Morgunblaðið - 04.08.1988, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTÍIDAGUR 4. ÁGÚST 1988
43
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
/ \tr iU MViV ’IJ \\
Bjórfrumvarpið hefði
átt að bera undir þjóðina
Til Velvakanda.
„Löggjafar, sem lítið skilja
lúta aldrei fólksins vilja
koma öllu á vonarvöl
verða sjálfir þjóðarböl."
D.S.
Þessar hendingar úr kvæði
Davíðs Stefánssonar koma mér í
hug er ég minnist þess óhappa
tilfellis á síðasta þingi, er lög um
sölu áfengs öls náðu naumu sam-
þykki með happa og glappa að-
ferðinni, þar sem aldrei var full-
mætt á deildafundum er frum-
varpið kom til atkvæða. Sumir
hafa sjálfsagt setið heima af ráðn-
um hug.
Við getum
margt iært
af Færey-
ingum
Til Velvakanda.
Ég vil taka undir með Kleppi í
götu. Okkur íslendingum ferst alls
ekki að gera grín að eða lítilsvirða
Færeyinga á nokkum hátt. Við
getum örugglega margt af þeim
lært, ekki síst í umgengni við ná-
ungann og umhverfið. Og þó Klepp-
ur væri sjómaður eða ynni við físk-
vinnslu þarf hvorki hann né aðrir
að skammast sín fyrir þau störf.
Ég hef ferðast töluvert um Færeyj-
ar og allstaðar var sami myndar-
skapurinn utan dyra sem innan og
Færeyingar sérstaklega vingjam-
legir. Mér sýndist þeir fylgjast mjög
vel með tímanum en halda samt
sinni menningu vel.
Ég hafði mjög gaman af þessari
ferð og vil eindregið hvetja fólk til
að heimsækja þessar fallegu eyjar
og fólkið sem þar býr. Full ástæða
er til að efla tengsl þessara þjóða
og mig langar að vita hvort til eru
einhver samtök fýrir íslenska Fær-
eyjavini hér á landi.
Með kveðju, G.S.
Bjórsala hér á landi kallar á
geysimikla fjárfestingu ríkis og
innlendra framleiðenda og um-
boðssala og er þegar hafinn undir-
búningur að byggingu birgða-
geymslna. En hvernig færi ef
þingkosningar yrðu með haustinu,
sem ekki er útilokað ef svo fer
fram sem horfir, og nýr meirihluti
gegn áfengum bjór yrði á Alþingi
að þeim loknum svo frestað yrði
gildistöku laganna eða þau afnum-
in? Væri þá ekki fjármunum kast-
að á glæ?
Brosleg voru þau rök, sem þing-
menn höfðu fyrir fylgi sínu við
frumvarpið, að þar sem fjöldi fólks
fengi að taka með sér áfengt öl
inn í landið skapaðist óviðunandi
misrétti milli þegnanna. Þessa
misráðnu undanþagu, sem Sig-
hvatur Björgvinsson veitti á stutt-
um valdaferli sínum og var að
bestu lögfræðinga yfirsýn ólögleg,
var hægt að fella úr gildi með einu
pennastriki. Og gera þar með alla
þegna þjóðfélagsins réttlausa til
kaupa á áfengu öli.
Við forsetakosningarnar í vor
var mjög til umræðu vald forseta
til að neita að staðfesta lög, sem
telja mætti vafasöm til þjóðar-
heilla. Og í þann flokk vil ég setja
bjórfrumvarpið. Mín skoðun og
sjálfsagt margra fleiri er sú, að
forsetinn hefði átt að nota vald
sitt og neita að staðfesta bjórfrum-
varpið, sem var með svo vafasöm-
um hætti troðið í gegnum þingið.
Þá hefði það verið lagt undir úr-
skurð þjóðarinnar en atkvæði rúm-
lega helmings 63 þingmanna ekki
látin gilda um svo þjóðhættulegt
mál. Atkvæðagreiðslan hefði get-
að farið’fram jafnhliða forseta-
kosningunum og hefði því ekki
þurft að hafa mikinn aukakostnað
í för með sér.
En stuðningsmenn bjórfrum-
varpsins höfðu staðið að því í báð-
um þingdeildum, að fella breyting-
artillögur um þjóðaratkvæði af
ótta við að þjóðin hefði vit fyrir
þeim.
Sigurjón Sigurbjörnsson,
fyrrv. löggæslumaður.
í leit að
ættingjum
Viola E. Zeebeck, Vestur-
íslendingur frá Kanada er nú
stödd hér á landi og langar að fá
upplýsingar um ættingja sína.
Afi hennar og amma í föðurætt
voru Benjamín Einarsson, fæddur
á Seyðisfirði eða Þistilfírði, og
Guðleif Stefánsdóttir í Keldu-
hverfi en frá Flautafelli í Þistil-
fírði.
Afi hennar og amma í móður-
ætt voru Hjálmar Eiríksson, frá
Rafnkelsstöðum í Hvalneshreppi
í Gullbringusýslu, og Ragnheiður
Magnúsdóttir, frá Litla-Kroppi í
Reykholtsdalshreppi í Borgarfirði.
Ættingjar Viola E. Zeebeck og
aðrir þeir, sem upplýsingar geta
gefíð um ættingja hennar, eru
vinsamlegast beðnir að hafa sam-
band við hana á Grettisgötu 92 í
síma 28551.
Þessir hringdu . . .
Kvæðið er eftir
Jón Mýrdal
Þóra Jóhannsdóttir hringdi:
„Síðastliðinn laugardag var
birt í Velvakanda eitt erindi úr
kvæði og spurt um höfundinn:
Siggi, Maggi, Sveinn, Guðrún
sækið þið hann stóra Brún.
Imba finndu fötin mín
flýttu þér nú stelpan þín.
Höfundurinn er Jón Mýrdal
og erindin eru 49 talsins. Eg er
ekki viss um hvort þetta hafi
komið í bók, en nokkrar bækur
hafa verið gefnar út eftir Jón.“
Gleraugu töpuðust
Gleraugu töpuðust á skemmti-
staðnum Casablanca eða í
leigubíl frá staðnum aðfaranótt
sunnudagsins 31. júlí. Þetta eru
mjög þykk gleraugu í svartri
umgjörð. Finnandi er vinsamleg-
ast beðinn að hringja í Önnu
Maríu í síma 31971.
Slá með hettu
tapaðist
Grænblá slá með hettu á
ungabarn tapaðist á bílastæðinu
við Tívolíið í Hveragerði sunnu-
daginn 31. júlí. Finnandi er vin-
samlegast beðinn að hringja í
Siggu í síma 671559.
Sirkusferð
Haukur Friðriksson hringdi:
„Ég vil þakka forráðamönnum
Circo de Éspana, sem buðu föt-
luðu fólki á sýningu hjá sirkus-
flokknum í Laugardal um síðustu
helgi."
ÚTSALA
VEJHlLisHnn
V/Laugalæk S: 33755.
Tvær góðar þvottavélar frá
SIEMENS
Góð óg hagkvæm
þvottavél
• 18 þvottakerfi.
• Sparnaðarhnappur.
• Frjálst hitaval.
• Vinduhraði 600 og 800
sn./mín.
• íslenskir leiðarvísar.
• Þurrkari fáanlegur með
sama útliti.
WV 2760
Kjörgripur handa
hinum vandlátu
• Fjöldi þvottakerfa.
• Sparnaðarhnappur.
• Frjálst hitaval.
• Áfangaþeytivinding.
Mesti vinduhraði 1
sn./mín.
• Hagkvæmnihnappur.
• íslenskir leiðarvísar.
WV 5830
Hja SIEMENS eru gæði, ending og fallegt
útlit ávallt sett á oddinn!
SMUH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300