Morgunblaðið - 24.07.1988, Qupperneq 24
24 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1988
félk í
fréttum
. Jackie og elskhugi hennar, Jack Rapaport, sem er milljónamæringur frá Texas í Bandaríkjunum.
Síðan Sylvester Stallone varð
frægur fyrir leik sinn í Rocky-
myndunum hefur heilmikið borið á
móður hans, Jackie Stallone, í fjöl-
miðlum vegna þess hve kokhraust
hún er. Hún hefur mikil afskipti
af syni sínum og þegar hann velur
sér kærustur vill hún alltaf fá að
vera með í ráðum og sparar ekki
yfirlýsingamar þegar henni líkar
ekki félagsskapur sonarins. Hún
hefur látið hafa eftir sér að ef hún
hefði fengið að ráða, þá hefði Syl-
vester ekki gifst hinni dönsku Birg-
itte Nielsen og það hefði sparað
honum bæði peninga og vonbrigði
ef hann hefði fylgt ráðleggingum
sínum.
Fjölmiðlafólk sem hefur haft
afskipti af Jackie Stallone segir
að hún sé málglaðasta konan í
Hollywood síðan Louella Parson
og Hedda Hooper slúðurdálkahöf-
undar voru upp á sitt besta. Hún
segir bókstaflega allt sem henni
dettur í hug, fer aldrei í felur með
neitt og stendur við orð sín ef því
er að skipta.
Margir vilja þakka Jackie fram-
gang Sylvesters, sonar síns, því
að hún hefur alltaf staðið við hlið
hans og látið sig miklu skipta hvað
hann tekur sér fyrir hendur. Hún
á tvö önnur böm, soninn Frank
og dótturina Toniann. Frank er
leikari og söngvari en Toniann er
fyrirsæta og hefur þar að auki
skrifað vinsælar bamabækur.
Jackie hefur alla tíð lifað mjög
viðburðaríku lífí. Þegar hún var
16 ára gömul fór hún að heiman
til að ferðast með sirkusi og ekki
leið á löngu þar til hún var upp-
götvuð og fékk aðalhlutverkið í
sýningu sem kallaðist „Billy Rose
Diamond Horseshoe Show“. Eftir
það vann Jackie í fimm ár á Broad-
way en þegar hún hitti Frank Stall-
one, föður Sylvesters, dró hún sig
í hlé frá skemmtanabransanum.
Jackie og Frank eignuðust börn-
in þrjú og eftir það var Jackie
búin að fá nóg af því að vera heima
að hugsa um böm og bú og ákvað
að setja á stofn heilsuræktarstöð..
Foreldrar Jackie höfðu verið mikið
íþróttafólk og Jackie erfði íþrótta-
JACKIE STALLONE
Málgefin móðir
Jackie ásamt stúlkum sem hún
þjálfar og er umboðsmaður fyr-
ir. Stelpurnar sýna glímu og
hnefaleika víðs vegar um Banda-
ríkin.
áhugann frá þeim. Þegar Sylvester
og systkini hans voru lítil lét móð-
ir þeirra þau æfa stíft leikfími og
vaxtarrækt og það var engin mis-
kunn hjá Magnúsi á þeim bæ. Ef
Jackie gat ekki neytt þau til að
gera æfíngarnar sínar, þá borgaði
hún þeim pening til þess. Systkinin
voru ekki yfir sig hrifín af þessu
í þá tíð en þau eru móður sinni
þakklát í dag.
Jackie segir að ef hún hefði
ekki rekið Sylvester áfram þá hefði
aldrei orðið neitt úr honum. „Ef
ég hefði ekki haldið honum í þjálf-
un, þá sæti hann sjálfsagt og
horfði á hetjumar sínar í sjón-
varpinu í stað þess að vera ein af
þeirn,“ segir Jackie.
í dag lifir Jackie hamingjusömu
lífí í Santa Monica í Bandaríkjun-
um með milljónamæringi frá Tex-
as, Jack Rapaport að nafni. Hún
er komin á sjötugsaldurinn og hef-
ur ekki hugsað sér að setjast í
helgan stein í bráð. Hún starfar
sem þjálfari og umboðsmaður fyrir
ungar stúlkur sem sýna hnefaleika
og glímu víðs vegar um Banda-
ríkin. Þrátt fyrir aldur er Jackie
enn heilmikið hörkutól og þykir
þrælgóð á sínu sviði.
Ekki fara miklar sögur af Frank
Stallone föður Sylvesters en Jackie
hefur látið hafa eftir sér að hann
hafi verið heimsins versti elsk-
hugi. Þegar þessi ummæli voru
borin undir Sylvester Stallone
sagði hann, „Ég hef margoft beðið
móður mína að halda sínum stóra
kjafti."
Þrátt fyrir kjaftagleði Jackieeru
þau mæðginin bestu vinir. Jackie
segir að hún hafi verið svona
kjaftagleið frá fæðingu og við því
sé ekkert að gera. Hún bætir við
að þótt bömum hennar hafí
kannski fundist það óþægilegt,
hljóti þau að vera orðin vön því
eftir að hafa umgengist hana í 40
ár.
Þijár kynslóðir á leið í kvöld-
verðarboð, Jackie, Sylvester og
sonur hans, Sage.
Þ ann 17. júní var haldin þjóðhá-
tíðarsamkoma í borginni Hous-
ton í Texas í Bandaríkjunum. Þar
starfar um þessar mundir séra
Frank M. Halldórsson sóknarprest-
ur í Neskirkju. Hann tók að sér að
stjóma þessum þjóðhátíðarfagnaði
en í honum tóku þátt íslenskar kon-
ur sem búa í Houston.
Séra Frank M. Halldórsson innan um fríðan hóp kvenna. Konurnar heita Tóta Kelly, Andrea Green,
Aleta Cerisano, Jónína Karlsdóttir, Anna Karvels, Rósa Cerisano, Sherry Sebek, Oddný Cerisano, Steina
Henriette og Jóna Hansen. Neðri röð, Lille Raborn, Inga Rut Pétursdóttir, Linda Cerisano og Kristín
Karvel Garver.
ÞJ ÓÐHÁTÍÐ ARFAGN -
AÐUR
íslendingar
í Houston