Morgunblaðið - 04.08.1988, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. AGUST 1988
37
Helgi Gunnars-
son — Minning
Fæddur 21.júlí 1906
Dáinn 23. júlí 1988
Að kvöldi laugardagsins 23. júlí
síðastliðinn lést á öldrunardeild
Borgarspítalans Helgi Gunnarsson,
sem síðustu tvo áratugi ævi sinnar
átti heimili á Blindraheimilinu við
Hamrahlíð 17 í Reykjavík.
Helgi var sonur hjónanna Gunn-
ars Jónssonar, bónda á Fossvöllum,
og konu hans, Ragnheiðar Stefáns-
dóttur, ogvarö. í röð 14 systkina.
Fátt verður hér rakið af ævi
Helga. Hann naut almennrar skóla-
göngu og vann fyrir sér á ýmsum
stöðum austanlands, var við bústörf
hjá Karli bróður sínum í Hofteigi
og víðar. Hann varð fyrir því óhappi
að missa annað augað í vinnuslysi
og markaði það djúp spor í ævi-
braut hans.
Árið 1952 hóf Helgi búskap að
Grund á Jökuldal og bjó þar um 9
ára skeið eða til ársins 1961. Þá
hafði honum daprast svo sýn á því
auganu sem hann hélt að hann
varð að bregða búi. Fluttist hann
þá hingað suður og settist að í
húsi Blindrafélagsins í Hamrahlíð
17 og stundaði þar burstagerð á
meðan kraftar entust.
Helgi var afar sérstæður maður
og sumum þótti hann skrýtinn.
Kannski höfðu menn þetta álit á
honum því að hann var ekki steypt-
ur í sama mót og fólk flest. Hann
hafði erft frásagnargleði föður síns,
sem var alkunn á sinni tíð, og sér-
stæða skáldskapargáfu hlaut hann
í vöggugjöf, sem gerði hann hrók
alls fagnaðar þar sem hann kom á
meðal manna. Skal nú skáldskap
Helga lýst að nokkru:
Helgi orti einkum smávísur, flest-
ar undir ferskeyttum hætti. List
hans var í því fólgin að helst máttu
engir stuðlar finnast í vísunum,
höfuðstafír eða rím og endirinn
varð að vera með ólíkindum. Heldur
illa gekk að finna nafn á þessa
íþrótt en að lokum hlaut hún nafn-
ið stafl og hefur þetta orð loðað við
þessa bókmenntagrein síðan. Þótt
vísur Helga brytu gersamlega gegn
öllu því sem gott brageyra íslend-
inga hefur krafist hingað til voru
þær þess eðlÍ6 að í þeim fólst svo
mikil kímni eða kæti að þær flugu
manna á meðal og var Helgi löngu
orðinn frægur af stafli sínu þegar
hann lést.
Helgi gerði sér ljósa grein fyrir
sérstæðum skáldskap sínum og
vissi af sérvisku sinni, enda orti
hann eitt sinn:
Oftast reynast fíflin best
í hópi hagyrðinga.
Gott er að drekka með þeim skál
í lögg af koníaki.
Eitt sinn hitti Helgi vin sinn á
götu í Reykjavík og var vinur hans
vel við skál. Helga þótti hann verða
fyrir ónæði af hans völdum og stafl-
aði því:
Drekktu vienur brennivín
og reyktu sígarettu.
Það er gott að vieta að
heimurinn losnar við þig.
Stafsetning vísnanna er sam-
kvæmt framburði, en talsvert bar
á hljóðskriði í framburði Helga.
Helgi þráði mjög að koma skáld-
skap sínum á framfæri. Þegar
minnihlutastjórn Alþýðuflokksins
sat við völd á haustmánuðum 1979
kastaði Helgi fram stafli og vildi
fá það birt í Dagblaðinu. En blaða-
menn þess báru ekki skyn á þessa
list og fékkst vísan því ekki birt.
Skal hún því látin flakka hér:
Kjaftaþingið lieðið er,
mesta í sögu landsins.
Skammdegis-Bensi kúrir i
forsætinu stóra.
Helgi átti einn vin sem tók þátt
í glensi hans öðrum fremur, en það
er Andrés Gestsson, sem býr að
Hamrahlíð 17, landskunnur hagyrð-
ingur. Þegar Andrés varð sextugur
fyrir nokkrum árum bað Helgi mig
að gera sér mikinn greiða. Hann
væri búinn að stafla vísu um Andr-
és vien sinn og ég yrði að „fara upp
í pontu og syngja hana tviesvar",
hvað ég og gerði. Vísan er með sínu
lagi og hljóðar svo:
Ó blessuð sértu, sumarsól,
þú vermir Andrés sextugan.
Til hamingju ég óska þér
og þakka lieðin ár.
Reyndar var fyrsta staflið sem
Helgi kenndi mér um þá félagana
Andrés og hann og er svona:
Hnýta saman háð og spott
Andrés og Helgi.
Annar er fæddur stuðlalaus,
en hinn í sterkum stuðlum.
Það gat brugðið til beggja vona
þegar Andrés varpaði fram fyrri-
parti og Helgi var annars vegar.
Einhverntíma voru þeir Helgi og
Halldór Davíðsson, hagorður Vest-
ur-Skaftfellingur, að vinna á
Blindravinnustofunni og bar þar að
Andrés. Varpaði hann fram einni
hendingu, en endirinn varð með
ósköpum:
Nú er úti regn og rok,
Andrés er á nálum.
Dóri gapir ofan í kok,
ekki er sjónin falleg.
Helgi hafði það fyrir sið að varpa
fram stafli í mannfagnaði þar sem
hann var staddur. Þegar eiginkona
Andrésar Gestssonar varð sextug
kvaddi Helgi sér hljóðs og bjuggust
allir við vísu til hennar. Vísuna
höfum við enn ekki skilið til fulln-
ustu:
Gamla Krafla suðar enn
í sínu mikla veldi.
Jarðfræðingar hlusta á
undirheimakónginn.
Helga var hlýtt til kvenna enda
reyndust honum ýmsar vel. Því orti
hann á kvennaári:
Nú er blessað kvennaár,
kominn einmánuður.
Ollum konum sendi ég
mínar bestu kveðjur.
í landhelgisstríðinu við Breta
lagði Helgi fram sinn skerf:
Það er gott að vieta af
lífi á öðrum stjömum.
Þar er frieður, þar er ró
og engin Bretadrottning.
Helgi Gunnarsson sagði okkur
margar sögur af smalamennsku
sinni og ein var sú að einhvem tíma
kom hann að Jökulsá á Dal. Þá
kallaði guð til hans og spurði hvort
þeir ættu að þreyta kappsund yfír
ána. Tók Helgi því vel og kastaði
sér þegar til sunds. Þegar hann kom
yfir ána hafði hann silung sinn í
hvorri hendi og kallaði: Guð, hér
stend ég en hvar ert þú? Svaraði
þá Guð: Ég er héma uppi og þori
ekki niður.
I smalamennskunni varð Helgi
oft fyrir ýmsu hnjaski og óþægind-
um og kenndi það draugum, þótt
hitt sé nær að hann hafi ef til vill
orðið fyrir einhverjum glettum frá
sveitungum sínum. Ep hann kvað
svo um smalakofann á Laugavöll-
um:
Eg hef marga kalda nótt
gist á Laugavöllum,
barist þar við draugalýð
og jafnan unnið siegur.
Þegar Gísli Helgason, einn góð-
vinur Helga, varð stúdent fyrir
mörgum áram, kvað Helgi:
Nú ertu stúdent menntaður,
til hamingju þér ég óska.
En minn var skóli frost og hrið
norður á Smjörvatnsheiði.
Hann kvað líka þegar Gísli var í
lögfræði:
Þegar blessuð sólin skín
yefir íslands byggðir,
andar oftast köldu frá
hálfum lögfræðingi.
Ýmsar fleiri vísur mætti tína til
sem Helgi staflaði og væri full
ástæða til að kunningjar Helga
söfnuðu þeim saman. Staflið hefur
verið hluti af íslenskri kveðskapar-
íþrótt um aldir samanber mörg
danskvæði fyrri alda og deila má
um hvort þau séu ort af meiri list
en stafl Helga.
Síðast þegar ég heimsótti vin
minn, Helga Gunnarsson, sagðist
hann ennþá vera að stafla. Einnig
sagðist hann vera að rifja upp ýmis-
legt sem hann hefði staflað áður.
Meðal annars sagði hann mér frá
manni nokkram, sem ég hirði ekki
að nafngreina, en sá hafði eitthvað
bekkst til við Helga. Helgi sagðist
þá bara hafa staflað einni á hann
og væri hún svo:
Þú skalt ekki skensa mieg,
hvorki lífs né lieðinn.
Fylgi þér sjálfur andskotinn
inn yfir landamærin.
En ég vona að Helgi og þessi
andstæðingur hans hittist nú fyrir
hinu megin og hafí sæst og Helgi
geti því sæll kveðið þessa uppá-
haldsvísu sína:
Nú bíður mín eilífðarströndin,
því þar eru heimkynni mín.
Þar sit ég í sól og sumri
og stafla þar ljóðin min.
Með Helga Gunnarssyni er horf-
inn enn einn kynlegur kvistur sem
auðgað hefur íslenskt mannlíf og
menningu. Helgi naut þess seinni
hluta ævi sinnar að vera á meðal
fólks sem lét hann njóta sín.
Árið 1983 stóðu yfír miklar fram-
kvæmdir í Hamrahlíð 17. Helgi var
eitt sinn á leið fram í eldhús sitt
og studdist við veggina eins og
vant var. Meðal annars drap hann
hendi á hurð að nýrri skrifstofu
Blindrafélagsins. Hurðin lét undan,
Helgi féll inn á skrifstofuna og
mjaðmarbrotnaði. Hann var þegar
fluttur í sjúkrahús og dvaldist þar
síðan.
Grein þessari er ætlað að bregða
ljósi á þennan sérstæða einstakling,
sem fór ekki að öllu alfaraleiðir.
Dæmi Helga Gunnarssonar er okk-
ur holl áminning um að lofa ein-
staklingnum að njóta sérstöðu
sinnar í stað þess að verða flatn-
eskju fjölmennis og meðalmennsku
að bráð.
Blessuð sé minning Helga Gunn-
arssonar.
Arnþór Helgason
Þegar við eram að kveðja Helga
Gunnarsson í hinsta sinn verður
mér hugsað til vordaga árið 1952.
Þá aðstoðaði ég frænda minn Stef-
án Gunnarsson og fjölskyldu hans
við búferlaflutninga frá Grand á
Jökuldal að Kirkjubæ í Hróars-
tungu. Minnisstæð er sú stund er
við ókum úr hlaði á Grand.
Híbýli er hýst höfðu sex manna
fjölskyldu stóðu nú hljóð og tóm
en eftir stóð einn maður, er ætlaði
að hefja þar búskap.
En maðurinn var ekkert einstæð-
ingslegur. Glaður og bjartsýnn stóð
hann í hlaði, eins og kóngur í ríki
sínu, fullur tilhlökkunar að takast
á við komandi störf.
Þessi maður var Helgi Gunnars-
son bróðir þess er var að flytja frá
Grand, sjötta barn af fjórtán böm-
um Ragnheiðar Stefánsdóttur og
Gunnars Jónssonar er kennd hafa
verið við Fossvelli.
Helgi hafði um árabil átt góða
samvinnu við Stefán bróður sinn
og var sem einn úr fjölskyldunni.
Því getur þessi stund ekki hafa
verið með öllu sársaukalaus. Helgi
hafði nokkra áður, en þessi tíma-
mót urðu í lífí hans, misst annað
augað af slysförum. Þessi fötlun
hafði þó ekki áhrif á glaðværð og
jákvæð viðhorf hans til lífsins og
tilverannar, en það hlýtur að hafa
þurft kjark og það mikinn kjark til
að gerast einsetumaður við þessi
skilyrði.
Helgi bjó á Grand í níu ár. Hann
undi sér þar vel og sagði að hann
hefði aldrei verið einmana. Hús-
dýrin vora félagar hans og þegar
tími vannst til las hann góðar bæk-
ur. Stundum hitti hann nágranna
sína er hann mat mikils en langt er
á milli bæja á Efra-dal.
Þegar Helgi þurfti að hýsa fénað
sinn á vetrarkvöldum var nægilegt
fyrir hann að kalla á kindumar.
Þá komu þær hlaupandi og fóra
hver á sinn stað. Að launum fengu
þær ilmandi hey á garðann.
Árið 1961 varð Helgi að hætta
búskap. Sjón var þá orðin lítil og
varð hann alveg blindur á fáum
áram. Hann varð að yfirgefa sveit-
ina, bæ sinn og fénað.
Eftir að hafa nær eingöngu unn-
ið við landbúnaðarstörf frá bam-
æsku fram á sextugsaldur varð
hann að byrja nýtt líf með litla sjón
í nýju umhverfí. Margir verða fýrir
ýmsum áföllum í lífí sínu og'fólk
er mismunandi undir slíkt búið.
Sumir brotna en aðrir laga sig eftir
aðstæðum. „Að brotna“, „að gefast
upp“ vora setningar sem Helgi
Gunnarsson þekkti ekki. Hann þoldi
ekki að sér væri vorkennt. Þeim er
það gerðu sagði hann að hann væri
búinn að sjá nóg.
Hann var um tíma hjá Guðnýju
systur sinni og Jóhanni mági sínum
og veittu þau honum mikilvæga
aðstoð, fyrst eftir að hann kom til
Reykjavíkur.
Fljótlega flutti hann svo í hús
Blindrafélagsins 5 Hamrahlíð 17.
Næstu árin vann hann við bursta-
gerð, hlustaði á útvarp og skáldverk
af hljóðsnældum. Hann tók þátt í
félagslífi Blindrafélagsins af lífí og
sál og eignaðist þar góða vini.
Gleðin og bjartsýnin vora enn
mest áberandi einkenni Helga. í
huga og sál var ekki myrkur. í
ágúst 1983 varð Helgi fyrir því slysi
að lærbrotna og upp frá því fór
heilsu hans mjög að hraka. Hann
dvaldist á öldranardeild Borgarspít-
ala frá 1. des. 1983 en var með
lögheimili í Hamrahlíð 17. Hann
sagði að þar væri sitt fólk.
Helgi var hamingjusamur í faðmi
íslenskrar náttúra og naut sam-
skipta við marga vini. Mér verður
á þessari stundu hugsað til Berg-
þóra systur hans og Kjartans
manns hennar er sýndu honum allt-
af einstaka vináttu og hjálp, og þá
ekki síst eftir að þjáningarfull veik-
indi fóru að þjaka hann. Ég veit
að Helgi var þeim mjög þakklátur
svo og öðram era veittu honum
aðhlynningu til hinstu stundar.
Blessuð sé minning Helga Gunn-
arssonar. Hreinn Kristinsson
t
GUÐRÍÐUR SVEINBJARNARDÓTTIR,
Framnesvegi 10,
verður jarðsungin föstudaginn 5. ágúst kl. 10.30.
Guðný Óskarsdóttir,
Anna Óskarsdóttir,
Jón Óskarsson,
Þórkatla Óskarsdóttir,
Níels Óskarsson.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, afi og langafi,
GUÐLAUGUR SIGURÐSSON,
Garðbraut 63,
Garði,
verður jarðsunginn frá Útskálakirkju föstudaginn 5. ágúst kl. 14.00.
Sigríður Þorbjörnsdóttir,
Ægir S. Guðlaugsson,
Guðríður Theodórsdóttir
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
konu minnar, móður, tengdamóður og ömmu,
HILDAR BJÖRNSDÓTTUR MICHELSEN.
Fyrir hönd aðstandenda,
Aðalstelnn Michelsen.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarð-
arför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu,
HÖLLU KR. SVEINBJÖRNSDÓTTUR,
Smáraflöt 12,
Garðabœ.
Guðjón Þorleifsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
SKARPHÉÐINS ÁRNASONAR.
Elfnborg Reynisdóttir,
Helga Skarphéðinsdóttir,
Brynja Hulda Skarphéðinsdóttir, Björn Glenn Hansen
Skarphóðinn Andri og Glenn Alexander.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðar-
för móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÞÓRHILDAR BÁRÐARDÓTTUR,
Ásavegi 2,
Vestmannaeyjum.
Birgir Símonarson, Klara Bergsdóttir,
Sigrún Sfmonardóttir, Eðvarð Þór Jónsson,
barnabörn og barnabarnabarn.