Morgunblaðið - 24.07.1988, Blaðsíða 15
MöRGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1988
B 15
Hópur hjúkrunarfrœðinga, talið frá vinstri: Kristín Þórarinsdóttir,
Suðrún Eggertsdóttir, Björg Pálsdóttir, Guðbjörg Davíðsdóttir, Guð-
rún Sigurjónsdóttir, Margrót Ásgeirsdóttir og Lilja Steingrímsdóttir.
„Á skíðum skemmt’ ág mór, tralalala." Fjallið Loðmundur í baksýn.
x X&jixMl
r -
>
Skíðað niður af Snækolli.
menn. Að sögn þeirra var dvölin í
Kerlingarfjöllum liður í æfingaáætl-
un sem samin hefur verið fyrir
landsliðið. Þau æfa sig í Kerlingar-
fjöllum í sumar en í vetur er stefnt
að því að fara til Austurríkis.
Æfingarnar eru teknar upp á mynd-
band, sem þau svo skoða til þess
að sjá hvað betur megi fara. „Þetta
er mjög tímafrekt og þegar við erum
erlendis á veturna þá æfum við allt
að sex tíma á dag. Það er líka er-
fitt að stunda vinnu eða nám með
æfingunum þvi lítill tími er aflögu,"
sagði Örnólfur og þau Guðrún og
Valdimar tóku í sama streng.
Tuttugasta sumarið í
Kerlingarfjöllum
Eyjólfur Kristjánsson tónlistar-
maður er einnig kunnur sem skíða-
kennari í Kerlingarfjöllum og í sam-
tali við Morgunblaðið sagðist hann
vera að hvíla röddina þarna uppi á
fjöllum. „Ég hef kennt hérna á skíði
síöan sumarið 1975 en kom hingað
fyrst 1968 þannig að þetta er
tuttugasta sumarið mitt í Kerlingar-
fjöllum." Kvöldvökurnar í Skíðaskó-
lanum eru frægar og þegar Eyjólfur
var spuröur hvort það þýddi nokkuð
að hlífa röddinni sagði hann að það
væri alltaf freistandi að taka undir
með hljómsveitinni á staðnum,
Skíðabroti. „Hins vegar fer ég að
spila aftur með Bítlavinafélaginu í
haust og þá verður röddin að vera
í lagi.“
Hljómsveitin Skíðabrot er skipuð
skíðakennurunum Þorgrími Kristj-
ánssyni, Örnólfi og Kristjáni Valdi-
marssonum. Að sögn Þorgríms
eflist hljómsveitin á hverju sumri
og er upp á sitt allra besta í sum-
ar. Þetta er annað sumarið sem
Þorgrímur kennir í Kerlingarfjöllum
en hann hefur undanfarna þrjá vet-
ur lært skíðakennslu í Austurríki.
Jónas Valdimarsson er yfirskíða-
kennari Skíðaskólans og að hans
sögn komu hátt á þriðja hundrað
manns á skiði i Kerlingarfjöll helgina
9.—10. júlí. „Námskeið standa frá
sunnudegi til föstudags en um helg-
ar eru svokölluð helgarnámskeið.
Þá kemur mikið af fólki hingað á
eigin bílum og þessa helgi voru um
80 jeppar hér.“ Jónas sagði það
vinsælt aö ganga á Snækoll, sem
er hæsti tindurinn á svæðinu, og
skíða niður en þaðan er útsýni fag-
urt.
Hjúkkur á skíðum
Svo skemmtilega vildi til að þeg-
ar blaðamaður heimsótti Skíðaskól-
ann voru þar tveir hópar af
hjúkrunarfræðingum. Annar var frá
Borgarspítalanum en hinn af
Landsspítalanum. Að sögn Guðrún-
ar Sigurjónsdóttur hjúkrunarfræð-
ings á gjörgæsludeild Borgarspítal-
ans vissu hóparnir ekki hvor af
öðrum og hittust þarna af tilviljun.
„Ég kom hingað fyrst á fjölskyldu-
námskeið fyrir tveimur árum og
hafði þá aldrei farið á skíði. Þá
horfði óg aðdáunaraugum á fólk
þeysast niður brekkuna en við byrj-
endurnir hóldum okkur á sléttunni.
Kennslan hér er mjög góð og fólk
tekur miklum framförum. Það er
alveg stórkostlegt komast út í nátt-
úruna svona fjarri stressinu í
Reykjavik,“ sagði Guðrún og stöllur
hennar voru á sama máli.
Mexíkó:
Pe Pe
látinn
Mexíkóborg. Reuter.
Pandabjörninn Pe Pe, faðir
flestra pandabjarna sem
fæddir eru í dýragarði, er
nú látinn. Pe Pe dó af völdum
krabbameins sem hafði hrjáð
hann lengi. Hann var þrett-
ánára gamall.
Pe Pe var, ásamt konu sinn,
fluttur til Mexíkó árið 1975.
Þar öðluðust þau frægð fyrir
að eignast sjö Pandabirni. Fjór-
ir þeirra komust á legg.
Pandahjónin voru fyrstu
pandabimir í dýragarði utan
Kína til að geta afkvæmi með
eðlilegum hætti.
Pe Pe verður stoppaður upp
og hafður til sýnis í gamla hús-
inu sínu í dýragarði Mexíkó-
borgar.
DAGVIST BARIV A
VESTURBÆR
Ægisborg, Ægisíðu 104
Fóstrur og/eða annað uppeldismenntað
starfsfólk óskast til starfa eftir hádegi frá
1. september.
Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður
í síma 14810.
FOSSVOGUR
Kvistaborg v/Kvistaland
Leikskólinn Kvistaborg v/Kvistaland ósk-
ar eftir fóstru og aðstoðarmanni í ágúst
eða september næstkomandi. Um er að
ræða hálf störf eftir hádegi.
Upplýsingar veitir forstöðumaður í
síma 30311 og skrifstofa Dagvistar-
barna sími 27277.
Hárgreiðslusýningin
heimsfræga
saipn
inKRnniiomL
88
haldin íEarls Court í London dagana 7.-1 L október
Getum útvegað að-
göngumiða á eftirtald-
ar sýningar:
Tony & Guy
Jingles International
Antenna
Cobella
Alan International
Rusk International
Tresemme
Trevor Sorbie
Aðalstræti 16 - Sími
621490
Verð með flugi, gistingu í
Y-hóteli í 4 nætur með morg-
unmat
k, 28.900,-
pr. mann í 2ja manna herbergi.
Verð með flugi, gistingu í 4
nætur í George hóteli
kr. 27.900,-
pr. mann í 2ja manna herbergi.
F E RÐASXRIFSTOFA
REYKJAVÍKUR