Morgunblaðið - 04.08.1988, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 04.08.1988, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1988 Sýning Hakes ekki á vegum Kjarvalsstaða á Kjarvalsstöðum EKKI MARGORÐUR , FN STÓRVIRKURj eftirEirík Þorláksson Hr. ritstjóri. í grein sinni um sýningu Claes Hake á Kjarvalsstöðum, sem birtist 30. júlí sL, lætur blaðamaður Morg- unblaðsins, Hávar Sigurjónsson, ýmis stór orð falla um Kjarvals- staði, vinnubrögð starfsfólks Kjarv- alsstaða og framgöngu þess varð- andi sýninguna. Þar sem í flestum aðalatriðum er farið með rangt mál á mjög óviðeigandi hátt vil ég biðja yður um að birta þetta bréf í blaði yðar, en hér er að fínna ýmsar nauðsynlegar leiðréttingar vaiðandi atriði, sem blaðamaðurinn blæs upg. A umfjöllum blaðamannsins má skilja, að sýning Hake sé boðssýn- ing á vegum Kjarvalsstaða, sbr. í upphafi greinarinnar, þar sem segin „Það er einnig óvirðing við listamanninn af hálfu Kjarvalsstáða að sýna honum og verkum hans slíkt áhugaleysi eftir að búið er að bjóða honum til landsins með verk sín til sýningar", — í því sem haft er beint eftir listamanninum þar sem hann segin „______mistök af hálfu Kjarvalsstaða að nefna ekki við mig er mér var boðið að koma til íslands með sýningu ...“ — og í lok greinarinnar, er blaðamaður- inn greinir ákveðnar tilfinningar listamannsins og segir hann: „hafa lagt í umtalsverðan kostnað við að verða við óskum Kjarvalsstaða um sýningu á verkum hans“. — Hér er um grundvallarmisskilning að ræða, sem var búið að leiðrétta margoft og skilmerkilega við lista- manninn sjálfan, og erfitt er að átta sig á hvemig blaðamaðurinn festir sig í. Á Kjarvalsstöðum fara fram sýn- ingar sem í megindráttum má skipta í þijá flokka: — Sýningar, sem Kjarvals- staðir standa fyrir og hafa alfarið umsjón með. — Boðssýningar á vegum Kjarv- alsstaða, þar sem einstökym lista- mönnum, listamannahópum, söfn- um eða öðrum aðiljum er boðið að sýna, og sem starfsfólk Kjarvals- staða vinnur að skv. samningum um viðkomandi sýningar. — Sýningar á vegum lista- manna og annarra aðila, sem hafa fengið sýningaraðstöðu leigða á Kjarvalsstöðum; öll vinna við slíkar sýningar er á ábjrrgð við- komandi aðila, sem auðvitað hafa yfírleitt gott samstarf við starfsfólk Kjarvalsstaða um tilhögun þeirrar vinnu. Sýning Ciaes Hake, sem staðið hefur á Kjarvalsstöðum 16.—31. júlí, er óumdeilanlega í síðasta flokknum. Þessi mál eiga sér venju- lega langan aðdraganda, og það var í október 1986 sem Hake sótti um að fá hér sýningaraðstöðu (ásamt finnskum listamanni, Matthia Ahia) og bauðst til að senda frekari upp- lýsingar til stuðnings umsókninni. Einar Hákonarson, fyrrum list- ráðunautur Kjarvalsstaða, svaraði umsókninni í apríl 1987, og í íslenskri þýðingu er svarið eftirfar- andi: „Menningarmálanefnd Reykja- víkur hefur ákveðið að úthluta þér og Matthia Ahia sýningaraðstöðu á Kjarvalsstöðum 12.7.—1.8. 1988, með opnunardegi 16.7. 1988. Þið greiðið húsaleigu, sem nú er ísl. kr. 21.000, og berið ábyrgð á sýning- unni, flutningum, tryggingum o.s.frv. en húsið sér um gæslu á sýningunni." Það' er því ljóst að Claes Hake hefur leigt aðstöðu til sýningar á Kjarvalsstöðum að eigin frum- kvæði, en ekki komið hingað með verk til sýningar að frumkvæði Kjarvalsstaða eða í boði menningar- málanefndar Reykjavíkur. Þetta hafði verið rækilega leiðrétt við listamanninn með tilvísun til bréfa- skipta um málið, og er hérmeð leið- rétt einu sinni enn við viðkomandi blaðamann og aðra, sem skilið hafa málið á annan veg. Samkvæmt ofangreindu ætti að vera ljóst, að öll vinna við sýningar þeirra, er leigja aðstöðu á Kjarvais- stöðum, er á ábyrgð viðkomandi aðila; skv. bréfinu tíl Hake átti húsið að sjá um gæslu á sýning- unni, en öll ábyrgð á öðru sem gera þurfti (flutningur, uppsetn- ing, kynning, heimflutningur ferskt... „Það er erfitt fyrir starfsfólk Kjarvals- staða að ganga fram í að mismuna fólki hvað þetta varðar, en engoi að síður var þessum listamanni boðin og veitt margháttuð að- stoð, sem yfirleitt þarf ekki að veita þeim sem setja hér upp sýning- ar.“ o.s.frv.) var í höndum lista- mannsins sjálfs. Þessi sömu kjör gilda fyrir alla erlenda jafnt sem íslenska aðila, sem fá leigða hér sýningaraðstöðu. Það er erfitt fyrir starfsfólk Kjarvalsstaða að ganga fram í að mismuna fólki hvað þetta varðar, en engu að síður var þessum listamanni boðin og veitt marg- háttuð aðstoð, sem yfirleitt þarf ekki að veita þeim sem setja fiér upp sýningar. Því er ekki hægt að sitja þegjandi undir þeim orðum blaðamannsins, að starfsfólk hér hafi sýnt listamanninum og verkum hans „óvirðingu", „áhugaleysi" og „einkenniiegar móttökur". Skulu hér nefnd nokkur dæmi um hið gagnstæða, í tileftii einstakra til- vitnana í greininni. „Hefði ég vitað að starfsfólk Kjarvalsstaða myndi ekki aðstoða- á neinn hátt þá hefði ég aldrei þeg- ið boð um að sýna hér“ er haft eftir listamanninum; hér virðist ýmsu vera gleymt. Dæmi: Listamaðurinn kom til landsins að kvöldi 12. júlí, en verk- in komu með skipi 13. júlí, aðeins þrem dögum áður en opna átti sýninguna. Hake hafði ekki gert ráðstafanir fyrirfram til að fá verk- in flutt beint að Kjarvalsstöðum, og var einn starfsmanna Kjarvals- staða rúmlega eirin vinnudag að koma málinu áfram í gegnum það kerfí sem allur innflutningur þarf að fara í gegnum (þ.e. tollyfirvöld, flutningsaðila o.s.frv.) til að verkin kæmust að húsinu; var það verk að „aðstoða ekki á neinn hátt“? Dæmi: Listamaðurinn kom hvorki með sölubækur um verk sín tilbreyting... LÉTTAR FLOTBRYGGJUR Á SJÓ OG VÖTN STÆRÐIR: 1,5x6 MTR 2,0x6 MTR 2,4x6 MTR ENNFREMUR FLOT- TENGIBÚNAÐUR FYRIR FISKELDISSTÖÐVAR. UPPLÝSINGAR GEFUR UMBOÐSAÐILI SF-GRUPPEN KRISTJAN OLI HJALTASON IÐNBUÐ 2. 210 GARÐABÆ SÍMI46488 MODERFÖRETAG i* # *tt >11 » ; u > !»♦ #**♦♦>* < 5«** ‘ * t ■. » :■ ♦#♦*♦♦’ ■#♦♦*•• *♦♦♦♦* ♦ * * T - ♦ • ♦ .».•#«#«•*♦♦♦ t ♦ ♦ • v • v V * f T f A * * • « V . V ■: * ' .*• > > 1. » » , J J „* j > * 1 * * * í > .* * ' ‘ * ' ■' ' • (EiUjftlme, Útsalan okkar hefst föstudag kl. 13.00 Stendur aðeins yfir í nokkra daga. JOSS \ BOGIE LAUGAVEGI 101 SÍMI17419

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.