Morgunblaðið - 26.06.1988, Page 21
' MOROUNBLiAÐIÐ,' SUNNUDAGUHÍSé: !.JÖNÍ71988
a rfs 21
Kona í fyrsta siiin skipstjóri
á bandarísku úthafsskipi
Siglir jómfrúrferð sína til íslands á skólaskipinu Texas Clipper
BANDARÍSKA skólaskipið Tex-
as Clipper er væntanlegt til
Reykjavíkur þann 8. júlí næst-
komandi. Skipið er undir stjórn
Ann Sanborn, en hún er fyrsta
konan sem er skipstjóri á banda-
rísku úthafsskipi. Texas Clipper
fer á hveiju sumri í 72 daga sigl-
ingu og er þetta 24. ferð skips-
ins. Um borð er starfræktur
skóli, þar sem meðal annars eru
kenndar hefðbundnar mennta-
skólagreinar auk starfsþjálfunar
á skipinu. Það er háskólinn Tex-
as A&M University í Galveston
sem stendur fyrir þessum ferð-
um skipsins.
Texas Clipper er 473 feta skóla-
skip og ferð þess nú markar tíma-
mót í atvinnusögu bandarískra
kvenna. Ann Sanborn skipstjóri er
33 ára gömul og fyrst kvenna til
að vera skipstjóri á úthafsskipi í
bandaríska kaupskipaflotanum.
Sanbom varð árið 1985 fyrst
kvenna til að fá ótakmörkuð skip-
stjórnarréttindi frá Texas A&M
University. Nokkrar bandarískar
konur hafa hafa síðan fengið þessi
réttindi, en Ann er þeirra fyrst til
að sigla sem skipstjóri.
Ann er fædd í Portsmouth og
faðir hennar var höfuðsmaður í
bandaríska flotanum. Hún hóf nám
í Galveston 1975 með öðmm
kvennahópnum sem fékk ingöngu
í skólann. Hún hafði alltaf haft
áhuga á sjómennsku, enda úr flota-
SANITAS KYNNIR
#
fjölskyldu. Hún var þó ekki viss um
að það gæti gengið, þar sem það
„ryfi hefðirnar" að vera kona á sjó.
Eftir að hún útskrifaðist sendi
Ann út 67 numsóknir um störf á
sjó. „Ég fékk heilmörg stórkostleg
neitunarbréf," segir hún, en ein-
beitni hennar borgaði sig. Að námi
loknu hóf hún sjómennskuferil, sem
meðal annars fól í sér störf hjá
Exxon, Háskólanum í Washington
og flutninga- og dráttarbátaútgerð-
inni Sabine Towing & Transfer.
Einnig hefur hún kennt siglinga-
fræði og flutningatækni á sjó og
siglt sem yfirmaður í nokkmm ferð-
um Texas Clipper.
Texas Clipper er fljótandi skóli
með heimavistum, íþróttasal,
kennslustofum og mötuneyti um
borð. Nemendur um borð sækja
reglulega tíma í venjulegum
menntaskólafræðum eins og ensku,
stærðfræði og tölvufræðum auk
þess sem þeir fá kennslu í hagnýt-
um sjómennskufræðum, siglinga-
fræði og vélfræði.
Texas Clipper kemur til
Reykjavíkur klukkan átta að
morgni áttunda júlí og fer aftur á
sama tíma þann tólfta. Héðan held-
ur skipið áfram í hinni 72 daga
löngu ferð sinni og liggur leiðin
m.a. til St. Georges og Bermuda.
FNÆMISPRÓFAÐAR
FÁSTÍ NÆSTU VERSLUN
POTTÞÉTTAR
MULTIPLAN
Vandað námskeið í notkun töflureiknisins
MULTIPLAN. Þátttakendur fá góða æfíngu í að
nota kerfið og ýmis gagnleg útreikningslíkön, t.d.
víxla, verðbréf og fjárhagsáætlanir.
Tilvalið námskeið fyrir þá sem vilja nota nútíma
aðferðir við útreikninga og Qármálastjórn.
Ath.: Á námskeiðinu er notuð nýja Multiplanbók
Tölvufræðslunnar.
I V2 lítra dósum
— á sama verði
og þær litlu!
Sanitas
BPooHg sokn
VR og BSRB styðja sína félaga til þútttöku á námskeiðinu.
Tími:4.-7.júlíkl. 17-20.
Innritun daglega frá kl. 8-22 í simum 687590 og 686790
TÖLVUFRÆÐSLAN
Borgartúni 28.
XI l_ SÖLU
Buick Super, árg. 1947.
Einn merkasti fornbíll á íslandi.
Ekinn aðeins 17.894 km. Einn eigandi frá upphafi.
Einungis falur fyrir þann sem vill flytja hann óskemmd-
an inn í framtíðina.
Upplýsingar í síma 91-11264 í kvöld og næstu kvöld.
Zaaussi gastækjum
geta veitingahús sparað orku um
leið og þau auka gæðin!
Auk þess seljum við borðbúnað fyrir hótel og
tæki í stóreldhús.
I Hag
L®
Hagkvæmni, hönnun, gæði.
JOHANN OLAFSSON & CO. HF.
43 Sundaborg I3 - I04 Reykjavík - Sími 688 588
Starfsfólk
óskast
ýmist í fullt starf
cða hlutastarf
Skrifstofufólk
Starfsmenn óskast til sumarafleysinga og í fast
starf við ræstingar og í býtibúr á Landspítala.
Vinnutími í býtibúri er 17.00 - 21.00 og við ræst-
ingar 16.00 - 21.00.
Nánari upplýsingar veitir Katrín Gústafsdóttir,
ræstingastjóri í síma 601530.
Sjiikraliðar
Sjúkraliðar óskast til frambúðar og í sumarafleys-
ingar á Vífilsstaðaspítala. Um er að ræða fullt
starf og hlutavinnu í vaktavinnu.
Upplýsingar gefur hjúkrunarframkvæmdastjóri í
síma 602800.
RÍKISSPÍTAIAR
STARFSMANNAHAUD