Morgunblaðið - 04.08.1988, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 04.08.1988, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1988 33 hyggst hún þvinga fram með því að búa atvinnugreininni rekstrar- skilyrði, sem ekki leiða til annars en hruns. Það er hins vegar deginum ljós- ara að til þess að sú bylting geti orðið í fískvinnslunni, sem stjóm- völd kalla eftir, verður hún að búa við rekstrarskiiyrði, sem gera hana að fýsilegum kosti fyrir nýtt fjár- magn. Þau fískvinnslufyrirtæki sem verða svo hólpin að fá að flytja hluta af skuldum sínum yfír i lán í sömu mynt og afurðir þeira em seldar í þurfa væntanlega að greiða 6% lán- tökugjald vegna skuldbreytingar- innar. Þetta er til viðbótar 1,5% vaxtamunar, sem innlendu bank- amir taka fyrir að annast lánin, og þinglýsingum og bankakostnaði, sem nemur a.m.k. 3,5% til viðbótar. Megin verkeftii ríkisstjómarinnar er og verður, að koma verðbólgunni niður á svipað stig og í nágranna- löndunum, koma á jöfnuði í við- skiptum okkar við útlönd, draga úr skuldasöfnun erlendis og reka ijármál ríkisins án halla. Þetta era erfíð verkefni og þau verða ekki leyst án samstöðu allra lands- manna. Gengismálin Ein helsta leiðin, sem nefnd hef- ur verið til þess að koma á stöðug- leika í efnahagskerfinu og gengis- málum okkar, þegar til lengri tíma er litið, er að tengjast Myntbanda- lagi Evrópu. Um það mál var rætt á ráðstefnu Sambands fískvinnslu- stöðvanna um nýskipan gengismála fyrr á þessu ári. Þetta mál er búið að vera til umræðu í íjölmiðlum æ síðan og nú síðast var rætt við frummælendur SF ráðstefnunnar í DV. Þar var haft eftir utanríkisráð- herra um málið, að það væri nán- ast grín og ofvaxið hans skilningi. Til þess að af tengingu íslands við mjmtbandalagið geti orðið þarf fyrst að taka upp viðræður við full- trúa þess, og fá viðhorf þeirra til aðildar okkar og jafnframt ráðlegg- ingar um undirbúningsaðgerðir inn- anlands. Slíkar viðræður yrðu að sjálfsögðu ekki bindandi. Eftir þær er fyrst hægt að ræða þessi mál af fullri alvöra á innlendum vett- vangi. Ekki er eftir neinu að bíða, eða vilja menn ekki að fara fram á viðræður ef ske kynni að umsögn þeirra yrði áfellisdómur yfír íslenskri efnahagsstjóra? Að leyfa frjáls gjaldeyrisviðskipti og láta markaðinn ráða genginu er önnur leið sem nefnd hefur verið til að koma á eðlilegri verðmyndun á gjaldeyri, en margir óttast að sú aðferð muni stuðla að óeðlilegri spákaupmennsku. Á ráðstefnu SF í vor talaði Vilhjálmur Egilsson fyr- ir þessari aðferð. Hann telur að við munum óhjákvæmilega þurfa að taka á okkur sveiflur sem leiða muni til breytinga á gengi. Við þær aðstæður muni viðskipti með gjald- eyri setja allt á annan endann ef við jrrðum tengdir mjmtbandalagi sem jrrði mun svifaseinna að bregð- ast við breyttum aðstæðum hjá okkur en fijálsa verðmyndunin. Öllum ætti þó að vera orðið ljóst að aðgerða er þörf í gengismálum okkar og að fastgengisstefna er óframkvæmanleg meðan verðlag innanlands geysist óhindrað áfram og leggur útflutningsatvinnuvegina í rúst. Höfundur er framkvæmdastfóri Sambands fiskvinnslustöðvanna. Egilsstaðir: Vilja að einkaleyfi Flug- leiða verði afnumið UTSALAN HANS Egilsstöðum. Atvinnumálanefnd Egilsstaða hefur beint þeim tilmælum til bæjar- stjórnar að fara þess á leit við samgönguráðuneytið að einkaleyfi Flugleiða á flugleiðinni Egilsstaðir—Reykjavík—Egilsstaðir verði afnumið. Þetta er að dómi kunnugra ein arðsamasta flugleiðin á innanlandsflugleiðum Flugleiða enda farmiðarnir langdýrastir á þessari flugleið. Hvatinn að þessari ákvörðun at- vinnumálanefndar er mikil óánægja íbúa Austurlands með há flugfar- gjöld og hyggjast neftidarmenn at- vinnumálanefndar ræða þessi mál við samgönguráðherra, Matthías Á. Mathiesen, þegar hann verður hér á ferðalagi í dag. Einar Rafn Haraldsson formaður atvinnumálanefndar Egilsstaða sagði að stigsmunur væri á afstöðu íbúa Egilsstaða og Akureyrar en bæjarstjóm Akureyrar hefur nýlega samþykkt tillögur sem ganga í sömu átt og tillögur atvinnumála- nefiidar Egilsstaða. Á Egilsstöðum er fyrst og fremst verið að kvarta jrfír óhejrrilega háu verðlagi að okk- ar dómi og gamaldags flugvélum. Akureyringar kvörtuðu undan þjón- ustunni. Einar benti á að nú kostaði rúm- ar 10.000 krónur að fljúga með Flugleiðum til Reykjavflcur frá Eg- ilsstöðum og til baka. Á sama tíma væri þetta sama fyrirtæki að bjóða farmiða til Kölnar í Vestur-Þýska- landi og heim aftur fyrir 9.000 krónur. Þetta væri verðmunur sem almennum borgara gengi illa að skilja og menn álitu að einkaleyfis- vemdin á innanlandsfluginu ætti hér hlut að máli. Einar telur að um 60.000 manns fari um Egilsstaðaflugvöll árlega og þar af fari um 50.000 í innan- landsflugi Flugleiða til Reykjavíkur. Þaraa velti því um fimmhundrað milljónir í gegn án þess að sveitarfé- lagið fái aðstöðugjald eða annað af þessari veltu nema útsvar þeirra fáu manna sem vinna við afgreiðslu og hleðslu vélanna. Bæjarráð Egilsstaða fjallar um þetta mál og safnar gögnum sem lögð verða fyrir bæjarstjóm. - Bjöm Ertuíglasi Föstudagskvöld á Borginni Við tökum tillit til sumarleyfa við greiðslu SKRAÐU t>IG STRAX í SÍMA 652212 Þú ert 7 mínútur úr Breiðholtinu. HRESS BÆJARHRAUIM 4 / VIÐ KffLAVKURVEONN / SIMI65 2212 FYRIR BARNSHAFANDI KONUR Ýmsar sérstaklega valdar æfing- ar, öruggar, uppbyggjandi og styrkjandi fyrir barnshafandi konur. Einnig teygjur, öndunar- og slökunaræfingar. FYRIR KONUR MEÐ BARN Á BRJÓSTI Byggt upp alhliða líkams- þrek eftir barnsburð. Létt þolleikfimi og styrkjandi æfingar og teygjur fyrir viðkvæma líkamshluta. Sérstök áhersla á bak, maga og hendur. MORGUN- HÁDEGIS OG DAGTÍMAR Fyrir hressar konur sem vilja nota daginn til aö rækta líkamann. Athugið: barnagæsla á staðnum. Eingöngu lærðir íþróttakennarar leiðbeina. IIKAMSRÆKT Áhersla lögð á æfingar fyrir maga, rass og læri. Teygjur og slökun, engin hopp. Fjörug tónlist undir. ÁTAK í MEGRUN Góðar æfingar fyrir maga, rass, læri og upphand- leggi. Teygjur og slökun. Viktun, gott aðhald og mikill árangur. ERÓBIK Fjörug þolþjálfun fyrir hjarta og lungu. Styrkjandi æfingar, teygjurog slökun. SUMARÁTAK Æfingar 4 x pr. viku, hlaupið úti 2 x pr. viku, fitumæl- ing, viktun og góðar ráðleggingar í upphafi námskeiðs. Þetta nám- skeið hefur verið mjög vinsælt og árangur góður: aukið þrek, meiri styrkur, laígra fituhlutfall og megrun um 1-6 kgeftir aðeins 4 vikur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.