Morgunblaðið - 04.08.1988, Side 1
56 SIÐUR B
174. tbl. 76. árg.__________________________________FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1988_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Israel:
Hægrimeim krefj-
ast innlimunar
V esturbakkans
Jerúsalem, Reuter.
HÆGRIMENN í ísrael beita ríkisstjórnina nú auknum þrýstingi
um að Vesturbakkinn verði innlimaður í ísrael, þar sem Jórdania
hefur látið af tilkalli sínu til hans og hætt að efna skyldur sinar
við íbúa hans. „Þetta er rétta stundin fyrir Israel til þess að gera
kröfu sina opinbera og lýsa yfir fullveldi Israels á svæðinu öllu,“
segir Yuval Ne’eman, þingmaður smáflokksins Tehiya. „Að öðrum
kosti eru það Frelsissamtök Palestínu [sem öllu munu ráða].“
Ne’eman hélt í gær blaða-
mannafund á AUenby-brúnni yfir
Jórdaná, en ísraelar hemámu
vesturbakka hennar i Sexdag-
astríðinu eftir innrás arabaríkj-
anna árið 1967.
Hussein Jórdaníukonungur lýsti
því yfir í vikunni að hann teldi
rétt að Frelsissamtök Palestínu
(PLO) tækju á sig þá ábyrgð á
svæðinu, sem Jórdanía varpaði af
sér.
Að sögn ónafngreindra heimild-
armanna innan ísraelsstjómar
lögðu ráðherramir Ariel Sharon
og Yitzhak Modai, sem báðir era
hægrimenn, það til á ríkisstjórnar-
fundi, að Vesturbakkinn og Gaza-
svæðið verði innlimuð í Israelsríki
— eða að minnsta kosti hlutar
hemámssvæðanna. Að sögn
ríkisútvarpsins í ísrael sagði
Modai það á fundinum að ísraelar
ættu að taka framkvæðið í málum
þessum frekar en að bíða eftir
frekari aðgerðum af hálfu Hus-
seins.
Talsmaður Yitzhaks Shamirs
forsætisráðherra vildi hvorki neita
né játa þessum fregnum, en sagði
að þrátt fyrir að ríkisstjórnin teldi
Vesturbakkann vera hluta ísraels
yrði hún að virða alþjóðasamninga
— sérstaklega Camp David-sam-
komulagið við Egypta frá 1978.
Samkvæmt því skyldi framtíð
hemumdu svæðanna vera ákveðin
eftir fímm ára heimastjórn. Upp
úr viðræðum ríkjanna um fyrir-
komulag slíkrar sjálfstjómar slitn-
aði snemma á þessum áratug.
ísraelar innlimuðu Austur-Jerú-
salem í ísrael eftir Sexdagastríðið
og gerðu borgina að höfuðborg
ríkisins. Enn sem komið er neita
þó flest ríki að viðurkenna hana
sem höfuðborg, enda þótt nær öll
stjómsýsla fari þar fram.
Mathias Rust þakkar áhöfn Lufthansa fyrir flugið heim frá Moskvu
eftir 15 mánaða dvöl í Lefortovo-fangelsi, en á minni myndinni sést
vél Rusts á Rauða torginu eftir ævintýralega lendingu hans í maí í
fyrra.
ivcutci
Mathias Rust kominn heim til Vestur-Þýskalands:
Moskvuflugið óábyrgt
og glæpsamíegt athæfi
Frankfurt. AP.
VESTUR-þýski flugmaðurinn
Mathias Rust kom heim til Vest-
ur-Þýskalands síðla í gær, eftir
að hann viðurkenndi að flug sitt
til Rauða torgsins i Moskvu á
síðasta ári hafi verið „óábyrgt".
Hinn tvítugi ofurhugi heldur því
þó fram, að flug hans hafi bætt
samskipti Sovétrikjanna og Vest-
ur-Þýskalands. Um borð í flugvél
Fyrsta reikisljarnan í
öðru sólkerfi uppgötvuð
Lundúnum, Daily Telegraph.
TILVIST reikistjörnu i öðru sólkerfi hefur nú í fyrsta skipti verið
staðfest af bandarískum og svissneskum stjamfræðingum. Þessi
nýfundni heimur er þó ekki mjög lífvænlegur, en dr. David Lat-
ham, sem stjórnaði bandaríska rannsóknarhópnum, kveður reiki-
stjörnuna „heitari en nokkurn ofn og nær örugglega lífvana."
Reikistjaman er í 90 ljósára fjar- Celsíus.
lægð frá Jörðu og gengur spor-
braut umhverfís stjörnuna HD
114762, sem er í stjörnumerkinu
Coma Berenice. Reikistjarnan er
30.000 sinnum stærri en Jörðin (20
sinnum stærri en Júpíter) og fer
umhverfis stjörnuna á 84 daga
fresti, að því er dr. Latham skýrði
Bandaríska stjarnfræðisamband-
inu frá í Baltimore í gær.
Miðað við það er reikistjarnan
nær eigin sólu en Merkúr er okkar
og í samræmi við það er yfirborðs-
hiti hennar mörghundruð gráður á
Stjaman HD 114762 er í neðra
vinstra hominu á Coma Berenice
(frá Jörðu séð) og hefur birtustigið
7, sem gerir það að verkum að hún
er rétt ósýnileg berum augum, en
með góðum sjónauka má koma
auga á hana. Hún er aðeins sjáan-
leg á norðurhvelinu en vegna
möndulhalla Jarðar sést hún aðeins
frá mars til júlí.
Þrátt fyrir stærð reikistjörnunn-
ar er hún of smá og of fjarlæg til
þess að hún sjáist í öflugustu
stjömusjónaukum og auk þess
myndi birta HD 114762 koma í
veg fyrir að hægt væri að sjá end-
urskin reikistjömunnar. „Að reyna
að sjá hana væri eins og að reyna
að koma auga á kerti við hliðina
á öflugum ljóskastara á tunglinu,"
segir dr. Latham til útskýringar,
en reikistjaman var uppgötvuð
vegna óreglulegrar hreyfingar
stjömunnar, sem einungis gat bent
til þess að í nágrenni hennar væri
mikill massi á borð við reikistjömu.
Afleiðingar þessarar uppgötv-
unar fyrir mannkyn kunna að vera
hinar athyglisverðustu þegar fram
í sækir. Hún þýðir, að líklegt má
telja að umhverífis milljónir stjamá
í líkingu við Sólu í Vetrarbrautinni
gangi reikistjömur á stærð við
Jörðu, sem gætu verið byggilegar.
Lufthansa, sem flutti hann frá
Moskvu til Frankfurt aðeins
þremur klukkustundum eftir að
honum var sleppt úr sovésku
fangelsi, kvaðst hann áfram ætla
að reyna að bæta heimsástandið,
en sagðist jafnframt ekki ætla að
drýgja fleiri „glæpi".
Rólegur og allt að því sjálfs-
ánægður sagðist Rust sjálfur ætla
að velja sér staðinn og stundina til
þess að ræða fimmtán mánaða
fangavist sína bak við jámtjaldið og
hefur vestur-þýska tímaritið Stern
keypt einkaréttinn á frásögn hans.
Eigi að síður veitti hann AP og
bandarískri sjónvarpsstöð viðtal í
vélinni og þegar hann var spurður
um ástæður þess að Sovétmenn
slepptu honum svaraði hann einung-
is: „Mannúð.“
Rust sagðist hafa fundið fyrir ein-
semd og örvæntingu í fangavistinni
í hálftómu Lefortovo-fangelsinu.
„Eg kom sem barn og nú sný ég
aftur fullorðinn. Það er í raun ótrú-
legt,“ sagðr hann.
Þegar hann var spurður hvort
hann myndi einhvern tíma hugleiða
slíkt flug á ný svaraði hann: „Nei,
ekki aftur. Það var óábyrgt."
Vel á sig kominn
eftir fangavistina
Rust leit út fyrir að vera vel á sig
kominn, var snyrtilega klæddur og
með nýklippt hár. Hann var í prýði-
legu skapi og sagði að þvert á vænt-
ingar sínar hefði hann þyngst frekar
en lést í fangelsinu.
Hann sagðist hafa stundað
líkamsrækt og gert við bækur í fang-
elsisbókasafninu í sjálfboðavinnu.
Lendingunni á Rauða torginu lýsti
hann sem „aðeins upphafinu" að til-
raunum sínum til þess að draga
austur og vestur nær hvort öðra.
„Ég mun halda starfinu áfram, en
það verður allt með löglegum hætti
— engir glæpir."
Rust talaði aðallega ensku, en
einnig blöndu af þýsku og rússnesku.
A meðan á fluginu stóð var flug-
kappanum boðið fram í stjórnklef-
ann og spjallaði hann við flugstjór-
ann dágóða stund. Hann hélt sig þó
aðallega í sæti sínu á fyrsta farrými
þar sem hann tók við hamingjuósk-
um samferðamanna sinna og gaf
þeim eiginhandaráritun á póstkort
Lufthansa.
Talið er að heimsókn Hans-
Dietrichs Genschers, utanríkisráð-
herra Vestur-Þýskalands, til Moskvu
í síðustu viku hafi valdið mestu um
lausn Rusts. Þá heldur Helmut Kohl,
kanzlari Vestur-Þýskalands, i opin-
bera heimsókn til Sovétríkjanna í
október, en í gær var það eftir hon-
um haft að með lausn Rusts hefðu
Sovétmenn sýnt vilja sinn til þess
að bæta sambúð ríkjanna í verki og
að sambandsstjómin væri mjög án-
ægð með þetta skref.