Morgunblaðið - 04.08.1988, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 04.08.1988, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1988 35 Hrefna Sigurjóns- dóttir - Minning Fædd 11. mars 1907 Dáin 16. júlí 1988 Dyggðug manns kona er sú ein, eign sem af flestu ber. Blíðlynd, þolinmóð, hjartahrein, hússins sönn prýði er. Hvort getur hér nokkurt meira mein, en missa hana úr faðmi sér. Þetta brot úr minningarkvæði Hjálmars Jónssonar frá Bólu um konu sína látna, kom upp í huga minn er ég heyrði lát Hrefnu Sigur- jónsdóttur, Barmahíð 53, þeirrar hjartahreinu, fómfúsu og hógværu konu. Fráfall hennar er eiginmanni hennar, og ættmönnum öllum og vinum, mikill og sár harmur. Hrefna lést hinn 16. júlí sl. á Borgarspít- alanum, eftir stutta sjúkdómslegu. Hún var alla ævi heilsuhraust og alltaf sístarfandi á heimili sínu og að félags- og áhugamálum sínum. Hún tók mikinn þátt í félagsstörfum kvenfélags Háteigssóknar og var einn af stofnendum þess, en það var stofnað 1953. Margvíslegum störfum í þágu þess sinnti hún af miklum áhuga og dugnaði og af ósérplægni vann hún marga pijón- aða og heklaða muni fyrir basar félagsins og var alltaf virkur þátt- takandi í kaffi- og kökusölu kvenfé- lags sóknarinnar, sem alltaf var til fyrirmyndar sem sérstaklega mynd- arlega og rausnarlega frambomar veitingar. Þessa vinnu og fram- reiðslustörf vann hún af gleði og fómfysi og átti miklum vinsældum að fagna hjá samstarfskonum fyrir sína hógvæm framkomu, fórnfýsi Fæddur 27. nóvember 1922 Dáinn 9. júl£ 1988 Þeir sem vanið hafa komu sína á Umferðarmiðstöðina hafa eflaust oft séð þar þunnhærðan mann í hærra lagi á sjötugsaldri, rabbandi yfir kaffibolla við kunningja sína. Ingólfur Þorsteinsson hét maður- inn. Ingólfur fæddist að Skerseyri við Hafnarfjörð. Foreldrar hans vom Þorsteinn Brynjólfsson og Sól- borg Guðjónsdóttir. Ingólfur lét sér mjög annt um móður sína síðustu æviár hennar, hvort sem var heima fyrir eða á Elliheimilinu Gmnd og sýndi þar með best hvemig maður hann var. Frá barnsaldri stríddi Ingólfur við bakveiki, sem olli því að hann varð að velja sér störf við hæfi þótt annað hefði hann sjálfsagt kosið. Hann vann, svo eitthvað sé nefnt, hjá Geir Gunnlaugssyni í Eskihlíð, á Keflavíkurflugvelli og Ágústi Sigurðssyni á Skólavörðu- stíg, við innrömmun mynda. Sú vinna átti áreiðanlega vel við Ing- ólf enda mjög handlaginn maður, seinast vann Ingólfur í rammagerð- inni Ásbúð. Bakveikin ágerðist svo að Ingólf- ur treysti sér ekki til að vinna meir. Hann var því á sjúkrastyrk síðustu ár lífs síns. Ingólfur kvæntist aldr- ei.Ingólfur var gamansamur og því vinsæll meðal félaga sinna. Vissu- lega gat hann stundum verið gagn- rýninn og hitti þá gjaman í mark. Snemma síðastliðinn vetur kenndi Ingólfur fyrst krabbameinsins er varð hans bani. Seinustu mánuðina dvaldi hann hjá Maríu E. Jónsdótt- ur, Njálsgötu 30b, og undi hag sínum eftir atvikum vel. Hann lést strax eftir að hann kom á Borg- arspítalann, aðfaranótt hins 9. þessa mánaðar. Ég votta ættingjum hins látna mína innilegustu hlut- tekningu vegna fráfalls hans. Bless- uð sé minning hans. Eyvindur G. Friðgeirsson og dugnað. Einnig vann hún á veg- um sóknarkvenna mikið sjálfboða- starf í Lönguhlíð 3 við starfsemi sem þar er rekin til þjónustu við aldraða í sókninni sem sannarlega er til fyrirmyndar. Hún var þar hugljúf öllum, enda taldi hún það skyldu sína, að gera eitthvað í þágu hinna öldruðu, einnig mat hún mik- ils þann góða samfélagsanda og samstarf er þama ríkir. Hrefna var heilsteypt og trúuð manneskja, sem fylgdi sannfæringu sinni eftir með athöfn, sótti kirkju sína og þjónaði henni og sýndi þann- ig trú sína í verki. Hún var ávallt boðin og búin að gera það sem gera þurfti og lá aldrei á liði sínu. Hún skildi að gildi, undur og dýrð, góðra verka og skapandi, er gróska, vöxtur og lífshamingja og að í ár- angri góðverkanna er sannleiki veruleikans og tilverunnar fólginn. Líf okkar öðlast þá fyrst gildi er það verður oss sjálfum og öðmm til blessunar. Hrefna er ættuð úr Eyjafirði, fædd 11. mars 1907 í Hrísey. For- eldrar hennar Kristín Benedikts- dóttir og Siguijón Gunnlaugsson flytja með hana á ijórða ári í Bröttuhlíð á Árskógsströnd í Eyja- firði. Hrefna var næst elst fjögurra systkina, elst er Lára fyrrverandi stöðvarstjóri Pósts og síma í Hrísey, fædd 1905, Steinunn, fædd 1912, og yngstur er Þórir Benedikt, deild- arstjóri á Skattstofu Reykjavíkur, fæddur 1915. Þegar Hrefna er 16 ára missir hún föður sinn og ári síðar flyst Kristín móðir hennar með bömin Sortnar þú ský, suðrinu í og síga brúnir lætur, eitthvað að þér, eins og að mér „amar“ ég sé þú grætur. (Jón Thoroddsen) Hann Ingi, Ingólfur Guðjón Þor- steinsson, fékk að sofna aðfaranótt laugardagsins 9. júlí. Hann var orð- inn mikið þreyttur eftir þessi miklu og langvarandi veikindi, sem hel- tóku hann, eins og marga. Það virð- ist að margur eigi mjög bágt sem fær þennan hræðilega sjúkdóm, sem betur fer er hægt að hjálpa og lækna suma. En Ingi kom ekki það fljótt, þó var ég búin að senda tvo vaktlækna til hans, sá fyrri gerði veikindin að magabólgum, en hinn að gigt. Þá gat hann vart af sér borið fyrir kvölum. Sá þriðji kom, góði vinurinn okkar, Guð- steinn Þengilsson læknir. Hann var ekki lengi að koma honum inn á spítala. Þá sást um leið meinið hans mikla. Það veit sjálfsagt enginn nema guð hvað hann Ingi var búinn að líða. Það bætti ekki úr í hversu lélegu húsnæði hann var, í þessu súðarherbergi sem var hvorki fugl né fiskur. Þama var hann að basla við að elda sér matarbita af veikum mætti. Ingi var aldrei hraustur maður. Hann var fæddur með mikla hrygg- skekkju svo hann gat aldrei notið sín að fullu í neinni vinnu sem hann vann. Ingi var hættur að vinna fasta vinnu er ég kynntist honum, en skrapp annað slagið með Jóhanni bróður sínum sem var húsasmiður og vann sjálfstætt. Hann er látinn. Hann lést fyrir tæpu einu og hálfu ári. Þá missti Ingi mikið og að sjálf- sögðu við bæði tvö. Þá var gott að eiga Inga að. Mikið var hann þá góður við mig, því sá er vinur sem í raun reynist. Það er gott að hafa það í fersku minni, ekki síst hjá þeim sem era ósköp fljótir að glcyma. En sem betur fer höfðar þetta ekki til nema þeirra sem eng- an milliveg áttu þá. Sjálft lífið er ekki svona dæmigert. Þess vegna aftur út í Hrísey. Alþingishátíðar- árið 1930 fer Hrefna til ísafjarðar á húsmæðraskólann þar, og stundar þar nám í tvö ár, sá skóli þótti þá vera einn besti skóli landsins. Til Akureyrar flyst hún með móður sinni 1937—8 og starfar þá um skeið á Hótel Goðafoss, og síðar vinnur hún um árabil á Hanskagerð Iðunnar. Hrefna hafði góða söng- rödd og mikla ánægju af söng og söng hún mikið með Kantötukór Akureyrar á Akureyraráram sínum. Árið 1945 flyst hún suður til Reykjavíkur og giftist árið eftir, eftirlifandi manni sínum, Gunnari Elíassyni, húsasmið. Fimm áram síðar flytjast þau í eigið húsnæði að Barmahlíð 53, sem Gunnar byggði í samvinnu við Þórð Þórðar- son. Þar hafa þau búið síðan og eignast myndarlegt og friðsælt heimili. Þau hafa alla tíð verið mjög samhent og hamingjusöm, báðum gefín eðlislæg nærgætni, háttvísi og hógværð. er ekki gott að láta sig ekkert varða um veikan einstæðing sem Ingólfur blessaður var. Persónulega er ég guði mjög þakklát fyrir það litla sem ég studdi við hann í þessu sára basli hans. Nú er hann horfinn yfír móðuna miklu og tómlegt er nú í litla kofanum okkar Bjarna við Njálsgötuna. Stjúpsystir átti hann sem Sigríður heitir og síðast en ekki síst Ögmund sem elstur er bræðranna og er við allgóða heilsu, fullvinnandi, dugandi maður. Ég votta honum og hans konu, Bjarn- eyju, mína dýpstu samúð og einnig stjúpsysturinni Sigríði og ölum ætt- ingjum hans og vinafólki. Ég vil þakka Guðsteini Þengilssyni lækni af heilum hug hjálp og vinsemd, einnig Ástu Gunnarsdóttur sem sjálf er sjúklingur. Aldrei lét hún sig vanta að hringja og spyija um Inga og mig. Hún snerist líka fyrir okkur. Einnig þakka ég Örlygi Björnssyni fyrir allt og öðram ætt- ingjum og vinum. Eg þakka Inga fyrir allt frá þeim degi er ég kynntist honum gegnum bróður hans Jóhann, sem var ávallt minn besti og kærasti vinur þar til yfir lauk, og aldrei mun gleymast. Ég kveð Inga minn með miklum söknuði. Genginn er góður drengur, í friði grafinn, guði falinn. Megi hann hvíla í guðs friði. María E. Jónsdóttir Þau eignuðust eina dóttur, Auði, fyrrverandi hótelstjóra á Húsavík og nú gjaldkera í Samvinnubankan- um. Auður er gift Gunnari Hös- kuldssyni kennara þar og eiga þau þijú börn, Gunnar Hrafn, Þóri Örn og Hrefnu Reginu. Meðan Auður og Gunnar Hös- kuldsson bjuggu í Barmahlíð 53 komum við hjónin þangað oft og kynntumst þá Hrefnu og Gunnari Elíassyni vel og því hvað þau voru dóttur sinni og barnabörnum mikils virði. Auður er framúrskarandi dug- leg, vel gefin og elskuleg kona og vegarnestið að heiman hefur reynst henni vel. Hún hefur reynst móður sinni og föður mikill hamingju- og gleðigjafi. Eftir að Auður og fjölskylda hennar fluttist til Húsavíkur kom- um við hjónin oft til Hrefnu og Gunnars, þar var ávallt gaman og gott að koma og finna þeirra hlýja og einlæga viðmót og njóta góð- gerðanna sem aldrei vora af skom- um skammti að ógleymdu kúmen- kaffinu, sem Hrefna lagaði sérstak- lega fyrir mig. Tryggð þeirra, höfð- ingsskapar og vináttu, er ljúft að minnast, því það hjarta sem hér að hinstu brast, var af hreinu gúlli mótað. „Meðan þú átt þjóðin fróða því líkmanna blóm, áttu sigur, gull og gróða, Guð og kristindóm.“ Við stöndum ávallt á þröskuldi hins þverrandi og hins komandi í tímanum, allt hefur sinn tíma. Dauðinn fylgir lífinu engu síður en fæðingin, og fer ekki í manngrein- arálit. Fölna laufin, falla viðir, fymast menn, sem tré í skóg, Ellin kemur, aflið rénar, opnast að lokum grafar þró. (Steingr. Thorst.) Einhvem tíma munum við komast að raun um það, að dauðinn getur aldrei rænt oss því, sem sálin hefur öðlast, þvi að ávinningur hennar þroskinn, er hluti af henni sjálfri. R. Tagore Minninginn um góða konu er huggun harmi gegn. Við hjónin vottum Gunnari Elías- syni, Auði og fjölskyldu, systkinum Hrefnu og öllum vinum og vanda- mönnum, einlæga samúð og hlut- tekkningu og biðjum Guð að gefa dánum ró og hinum líkn er lifa. Hulda og Björn t Eiginkona mín, dóttir, móðir og amma, MÁLFRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR, Þórólfsgötu 12A, Borgarnesi, lést að morgni 2. ágúst. Gísli Bjarnason, Sigurður Kristjánsson, börn og barnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR HULD JÓHANNESDÓTTIR, Hafnarstræti 97, Akureyri, andaðist sunnudaginn 31. júlí á Kristnesspitala. Jarðsett verður frá Akureyrarkirkju mánudaginn 8. ágúst kl. 13.30. Sveinbjörn Vigfússon, Guöbjörg Baldursdóttir, Jóhannes Vigfússon, Barbara Vigfússon, Sævar Vigfússon, Hrafnhildur Ingvadóttir, börn og barnabörn. t Systir min og móðursystir, ÞÓRUNN JÓNSDÓTTIR frá Stóra-Eyrarlandi, Akureyri, lést 25. júlí. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Dvalarheimilisins Hlíðar, Akureyri fyrir góða umönnun. Marsilfa Jónsdóttir, Valborg Jónsdóttir. t Faðir okkar og tengdafaðir, BRYNJÓLFUR J. BRYNJÓLFSSON veitingamaöur, andaðist í Landakotsspítala þriðjudaginn 2. ágúst. Sigrföur Specker BrynjólfsdóttirAlexander Specker, Ragnheiður Brynjólfsdóttir, Baldur Jónsson, Sólveig Brynjólfsdóttir, Vigfús Ásgeirsson. t EIRÍKUR BENEDIKZ fyrrum sendiráöunautur, sendiráöi fslands, London, lést í sjúkrahúsi í Witney, Oxfordshire 1. ágúst sl. Fyrir hönd vandamanná, Margaret Benedikz. t GUÐJÓNA PÁLSDÓTTIR, Seljalandi 7, Reykjavfk, Verður jarðsungin i Bústaðakirkju föstudaginn 5. ágúst kl. 13.30. Páll Gfslason, Margrét Þórisdóttir, Jóhann Sigurdórsson, Sólveig Þórisdóttir, Siguröur Kristinsson, systkini og barnabörn. Ingólfur G. Þorsteins- son - Minningarorð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.