Morgunblaðið - 24.07.1988, Blaðsíða 16
16 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1988
-4
i
RiÖiÖ um Skálabrekkur.
GengiÖ hrygginn á milli Heljarkambs og MorinsheiÖar.
Gengiö niöur Bröttufonn frá Þrívörðuskeri að Heljarkambi.
Augliti tilauglitis viÖ hinn hrífandi Króksfoss.
RiÖiö yfir sporÖ Eyjafjallajökuls. Mýrdalsjökull ibaksýn.
Heimur heiðanna
A úöaslceöubalanum viö Króksfoss.
Viö Kœfufoss.
Við lögðum upp frá Skógum eft-
ir að hafa staldrað við hjá Skógar-
fossi sem er um 65 metra hár og
fellur fram af basalthellu í móberg-
inu sem Eyjafjöllin byggja að mestu
á. Móberg Eyjafjallanna er innan
við 700 þúsund ára gamalt en í því
eru sprungugoseldstöðvar sem hafa
gosið basísku hrauni ríku af ankar-
amítí. Yfir tuttugu fossar eru í
Skógánni og þar af eru þrettán
viðamestir og bera nöfn, en reiðtúr
eða ganga upp með, Skógánni er
ævintýri líkast þegar foss heilsar
af fossi.
Brekkan fyrir ofan Skógabæina
heitir Kvennabrekka, hún er bratt-
asti hluti leiðarinnar. Þó var riðið
léttilega þar upp, enda fóru þeir
fyrir Bergur í Steinum og séra
Halldór í Holti. Þegar komið er rétt
upp fyrir brúnir Kvennabrekku opn-
ast hinn dýrðlegi heimir heiðanna
í Ejöllunum. Farið var yfir Bæjar-
lækinn vestur heiði í átt að Skóg-
ánni og allt heitir sínum nöfnum á
þessari leið. Riðið var um Foss-
bogatorfu, Steinbogatorfu og Bjall-
höfuð í átt að Drangshlíðarfjalli en
ofar í hlíðinni er Rauðafell. Syðst í
í Drangshlíðarfjalli er Skóganúpur-
inn og þar fyrir ofan Melrakkadalur
sem er fögur náttúrusmíð og fínleg.
í góðu skyggni sést austur til Dyr-
hólaeyjar og út í Vestmannaeyjar.