Morgunblaðið - 04.08.1988, Síða 34

Morgunblaðið - 04.08.1988, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1988 St)örnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson Árið framundan hjá Ljóni. í dag ætla ég að fjalla um árið framundan hjá Ljóni (23. júlí—23. ágúst). Einungis er miðað við sólarmerkið óg því * geta afstöður á aðrar plánet- ur hjá einstökum Ljónum einnig haft sitt að segja. Heldur rólegt ár Þær plánetur sem verða sterkar hjá Ljónum á næsta ári eru Júpíter og Plútó, —— Júpíter myndar spennuaf- stöðu úr Nauti og Plútó úr Sporðdreka. Satúmus, Úran- us og Neptúnus verða hins vegar hlutlausar á árinu. Kringum áramótin Júpíter verður aftast i Nauti í des. 1988, og síðan í janúar til mars 1989 og myndar spennuafstöðu á Sól þeirra sem eru fæddir frá 19.-23. ágúst. Júpíter Það má segja að þegar Júpít- er sé annars vegar muni þörf fyrir að víkka sjóndeildar- hringinn aukast. Hann hefur •a^þau áhrif að ný boð berast ' til vitundarinnar, öll hugar- starfsemi verður mikilvægari og hugmyndaflugið eykst. Afleiðing er sú að augu Ljónsins opnast fyrir því að lífið hefur upp á fleiri mögu- leika að bjóða en augun höfðu áður numið. Forvitni verður sterkari en áður og framandi staðir virðast meira heillandi en mörg undanfarin ár. Útþrá A, Á þessu tímabili verður ekki gott fyrir Ljónið að einbeita sér að þröngum og afmörk- uðum viðfangsefnum heldur er hreyfing, frelsi og svigrúm æskilegt. Það verður tími fyrir ný ætlunarverk, þó ekki sé nein sérstök orka til rót- tækra breytinga. Fœkkaö í hiröinni Plútó verður síðan sterkur í korti þeirra Ljóna sem eru fædd frá 2. til 8. ágúst, allt næsta ár. Honum fylgir þörf fyrir að komast dýpra en áður í viðfangsefni sín. Ljón- ið mun því að vissu leyti loka á umhverfí sitt og skera hirð- ina niður við trog, ef svo má að orði komast. Þau hirðfífl sem ekki segja nógu sannar og góðar sögur verða síðan sett í gapastokkinn. Væru- kærir ráðgjafar víkja og inn verða kallaðir djúpvitrir spekingar: Því nú þarf kon- ungurinn að hreinsa til og framkvæma ætlunarverk sín án undanbragða. Það má því segja að næsta ár verði ár hreinsunar og djúprar ein- beitingar fyrir Ljónin fædd frá 2.-8. ágúst. Mars . Að lokum er rétt að geta stöðu Mars á næsta ári, en hann hefur með framkvæmd- *^ir að gera, eða orku og drif- ' kraft. Hann verður I Hrút fram til 20. janúar 1989, sem veit á gott fyrir athafnasemi Hrútsins, en táknar fyrir Ljónið að því ætti að ganga vel að athafna sig. Um ákveðna mýkt verður að ræða, án þess að orkan sé teljandi sterk eða spennt. Athafnasemi Frá 20. janúar—11. mars 1989 verður Mars í Nauti sem ætti að vera stressað en kraftmikið athafnatímabil fyrir Ljónið. I apríl og maí og fram til 17. júní verður hann í Tvíbura og Krabba sem veit á mýkra og afslapp- aðra flæði í orkunni, og jafn- framt minni athafnasemi. Frá og með 17. júní og út júlí verður Mars síðan í Ljónsmerkinu. Það ætti að ~*“era kraftmikill og góður at- hafnatími fyrir öll Ljón. GARPUR GRETTIR V/P Æ.TTOM \ KAKJNSKI að ) \JET2A HLJÖP-y IR.06 LOFAríf HOHUMAOyf,- HVIÍASJÁJ \\ EBA \/IB 6ET- UM SNOOAÐ TOMMI OG JENNI LJOSKA J ÉG A i HEIUA\KL.UM VANP/l /VtEB pRIPTAEIGlN /tAAMMIKIN /V11NN CCDHIM AMH 1- bKUIIMAIMU —T ' P—.1 s) 198?Uniied FealuTSynOicale. Inc . ... SMAFOLK Afsakaðu, en það er erf- itt að slá þá beint á þig... Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Flestir grandsamningar eru kapphlaup vamar og sagnhafa um að fría liti. Vömin fær að byija og stendur að því leyti betur að vígi. Á hinn bóginn á hún oftar við samgangsörðug- leika að etja — verður á undan að brjóta lit, en innkomu vantar til að taka á fríspilin. Þennan vanda er stundum hægt að leysa: Norður gefur; enginn á hættu. Vestur ♦ D5 ♦ 109542 ♦ 87 ♦ 10873 Norður ♦ ÁG6 ¥Á8 ♦ KG9652 ♦ G5 Austur ♦ 10983 ♦ KG6 ♦ ÁD4 ♦ K96 Suður ♦ K742 ♦ D73 ♦ 103 ♦ ÁD42 Vestur Norður Austur Suður — 1 tígull Pass 1 spaði Pass 2 tíglar Pass 2 grönd Pass Pass 3 grönd Pass Pass Útspil: hjartafjarki (fjórða hæsta). Sagnhafí lætur lítið hjarta úr borðinu og með fyrirhyggju í fyrsta slag getur austur rutt sér braut yfir á hönd makkers. Hann verður að láta gosann! Og vera fljótur að því. Suður drepur á drottninguna og svínar fyrir tíguldrottningu. Austur á slaginn og spilar nú hjartakóng. Og bíður rólegur með tígulásinn og smáhjarta. Þetta er ekki erfið vöm — eftir á að hyggja. Við borðið hættir spilurum hins vegar til að gera það sjálfsagða í fyrsta slag og byija svo að hugsa. Sem er mjög oft of seint. Umsjón Margeir Pétursson Á alþjóðlega mótinu i Sochi í Sovétríkjunum í fyrra var þessi stutta skák tefld: Hvítt: Andonov, Búlgaríu, Svart: Lputjan, Sov- étríkjunum, Réti byijun. 1. Rf3 — d5 2. c4 — dxc4 3. Da4+ — Bd7 4. Dxc4 - e6 5. d4 - b5 6. Dc2 - Ra6 7. a3 - c5 8. dxc5 - Rxc5 9. Be3 - Hc8 10. Rbd2 - Rf6 11. g3 - Dc7 12. Bd4?? 12. — Rd3+! og hvítur gafst upp, því hann getur aðeins valið um að gefast upp og tapa drottning- unni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.