Morgunblaðið - 04.08.1988, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 04.08.1988, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1988 Flugslysið við Reykjavikurflugvöll: Okkar reyndustu og bestu starfsmenn - segir talsmaður fyrirtækisins sem átti flugvélina KANADAMENNIRNIR þrír, sem fórust i flugslysinu við Reykjavíkur- flugvöll í fyrrakvöld, voru Raynald Laroche verkefnisstjóri, Roger Thibodeau flugstjóri og Mark Palko flugvélstjóri. Tveir þeir fyrst- nefndu voru kvæntir og áttu börn. Hinn síðastnefndi var einhleyp- ur. Ekki fengust upplýsingar um það í gær, hve gamlir þeir voru, né hve mörg börn Laroche og Thibodeau láta eftir sig. Talsmaður kanadíska fyrirtækisins Geoterrex, eiganda vélarinnar, sagði að þessir menn hefðu verið „ ... okkar reyndustu og bestu starfsmenn á þessu sviði“. Flugvélin var sérhæfð tU rannsókna og voru þremenn- ingarnir á leið tU tíl Frakklands, þar sem þeir ætluðu að vinna að jarðvísindalegum rannsóknum. Ekkert er enn vitað með vissu um orsakir slyssins. Veðurskilyrði versnuðu skyndilega síðustu tvær mínútumar sem aðflug vélarinnar stóð yrfir. Unnið var að rannsókn slyssins í gær og vitni yfirheyrð. I dag verða sérfræðingar frá kanadíska loftferðaeftirlitinu og framleiðendum vélarinnar til að- stoðar við rannsókn á flaki vélarinn- ar. Guðmundur Matthíasson aðstoð- arflugmálastjóri sagði að allt hefði virst vera meðð felldu í aðflugi vél- arinriar þar til hún steyptist skyndi- lega til jarðar. Samkvæmt lýsingum vaktmanns í flugtumi sást vélin koma inn til lendingar klukkan 17.42 og í sama mund snýst hún á hvolf og steypist niður við flug- brautarendann. Flugvélin varð þá þegar alelda. Samkvæmt dagbók í flugtumi var veðrið þá 10 - 15 hnúta vindur í 230 - 240 gráður segulstefnu. Skyggni var 1.500 metrar, regnúði og skýjahæð 300 - 400 fet. Skyggni hafði þá minnk- að úr fjórum kílómetrum í einn og hálfan síðustu tvær mínútumar. Samkvæmt veðurlýsingu Veður- stofunnar var nokkmm mínútum síðar 15 hnúta vindur í 230 gráð- um, 9 kflómetra skyggni, rigning og súld. í 400 feta hæð var hálfskýj- að og alskýjað í 800 feta hæð. Hiti var 10 stig. Guðmundur sagði að enn væri ekki ljóst hvort í flugvélinni hefði verið „svarti kassinn" svonefndi, sem geymir upplýsingar um flug vélarinnar síðustu mínútumar. Það skýrist væntanlega þegar fulltrúar eigenda og framleiðenda em komn- ir, en þeir vom væntanlegir hingað til iands í morgun. Á meðan beðið var eftir þeim, ásamt kanadísku sérfræðingunum, var ekkert unnið að rannsókn slyssins í sjálfu flak- inu. Frá slysstað. Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson Slasaðist á höfði RÚMLEGA þrítugur ökumaður kornflutningabils slasaðist á höfði þegar hann var að vinna við að losa hveiti af bilnum við hús Nýja Kökuhússins við Smiðjuveg í Kópavogi. Að sögn lögreglunnar í Kópavogi er talið að lok við dælustút á tanki bflsins hafí gefið sig og þeyst í höfuð mannsins. Hann var fluttur á slysadeild Borgarspítalans. Auk höfuðáverka var hann talinn fót- brotinn. Nýr skrifstofu- stjóri Hagstofunnar GUNNAR H. Hall hefur verið ráð- inn skrifstofustjóri á Hagstofu íslands og staðgengill Hagstofu- stjóra frá 1. ágúst 1988. Gunnar lauk prófi í þjóðhags- kjama frá viðskiptadeild Háskóla íslands 1976 og mastersgráðu í þjóð- hagsfræði frá Uppsalaháskóla 1981. Hann var kennari í þjóðhagfræði og stærðfræði við Verzlunarskóla ís- lands 1976—1978. Að loknu námi í Svíþjóð hóf hann störf sem sérfræð- ingur hjá Fjárlaga- og hagsýslustofn- un í ágúst 1981, var skrifstofustjóri þar frá síðla árs 1983 til ársloka 1987 og settur hagsýslustjóri frá ársbyijun 1988. Gunnar var f stjóm Skipaútgerðar rfkisins frá september 1982 og hefur verið í stjóm Norræna hagrannsóknaráðsins frá því á árinu 1986. Eiginkona Gunnars er Sigurveig Alfreðsdóttir hjúkmnarfræðingur og eiga þau þijú böm. Gunnar H. Hall I/EÐURHORFUR í DAG, 4. ágúst 1988 YFIRLITIGÆR: Norðvestan gola um landið austanvert, en vestan- til var hægviðri eða suðvestan gola. Súld eða rigning var við norð- austur og austurströndina en annars þurrt. Suðaustanlands var léttskýjað. SPÁ: f dag verður suðaustanátt ó landinu, víða kaldi. Rigning verð- ur um sunnan og vestanvert landiö, en víðast þurrt norðaustan- lands. Hiti verður ó bilinu 10—16 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Hæg suðvestlæg eða breytileg átt. Skúrir um sunnan- og vestanvert landið, og á laugar- dag einnig sums staðar fyrir norðan og austan. Hiti á bilinu 8—15 stig. TÁKN: O: x Norðan, 4 vindstig: *' Vindörin sýnir vind- ■| 0 Hitastig: 10 gráður á Celsíus Heidskirt stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður • V Skúrir er 2 vindstig. ■* Él • V Léttskýjað / / / / / / / Rigning = Þoka r f f — Þokumóða Hálfskýjað * / * 9 5 Siild Skýjað / * / * Slydda / * / oo Mistur ■# # ■* 4 Skafrenningur Alskýjað * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavík hrti 11 11 veftur alskýjað akýjað Bergen 12 rfgnlng Helslnki 15 alskýjað Kaupmannah. 15 léttskýjað Narssarssuaq 14 rigning Nuuk 8 léttskýjað Öaló 18 skúr Stokkhólmur 12 rionlng Þórshöfn 13 skýjað Algarve 28 heiðskfrt Amsterdam 18 léttskýjað Barcelona 27 mistur Chlcago 27 mistur Peneyjar 29 þokumóða Frankfurt 16 skýjað Glasgow 13 súld Hamborg 16 skýjað Laa Palmas 27 léttskýjað London 19 skýjað Los Angeles 18 alskýjað Lúxemborg 17 léttskýjað Madríd 26 léttskýjað Malaga 39 léttskýjað Mallorca 30 skýjað Montreal 19 þrumuv. New Vork 27 mistur Parfs 19 léttskýjað Róm 32 heiðsklrt San Diago 21 alskýjað Winnipeg 18 úrk. i gr. Iðnaðarráðherra á Suðurnesjum: Skoðaði iðnfyrirtæki í Keflavík og Njarðvík KeHavík. ° ** FRIÐRIK Sófusson iðnaðarráð- herra heimsótti Keflavík og Njarðvík í gær og skoðaði nokk- ur iðnfyrirtæki. Með ráðherran- um voru Ólafur G. Einarsson formaður þingflokks Sjálfstæðis- flokksins, Bragi Michaelsson formaður kjördæmaráðs og Guð- rún Zoéga aðstoðarmaður iðnað- arráðherra. Að heimsókninni stóðu kjördæ- misráð og miðstjóm Sjálfstæðis- flokksins og hófst hún með hádegis- verðarfundi í veitingahúsinu Glóð- inni þar sem iðnaðarráðherra flutti framsöguræðu og að því loknu svar- aði hann fyrirspurnum fundar- manna. Sfðan vom nokkur iðnfyrir- tæki í Keflavfk og Njarðvík heim- sótt og að því búnu var ráðherra með viðtalstíma í Sjálfstæðishúsinu í Njarðvík. Friðrik Sófusson iðnaðarráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið að heimsóknin hefði bæði verið gagnleg og ánægjuleg, gagnlegt væri að kynnast rekstri af eigin raun en ekki af skýrslum og einkar ánægjulegt hefði verið að sjá f hversu ömm vexti þjónusta við ferðamenn væri orðin í Keflavík og Njarðvík. _ BB Grænland: Ráðist á íslending ÍSLENDINGUR, sem starfaði við sjávarútvegssýninguna ( Nuuk á Grænlandi, varð fyrir því að ráð- ist var á hann og reynt að ræna um sfðustu helgi. Maðurinn komst undan árásarmönnunum eftir að hafa orðið fyrir nokkrum barsmíðum en árásarmennirnir náðust ekki. íslendingurinn var einn á göngu í átt að hóteli sínu snemma á sunnu- dagsmorgni þegar tveir heimamenn, maður og kona, réðust á hann með hníf að vopni og kröfðust allra pen- inga sem hann hefði meðferðis. ís- iendingurinn neitaði að láta veski sitt af hendi og lömdu þá árásar- mennimir hann, meðal annars þrívegis í andlitið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.