Morgunblaðið - 24.07.1988, Page 18
18 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1988
A DROITINS m
Frá Austur-Þýzkalandi
Mótmælendakirkjan í Austur-
Þýzkalandi mun halda áfram að
styðja það fólk, sem óskar eftir
því að flytjast úr landi, segir Gott-
fried Forck, biskup mótmælenda
í Berlín-Brandenburg. Hann segir
að það hafl alltaf verið hlutverk
kirkjunnar að taka afstöðu með
réttlætinu, á því byggist þessi
stuðningur. Kirkjan biður stjórn-
völd að flnna réttláta lausn á
málum þeirra, sem óska eindregið
eftir því að fara úr landi, en biður
jafnframt umsækjendur um að
fara ekki fram á það, sem er
ómögulegt, og sýna þolinmæði.
Biskupinn hefur talað við fólk,
sem hefúr sótt um fararleyfl.
Sumt þess fólks hefur orðið fyrir
svo miklum óþægindum frá
stjómvöldum að það vill engan
veginn dveljast lengur í landinu.
Það reynir að krefjast afgreiðslu
mála sinna með því að vekja á
þeim athygli opinberlega en yfir-
völd hafa hegnt því fyrir það. Því
er jafnvel hegnt fyrir minnstu til-
Umsjón:
Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir
Séra Kristján Valur Ingólfsson
Þorhjörg Daníelsdóttir
Aðutan
raunir til að vekja athygli á óskum
sínum um brottför.
Forck biskup sagði að kirkju-
fólk heföi spurt um rétt kirkjunn-
ar til að blanda sér inn í mál, sem
vörðuðu ríkið og þjóðfélagið fyrst
og fremst. Það spyrði líka hvers
vegna kirkjan drægi taum þeirra,
sem væru alls ekki að hugsa um
kirkjuna og boðun hennar heldur
vildu breyta þjóðfélaginu og væri
efst í huga að uppfylla sínar eigin
óskir um að yfirgefa land sitt.
í svari sínu til þessa fólks skýr-
skotar Forck biskup til Barmen-
yfirlýsingarinnar frá 1934, sem
byði kirkjunni að hafa boðorðin
og réttlæti Guðs í huga jafnframt
ábyrgð þeirra, sem stjóma og lúta
stjórn.
Lúterska kirkjan í
E1 Salvador opnar
mannréttindaskrif stof u
Lúterska kirkjan í E1 Salvador
hefur opnað nýja skrifstofu til að
fjalla um mannréttindabrot. Þau
verða æ alvarlegri í landinu.
Markmiðið er að hjálpa öllum
þeim, sem þola brot á mannrétt-
indum sínum og hafa enga sér til
vamar. Engu máli skiptir hverrar
trúar fólkið er eða hvort það sé
trúleysingjar.
Kaþólska kirkjan þrengir
að lútersku kirkjunni i
Póllandi
Lúterska kirkjan í Póllandi hef-
ur orðið mjög fyrir barðinu á hinni
kaþólsku systur sinni þar. En lút-
erskum prestum fjölgar. Arið
1987 vom 8 prestar vígðir og 9
árið 1986. 99 lúterskir prestar
þjóna nú í Póllandi og 17 prestar
em á eftirlaunum. 75 lúterskir
guðfræðinemar stunda nám við
guðfræðideildina í Varsjá, þar af
em 17 konur. Konur em ekki
vígðar í Póllandi en annast ferm-
ingarfræðslu. Árið 1987 vom 12
konur við fræðslustörf í kirkjunni
og 23 líknarsystur störfuðu við
líknarmiðstöð kirkjunnar og 4 á
elliheimili hennar. Lúterska kirkj-
an í Póllandi er þriðja stærsta
kirkjan þar. Rómversk-kaþólska
kirkjan er stærst og þá grísk-
kaþólska kirkjan.
Barátta smábænda hefur
áhrif á guðfræði í Brasilíu
Baráttan fyrir rétti smábænda
til landeigna í Brasilíu er farin
að hafa veruleg áhrif á guðfræði
kirkjunnar. Ný og afar mikilvæg
viðhorf hafa orðið til í guðfræð-
inni vegna þeirrar baráttu. Þessi
barátta er líka einn meginþáttur
í þjóðfélaginu. Stórbændur skipu-
leggja vamaraðgerðir og hyggjast
láta krók koma á móti bragði.
Nýjar sálmabækur í Finn-
landi og Rússlandi
Finnska kirkjan hefur fengið
nýja sálmabók með finnskum og
sænskum sálmum. Þeir em bæði
auðskildari og nær daglegu lífi
en sálmamir í fyrri sálmabók, en
líka glaðlegri, alkirkjulegri og
auðsungnari.
Gamla sálmabókin hefur verið
notuð í hálfa öld og það tók yflr
10 ár að vinna að nýju bókinni.
Finnar em reyndar ekki undur
bjartsýnir á framtíð sálmasöngs.
Það dregur m.a. úr bjartsýninni
að skólar byija ekki lengur daginn
með sálmasöng.
Þýzkir söfnuðir lútersku kirkj-
unnar í Rússlandi hafa nú líka
fengið nýjar sálmabækur eftir 75
ár. Ný]a sálmabókin hefur um 800
sálma.
Við finmim kraft, líf o g gleði
- segir Ingrid Heinz, sem vinnur í kirkjuhúsi í Þýzkalandi
Ingríd Heinz er ung, þýzk kona,
sem starfaði hér í nokkur ár sem
nuddkona. Hún talar og skrifar
svo góða íslenzku að aðeins fáein-
ar smávillur í bréfunum sýna að
hún er ekki íslenzk. Hún er nú
aftur flutt til Þýzkalands og vinn-
ur þar í kirkjustofnun í Scheidegg
nálægt Bodensee. Þessi kirkju-
stofnun lútersku kirkjunnar í
Þýzkalandi rekur 4 heimili í Suð-
ur-Þýzkalandi, 3 fyrir mæður og
eitt fyrir mæður og böm.
Meðan Ingrid bjó hér töluðum
við stundum saman um kirkjuna,
sem henni fannst ekki mikið til
um. Hún hafði sagt sig úr ka-
þólsku kirkjunni í Þýzkalandi.
Einu sinni var hún boðin á heimili
í Reykjavík, þar sem kirkjufólk
hittist til að tala um trú sína og
guðfræði, spjalla um daginn og
veginn og drekka saman kaffí.
Ingrid sagði á eftir að sér fyndist
þessi samvera miklu nær því, sem
hún vildi að kirkjan væri, nær því
en guðsþjónustumar á sunnudög-
um. En hvað fínnst henni nú um
starf sitt f lútersku kirkjunni í
Þýzkalandi?
— Mér líður ekki vel þegar ég fer
í kirkju. Mér fínnst einhver þrýst-
ingur þar, sem á ekki að vera og
mér finnst 'það óþægilegt. Mér
finnst kirkjukerflð eins og það er
hljóti að vera byggt á misskiln-
ingi. Ég er viss um að Guð hefur
ekki ætlazt til að við skipulegðum
kirkjuna svona. En héma í kirkju-
húsinu, sem ég vinn í, fínn ég
nálægð Guðs. Við byijuðum
vinnuárið í janúar með því að
halda sameiginlegan fund fyrir
starfskonumar í öllum 4 húsun-
um. Við töluðum, fengum góðan
mat og dönsuðum þjóðdansa. Mér
fannst ég finna orkut eitthvað,
sem ég þarf að eiga. Ég er hluti
af þessum hópi og við getum skap-
að eitthvað nýtt með starfí okkar.
Við finnum kraft, líf og gleði í
starfl okkar og samstarfi, en líka
erfiðleika, sem við þurfum að beij-
ast við og reyna að sigra. Hér
fínn ég Guð. Ég finn hann kannski
líka í guðsþjónustunni þegar þar
verður farið að syngja og dansa
þjóðdansa eins og við dönsum
héma í húsinu hjá okkur, spænska
þjóðdansa, sem eru dansaðir í
spænsku kirkjunni til að þakka
fyrir allt gott.
Ingrid Heinz með eitt barnanna í kirkjuhúsinu.
Heimafólki kirkjuhússins virðist líða heldur bærilega.
Biblíulestur vikunnar
Sunnudagur: Jóh. 8.31—36 Þrælar syndarinnar
Mánudagur: Jóh. 8.37—47 Guðsböm heyra Guð
Þriðjudagur: Jóh. 8.48—59 Jesús er alltaf
Miðvikudagur: Sálm. 74 Hve lengi, 6, Guð
Fimmtudagur: Sálm. 75 Tími Guðs.
Föstudagur: Sálm. 76 Dómur og frelsi
Laugardagur: Sálm. 7 0 Dvel eigi, Drottinn