Morgunblaðið - 24.07.1988, Síða 25
CJ
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1988
KO
B 25
Gísli Halldórsson, forseti Óí afhendir Stefaníu Stefánsdóttur far-
seðla fyrir tvo á Ólympíuleikana í Seoul. Einar S. Einarsson fram-
kvæmdastjóri Visa-Island fylgist með.
Styrkja íslenska
ólympíufara
Undanfarin þrjú ár hafa ýmis
fyrirtæki veitt Ólympíunefnd
íslands flárhagslegan stuðning
vegna þátttöku í Ólympíuleikunum
í Seoul.
Á fundi með fulltrúum þeirra
fyrirtækja sem hafa verið styrktar-
aðilar Óí gerði Gísli Halldórsson,
formaður Ólympíunefndar, grein
fyrir undirbúningi og öllum kostn-
aði sem er samfara þátttöku í
Ólympíuleikunum. Hann þakkaði
öilum stuðningsaðilum, þ. á m.
þeim sem hafa greitt boðgreiðslur
í gegnum Visa-ísland og öllum öðr-
um sem hafa stuðlað að þátttöku í
leikunum.
Nýlega var dregið hjá borgarfóg-
eta um þtjá minnispeninga
Ólympíunefndar íslands og ferð
fyrir tvo á Ólympíuleikana í Seoul.
Eingöngu var dregið úr númerum
þeirra korthafa Visa sem hafa
greitt boðgreiðslur til Óí.
Minnispeningana hlutu Þórhildur
Pálmadóttir, Þórður G. Pálsson og
Guðborg Þórðardóttir. Ferðavinn-
inginn hlaut hinsvegar Stefanía
Stefánsdóttir frá Vestmannaeyjum.
Af þessu tilefni flutti Einar S.
Einarsson framkvæmdastjóri Visa-
ísland ávarp.
Fulltrúar nokkurra stuðningsfyrirtækja Óí ásamt forráðamönnum
Ólympíunefndar og vinningshafanum, Stefaniu Stefánsdóttur.
COSPER
Eins og þér sjáið, eru öll sæti upptekin.
ÍTALÍA
Dansandi
aðstoðar-
forsætis-
ráðherra
Róm. Reuter.
Aðstoðarforsætisráðherra ít-
alíu, Gianni De Michelis, ráðleggur
öllum kaupsýslumönnum og
stjórnmálamönnum sem þjást af
streitu, að dansa diskódans.
De Michelis er jnikils metinn
stjórnmálamaður á Italíu en áhugi
hans á diskódansi er ósvikinn.
Hann hefur nýlega gefið út bók
sem nefnist Hvert eigum við að
fara að dansa í kvöld? Þar nefnir
hann þá 250 klúbba á Ítalíu sem
hann kann best að meta.
Ráðherrann kynnti bók sína á
uppáhaldsdvalarstað sínum, Rim-
ini, og þar fór hann í tvo nætur-
klúbba og dansaði til klukkan sex
um morguninn. Það þótti vel af
sér vikið þar sem hann er 47 ára
gamall og fremur feitlaginn.
De Michelis er 1,83 m á hæð
með þykkt liðað hár og gleraugu.
Hann hefur orð á sér fyrir að vera
kvennamaður sem kunni að njóta
lífsins. Það breytir því ekki að
hann er virtur stjómmálamaður
sem aflar sósíalistaflokknum mik-
ils fylgis. Hann kveðst sannfærður
um að ekki sé tekið minna mark
á sér vegna athafna sinna í frítíma
sem reyndar sé allt of lítill.
De Michelis finnst að allir
stjómmálamenn hafi gott af því
að blanda geði við ungt fólk. Hann
segir að diskótek sé kjörinn staður
til þess að hitta fólk, hvíla hugann
og slaka á. Dansinn sé auk þess
góð líkamsæfing.
De Michelis vann bók sína á
þremur vikum með því að lesa á
hveiju kvöldi inn á segluband.
Fyrsta upplagið, sem var 16 þús-
und eintök, hefur selst mjög vel
svo önnur prentun er fyrirhuguð.
Reuter
Gianni De Michelis á leið inn í
næturklúbb á Rimini. Þar dans-
aði hann til klukkan sex um
morguninn og mætti samt sem
áður hress og kátur á ríkisstjórn-
arfund klukkan ellefu.
HLJOÐRITAIMIR
Nýkomnar plötur - snældur - diskar
I RUSSTAFF: RUSSTAFF
■ SANDI PATTl: MAKE HIS PRAISE GLORIOUS
■ BRYAN DUNCAN: WHISTUN' IN THE DARK
■ WHITA HEART: EMERGENCY BROADCAST
■ KIM BOYCE: TIMEAND AGAIN
■ RRST DALL: SOMETHING TAKES OVER
■ STEVE TAYLOR: IPREDICT1990
■ KEITH THOMAS: KALEIDOSCOPE
■ PAUL SMITH: NO FRILLS
■ PHILKEAGGY: WIND ANDTHAWHEAT
■ MICHAELOMARTIAN: CONVERSATIONS
■ SHEILA WALSH: SAY SO
■ IMPERIALS: THIS YEAR'S MODEL
■ TRAMAINE: FREEDOM
■ DIETER FALK: INSTURMENTÁL
■ LARRY NORMAN: STOP THIS FUGHT
■ LARRY NORMAN: REHERSAL 4 REAUTY
ICHRIS EATON: VISION
■ TWILA PARIS: SAME GIRL
■ MARGARET CECKER: NEVER FOR NOTHING
MEADOWLARK SERIES: Einstaklega hugljúfar
hljóðritamir. Tónlisttilaðhvilastvið.
Póstsendum samdægurs gegn VISA/EURO
eða póstkröfu.
l/erslunin
Hátún2 105Reykjavik
simi: 20735/25155
DAGVIST BARIVA
BREIÐHOLT
Völvukot, Völvufelli 7
Fóstrur eða annað uppeldismenntað
starfsfólk óskast nú þegar eða 1. sept-
ember á skóladagheimilið Völvukot.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 77270.
HRAUNBÆR
Rofaborg, Skólabæ 2
Eftirtalið starfsfólk vantar á Rofaborg:
Aðstoðarmann í eldhús frá 15. ágúst.
Vinnutími kl. 9.00 - 13.30.
Þroskaþjálfa í stuðning frá 1. september.
Vinnutími frá kl. 13.00 - 17.00.
Fóstrur frá 1. september.
Vinnutími frá kl. 13.00 - 17.00.
Upplýsingar gefur Jóhanna forstöðu-
maður alla daga í síma 672290 og í
heimasíma 72623.
VESTURBÆR
Grandaborg v/Boðagranda
Barnaheimilið Grandaborg óskar eftir
starfsfólki frá og með 3. ágúst.
Um er að ræða fjölbreytt störf ýmist hálf-
an eða allan daginn.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 21274.