sem lengi var for- stöðukona Elliheimilis Akraness — nú búsett að Höfða á Akranesi. Sigríður er fædd á Heykollsstöð- um í Hróarstungu, N-Múlasýslu, þann 26. júní 1898. Ung fluttist hún með foreldrum sínum að Straumi og síðar Blöndugerði í sömu sveit, en á þeim jörðum bjuggu foreldrar Sigríður á upp- vaxtarárum hennar. Árni faðir hennar var sonur Árna Jónssonar bóna á Þverá í Hallárdal, A-Húna- vatnssýslu, og konu hans Svanlaug- ar Björnsdóttur. Er margt kunnra manna komið frá þeim hjónum á Þverá. Móðir Sigríðar var Þuríður, dóttir Kristjáns bónda Kröyer á Hvanná í Jökuldal og konu hans Elínar Margrétar Þorgrímsdóttur prests á Hofteigi í Jökuldal. Foreldrar Sigríðar eignuðust 7 börn og náðu 4 þeirra fullorðins- aldri. Þau voru auk Sigríðar, Emil Jóhann bóndi í Blöndugerði, Svan- laug sem lést af slysförum ung að árum og Kristbjörg, lengi fóstra í Reykjavík. Þau eru öll látin. Sigríður dvaldi í heimahúsum fram yfir tvítugt. Leið hennar lá svo til Seyðisfjarðar í saumanám. Síðan til Reykjavíkur þar sem hún vann hin ýmsu störf og einnig til Sandgerðis, en þar var hún ráðs- kona í allmörg ár. Þann 1. október 1946 urðu mikilvæg tímamót í lífi Sigríður, en þá gerðist hún for- stöðukona Elliheimilis Akraness. Því starfí gegndi hún af miklum myndarbrag í rúmlega 26 ár. Þar gerðist löng og merk saga, enda varð þetta hið raunverulega lífsstarf hennar. Á Elliheimili Akraness dvöldu að jafnaði 15 menn á umræddu tíma- bili. Húsakynni voru þröng og þæg- indasnauð, en notuð til hins ýtr- asta, enda þörfín þá mikil, rétt eins og nú. Hópurinn var sundurleitur, því auk hinna eldri borgara voru þar til heimilis ýmsir, sem áttu við sérvandamál að stríða og því ekki samleið með öðrum. Sigríður reynd- ist strax traustur stjórnandi og hagsýn húsmóðir. Vel var hugsað um fólkið og þarfir þess, andlegar sem líkamlegar. Þar leið öllum vel og enginn fór þaðan fyrr en hina einu sönnu ferð, sem öllum er búin. Sigríður sýndi mikla umhyggju fyr- ir fólkinu, sem þar bjó og hafði góðan skilning á fjármálum heimil- isins. Þannig ræktaðu hún lengi nægilegar kartöflur fýrir heimilið og rak einnig hænsnabú. Með því móti gat hún nýtt matarleifar sem til féllu og framleitt egg handa heimilinu. Slátur var gert á haust- in, svo sem siður var á betri bæjum. Fjárhagsvandamál í sambandi við elliheimilið voru óþekkt. Með Sigríði starfaði allan tímann Þorbjörg Jónsdóttir frá Vatnsenda í Vesturhópi, V-Húnavatnssýslu. Mikil öndvegiskona, sem vann að málefnum heimilisins með sama hugarfari. Lengi fram eftir árum sáu þær tvær alfarið um rekstur heimilisins. Þær bjuggu í heimilinu og unnu allt sem með þurfti, hvort sem var á nóttu eða degi. Síðar var farið að ráða fólk í afleysingar og einnig til annarra starfa, en alltaf var þar gætt mikillar hagsýni. Það var ánægjulegt að fýlgjast með hinu góða samstarfi þeirra Sigríðar og Þorbjargar að öllum málefnum elliheimilisins og um- hyggju þeirra fyrir hag þess og þeirra sem þar dvöldu. Umburðar- lyndi við þá sem þurftu hjálpar við og þjónustulund á allan hátt. Þar sem fáir starfsmenn vinna, skiptir mikilu máli að þeir séu gæddir þeim eiginleikum, sem nauðsynlegir eru í samskiptum við eldra fólkið og þá sem búa við skerta heilsu. Það er ekki aðeins þjónusta og matar- gerð heldur og umhyggjusemi og andlegur styrkur, sem slíku fólki þarf að veita. Uppörvun, glaðlegt viðmót og einlæg umhyggja er því mikils virði. Sigríði þótti vænt um starfið. Hún átti bæði myndugleik og góð- vild, svo það var vel af hendi leyst. Þá var hún einnig ágætlega verki farin og hinn mesti dugnaðarfork- ur. Vandamálin leysti hún jafnóðum og þau bar að höndum, en forðað- ist að safna þeim saman. Því varð þeirra svo lítið vart. Hún var úr- ræðagóð og hafði mikinn metnað fyrir heimili sitt og hag þeirra, sem þar dvöldu. Elliheimilið var rekið af bæjarstjórninni, sem bar hið fyllsta traust til Sigríðar. Allir voru um það sammála að á meðan henn- ar nyti við væri málum heimilisins borgið. Enginn ræddi um aldurstak- mark í sambandi við hana. Þegar hún hafði starfað í 25 ár sýndi bæjarstjórnin henni sérstakan þakklætisvott og viðurkenningu með fallegri gjöf. Það mat hún mikils og yljaði henni um hjartaræt- urnar. Starfi sínu sagði hún upp með venjulegum fyrirvara, eftir að hún náði 74 ára aldri. Hún lauk því í nóvember 1972 eftir rúmlega 26 ára farsæla þjónustu. Ég tel það mikið happ fyrir Akraneskaupstað að hún skyldi ráðast til elliheimilis- ins á sínum tíma. Síðustu 8 árin hefur Sigríður búið á Dvalarheimilinu Höfða. Ald- urinn ber hún furðu vel þrátt fyrir ýmis áföll, sem hún hefur hlotið hin síðustu ár. Hún er fróð og minnug um gamla tímann og segir vel frá. Alla tíð hefur Sigríður haft yndi af handavinnu og hefur listrænt handbragð hennar ekki leynt sér. Eftir hana liggur mikið safn af haglega gerðum munum. Föndrið á Höfða stundar hún alla daga af miklum áhuga og telur það veita sér mikla lífsfyllingu í ellinni og ómælda ánægju. Á þessum merku tímamótum í lífí Sigríðar vil ég flytja henni þakk- ir fyirr ánægjulegt samstarf er við áttum hér fyrr á árum og alla vin- áttu og tryggð síðan. í mínum huga er Sigríður gagnmerk kona, sem skilað hefur mikilvægu ævistarfi í þágu Akranesbæjar við hinar erfíð- ustu aðstæður. Slíkt verður aldrei þakkað sem vert er. Megi henni reynast ævikvöldið sem ljúfast. Daníel Ágústínusson Sófasett í sérflokki Úrvals leður - 4 litir Við fengum nýlega sendingu af finnska „Polaris" sófasettinu eftirspurða. í þessari sendingu eru eingöngu 3ja sæta sófi og tveir stólar. Hafðu það gott í HÓLMIMJM! Nú skaltu nota tækifærið frá sunnudegi til föstudags. Gisting í tvær nætur með morgunverði fyrir aðeins 4.900 krónur á mann í 2ja manna herbergi og innifalið í verðinu er sigling um BreiðaQörð. Hótel Stykkishólmur Sími 93-81330 Telex 2192 Vistlegt hótel í fögru umhverfi ☆ SCHILLER ☆ HÓTELSTJÓRNUNARSKÓLI ^ Leggið stund Aw á nám í Sviss við hótelskólann okkar í Engelberg - sem erfyrsta flokks skíða- og sumarleyfisstaður. Nemendur læra, starfa og búa á Hotel Europe, sem gefur þeim kost á að kynnast rekstri og starfsemi hótela og veitingahúsa bæði bóklega og verklega. Kennt er á ensku. Námið veitir: ★ Kunnáttu í tungumálum og stöifum við móttöku á hótelum, sem staöfest er með vottorði frá skólanum. ★ Próf í hótelstjórnun. ★ Starfstími á hóteli erlendis. ★ Fyrri hluta til námsgráðu í viöskiptastjórnun (ABA). Schiller er eini hótelstjórnunarskólinn á háskólastigi sem kallast getur alþjóðlegur. Skólinn starfar í tengslum við hótel í Engelberg í Sviss, Strassborg, Paris og Lundúnum. Skólinn býður uppá styttri námskeiö, fyrrihlutanám til háskólaprófs og háskólagráðu í hótel- stjórnun og fleiri námsbrautum. Frekari upplýsingar: SCHILLERINTERNATIONAL UNIVERSITY (Dept SW5) 51 Waterloo Road, London SE1 8TX Tel (01) 928 8484 Telex 8812438 SCOL FAX 6201226 Þakka sonum mínum og tengdadœtrum höfð- inglega gjöf d áttrœÖisafmœli mínu 25. maí sl. Ennfremur þakka ég frœndsystkinum og mök- um þeirra góÖar gjafir. LifiÖ heil! Magnús Ögmundsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.