Morgunblaðið - 04.08.1988, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 04.08.1988, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FTMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1988 KNATTSPYRNA / 1. DEILD „Okkur vanftar tíu stig til viðbótar" - segirÁsgeir Elíasson, þjálfari meistaraefna Fram SLAGURINN ífyrstu deild ís- landsmótsins hefst aftur í kvöld kl. 20 eftir stutt hlé, en þá mætast Völsungur og KR á Húsavík, ÍBK og KA í Keflavík, - Þór og Leiftur á Akureyri og Valur og ÍA á Hlíðarenda. Lítið er um meiðsli þannig aðflest ættu liðin að geta teflt fram sínum bestu leikmönnum, og ekki veitir af, því baráttan fyrir Evrópusæti, svo og tilverurétti í 1. deild, verður eflaust hörð. Ageir Elíasson, þjálfari Fram- ara, sagði að hann hefði gefið sínum leikmönnum gott frí yfir verslunarmannahelgina, en síðan hefðu tekið við erfiðar æfingar. „Það verður að ná upp góðu formi aftur hjá mannskapnum eftir þessa hvfld, sem ég vona bara að skili sér,“ sagði hann. „Við erum ekki ennþá búnir að vinna mótið þó svo að margir haldi það. Okkur vantar 10 stig til viðbótar, en ég á ekki von á öðru en að okkur takist að krækja í þau, ef við spilum eins og við gerðum í fyrri hluta mótsins," sagði Ásgeir. Júlí sklptlr mestu máll „Við byijuðum keppnistímabilið vel, en svo kom júlímánuður, og hann var hreint afleitur hjá okkur,“ sagði Sigurður Lárusson, þjálfari IA. „Við sigrúðum að vísu Leiftur og Völsung í júlí, en lékum samt mjög illa, og svo fengum við þennan stóra skell á móti Fram. Það hefur sýnt sig undanfarin ár að það iið sem hefur komist klakklaust í gegnum júlí, það hefjir staðið uppi sem sig- urvegari og það tókst Fram,“ sagði Sigurður að lokum. Hörður Helgason, þjálfári Vals, sagði að sínir menn hefðu fengið fjögurra daga frí yfir helgina. „Við höfum sett stefnuna á annað sætið í mótinu, því Fram er svo gott sem búið að vinna það,“ sagði Hörður, og bætti við að einn af úrslitaleikj- unum um það evrópusætið yrði í kvöld. „Þá fáum við Skagamenn í heimsókn, sem eru einu stigi á und- an okkur," sagði Hörður. Fótbottahungur oftlr fríið „Strákana hungrar í að spila fót- bolta eftir fríið þannig að þeir hlakka til leiksins gegn Völsungum í kvöld," sagði Ian Ross, þjálfari KR. Hann sagði að KR-ingar hefði æft að fullu að undanfömu og nú yrði reynt að einbeita sér að einum leik í einu. „Við þurfum hins vegar að bæta okkur og leggja okkur alla fram til að uppskeran verði góð í haust. 1 Við opnum í tltig! Við bjóðum einn frían kynningartíma út ágústmánuð 7 bekkja æfingakerfíð kemur þér íflott form. Þetta form er innan seilingar SPURNi NG: Hve langan t íma tekur það að sjá árangur? SVAR: Vanalega fara sentimetrarnir að falla af þér eftir aðeins nokkra tlma. Eins og með allar tegundir likams- ræktar, sést besti árangurinn með reglulegri notkun yfir ákveðið timabil. Styrkur, sveigjanleiki og heilbrigði eykst stig frá stigi. SPURNING: Get ég notað tækin eftir að hafa orðlð bamshafandi? SVAR: Að sjálfsögðu. Pessar æfingar geta stórlega lagað og styrkt vöðva eftir fæðingu. SPURNING: Minnka æffngamar appelsínuhúð (cellolKe)? SVAR: Appelsinuhúð er umdeild. Ekkieruallirsammála um ástæðuna fyrir henni, en margir sérfraBðingar eru þeirrartrúar að aukið blóðstreymi og aukin vöðvastyrking á vandræðasvæðum minnki appelsfnuhúð. SPURNING: Hver er munurinn 4 þessari tegund æfinga og aerobik-leikfimi? SVAR: Aerobik-leikfimi er framkvæmd á bilinu 12 til 15 mínútum og eykur hjartslátt í 60% til 90% af hámarki. Þetta eykur þof hjarta- og æðakerfisins. Elott form æfinga- kerfið er ekki aerobik-leikfimi. Það eykur vöðvaþol og styrk- ir auk þess sem það eykur sveigjanleika vöðvanna. SPURNING: Hver er munurinn á þessu æfingakerfi og öðrum likamsræktartækjum? SVAR: Almennt virka likamsræktartæki þannig, að það spyma gegn likamshreyfingu. Flott form kerfið notar sömu grundvallarhugmyndina, en með einni mikilvægri undan- tekningu: Tækin okkar sjá um að hreyfa líkamann á með- anþúsérðumað spyma á móti. SPURNING: Hvemig getlð þlð tryggt að fólk megríst? SVAR: Þar sem þessar siendurteknu hreyfingar styrkja vöðva án þess að þeir stækki, á meðan þyngd þin helst sú sama eða minnkar og þú fylgir leiðbeiningum okkar, mun sentimetrunum fækka, svo einfalt er það og þetta ábyrgjumstvið. SPURNING: Nýtur gamalt fólk góðs af þessum tækjum ? SVAR: Já. Þessi þægilega leið við að hreyfa likamann er kjörin fyrir eldra fólk, vegna þess að allir geta æft á sinum hraða. Aukin sveigjanleiki og aukið vöðvaþol, sem kemur með þessum tækjum er kjörið, fyrir þá sem hafa stifa vöðva eða eru með liðagigt. Flott form - Stúdíó Dísu, Smiösbúð 9, Garöabæ, sími 45399. Flottfortn - Líkamsrækt Óskars, Hafnargötu 23, Keflavík, sími 92-14922. Flott form - Hreyfing sf., Eingjateigi 1, sími 680677, (Dansstúdíó Sóleyjar) Hreyfing sf., Kleifarseli 18, Breiðholti, simi 670370. Söluumboð: Hreyfing sf. Ásgeir Elíasson. „Við tókum fríinu fegins hendi,“ sagði Guðjón Þórðarson, þjálfari KA. „Það þýðir ekkert annað fyrir okkur en að vera raunsæir á það sem eftir er mótsins; taka eitt skref í einu, og telja stigin í lokin. Við verðum hins vegar að teljast nokkuð óheppnir í leikjum okkar fram til þessa. Ekki einn einasti sigur okkar hefur verið baráttulaus. Það eru hins vegar sjö leikir eftir og 21 stig í pottinum, þannig að staðan getur átt eftir að breytast heilmikið," sagði Guðjón vongóður um að ná í eitthvað af þessum stigum Jóhannes Átlason, þjálfari Þórs, sagði að þeir hjá Þór væru ekki mjög hressir með frammistöðuna fyrri hluta mótsins. „Þangað til við töpuðum fyrir Fram höfðum við ekki tapað í 5-6 leikjum, og vorum komnir vel á skrið. Það er því óskandi að við höldum haus í næstu leikjum," sagði Jóhannes, og benti á að Þórsliðið hefði oft veri nálægt því að ná Evrópusæti, og í fyrra hefði bara einstakur klaufaskapur komið í veg fyrir það. „Við stöndum að vísu ekki eins vel að vígi nú eins og þá, en möguleikinn er ennþá fyrir hendi," sagði hann að lokum. MeA falldrauginn á hælunum? Júrí Sedov, þjálfari Víkinga, sagði að fallbaráttan væri framundan og að við því væri ekkert annað að gera en að beijast og aftur beijast. „Við höfum verið óheppnir í leikjum okkar. I leiknum gegn KA urðum við fyrir barðinu á dómaranum, sem dæmdi mark, þar sem ekki var hægt að greina að boltinn hefði farið inn fyrir línuna. Það þarf að taka dómaramálin fastari tökum, og refsa þeim dómurum, sem ekki standa sig með einhveijum hætti. Staðan í deildinni er hins vegar nokkum veginn í samræmi við getu liðanna; Fram er með besta liðið, og svo hafa Valsmenn sótt í sig veðrið, enda með gott lið,“ sagði Sedov að lokum. Við Keflvíkingum blasir botnbarátt- an einnig, og þjlfari þeirra, Frank Upton sagði, að vandi liðsins hefði aðallega falist í skorti á einbeit- ingu. „Við höfum leikið vel í 60 mínútur, en síðan ekki söguna meir. Þá hefur tekið við kafli þar sem mistök á mistök ofan hafa litið dagsins ljós,“ sagði hann. „Ég hef hins vegar trú á liðinu og held að við getum unnið hvaða lið sem er. Það eru 7 leikir eftir, og þar af eigum við 3-4 heimaleiki," sagði Upton. Oskar Ingimundarson, þjálfari Leifturs, sagði að liðið hefði æft á fullu að undanfömu og lítið frí feng- ið. „Fallið blasir við ef við tökum okkur ekki á,“ sagði Óskar. „Við höfum verið óheppnir og fengið mörk á okkur seint í leikjum og tapað með litlum mun. Þá hefur okkur ekki heldur tekist að nýta dauðafærin, og ef það breytist ekki er það bara falldraugurinn sem er á hælunum á okkur," sagði Óskar, og taldi að liðið ætti að vera komið með 3-4 stigum meira á kostnað líða í efri hluta deildarinnar. Völsungar hafa fengið fjögur stig í jafnmörgum leikjum síðan þeir réðu Amar Guðlaugsson, sem þjálf- ara, og em neðstir með 5 stig. „Við verðum að taka hvem leik fyrir sig, til að eiga möguleika á að forða okkur frá falli,“ sagði Amar. „Leikur liðsins hefur hins vegar gefið tilefni til mun betri frammistöðu, þannig að það er ekki hægt að vera ánægður. Þá er mun- urinn á liðunum ekki eins mikill og staðan segir til um,“ sagði Arnar, og bætti við að nú þyrfti að snúa sér að þessu af alefli. DOMARAMAL Þegar dómarar gera mistök egar leikmenn í knattspymu- leik misnota gott marktæki- færi eru áhorfendur yfirleitt fljót- ir að fínna einhveija afsökun fyr- ir viðkomandi leikmann. Hann á almennt alla samúð áhorfenda sem vorkenna leikmanninum fyrir þessi mistök. Við annan tón kveður þegar dóm- ari gerir mistök í dómgæslu, miss- ir til dæmis af broti. Að mati áhorfenda gerir dómari ekki slík mistök vegna óheppni - hlut- drægni er yfírleitt talin orsökin. Þetta eru að sjálfsögðu fráleitar ásakanir, en því miður er það frek- ar regla en undantekning að áhorfendur bregðast svona við. Gefln vítl Það sem leiðinlegast er í þessu sambandi er þegar dómarar eru sakaðir um að gera mistök með vilja. í bikarleik milli Vals og Fram á dögunum urðu áhorfend- ur, bæði á vellinum og sjónvarpsá- horfendur, vitni að mjög slæmum mistökum dómara er hann gaf Valsmönnum vítaspyrnu. Þama áttu sér stað mannleg mistök — reyndar stórslys. En það er stór- furðulegt að til séu þeir menn, sem áltta að dómarinn hafí gert þetta með viija. Það getur enginn sett sig í spor dómara sem lendir í slíku. Enginn dómari leikur sér að því að ienda í þeirri ljóna- gryfju sem menn komast í við slík mistök. Dómurum hjálpað í heimsmeistarakeppninni á Spáni 1982 gerðist það í einum leiknum að dómarinn, sem var danskur, dæmdi vítaspymu á Spánveija, þegar einn sóknarmaður mótheija þeirra var felldur 2 metra utan við vítateig. Dómarinn var svo öruggur á því að brotið hefði átt sér stað innan vítateigsins að hann ráðfærði sig ekki við línu- vörðinn. Eftir leikinn lenti dómarinn í gini fjöímiðlanna og var þetta rætt fram og aftur. Sem betur fer fyr- ir dómarann var hann ekki ásak- aður um að hafa gert þessi mistök með vilja, og honum var á engan hátt refsað fyrir þessi mistök. En hvað skyldi hafa orðið um dómar- ann? Var honum refsað fyrir þetta atvik? Nei, svo sannarlega ekki. Bæði UEFA og FIFA litu á þetta atvik sem hreint slys og fengu honum marga leiki til að dæma eftir þetta. Auðvitað á að hjálpa dómumm úr þeim vanda, sem þeir komast í. Með dómarakveðju, Guðmundur Haraldsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.