Morgunblaðið - 04.08.1988, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1988
Fulltrúaráð Landakotsspítala:
Óskað eftir skýr-
ingum á samkomu-
lagi ráðherranna
FULLTRÚARÁÐ Landakotsspít-
ala ákvað í gær á fundi að óska
eftir viðræðum við ráðherra heil-
brigðis- og fjármála og frekari
skýringum á ýmsum atriðum í
samkomulagi ráðherranna um
aðgerðir tíl lausnar rekstrar-
vanda spitalans. Verður þessari
ósk komið á framfæri í dag.
Heilbrigðisráðherra kynnti yfír-
stjóm spítalans samkomulag sitt
og fjármálaráðherra sl. föstudag,
en þetta samkomulag var rakið í
Morgunblaðinu í gær. Ólafur Öm
Amarson varaformaður stjómar-
innar sagði að á fulltrúaráðsfundin-
um í gær hefðu vaknað ýmsar
spumingar, m.a. varðandi fulltrúa-
ráðið og hlutverk þess, og við þeim
vildu menn gjaman fá svör.
Fulltrúaráðið sijómar sjálfseign-
arstofnuninni sem hefur Landa-
kotsspítala á leigu tii ársins 1997.
í ráðinu er 21 fulltrúi, skipaður af
heilbrigðisráðherra og á það að
staðfesta íjárhagsáætlanir og fjár-
festingar spítalans. Úr hópi fíill-
trúaráðsmanna er valin 7 manna
yfírstjóm.
Yfírstjóm Landakotsspítalans
hefur boðað til blaðamannafundar
í dag og verða sjónarmið spítalans
kynnt þá, m.a. athugasemdir við
skýrslu Ríkisendurskoðunar um
rekstur spítalans á síðasta ári.
Morgunblaðið/Þorkell
Syngjandi Grænlendingar
Heiðarhom kjörið fyr-
ir endurvarpa SVFI
Kleppjárnsreykjum.
SVÆÐISSTJÓRN Slysavamafé-
lags íslands á Vesturlandi stóð
fyrir því laugardaginn 23. júlí
að farið var með endurvarpa upp
á Heiðarhyrnu í Skarðsheiði sem
er hæsta fjall í Skarðsheiðinni,
1.053 m á hæð.
Tilgangur fararinnar var að at-
huga hversu vel staðurinn fellur til
staðsetningar á endurvarpa fyrir
VHS-talstöðvar. Tilraunarendur-
varpi var settur upp og var síðan
haft samband við marga aðila vítt
og breitt um héraðið og náðist mjög
vel allt frá Básum í Þórsmörk og
vestur að Malarrifí.
í framhaldi af niðurstöðu sem
fékkst í þessari tilraun verður senni-
lega settur upp varanlegur endur-
varpi og munu sólarrafhlöður sjá
honum fyrir rafmagni.
Af Heiðarhomi er útsýni mjög
gott, þaðan sést til Mýrdalsjökuls í
suðri, norður og austur yfir Holta-
vörðuheiði og Amarvatnsheiði og
yfír Snæfellsnes og Reykjanes.
Auðvelt er að ganga á Heiðarhom
að sunnanverðu og tekur það um
þrjár klukkustundir.
Bernhard
Þetta er grænlenskur kór sem
kominn er til landsins og leggur
af stað í söngferðalag í dag,
fimmtudag. Kórinn er frá bæn-
um Julianehaab í Suðvestur-
Grænlandi. Eru í honum 30
manns á aldrinum 20—60 ára.
Stjórnandi kórsins er organisti
og kórstjóri kirkjunnar þar i
bænum, Wilhelm Lynge. Hefur
kórinn komið fram í sjónvarp-
inu þar heima og í útvarpi,
enda kunnur og gengur þar
undir nafninu Kór Wilhelms
Lynge. Söngferðalagið kring-
um landið mun taka 10—12
daga. Verður Akranes fyrsti
viðkomustaðurinn, en þar ætlar
kórinn að syngja í kvöld. Á
söngskránni eru grænlensk lög
og sálmar. Kórinn ætlar að
vera kominn til Akureyrar og
syngja þar á morgun, föstudag.
Síðan liggur leiðin að Laugum,
til Egilsstaða og Hafnar i
Hornafirði. Á leiðinni aftur til
Reykjavikur verður sungið á
Kirkj ubæj ar klaustri og i
Hveragerði. Þetta er fyrsta
ferð þessa kórs. Á myndinni,
sem tekin var í gærkvöldi er
kórinn var að leggja af stað til
Bessastaða i stutta heimsókn
til forsetans, eru ásamt hinu
prúðbúna söngfólki í þjóðbún-
ingum sínum, söngstjórinn,
lengst til vinstri og Benedikta
Thorsteinsson, fararstjóri
lengst til hægri. Þess má geta
að eiginmaður Benediktu er
islenskur maður, Guðmundur
Þorsteinsson að nafni.
Gámaf iskur til Bretlands:
Margeir í
3.-5. sæti
MARGEIR Pétursson varð í
3.-5. sæti á opnu skákmóti í
Næstved i Danmörku og hlaut
6'/2 vinning af 9 mögulegum.
Bent Larsen frá Danmörku
sigraði á mótinu, með 7 vinn-
inga, en Svíinn Hellers varð i
öðru sæti með sama vinninga-
fjölda en var lægri að stigum.
Jafnir Margeiri voru stór-
meistarinn Lau frá Þýskalandi
og Svíi að nafni Brynell.
Margeir tekur nú þátt í al-
þjóðlegu móti í Gausdal í Nor-
egi. Fyrsta umferðin var tefld í
gærkvöldi en mótinu lýkur á
mánudaginn.
Flutt út allt að hundrað
tonn umfram kvóta á viku
Utanríkisráðuneytið vanmetur rúmmál gámanna
ÚTFLUTNINGUR á ferskum
fiski í gámum á Bretlandsmark-
að hefur numið allt að 100 tonn-
um umfram kvóta undanfarnar
vikur. Þórarinn Guðbergsson
starfsmaður Fylki Limited í
Grimsby segir að þetta um-
frammagn sé þannig til komið
að utanríkisráðuneytið reikni
með að hver gámur taki 12 tonn
en I raun taka þeir 14 tonn af
fiski. Á markaðinn að undanf-
örnu hafa farið á milli 60 og
70 gámar í hverri viku. Kvótinn
nær yfir þorsk og ýsu en eitt-
hvað af þessum gámum hefur
innihaldið aðrar tegundir svo
sem kola og grálúðu. Varlega
áætlað hefur umframmagnið
því numið um 100 tonnum.
Þórarinn segir að þetta hafí
síður en svo komið að sök síðustu
vikumar þar sem lítið framboð
hefur verið af heimafiski á mark-
aðinum því ekki hefur gefíð á sjó
sökum veðurs.
Kvótinn sém settur var á þorsk
og ýsu, 600 tonn á viku, segir
Þórarinn að hafi verið skynsamleg
ráðstöfuh að öllu leyti þar sem
hún hafí komið í veg fyrir að allt-
of mikið magn af fiski færi á
markaðinn.
„Nú eru markaðsaðstæður
þannig hér að saman fer lítil veiði
heimamanna og sumarfrí hjá stór-
um hluta þjóðarinnar sem eykur
neysluna á ferskfíski verulega.
Ég tel því að óhætt sé að senda
um 1000 tonn af þorski og ýsu á
markaðinn í næstu viku,“ segir
Þórarinn.
Hann nefnir sem dæmi um góð-
ar söluhorfur að Börkur NK sem
seldi afla sinn í gærdag fékk 85,18
krónur að meðaltali fyrir kílóið
sem er nokkru hærra verð en
meðalverðið var allt árið í fyrra.
Stefán Gunnlaugsson hjá ut-
anríkisráðuneytinu segir að
tonnafjöldinn í gám verði tekinn
til endurskoðunar. Honum finnist
í sjálfu sér ekki stórmál hvort um
sé að ræða 12 tonn eða 14 og
vissulega eigi að fullnýta gámana.
600 tonna ferskfiskkvótinn úr gildi:
Fískmagnið metið
frá viku til viku
Rekstur Miklagarðs og
KRON verður sameinaður
800 tonn á Bretíandsmarkað þessa viku
STJÓRN Kaupfélags
Reykjavíkur og nágrennis leitar
nú leiða til að bæta rekstraraf-
komu og styrkja fjárhagslega
stöðu féiagsins, og hefur Þresti
Ólafssyni stjórnarformanni
KRON verið falið að hafa yfir-
umsjón með þeim breytmgum
sem fyrirhugaðar eru, en hann
hefur tekið sér leyfi frá störfum
sem framkvæmdastjóri Dags-
brúnar á meðan.
Ætlunin er að hrinda af stað
hagræðingu á öllum sviðum versl-
unarreksturs, sem KRON hefur
með höndum, með það að mark-
miði að draga úr tilkostnaði og
stuðla þannig að því að halda niðri
vöruverði. Að sögn Þrastar Ólafs-
sonar verður einn helsti liðurinn í
þessum aðgerðurn að sameina
rekstur Miklagarðs rekstri ann-
arra verslana KRON, og lækka
með þvi tilkostnað án þess að
draga úr vöruúrvali eða þjónustu.
„Reksturinn á KRON og Mikla-
garði hefur verið aðskilinn hingað
til, en KRON á 52 prósent eignar-
hlut í Miklagarði. Þama hafa fram
að þessu tveir sjálfstæðir aðilar
starfað undir tveim sjálfstæðum
stjómum. Markmiðið er að gera
allan daglegan rekstur sameigin-
legan þannig að ekki verði um að
ræða tvo sjálfstæða aðila sem taka
ákvarðanir, heldur einn, og er fyr-
irhugað að hraða þessum breyt-
ingum eins og hægt er,“ sagði
Þröstur Ólafsson.
600 TONNA ferskfiskkvótinn
sem settur var á útflutning
þorsks og ýsu með gámum og
skipiun héðan á Bretlandsmark-
að er nú í raun úr gildi. Stefán
Gunnlaugsson hjá utanrikis-
ráðuneytinu segir að þeir meti
nú ástandið á markaðinum frá
viku til viku og sé leyfum út-
hlutað samkvæmt þvi. í þessari
viku hefur verið veitt leyfi til
útflutnings á 800 tonnum þar
af um 450-500 tonnum með
gámum.
í síðustu viku aftur á móti var
veitt leyfi fyrir útflutningi á 1.100
tonnum, þar af 650 tonnum í gám-
um. Stefán segir að 600 tonna
kvótinn hafi upphaflega verið sett-
ur til að verð á fískinum færi ekki
niður fyrir lágmarksverð Evrópu-
bandalagsins. Það sé ekkert því
til fyrirstöðu að hann gegni áfram
því hlutverki ef markaðshorfur
þróast þannig.
Vilhjálmur Vilhjálmsson hjá
LÍÚ segir að augljóst hafi verið
að markaðurinn í Bretlandi þoldi
mun meira magn en 600 tonn í
síðustu viku og því hafí meira
verið sent þangað. Að magnið nær
tvöfaldaðist, í 1100 tonn, segir
Vilhjálmur að sé vegna þess að
skip á miðunum fyrir austan land
náðu óvenjugóðum afla á þessu
tímabili.