Morgunblaðið - 04.08.1988, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1988
17
né nokkra skrá yfir þau verk, sem
voru á sýningunni, og hafði ekki
frumkvæði að því að skrá væri gerð;
það var starfsmaður Kjarvalsstaða
sem útbjó lista yfir verkin til þæg-
inda fyrir þá sem vildu skoða sýn-
inguna; var það verk að „aðstoða
ekki á neinn hátt“?
Dæmi: Listamanninum var boðið
að hitta rafvirkja, sem sér um lýs-
ingu hússins, til að ákvarða lýsingu
í salnum. Hann notfærði sér ekki
það boð, en lýsti sig ánægðan með
lýsinguna, þegar hún hafði verið
sett upp, án þess að hann kæmi
þar nærri; var það verk að „aðstoða
ekki á neinn hátt“? Því er furðulegt
að blaðamaðurinn hefur eftir hon-
um „ . . . þó mætti lýsingin í þessum
sal vera betri. ..“ þegar listamað-
urinn nýtti sér ekki tækifæri til að
hafa áhrif á lýsinguna, eins og hann
þó hafði.
„Það hefði auðvitað verið til bóta
ef Kjarvalsstaðir hefðu sent út
boðskort á opnun sýningarinnar eða
gert fjölmiðlum viðvart um hana á
annan hátt“ hefur blaðamaðurinn
eftir Claes Hake. Hér er enn hallað
réttu máli.
Send voru út boðskort vegna
sýningar á verkum Jóhannesar
Kjarvals sem einnig átti að opna á
Kjarvalsstöðum þann 16. júlí (og
sem starfsfólk Kjarvalsstaða er
ábyrgt fýrir og var önnum kafið
við að undirbúa þessa sömu daga).
Beðið var með að senda þau af stað
þar til Claes Hake kom til landsins,
og honum boðið að senda boðskort
með sömu póstsendingu. Hann af-
þakkaði það boð.
í vikunni fyrir sýninguna var
send út fréttatilkynning til allra
fjölmiðla um báðar sýningamar.
Flestir prentmiðlanir greindu frá
þessum sýningum í helgarblöðum
sínum 16.—17. júlí, og Stöð 2 birti
myndir af verkunum og viðtal við
listamanninn í þætti sínum 19:19
að kvöldi 17. júlí. Síðar hafa nokkr-
ir fjölmiðlanna m.a., Morgunblaðið,
fylgt upphaflegri kynningu eftir
með nánari umíjöllun. Er hægt að
segja að með þessu — og ofan-
greindu tilboði — hafi starfsfólk
Kjarvalsstaða „ekki aðstoðað á
neinn hátt“?
Fleiri atriði í grein Hávars Sigur-
jónssonar mætti nefna, þar sem
ekki er farið með rétt mál, en ég
tel óþarfa að eltast við hér og nú.
Kjami þessa máls er að viðkomandi
listamaður virðist ekki hafa undir-
búið sýningu sína hér á landi sem
skyldi og ekki gert sér fyllilega
grein fýrir hvað þyrfti til, og er auk
þess ef til vill ekki fús til að taka
á sig nokkra ábyrgð á eigin mis-
skilningi varðandi sýninguna. Því
er reynt að koma sökinni á aðra, í
þessu tilviki starfsfólk Kjarvals-
staða, sem þó hefur af fremsta
megni reynt að aðstoða Claes Hake
og greiða götu sýningar hans hér.
Þessi atriði hafa sýnilega öll
komið fram í viðtali Hávars Sigur-
jónssonar við listamanninn, og hann
hefur þau beint eftir, gagnrýnis-
laust, og hnýtir enn frekar í Kjarv-
alsstaði frá eigin bijósti af þessu
tilefni. Hins vegar hefði blaðamað-
urinn auðveldlega geta komist hjá
þessum mistökum, hefði hann gefið
sjálfum sér nokkrar mínútur til að
tala við starfsfólk Kjarvalsstaða,
eftir að viðtali hans við listamann-
inn lauk. Það gerði viðkomandi
blaðamaður hins vegar ekki og leit-
aði reyndar engra upplýsinga á
Kjarvalsstöðum um nokkra hlið
málsins.
Því fór sem fór, og er nú nauð-
synlegt að biðja yður, hr. ritstjóri,
að birta þessar leiðréttingar opin-
berlega í blaði yðar. Einnig tel ég
við hæfi að viðkomandi blaðamaður
biðji okkur starfsfólk Kjarvalsstaða
afsökunar á skrifum sínum um
þetta mál hvað okkur varðar.
Höfundur er safn vörður
á KjarvaJsstöðum.
__________Brids_______________
Arnór Ragnarsson
Afmælismót SB-klúbbsins
í Kaupmannahöfn
Unglingalandsliðsparið Matthías
Þorvaldsson og Hrannar Erlings-
son, sem nú keppa í Búlgaríu, munu
spila fyrir íslands hönd á 160—180
para afmælismóti Dananna, helgina
17.—18. september nk.
Eins og áður hefur komið fram
buðu Danir 2 íslenskum pörum að
taka þátt í mótinu, en þeir hyggj-
ast bjóða sérstaklega 20 pörum og
greiða þeir keppnisgjöld, gistingu
og uppihald ytra.
Hafi annað par hug á að vera
með, er enn hægt að ganga frá
málum til 10. ágúst.
Afmælismót Bridsfélags
Siglufjarðar
Nú eru línur skýrar hvað af-
mælismót norðanmanna, 3.-4.
sept. snertir: Spilaður verður 3ja
lotu „Mitchell“-tvímenningur, tvær
umferðir á laugardag og ein á
sunnudag. Gert er ráð fyrir þátt-
töku 50 para (hámark) og „fá“
höfuðborgarspilarar um 20 sæt-
anna.
Verðlaun í mótinu verða
stórglæsileg: 1. verðlaun 120.000
krónur. 2. verðlaun 80.000 krónur.
3. verðlaun 50.000 krónur. 4. verð-
laun 20.000 krónur. 5. verðlaun
10.000 krónur og ýmiskonar auka-
verðlaun, allt niður í 10. sæti. Auk
þess verða í boði veglegir ferðavinn-
ingar fýrir hæstu skor í lotunum.
Keppnisgjald er kr. 5.000 á parið.
Keppnisstjóri verður Hermann Lár-
usson, Rvk., og reiknimeistari
Margrét Þórðardóttir, Akureyri.
Skráning á mótið hefst 5. ágúst.
Fyrir höfuðborgarsvæðið er tekið
við þátttökutilkynningum á skrif-
stofu BÍ í Sumarbrids og í síma
41507 (Hermann).
Grae óum 03 «0 u> ÍÚ ' ka
bræoum E =3 T3
ÁTAKILANDGRÆÐSLU LAUGAVEG1120,105 REYKJAVÍK SlMI: (91)29711 Hlauparelknlngur 2S1200 BúrtaAarbankinn Hellu ■o £ » -2 w. C/) O”
Föstudagskvöld á Borginni
Skutlan er eins og sniðin fyrir nútímafólk. Hún er
sparneytin, 5 manna og sérlega léttog lipurí um-
ferðinni. Skutlan er flutt inn af Bílaborg h/f. Það
tryggir 1. flokks þjónustu, sem er rómuð af öllum
sem til þekkja.
* LANCIA SKUTLA kostar kr. 356 þús.kr. stgr.
Útborgun kr. 89.000 eftirstöðvar greiðast á 30
mánuðum, kr. 11.251 pr. mánuð að viðbættum
verðbótum. Kostnaður við ryðvörn og skráningu
er ekki innifalinn. ______ (Gengisskr. 23.6.88)
Ef svo er þá getur þú eignast
splunkunýja LANCIA SKUTLTJ!
BILABORG HF.
FOSSHÁLSI 1, S. 68 12 99
Opið laugardaga frá kl. 1 - 5.
Mátt þú sjá af
369 krónum
á dag?*
Hörpuskjól
- varanlegt skjól.
Skúlagötu 42, Pósthólf 5056
125 Reykjavlk, Slmi (91)11547
HARPA lífinulit!