Morgunblaðið - 04.08.1988, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1988
Viðræður um Angólu og Namíbíu:
Hafna tillögum
S-Afríkustjórnar
Genf. Reuter.
FULLTRÚAR stjórnvalda á Kúbu og í Angólu höfnuðu í gær tillög-
um Suður-Afríkustjórnar um leiðir til að binda enda á átök i An-
gólu og tryggja sjálfstæði Namíbíu. Stjórnvöld í Suður-Afríku kváð-
ust á þriðjudag vera reiðubúin til að veita Namibíu sjálfstæði frá
og með 1. júní á næsta ári gegn því að kúbanskar hersveitir hefðu
haft sig á brott úr Angólu fyrir þann tíma.
Viðræður um framtíð Namibíu
og frið í Angólu standa nú yfir í
Genf í Sviss og er þetta í fjórða
skipti sem fulltrúar stjómvalda á
Kúbu, í Suður-Afríku og Angólu
koma saman til fundar í þessu
skyni.
í tillögum stjómvalda í Suður-
Afríku, sem Pik Botha, utanríkis-
ráðherra landsins, kynnti á þriðju-
dag er gert ráð fyrir að herafli
Suður-Afríku hverfí frá Namíbíu í
nóvember á þessu ári gegn því að
herstöðvar skæmliða í Angólu
verði lagðar niður og að herafli
Kúbumanna verði kallaður á brott
úr landinu fyrir 1. júní 1989.
^Sendimenn Kúbustjómar sögðu
á blaðamannafundi í gær að tillög-
ur þessar væm með öllu óaðgengi-
legar. Ef stöðvar skæmliða í An-
gólu yrðu lagðar niður kynnu
stjórnvöld þar að verða „handbendi
kynþáttaaðskilnaðarstefnunnar"
sem stjóm hvíta minnihlutans í
Suður-Afríku fylgir. Fulltrúar bæði
Kúbu og Angólu sökuðu Botha um
trúnaðarbrest en lögðu hins vegar
áherslu á að ekki stæði til að slíta
viðræðunum sökum þessa.
Sovétríkin:
Farið lofsamleg-
um orðum um eitt
verka Solzhenítsyns
„Dagnr í lífi Ivans Denísovítsj“
talið til sígildra bókmennta
Moskvu. Reuter.
SOVÉSKA tímarítíð Moskvu-fréttir birtí í gær grein eftír gagn-
rýnanda einn þar sem segir að eitt bókmenntaverka rithöfund-
arins útlæga, Alexanders Sólzhenítsyns, geti með réttu talist
sigild bókmenntaperla í menningarsögu Sovétríkjanna. Verkið
sem hér um ræðir „Dagur í lífi ívans Denísovítsj" fjallar um
hlutskiptí fanga I þrælkunarbúðum á valdatíma Jósefs Stalín.
hann hafí gefíð formlegt leyfí fyr-
ir útgáfu bókarinnar. Þegar
Khrústsjov var steypt af stóli árið
1964 vom ritverk Solzhenítsyns
um ógnir stalínismans sett á bann-
lista stjómvalda sem andsovéskur
áróður.
Árið 1970 var Solzhenítsyn vik-
ið úr sovéska rithöfundasamband-
inu vegna skrifa sinna en áður
höfðu honum verið veitt bók-
menntaverðlaun Nóbels. Fjórum
ámm síðar var ítarlegasta ritverk
hans um vinnubúðir stalínismans,
„Gúlag eyjaklasinn" gefið út á
Vesturlöndum og vakti sú bók
mikla athygli. Sökum þessa var
Solzhenítsyn handtekinn, sviptur
ríkisborgararétti og rekinn úr
landi til Vestur-Þýskalands. Hann
býr nú í Vermont í Bandaríkjun-
um.
í greininni seg-
ir höfundurinn,
Lev Voskrenskíj,
hins vegar að ekki
sé tímabært að
leggja mat á önn-
ur ritverk Solz-
henítsyns, viðhorf
hans og skoðanir.
„Ég get á hinn
bóginn sagt að Alexander
síðustu 25 ár hafa Solzhenltsyn
leitt í ljós að „Dagur í lífí ívans
Denísovítsj" er eitt glæsilegasta
afrek sem unnið hefur verið á sviði
bókmennta í sögu þjóðar vorrar,"
segir höfundurinn.
„Dagur í lífí ívans Denísovítsj"
var gefín út í Sovétríkjunum árið
1962 er Níkíta Khrústsjov gegndi
embætti aðalritara kommúnista-
flokksins og er raunar talið að
Reuter
31 beið bana er biðsalur hrundi
Þijátíu og einn maður beið bana og á niunda hundrað slösuð-
ust þegar tveggja hæða bygging á hafnargarði hrundi í borg-
inni Butterfield á vesturströnd Malasiu. Á myndinni sjást tveir
menn kanna rústir hússins i þeim tilgangi að komast að því
hvað slysinu olli. Um eitt þúsund manns voru i byggingunni
þegar hún hrundi. Biðu þeir eftir feiju, sem átti að fiytja þá
til helgistaðar á eynni Penang.
Persaflóastríðið:
Bandaríkin:
Reagan
kallar
Dukakis
öryrkja
Washíngton. Reuter.
Reagan Bandaríkjaforseti var
spurður á blaðamannafundi i
Hvíta húsinu i gær hvort honum
fyndist að Michael Dukakis, for-
setaframbjóðandi demókrata,
ætti að birta opinberlega lækna-
skýrslu sina til að almenningur
gæti sjálfur ihetið hvort fram-
bjóðandinn væri hæfur til að
gegna embættinu. Forsetinn svar-
aði brosandi að hann vildi ekki
stríða öryrkja.
Skömmu síðar
afsakaði forsetinn
sig og sagði að
hann hefði einfald-
lega sagt mis-
heppnaðan brand-
ara. I nokkra mán-
uði hefur sá orð-
rómur verið á
kreiki að Dukakis
hafi hlotið með- „ _
höndlun gegn Ronald Rea*an
þunglyndi eftir að bróðir hans, Stel-
ian, var ekinn niður af drukknum
bflstjóra árið 1973 og lést. Stelian
Dukakis átti við geðræn vandamál
að stríða. Einnig hefur því verið
fleygt að forsetaframbjóðandinn hafí
fengið læknishjálp eftir ósignr sinn
í ríkisstjórakosningunum í Massac:
husetts-ríki 1978. Dukakis hefur
vísað hvoru tveggja á bug.
Það eru einkum fylgismenn
hægri-ofstækismannsins Lyndons
LaRouche sem reynt hafa að bteiða
út orðróminn en fram til þessa hafa
fáir veitt honum athygli. Er Reagan
var spurður hvort hann hefði byggt
ummæli sín á upplýsingum um heil-
brigði Dukakis svaraði hann: „Nei,
ég var bara að reyna að vera fynd-
inn og það mistókst."
Beðið eftír greinar-
gerð sendimanna
Nikósíu. Reuter.
ÍRAKAR gerðu loftárásir á skot-
mörk í suðurhluta írans í gær
að því er sagði i tilkynningu
IRNA hinnar opinberu frétta-
stofu írans. Kváðust íranir hafa
grandað einni íraskri orustuþotu.
Viðræður um vopnahlé í Persa-
flóastríðinu, sem fram fara fyrir
milligöngu Sameinuðu þjóðanna,
hafa litlum árangri skilað vegna
þeirrar kröfu íraka að fram fari
beinar viðræður fulltrúa
ríkjanna tvegggja.
SIEMENS
SIEMENS uppþvottavél'
LADY SN 4523 með
Aqua-Stop vatnsöryggi.
Vandvirk og hljóðlát.
# 5 þvottakerfi.
• Fjórföld vöm gegn vatnsleka.
#' Óvenjulega hljóðlát og sparneytin.
Smith og Norland,
Nóatúni 4,
s. 28300.
Herlög í Burma talin
viðvörun til stúdenta
Bangkok. Reuter.
SEIN Lwin, hinn nýi leiðtogi Burma, lýsti í gær yfir herlögum í
landinu aðeins viku eftir að hann tók við völdum af Ne Win. Sósíali-
staflokkur Ne Wins hefur verið einráður i landinu undanfarin 26
ár en síðustu fimm mánuði hafa verið þar miklar óeirðir sem stjóm-
arandstæðingar segja að hafi kostað meira en 200 manns lífið. Yfir-
völd viðurkenna að 41 andófsmaður hafi kafnað í marsmánuði er
þeim var troðið inn í einn og sama lögreglubílinn eftir mótmælaað-
gerðir.
Sjónarvottar sögðu að hundruð
stúdenta hefðu gengið frá pagóð-
unni Shwedagon í gær inn í mið-
borg höfuðborgarinnar, Rangoon,
sönglandi slagorð gegn ríkisstjóm-
inni og á endanum hefði hópurinn
talið um 2000 manns. Þeir hurfu á
brott án átaka við lögreglu. í til-
kynningu um herlögin sagði hins
vegar að skapast hefðu aðstæður
„sem yfírvöld á staðnum höfðu ekki
stjóm á.“ Þess vegna hefði verið
nauðsynlegt að setja herlög til að
„tryggja öryggi ríkisins, gæta lífs
og eigna óbreyttra borgara og koma
til móts við óskir þeirra stúdenta
sem vildu fá næði til að stunda nám
sitt í friði."
Erlendum fréttamönnum er ekki
leyft að koma til Burma. Vestrænn
stjómarerindreki sagði að enn væri
óljóst hvers vegna herlögin hefðu
verið sett. Hann taldi líklegt að þau
væru viðvörun til stúdenta um að
nú væri nóg komið af mótmælum;
stjómin hygðist framvegis mæta
þeim af hörku. Þekktasti stjómar-
andstæðingur landsins, Aung Gyi,
70 ára gamall, og a.m.k. níu aðrir
andófsmenn voru settir í varðhald
síðastliðinn föstudag sakaðir um
áróður gegn ríkinu.
Búist er við því að sendinefnd
SÞ, sem hélt til viðræðna við ráða-
menn í íran og írak eftir að bæði
ríkin höfðu lýst sig reiðubúin til að
fallast á vopnahlé, skili skýrslu til
framkvæmdastjóra SÞ í dag,
fímmtudag. Er og búist við því að
framkvæmdastjórinn tiltaki í kjöl-
far þessa vopnahlésdag í Persa-
flóastríðinu, sem staðið hefur í tæp
átta ár.
Perez de Cuellar, framkvæmda-
stjóri SÞ, hefur ekki getað tiltekið
vopnahlésdag vegna þeirrar kröfu
íraka að fram fari beinar viðræður
fulltrúa ríkjanna um framkvæmd
þess. íranir segja á hinn bóginn að
ekki sé gert ráð fyrir beinum við-
ræðum í vopnahléssamþykkt Ör-
yggisráðs SÞ, sem bæði ríkin hafa
fallist á. Utanríkisráðherrar sjö
ríkja Araba-bandalagsins lýstu í
gær yfír stuðningi við kröfu stjóm-
valda í írak. Útvarpið í Teheran,
höfuðborg írans, vísaði stuðnings-
yfírlýsingu þessari á bug og sagði
hana ekki lýsa sjónarmiðum Araba-
þjóða.