Morgunblaðið - 04.08.1988, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 04.08.1988, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1988 19 Isafjörður: Fjórir slasast í bílveltu FJÓRIR unglingar slösuðust nokkuð er bíll þeirra fór út af veginum og valt skammt innan við Látra í Mjóafirði á mánudag. Okumaðurinn var fluttur flug- leiðis til Reykjavíkur en var ekki talinn lífshættulega slasaður, að sögn Jónasar Eyjólfssonar yfir- lögregluþjóns á Isafirði. Farþegamir fengu að fara heim að lokinni skoðun og aðhlynningu á sjúkrahúsinu á ísafirði. Lögreglu var tilkynnt um óhappið á ellefta tíman- um á mánudagskvöld. Er talið að bíllinn hafi lent í lausamöl í beygju og ökumaður við það misst stjórn á honum. Ökumaður og farþegi í fram- sæti vom í öryggisbeltum en tvær stúlkur í aftursætum ekki. Vegagerð ríkisins: Sjö bjóða í kafla á Suð- urfjarðavegi SJO verktakafyrirtæki buðu í gerð 4,9 km. kafla á Suðurfjarða- vegi, frá Skriðum til Höfðahúss. I verkinu em innifaldar fimmtán þúsund rúmmetra fyllingar og lagn- ing 22.000 rúmmetra burðarlags. Kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar hljóðaði upp á 17.960.000,00, en lægsta tilboðið var 64,5% þeirrar upphæðar. Það var Fell sf. á Höfn, sem átti lægsta tilboðið, sem var 11.575.600,00. Gunnar og Kjartan buðu hæst, og var tilboð þeirra 22.190.360,00 kr. Ók á 100 á Nýbýlavegi LÖGREGLAN í Kópavogi stöðv- aði á tíunda tímanum í gærmorg- un mann sem ók sportbíl sínum með 100 kílómetra hraða um Nýbýlaveg skammt frá Stóra- hjalla. Þar er leyfilegur hámarks- hraði 50 kilómetrar á klukku- stund. Maðurinn var færður á lögreglu- stöðina þar sem fulltrúi bæjarfógeta ákvað að svipta hann ökuleyfi til bráðabirgða. Málið verður sent saka- dómara á næstunni. „Þúsundir laxa í Laxá í Kjós“... Nú em komnir hátt í 2300 laxar á land úr Laxá í Kjós og er því metveiði í ánni í sumar örugg, en metveiði árinnar mun vera um 2370 laxar. Margir spá því raunar að áin fari langt fram úr þeirri veiði í sumar, nái senni- lega 3000 löxum, jafn vel meiru, allt eftir því hvernig tíðarfar verður síðari hluta veiðitímans, en áin er orðin all vatnslítil og hamlar það veiðum að sjálfsögðu nokkuð. Laxamagn í ánni er ógurlegt, Ólafur H. Ólafsson veiðivörður sagði í gærdag, að laxamir í ánni skiptu „þúsund- um“ og á stöku stöðum væru mörg hundruð fiska fyrir. Nefndi hann sem dæmi Þórufoss og Bugðufossinn, en aðrir hafa einnig nefnt Spegilinn, Króar- hamar og fleiri staði. Ofan á allt saman þá er enn lax að ganga í töluverðum mæli, í fyrra morg- un veiddust til dæmis' 25 laxar á neðsta svæðinu og voru þeir flestir grálúsug ir, „það kom mikið af nýjum laxi með síðasta straum, en það er fastur liður í Laxá að það komi góð ganga í ána á stærsta straum_ á þessum tíma sumars," sagði Ólafur enn fremur. Horfumar em bjartar í Kjósinni, þvi upp úr slíku laxamagni hlítur að veiðast að minnsta kosti þokkalega jafn vel þótt skilyrði kynnu að fara versnandi. í besta falli gæti orðið þarna alger stór- veiði, til dæmis ef það hlypi góð skvetta af nýju vatni í ána, þá myndi Laxamergðin í Þórufossi sakka úr fosshylnum og niður um allt gljúfrið. „Þá verður veisla héma,“ sagði Ólafurveiðivörður. „Mokveiði hér í sumar.“ „Hér hefur verið mokveiði í allt sumar og laxarnir orðnir 740 til 750,“ sagði Torfi Ásgeirsson eftirlitsmaður við Haukadalsá í Dölum í samtali við Morgun- blaðið í gær. Hann nefndi sem dæmi að morguninn áður hefðu veiðst 7 laxar og hefði þótt afar rýrt miðað við það sem á undan er gengið. „Áin er sneisafull af laxi og veiðist vel á öllum svæð- um. Mér sýnist fátt benda til annars en að þessi veiði muni haldast að minnsta kosti vel fram eftir ágúst. Svo er alltaf að koma nýr fiskur inn,“ bætti Torfi við. Hann gat þess að eins og víðar á Suðvestur- og Vesturlandi, væri uppistaðan í aflanum smá- lax, 4 til 6 punda fiskur og svo reytingur með af 7 til 9 pundi laxi. Einn ogeinn 10 til 12 punda lax slæðist alltaf með, en það virðist vera lítið af vænum laxi í sumar þótt við höfum vissulega séð þá stóra í sumar. Sem dæmi um laxamagnið í ánni, taldi Torfi að veiðistaðurinn Blóti geymdi nú um 200 fiska eða meira. Þá taldi hann veiðina í sumar sér- staklega athyglisverða fyrir þær sakir, að veður hefur verið afar leiðinlegt í Dölunum í nær allt sumar, alltaf stífur vindur úr einhverri átt og oft kalt og þar af leiðandi erfitt og síður fýsilegt að standa úti við veiðar. Þess má geta, að allt síðasta sumar veiddust í Haukadalsá 645 laxar. Hægíst um í Langholtinu. Það hefur hægst verulega um veiðina í Hvítá eystri fyrir landi Langholts eftir afar líflegan kafla fram eftir öllum júlímán- uði. Tíðindamaður Morgunblaðs- ins sem var á svæðinu á laugar- daginn sagði að þann dag hefðu einungis 4 laxar komið á land og þá hefði heildartalan verið komin upp í 150 laxa. „Það er alltaf lax þarna um allt svæðið, hann sýnir sig mikið, en erfítt er að átta sig á því hversu mikið magnið er,“ sagði okkar maður á staðnum. Laxinn þama er yfir- leitt 5 til 12 pund og sá stærsti til þessa 24 pund, veiddur í Ker- inu á maðk snemma í júlí. 22 pundari á Snæfoksstöðum. Veiði í Hvítá eystri fyrir landi Snæfoksstaða hefur verið nokk- uð góð svona yfírleitt í sumar, engin uppgrip, en alltaf líf í ánni og veiðivon góð, enda vatn lengst af verið talið hagstætt. Um helg- ina gerðist það að veiðimaður þama setti í og landaði eftir harðan leik 22 punda lax og er það sá stærsti sem veiðst hefur á þessu svæði í sumar. Og á þessu smálaxasumri er það með stærri löxum þessa tímabils. Svartá dauf. Slök veiði hefur verið í Svartá það sem af er sumri, a.m.k. mið- að við síðustu sumur og fregnir fyrir skömmu um að veiðin þar væri að glæðast reyndust úr lausu lofti gripnar. Aðeins mun komnir rúmlega 50 laxar á land og lítið af laxi gengið í ána þótt talsvert sér talið af laxi í vatna- mótunum þar sem áin sameinast Blöndu. Þess má geta, að „besti tíminn" í Svartá frá fornu fari er enn eftir, þ.e.a.s ágústmánuð- ur og í seinni tíð september einn- ig- gg Veiðimaður rennir í Kerið í Hvítá eystri, í landi Langholts. IL'JJkXs) ’fjCznísí* -MESl NU 1 K_L *9% — Við lanum allt að helmingi kaupverðsins i 12 manuði með föstum 9.9% ársvöxtum. ENGIN VERÐTRYGGING! Athug- ið, að greiðslubyrði lánanna léttist eftir því sem á líður! Staðgreiðsluverð 369.000 408.000 429.000 697.000 Dæmi um verð: UNO 45 3JA DYRA UN0 45S 3JA DYRA UN0 45S 5 DYRA UNOTURBO I.E. f&Glu Öll verð eru háð gengisbreytingum. Ryð- vörn og skráning er ekki innifalin í verði. WAfc ': sra

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.