Morgunblaðið - 24.07.1988, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 24.07.1988, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1988 flí O f B 13 Trollið tekið upp í skutinn og lásað úr rússanum og síðan er belgur- inn tekinn á kraftblökkinni. Vélstjórarnir Guðmundur og Kjartan í slag við leka á þrýsti- röri. Hráefni og gæði: Mikilvægasti gæðaþátturinn í þessari framleiðslu er að varðveita ferskleika og réttan lit. Bestur árangur næst ef rækjunni er haldið sem lengst lifandi í biðkeijum og með því að stytta vinnslu- og pökk- unartíma sem kostur er. Þá er mik- ilvægt að jafnvægi sé milli veiði- og frystiafkasta í skipinu svo rækj- an komist sem fyrst í frost. Biðtími rýrir alítaf gæði framleiðslunnar. Flokkun: Rækjuna þarf að flokka eftir stærð. Stærðarflokkar eru 50/70, 70/90, 90/110, 80/120 og 120/150 stykki í kíló. Stærðarflokkun verður að vera nákvæm. Sérstakar kröfur einstakra kaupenda verða tilkynnt- ar sérstaklega. Þvottur: Eftir flokkun skal þvo rækjuna, setja í plastbakka og flytja að pökk- unaraðstöðu. Gæta skal þess að biðtími verði ekki það langur að rækjan þorni. Vatnið eykur á sam- heldni blokka, myndar íshúð á rækju og ver hana frostbruna. Þær litabreytingar sem stafa af þomun og frostbruna gera rælquna verð- litla í Japan. Pökkun og frysting: Rækju fyrir Japan skal frysta í plötufrystum, lóð- eða láréttum, nema annað hafi verið leyft. Þegar 5 kílóa öskjur eru frystar í lóðrétt- um tækjum skal leggja stórt plast- blað í öskjuna, sléttfylla hana, bijóta plastið vel utan um rækjuna og loka. Frystitækin verða að vera með fullu frosti á þegar sett er í þau, en undir engum kringumstæð- um má hlaða tækin og setja síðan frost á þau. Eftir frystingu skal opna lokið, lyfta plastblaðinu og hella fersku vatni á yfírborðið til að mynda íshúð. Sama gildir þegar fryst er í láréttum tækjum nema að ekki þarf að hella vatni yfír rækjuna áður en gengið er frá öskj- unum í stærri pakkningar. Tveir stærstu flokkamir em sett- ir í 1 kílós öskjur en um þær gilda sömu vinnslureglur og á undan er lýst en aðeins má frysta þær í lárétt- um tækjum. Hitastig í miðri öskju af öllum stærðum verður að vera mínus 23 stig celsíus eða lægra áður en tekið er úr tækjunum og sett í fiystilest. Mjög mikilvægt er að flytja fram- leiðsluna í frystilest svo fljótt sem kostur er. Hitni ytra borð pakkning- ar er hætt við þomun síðar. Yfír- vigt skal vera 10% í 1 kg öskjunum og 8% í 5 kg öskjunum. Yfírvigtin á meðal annars að mæta brotinni rækju og smárækju." Eftirlit Næst var mjög ýtarlega kveðið á um hvemig ætti að ganga frá Rúnar skipstjóri og Hörður stýrimaður bera saman bækur sínar á vaktaskiptum. kössunum sem öskjunum væri rað- að í áður en rækjan er sett niður í frystilestina. Alla kassa ber að dagmerkja ásamt skipsmerkingu. Að lokum var fjallað um hvemig eftirliti með framleiðslunni skyldi háttað um borð: „Reglulegt eftirlit og skráning skal fara fram um borð og skulu upplýsingar vera til reiðu við löndun og úttekt í landi. Skrá skal kassa- flölda af hveijum fíokki daglega. Fýlgjast skal með stærðarflokkum og telja reglulega. Niðurstöður skal skrá. Allar athugasemdir um brotna, kramda, undirmálsrækju og fleira skal skrá. Japanskir kaupendur taka rækju venjulega út áður en þeir sam- þykkja kaup. Gæði, vigt, stærð, pökkun og fleira verða að standast kröfur kaupenda." Reglumar em ýtarlega og hnit- miðaðar enda borga Japanir allt að fímm sinnum meira fyrir stærstu rækjuna ef hún er unnin eftir þess- um kröfum heldur en Danir borga fyrir iðnaðarrækjuna svo aflaverð- mætið getur hækkað verulega ef vel tekst til. Fullt troll af drullu Akumesingur AK kom út úr þok- unni. Jonni skipstjóri kallaði í tal- stöðina: „Ég beygi í stjór, þá hlýt ég að sleppa enda liggur það út í stjór. Hvað segir þú um það Rúnar?" „Ég er byijaður að beygja í bak svo þetta sleppur örugglega," svar- aði Rúnar. „Seinni pungurinn er farinn að gelta hjá mér,“ hélt Jonni áfram. „Ætli það sé ekki komið tonn í. Þetta er að skána enda er full þörf fyrir það því trollið fylltist allt af drullu hjá mér í morgun." „Já, ég var að fá vigtina rétt áðan. Það vom um 1500 kg og þar af fóm um 40% í pakkningar en í morgun vom það liðlega 60% enda meira um smárækju yfir daginn," svaraði Rúnar. Nú kaliaði Virgar matsveinn í kvöldmat en skipstjórarnir héldu áfram að bera saman bækur sínar í talstöðina. Virgar bauð í veislu eins og venjulega en á morgun ætlaði hann að grilla út á dekki ef veður leyfði. Kvöldvaktin var nýbúin að borða og farin að leysa dagvaktina af því þó pökkuninni væri lokið í bili þurfti að slá úr pönnum, merkja kassa og hafa allt tilbúið til að taka á móti næsta hali. Eftirlitið verður að vera stíft FLUGLEIDIR tilkynna Við höfum nú opnað sjö nýjar úrvals biðstofur fyrir SAGA CLASS farþega á eftirtöldum flugvöllum: KAUPMAIMNAHÖFN - MAIRMAID LOUNGE KEFLAVÍK - SAGA CLASS BOSTON -AIRUNGUS CHICAGO - SCANORAMA NEWYORK - SAGA CLASS STOKKHOLMI - LOUNGE LINNÉ FRANKFURT - EURO LOUNGE Sigurður 2. stýrimaður var í umbúðageymslunni ásamt Sævari netamanni og hásetunum Einari og Guðjóni. Settar vom stærðarmerk- ingar og dagmerkingar fyrir öskj- umar sem átti að slá úr eftir tæpan klukkutíma samkvæmt skráningun- um í eftirlitsbókina. „Er allt skráð í þessa bók?“ spurði ég Sigga stýrimann. „Já og veitir ekki af. Japaninn sem kemur í úttektina þegar farm- inum verður landað skoðar bókina, telur hvem stærðarflokk fyrir hvem dag og ber allt saman. Þeir em mjög strangir," svaraði Sigurður og bætti við að það þyrfti að vera stíft svo menn fæm eftir reglunum. „Áttu við að vinnubrögðum hraki ef eftirlitið er ekki stíft?“ spurði ég og fletti í bókinni. „Já, ég skyldi ætla það. Því mið- ur er reynsla fyrir því,“ var svarið. Lffíð um borð heldur áfram sinn vanagang og allir em staðráðnir í að vanda vel til vinnslunnar því það er þeirra hagur. Andinn í mann- skapnum er líka á uppleið í góðu fiskiríi eftir daufa byijun á Dohm- banka og langt stím norður fyrir land. „Það er þægileg tilfinning að fínna gjöfult svæði eftir nokkra reiðileysisdaga," viðurkenndi Rúnar skipstjóri. Senn kæmi Hörður stýri- maður á vakt og eins myndi Kjart- an yfírvélstjóri taka við vaktinni í vélarrúminu og Guðmundur vél- stjóri gæti skoiað framan úr sér svarta oiíuflekkinn sem hann fékk í glímu við leka í þrýstiröri. Texti og myndir: Kristinn Benediktsson SAGA CLASS farþegar fá all- staðar úrvals þjónustu, þægilegt and- rúmsloft, úrvals lesefni, símaþjónustu, léttar veit- ingaro.fl. o.fl. Allar nánarí upplýsingar um SAGA CLASS veita söluskrifstofur Flugleiða og ferðaskrifstofumar. FLUGLEIDIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.