Morgunblaðið - 24.07.1988, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1988
B 5
Afmæliskveðja:
Jóna Vilhjálms-
dóttir Skagaströnd
15. júlí sl. varð Jóna Guðrún
Vilhjálmsdóttir, Lundi, Skaga-
strönd, 70 ára.
Hún er fædd á Siglufirði 15. júlí
1918. Foreldrar hennar voru Aðal-
björg Jónsdóttir frá Minna-Holti í
Fljótum og maður hennar Vilhjálm-
ur Magnús Vilhjálmsson frá Húna-
koti í Þykkvabæ, er telur ætt sína
að rekja til sr. Jóns Sigurðssonar
er var prestur í Kálfholti er hafði
að viðumefni Jón Bægisárkálfur er
talinn var af mörgum sonur sr.
Jóns Þorlákssonar á Bægisá.
Jóna ólst upp með systkinum
sínum þar til hún var níu ára göm-
ul. Þá fluttist hún til Reykjavíkur
árlangt, en 1927 fór hún til dvalar
að Ásbúðum á Skaga í Húnavatns-
sýslu. Þar ólst hún upp hjá hinum
Bretland:
Thatcher
bíður ósigur
London. Reuter.
Forsætisráðherra Bretlands
Margaret Thatcher beið ósigur í
Lávarðadeild breska þingsins á
þriðjudag þegar tillögu stjórnar-
innar um að almenningi verði
gert að greiða fyrir ákveðna
þætti heilsugæslu var hafnað.
Nokkrir fulltrúar flokks hennar,
lhaldsflokksins, greiddu atkvæði
gegn tillögunni.
Meirihluti fulltrúa í deildinni
greiddi atkvæði gegn tillögunni sem
felur í sér að almenningi verði gert
að greiða fyrir ýmis konar heilbrigð-
isþjónustu svo sem tann- og augn-
skoðun.
Breska ríkisstjórnin hefur enn
ekki ákveðið hvort leggja beri tillög-
una fyrir neðri deild þingsins en
talið er að nokkrir þingmanna
íhaldsflokksins þar séu henni
andvígir.
Kína:
Skaut sex
í æðiskasti
Peking. Reuter.
Sagt var frá því á fimmtudag í
dagblaði, sem gefið er út í Pek-
ing, að þarlendur lögreglumað-
ur, sem var við æfingar í æfing-
arbúðum kínversku lögreglunn-
ar norðarlega í Kína, hefði geng-
ið berserksgang og skotið sex
menn áður en hann var sjálfur
tekinn af lífi.
Lögregluþjónninn misst stjórn á
skapi sínu eftir að yfirmaður hans
í búðunum refsaði honum fyrir að
hafa notað bifhjól í óleyfi.
Eftir að hafa skotið yfirmannin
og annan starfsmann búðanna lagði
maðurinn á flótta á bifhjóli. Á flótt-
anum skaut hann fjóra óbreytta
borgara til bana.
Seinna lagði maðurinn bifhjólinu
og hélt flóttanum áfram á reið-
hjóli. Að lokum króaði lögreglan
flóttamanninn af í auðri byggingu.
Einum og hálfum sólarhring síðar
var hann tekinn af lífi.
merku hjónum Ásmundi Árnasyni
og Steinunni Sveinsdóttur frá
Hrauni. Þar átti hún góðu að mæta
á þessum árum, þegar unglingurinn
er að mótast.
Jóna var ung stúlka á Mallandi
á Skaga er hún kynntist efnis-
manni, Skafta Jonassyni Fanndal
frá Fjalli í Skagahreppi. Hafði for-
eldrum Skafta búnast þar vel, túnið
var stórt, greiðfærar engjar út frá
því en snjóþungt á vetrum. Útræði
var undir Brekkunni, er gaf á sjó.
— Skafta var ætlað að verða bóndi
á Fjalli, enda dugnaðarmaður til
lands og sjávar.
Jona og Skafti giftu sig á þjóð-
hátíðardaginn 17. júní 1939 í Ketu-
kirkju á þeim árstíma er sólin skín
í heiði og fegurst er í Skagafirði.
Sama dag giftu sig einnig í Ketu-
kirkju Jóhanna Jónasdóttir, systir
Skafta, og Angantýr Hilmar Jons-
son ljóðskáld sonur Guðrúnar Árna-
dóttur frá Lundi, skáldkonu, en
móðir Jónu Vilhjálmsdóttur og Guð-
rún frá Lundi í Fljótum voru
bræðradætur. Var þetta hin hátíð-
legasta stund meðal þeirra ætt-
menna.
Jona og Skafti hófu búskap á
Fjalli 1939, en fluttu 1941 til
Höfðakaupstaðar er allt benti til
að væri í miklum uppgangi. —
Skafti var fjölhæfur maður er var
gott til vinnu ocr hafði nokkurn
búskap með. Hann stundaði jafnan
smíðar og sjómennsku. — Þau hjón
fluttu nú í lítið timburhús er Skafti
hafði smíðað úr sumarhúsi er Páll
Kolka hafði átt við Blöndu og
nefndu þau hjón húsið sitt Dags-
brún.
Þau hjón eignuðust 5 böm er
hafa verið góðir þegnar þjóðfélags-
ins, stofnað heimili og farnast vel.
Þau eru: Hjalti áður langferða-
bílstjóri milli Reykjavíkur og
Skagastrandar, nú stætisvagnabíl-
stjóri, Jónas bifreiðastjóri á Blöndu-
ósi, Vilhjálmur starfar við frystihús-
ið áíHólanesi, Þorvaldur útgerðar-
maður, og starfar mikið að félags-
málum, Anna Eygló, sem býr í
Njarðvíkum.
Þessi börn hafa stofnað heimili
með mökum sínum. Einnig ólst upp
hjá þeim Jonu og Skafta Valdís
T7» J J-
Citroén
á tilboðsverði
Við þurfum að rýma fyrir nýjum birgðum og bjóðum nokkra
2ÍÍÉK AX °8 BX bíla á tilboðsverði eins og að neðan greinir:
D N/ |
Verðlista- Afsláttur: Tilboðs-
BXyLeader verð: 595.000 47.000 verð: 549.000
BX16TRS 789.000 70.000 719.000
BX19GTI 999.000 70.000 929.000
BX19GTI16V 1250.000 103.000 1147.000
BX16RSBreak 899.000 40.000 859.000
BX19 TRS Break 989.000 50.000 939.000
/\ ££££«■■
| M A 1
Verðlista- Afsláttur: Tilboðs-
verð: verð:
AX 10 RE3 390.000 31.000 359.000
AX 10 RE 5 410.000 32.000 378.000
AX 11 TRE 3 430.000 31.000 399.000
AX 11 TRE 5 473.000 54.000 419.000
AX 14 TRS 3 474.000 45.000 429.000
AX 14 TRS 5 493.000 48.000 445.000
Aldrei áður höfum við boðið Citroén á slíku verði
- Látið því ekki happ úr hendi sleppa.
ES Komið á sýninguna um helgina og gerið góð kaup.
Creiðsluskilmálar við allra hæfi.
Opið sunnudag frá kl. 1 -5.
Heittá könnunni.
Gjobusi
Lágmúla 5
X-Jöfðar til
XXfólksíöllum
starfsgreinum!
JiOIÍ