Morgunblaðið - 04.08.1988, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 04.08.1988, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1988 Hagur fiskvinnslunnar er hagur okkar allra eftir ÁgústH. Elíasson Afkoma f iskvinnslunnar Undanfamar vikur og mánuði hefur afkoma fiskvinnslunnar farið versnandi dag frá degi. Þorskblokk- in hefur fallið í verði a.m.k. 35% frá áramótum og fellur enn. Aðrar sjávarafurðir hafa einnig fallið í verði að fískimjöli og lýsi undan- skildu. Gengisfellingarnar á þessu ári hafa dugað skammt til að vega upp á móti innlendum kostnaðar- hækkunum og verðfalli afurðanna erlendis. Styrking Bandaríkjadollars að undanfömu, gagnvart öðrum gjald- miðlum, hefur að vísu bætt nokkuð úr varðandi hag vinnslunnar. Hún hefur á síðustu mánuðum (frá 1. maí sl.) bætt afkomu frystingarinn- ar um 3,3% og saltfisksvinnslunnar um tæpt 1% miðað við það, sem annars hefði orðið. Þjóðhagsstofnun sendi frá sér þjóðhagsspá þann 5. júlí sl. og er þar talið að frystingin sé rekin með 8,2% halla, söltun með 2% hagnaði og fískvinnsla í heild með 4,6% halla, allt miðað við 6% ávöxtun stofníjár. Samband fiskvinnslustöðvanna hefur á grundvelli þeirra áætlana, sem spáin byggist á, gert hliðstæða fiskvinnslunnar í júlíbyijun. Áætlun SF miðar við að rekstrar- og afurða- lán séu með 9% vöxtum sem nemi verðmæti 75% afurða, sem er hæsta mögulega afurðalánahlutfall físk- vinnslunnar, en lán á 38% vöxtum séu tekin til að fjármagna afgang- inn. ÞHS reiknar 9% á öll rekstrar- og afurðalán, en það kemur illa heim og saman miðað við þá lána- möguleika sem fiskvinnslan býr við. Þá miðar áætlun ÞHS við 6% ávöxtun stofníjár, en áætlun SF við 9% ávöxtun, enda núverandi vextir umfram verðbólgu um 10%. Halli fískvinnslunnar við þessar aðstæður er um 2 milljarðar á ári og er hlutur frystingarinnar þar langmestur, en hún er nú tæplega 12% halla og söltun með 0.5% halla að mati SF. Það er ljóst að 3% gengisfelling- in, sem fulltrúum vinnslunnar í Verðlagsráði var heitið við físk- verðsákvörðunina í byrjun júní, og enn hefur ekki verið staðið við, nær engan veginn til þess að rétta við hag vinnslunnar. Meira verður að koma til. Innlendir vextir eru um þessar mundir um 40% þegar verðtrygging lána er meðtalin, og undir þessum kostnaði á fískvinnslan að standa með lækkandi tekjum. Frelsi til að taka lán í erlendri mynt hjá við- skiptabönkum eða erlendis virðist eina leiðin til að lækka vaxtabyrði fískvinnslunnar, þar sem eftirspum eftir innlendur lánsfé er mikil og varla við búið að vaxtalækkun fáist hjá innlendum lánastofnunum við slíkar aðstæður. , Hvað getur vinnslan gert? Bent hefur verið á að menn eigi að bæta rekstur og hagræða, sam- eina fyrirtæki og taka upp nýtísku- legri vinnsluaðferðir. Þetta er þegar gert í ríkara mæli í fískvinnslunni en í flestum öðrum atvinnurekstri. Hins vegar koma nýjungar stöðugt fram og það tekur tíma að prófa þær og oft er kostnaðarsamt að koma þeim í framkvæmd. Þannig Ágúst H. Elíasson „Meg-in verkefni ríkis- stjórnarinnar er og- verður, að koma verð- bólgnnni niður á svipað stig og í nágrannalönd- unum, koma á jöfnuði í viðskiptum okkar við útlönd, draga úr skuldasöfnun erlendis og reka fjármál ríkisins án halla.“ er viðbúið að fískvinnslan í landinu sé ekki ævinlega fær um, né sé það alltaf skynsamlegt, að fjárfesta í nýrri tækni um leið og hún er tiltæk. Þeir sem kynnt hafa sér físk- vinnslufyrirtæki í samkeppnislönd- um okkar vita að fiskvinnsla hér er almennt sambærileg við það sem best gerist erlendis, bæði hvað varð- ar tæknibúnað og alla aðstöðu, en ýmsir aðilar, þar með talið Ríkis- matið, ætlast til enn meiru af okk- ur. Þetta er byggt á óraunsæi og óskhyggju, þótt það séu að sjálf- sögðu fyrir hendi tilvik þar sem rétt er að hlutimir þyrftu að vera í betra lagi. Og fískvinnslufyrirtæki, sem af veikum mætti ætla að hagræða hjá sér, til dæmis með því að koma sér upp hraðvinnslukerfum, þurfa að greiða 25%—27,5% söluskatt af búnaði til vinnslunnar. Öllum sem við vinnsluna starfa er ljóst að draga verður úr þensl- unni innanlands, sérstaklega á höf- uðborgarsvæðinu. Eyðsluæðinu verður að linna, við eyðum stöðugt meiru, þrátt fyrir minni tekjur og skuldasöfnunin eykst. Auk þess að vera aðal undir- stöðuatvinnugrein þjóðarinnar, á landsbyggðin allt undir fiskvinnsl- unni. Án öflugrar fískvinnslu munu byggðarlög leggjast í eyði og ör- deyða verða umhverfis landið. Stefna sljórnvalda Stefna ríkisstjómarinnar virðist samt sem áður vera, að fískvinnnsl- an eigi að hagræða og endurskipu- leggja sig út úr vandanum, og þetta smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar FERÐAFELAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR 11798 og 19533. Sumarleyfisferðir Ferðafélagsins: 5.-10. ágúst (6 dagar): Landmannalaugar - Þórsmörk. Farastjóri: Ámi Árnason. 5.-14. ágúst (10 dagar): Hálendið norðan Vatnajökuls. Leiöin liggur um Nýjadal, Gæsa- vatnaleiö, í Herðubreiðarlindir, í Kverkfjöll og Öskju. Heimleiðis verður ekið sunnan jökla til Reykjavíkur. Ath.: Brottför kl. 19.00 föstudag. Fararstjóri: Hjalti Kristgeirsson. 9.-14. ágúst (6 dagar): Norð- austurland - Jökulsárhlfð - Vopnafjörður - Langanes. Ekið norður um Kjöl og gist fyrst á Laugum i Reykjadal. Litast um á Norðausturlandi i næstu fjóra daga. Ekið til Reykjavíkur um Sprengisand. Brottför kl. 08.00. 9.-14. ágúst (6 dagar): Hvrtárnes - Hveravellir. Það er ódýrt að ferðast með Ferðafélagi íslands. Kynnlst eigin landi og ferðist með Ferðafélagi íslands. Ferðafélag íslands. í^mhjólp í kvöld kl. 20.30 er almenn sam- koma í Þríbúðum, Hverfisgötu 42. Mikill og fjölbreyttur söngur. Vitnisburðir. Samhjálparkórinn tekur lagið. Ræðumaður verður Gunnbjörg Óladóttir. Allir velkomnir. Samhjálp. Smiðjuvegi 1, Kópavogi Samkoma i kvöld kl. 20.30. Ásmundur Magnússon prédikar. AJIir velkomnir. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR 11798og 19533. Helgarferðir F.í. 5.-7. ágúst: 1) Fjallabaksleiðír nyrðri og syðri. Leiðin liggur um Eldgjá - Hólms- árlón - Rauðubotna og Álfta- vatn. Gist i sæluhúsum F.i. 2) Þórsmörk. Gist í Skagfjörðsskála/Langadal. 3) Landmannalaugar - Eidgjá. Gist i sæluhúsi F.i. í Landmanna- laugum. Upplýsingar og farmiöasala á skrifstofu Ferðafólagsins, Öldu- götu 3. Ferðafólag islands. m ÚtÍVÍSt, C,o,nn , Helgarferðir 5.-7. ágúst. 1. Fjölskytduhelgi f Þórsmörk. Tilvalin ferð fyrir unga sem aldna. Dagskrá: Ratleikur, léttar gönguferðir, pylsugrill, kakó, leikir og söngur. Gist í Útivistar- skálunum Básum meðan pláss leyfir, annars tjöld. Afsláttarverð og fritt fyrir böm yngri en 10 ára með foreldrum sínum. Farar- stjórar Bjöm Finnsson og Fríða Hjálmarsdóttir. 2. Kjalarferö. Fjölbreytt ferð. Gist í skála i Svartárbotnum. M.a. Þjófadalir, Oddnýjarhnúk- ur, Hveravellir og Kerlingarfjöll. Gönguferðir, fjallagrös, laugar- bað. 3. Þórsmörk. Venjuleg helgar- ferð sameiginleg flölskylduhelg- inni og á sömu afsláttarkjörum. Fararstjóri Kristján M. Baldurs- son. Uppl. og farm. á skrifstofu Gróf- inni 1, simar 14606 og 23732. Sjáumst! Útivist. ÚtÍVÍSt, GíOfinr,, 1 Sumarleyfisferðir 1. Kjölur - Þjófadallr - Fjall- krrkjan 5.-10. ágúst. Spennandi bakpokaferð á svæði austan- undir Langjökli. 2. Eldgjá - Þórsmörk 12.-17. ágúst. Skemmtileg bakpokaferð frá Eldgjá um Álftavatnskrók, Strútslaug, Hvanngil og Emstrur til Þórsmerkur. 3. Þjórsárver 18.-21. ágúst. Ekið inn á Sprengisand og farið með báti yfir Þjórsá. Gengið á Arnarfell hið mikla. Göngutjöld. 4. Tröllaskagi 19.-24. ágúst. A) Gengið um Hólamannaveg (2 dagar). B) Gengið frá Siglufirði i eyðifjörðinn Héðinsfjörð og til Ólafsfjarðar. Uppl. og farm. á skrifst. Grófinni 1, símar 14606 og 23732. Sjáumst! Útivist. Rafvirkjavinna. S. 686645 Lærið vélritun Ágústnámskeið eru að hefjast. Vólritunarskólinn, s.28040. raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar Egilsstaðir - Austurland Viðtalstími samgönguráðherra MathíasÁ. Mathiesen, samgönguróðherra, verður með viðtalstlma fimmtudaginn 4. ágúst i Hótel Valaskjálf kl. 14.30 til 16.00. Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins, Austurlandskjördæmi. Héraðsbúar Fundur með samgönguráðherra Matthías Á. Math- iesen, samgöngu- ráðherra, verður á opnum fundi í Brúar- ási i Jökulsárhliö fimmtudaginn 4. ágúst kl. 20.30. Einnig mæta á fund- inn Hreinn Loftsson, aðstoðarmaður samgönguráðherra, Egill Jónsson, al- þingismaður, Kristinn Pétursson, alþingismaður, Hrafnkell A. Jóns- son, varaþingmaöur, Dóra Gunnarsdóttir, varaþingmaður, og Garðar' Rúnar Sigurgeirsson, formaður kjördæmisróös Sjólfstæðisflokksins. Allir velkomnir. Kjördæmisréð Sjálfstæðisflokksins, Austurlandskjördæmi. Vopnafjörður Fundur með samgönguráðherra Matthias Á. Math- iesen, samgöngu- ráðherra, verður á opnum fundi í fé- lagsheimilinu Mikla- garði föstudaginn 5. ágúst kl. 20.30 Einnig mæta á fund- inn Hreinn Loftsson, aöstoðarmaöur samgönguráðherra, Egill Jónsson, al- þingismaöur, Krist- inn Pótursson, alþingismaður, Hrafnkell A. Jónsson, varaþingmaður, Dóra Gunnarsdóttir, varaþingmaður, og Garðar Rúnar Sigurgeirs- son, formaður kjördæmisráðs Sjálfstæöisflokksins. Allir velkomnir. Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokkslns, Austurlandskjördæmi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.