Morgunblaðið - 24.07.1988, Síða 22

Morgunblaðið - 24.07.1988, Síða 22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1988 t Þrjátíu og þriggja ára rokksaga í rokksögunni hefur það heitið svo að Elvis Presley hafi fundið upp rokkið í hljóðveri Sam Phillips i Memphis. Hið rótta er að rokkið varð tii svo að segja af sjálfu sér um gervöll Bandaríkin á árunum fyrir og um 1950 og Elvis var bara réttur maður á rétt- um tíma á meðan rokktónlistarmenn eins og Chuck Berry, Wynonie Harris, Joe Turner og fleiri ámóta sátu eftir vegna þess að þeir voru svartir. Það var nú einu sinni auðveldara fyrir hvítan mann sem söng eins og svartur að komast áfram en fyrir svartan mann sem söng eins og hvítur. Chuck Berry, sem er einn af litríkustu tónlistarmönn- um rokksins og um leið þeirra áhrifamestur, varð sextug- ur á þarsíðasta ári óg það varð mönnum tilefni til að rifja upp þátt hans í tilurð rokktónlistarinnar og láta SIÐAN CHUCKBERRY sick Blues. Það skrifast á kald- hæðni örlaganna að lög Berrys hafa ætíð orðið þekktari í flutningi annarra en hans sjálfs. Gítarhljóm- urinn sem einkenndi hann, og ger- ir enn, hefur verið tekinn upp af ótal tónlistarmönnum og enn þann dag í dag ærast áheyrendur á rokk- tónleikum við þann gítarhljóm. í tilefni af afmæli Berrys var gerð kvikmynd, Hail! Hail! Rock ’n’ Roll, sem ekki verður fjallað um hér, og gefin út plata með tónlist- inni úr þeirri kvikmynd. Rétthafar laganna sem Berry tók upp fyrir Chess sáu sér leik á borði og gáfu út tvöfalda safnplötu sem ber sama heitið og kvikmyndin. Á tvö- földu plötunni eru 32 lög, sem öll eru upprunalegar Chess-upptökur og teknar af upprunalegum „mast- er" segulböndum með fyrirtaks hljóm. Platan, sem er skyldueign allra sem hlusta á rokk, sýnir glöggt það að Chuck Berry stend- ur undir nafni sem áhrifamesti rokktónlistarmaður Bandaríkjanna (allir meðtaldir) og vísast verður þessi plata uppljómun flestum þeim sem koma höndum yfir hana. Platan með tónlistinni úr myndinni er einnig skemmtileg heimild, þó tónlistin komist ekki í hálfkvisti við upprunalegar upptökur laganna. áhrifamesti plötusnúður Banda- ríkjanna, um það að hann myndi spila lagið sem oftast, gegn því að hann yrði skráður sem höfund- ur auk Berrys. Allan Freed var reyndar seinna sakfelldur fyrir ámóta svindl. Maybellene fór í efsta sæti á rytmablúslistanum, sveitatónlistarlistanum og popp- listanum. Næstu ár voru gjöful og Berry sendi frá sér hvert klassískt rokk- lagið á fætur öðru, lögin School Day, Rock & Roll Music, Sweet Little Sixteen, Johnny B. Goode, Roll Over Beethoven, Back in the U.S.A., Memphis Tennessee og Let it Rock, svo eitthvað sé nefnt. í þessum lögum dró Berry upp mynd af gósenlandinu Banda- ríkjunum og söng um ævintýri tán- inganna sem byggðu það land. Hann lifði hátt á þeim peningum sem streymdu inn og kom sér upp næturklúbb í St. Louis. Lífsstíllinn átti eftir að koma niður á honum og seint á árinu 1959 kærði 14 ára hóra frá Texas hann fyrir samræði eftir að hann hafði rekið hana úr starfi í næturklúbbnum, en Berry hafði hitt hana íTexas og haft með sér til St. Louis. Berry var dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar og sat inni í fangelsi í Indiana 1962—64. Þegar hann kom úr fangelsi var eins og hann væri búinn að missa af lestinni, hjóna- band hans var úr sögunni og tón- listargæfan va^honum ekki lengur hliðholl, enda voru Bítlarnir komnir til sögunnar og breska „innrásin" hafin; breskar hljómsveitir og bresk rokktónlist, sem byggðist að mestu á tónlist Chuck Berrys frekar en tónlist Elvis Presleys, réð öllu í Bandaríkjunum næstu ár. Berry átti þó eftir að senda frá sér nokkur klassísk rokklög til við- bótar, lög eins og Nadine, No Particular Place to Go, Little Marie og Promised Land, en því hefur reyndar verið haldið fram að þau lög hafi Berry samið áður en hann var settur inn. Síðasta lagið sem Berry kom hátt á vjnsældalista var My Ding-a-Ling sem fór í efsta sæti 1972, en Rockit sem út kom 1979 seldist einnig þokkalega. Það ár sat hann inni í þriðja sinn; að þessu sinni í 100 daqa fyrir skattsvik. Ahrifin sem Chuck Berry hefur haft á aðra tónlistarmenn eru ekki í neinu samræmi við þau lög sem hann kom á vinsældalista. Tvær fremstu rokksveitir Breta, Bítlarnir og Roll- ing Stones tóku upp Berry-lög, Stones með framúrskarandi útsetn- ingar en Bítlarnir held- ur útþynntar, og bandaríska hljómsveit- in Beach Boys sótti einnig sitthvað í smiðju til hans. Þegar Bob Dylan sneri sér að raf- rokki tók hann lagið Too Much Monkey Business og sneri því í Subterranean Home- hann njóta sannmælis. Öðrum fremur varð Berry tákn byltingar æskunnar gegn íhaldssömum foreldrum og í lögum hans fann margur hvítur unglingurinn uppreisnar- grunn. Charles Edward Anderson Berry fæddist í San Jose í jan- úar 1926 og ólst upp í St. Louis. Þar söng hann í kirkjukór (auðvitað) og lærði snemma að leika á gítar. Snemma ætlaði drengurinn sér að lifa af tónlistinni, en það gekk brösulega og 1944—47 sat hann inni fyrir rán. Eftir að hann losnaði úr steinin- jm lærði hann hárgreiðslu en lagði greiðuna á hilluna og ákvað að stunda tónlistina af meira kappi. 1952 stofnaði hann tríó með trommara og píanistanum Johnnie Johnson, sem átti eftir að leika með honum meira og minna í þrjátíu ár. 1955 var tríóið orðiö ein vinsælasta danssveit St. Louis og hafði sér fast aðsetur á vinsælasta skemmtistað borgarinnar. Berry hafði tekið uppá því að skjóta inn á meðal laga eftir Muddy Waters og Nat King Cole, sem voru uppistaða skemmtidagskrár tríósins, lögum sem hann hafði sjálfur sett saman og byggðust á sveitatónlist með rytmablústakti. Það brást ekki að allt varð vitlaust á dansgólfinu þegar þau lög heyrðust og Berry hélt til Chicago til að reyna að komast á samning við eitthvert plötufyrirtækjanna þar. Muddy Waters kynnti Berry fyrir Leonard Chess, öðrum bræðranna sem áttu Chess útgáfufyrirtækið, sem var eitt stærsta útgáfufyrirtæki sem sinnti svartri tónlist. Frá samskiptum sínum við Muddy segir Berry á skemmtilegan hátt í laginu Bio af samnefndri plötu sem Chess gaf út. Berry sendi Leonard Chess prufuupptöku og Leonard kallaði hann þegar til Chicago í upptökur. Fyrstu upptökurnar voru svo gerðar 1955 og þar á meðal var lag sem átti eftir að verða ódauðlegt, lagið Maybellene. Ýmsum brögðum var beitt til að kynna lagið og meðal annars var samið við Allan Freed, sem var þá einn Van Halen: Traustir foringjar ★ ★ ★ ★ ÞUNGAROKK hefur verið í stöðugri sókn und- anfarin tvö ár og sá sem neitar að kannast við að Van Halen hafi átt þar einna drýgstan þátt að máli ætti að hugsa sig betur um. Eft- ir að leiðir Van Halen-bræðra og Dave Lee Roth skildu, tók gamla brýnið Sammy Hagar við af Dave og sýndi það og sannaði á plöt- unni 5150 að síst var skarð fyrir skildi þar sem Dave hafði áður staðiö, án þess að lítið sé gert úr afrekum Roths ásamt stjörnusveit sinni. Nú er komi út skífan OU812 (Oh, You Ate One Too?) og fetar Van Halen dyggilega þá braut, sem mörkuð var á 5150. Það þarf enginn að efast um það að Van Halen sé ekki ennþá þungarokkshljómsveit. Byrjiö á að hlusta á „Source of Infection" og þar gefur að heyra Eddie Van Halen sýna alla gömlu taktana eins og ekkert hafi í skorist, Alex Van Halen hamast að trommusettinu, Michael Anthony togar í bassastrengina og þenur radd- böndin, og síðast en ekki síst er Sammy Hagar ódeigur við að garga sig hásan með hverskonar rokkyrði á hraðbergi („Hey! Oh Yeah! All Right!” o.s.frv.) Þafr sem líklegra má þó telja að menn leggi 1 hlustir við eru hin melódískari lög sveitarinnar — þau, sem telja má í ætt við hið vinsæla „Why Can’t This Be Love?“ af 5150. Af þeim er einn- ig gnótt á hljómskífu þessari. Raunar er býsna erfitt að henda reiður á hvernig Van Halen hefur breyst frá útgáfu fyrstu plötu þeirra (Van Halen) til þessa dags. Fyrsta platan (sem reyndar er enn í mestu uppá- haldi hjá gagnrýnanda) er hundraö sinnum hrárri og þungarokkaðri en sú afurð, sem berst manni í hendur nú. Samt sem áður ræðir hér um nákvæmlega sama elementið og í upphafi, þetta sérstæða, sem gert hefur Van Halen að því sem hljómsveitin er — eina vinsælustu rokk- sveit heimsins. Satt best að segja er ég ekki alveg viss um hvað það er við Van Halen, sem gerir þá jafn- skemmtilega og raun ber vitni. Ef litið er til tónlistarinnar er hún einatt í þyngsta lagi til þess að við því væri að búast að hún félli al- mennt í kramið. Guð veit að ekki eru það text- arnir (þó svo að Sammy Hagar reyni að stunda ívið uppbyggilegri textasmíðar en Dave Lee Roth gerði, en á móti kemur að hann er ekki jafnfyndjnn og tvíræður). Ég er helst á því að Van Halen séu einfaldlega svo spennandí and þeir hrífi mann með sér. Það er auðheyrt að piltarnir skemmta sér mætavel við flutninginn, platan er heppilega hrá (það er talið inn í annað hvert lag) og svo er það einfaldlega yfirburða- hljóðfæraleikur, sem fær mann til þess að standa upp öðru hvoru og taka ofan. Þau lög, sem undirrtuðum leist best á eru „Mina All Mine”, „When Its Love“, sem er pott- þéttur smellur, „Cabo Wabo” og „Feels So Good“. Það má heita öldungis glögglega augljóst að Van Halen eiga eftir að vera að í tíu ár enn eða tuttugu. Þeir lengi lifi! Andrés Magnússon. Fyrirtaks andfætl- ingarokk Fyrirgangur mikill varð fyrir skemmstu þegar CBS-útg- áfufyrirtækið ákvað að leggja i mikla kynningu á þeim tón- listarmönnum áströlskum sem voru á snærum þess. í tilefni af því gaf fyrirtækið út safnplötuna Australian Rocks sem á voru lög sjö sveita. Af þeirri plötu var ein hljómsveit áhugaverðari en hinar, þó nær allar hafi þær verið álitlegar, hljómsveitin Midnight Oil. Lagið sem á safnplötunni var, Beds are Burning, var fyrirtaks rokklag með merkilegum texta, en það var tekið af plötunni Diesel and Dust. Beds are Burning er þó ekki eina góða rokklagið á Diesel and Dust, þar á eru einnig lög- in Put Down That Weapon, Dream World, The Dead Heart sem standa því fyrrnefnda lítið að baki. Textar sveitarinnar fjalla flestir um afvopnun og náttúruvernd, auk þess sem fjallað er um hlutskipti frum- byggja Ástralíu, sem ekki er öfundsvert. Platan sýnir að rokkið lifir víðar en á noröur- hveli og er hin eigulegasta.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.