Morgunblaðið - 04.08.1988, Síða 47

Morgunblaðið - 04.08.1988, Síða 47
47 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FTMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1988 HANDKNATTLEIKUR / SPÁNARMÓTIÐ Ekkialh- afjólin Mistök á báða bóga, en Spánverjar höfðu betur í slökum leik ÍSLENSKA landsliðið í hand- knattleik hefur, undir stjórn Bogdans, náð frábœrum ár- angri á mikilvægum mótum og leikurinn í gær bar þess augljós merki að undirbúningurinn núna miðast við Ólympíuleik- ana eins og marg oft hefur verið bent á. Liðið var langt frá sínu besta, snerpan í lágmarki, leikmennirnir ósamstilltir, mis- tök í vörn sem sókn. Engu að síður voru Ijósir punktar inni á milli; Einar varði stórkostlega, Alfreð stóð sig vel, Sigurður Gunnarsson gerði góða hluti í fyrri hálfleik sem og Bjarki. Strákarnir fengu mörg tækifæri til að gera hreinlega út um leik- inn í fyrri hálfleik, en þeim brást bogalistin og dómararnir komu í veg fyrir að forskotið var ekki þrjú mörk í hléi — dæmdu óréttlátt skref á Sigurð Gunnarsson og Spánverjarnir náðu að minnka muninn í eitt mark fyrir vikið. Heitt og rakt var í höllinni, en engu að síður var mikill hraði í byijun. Munoz gaf tóninn með marki af línu en eftir það hafði íslenska liðið frum- kvæðið, þó munur- inn væri ekki mikill. Einar fór á kostum og varði ÍO skot í fyrri hálfleik, flest úr dauðafærum, en sóknarleikurinn var ekki mark- viss og Zuniga markvörður var erf- iður þröskuldur. Eftlrgjöf Jafnræði var með liðunum fyrstu 20 mínútumar í seinni hálfleik, staðan 17:18, dæmt víti á Karl og honum vikið af velli í tvær mínút- ur. Munoz skoraði úr vítinu, Einar hristi höfuðið yfír dómnum og fékk tveggja mínútna hvfld. Spánveijar náðu flögurra marka forystu og úrslitin voru ráðin. Eðlilegt Ástæðulaust er að gráta leikinn og úrslitin. Jólin era einu sinni á ári og Ólympíuleikamir í september. Liðið getur betur og verður ekki Steinþúr Guöbjartsson skritar frá Spáni dæmt af þessu móti. Skiptingar vora örar, en Sigurður Sveinsson kom einn ekki inná. Guðmundur Hrafnkelsson og Júlíus Jónasson hvfldu. Einar, Bjarki, Kristján, Sig- urður (Alfreð í vöminni), Átli, Geir og Jakob léku nær allan fyrri hálf- leik, en hinir fengu tækifæri eftir hlé. Spánveijamir vora ekki síður þung- ir og sýndu enga yfírburði. Þeir gerðu aðeins flögur mörk fyrir ut- an, en nýttu sér hreyfíngarleysi íslensku vamarinnar og vora dijúg- ir á línunni og í homunum. Þá fengu þeir sjö víti og nýttu sex. 6-0 vöm þeirra í fyrri hálfleik hentaði íslenska liðinu ágætlega, en þeir breyttu um leikaðferð eftir hlé og þá varð róðurinn erfiðari. Dómaramir era ágætis menn, en þeir dæmdu öll vafaatriði heima- mönnum í hag og vora greinilega á þeirra bandi. Bestir Einar Þorvarðarson varði tíu skot í fyrri hálfleik og var mað- urinn á bak við góða stöðu f leikhléi. Hann stóð sig vel þrátt fyrir að vöm íslands væri slök — lokaði markinu hvað eftir annað er Spánveijar voru komnir í opin færi. Alfreð Gíslason, sem er hér til hliðar, lék mjög vel í vöminni; var sá eini sem skilaði sínu hlutverki vel þar. Hvað sögðu þeir eftir leik íslands og Spánar í Irun í gærkvöldi? „Strákarnir voru nánast á hælunum allan tímann" Bogdan Kowalczyk „Liðsheildina vantaði bæði í vöm og sókn — strákamir vora nánast á hælunum allan tímann. Barátt- an var ekki til staðar og menn gerðu ekki það sem þeir geta. Erfiðið hefur verið mikið í sumar en ekki síðustu daga og leikurinn endurspeglar áhugaleysið að und- anfornu. Við þurfum að setjast niður, fara yfír mistökin og reyna að bæta okkur. Spánveijar gerðu einnig mistök, en baráttan var þeirra." Juan de Dtos Roman, þjálfari Spónar „Leikmenn beggja liða gerðu mörg mistök, sem komu niður á gæðum leiksins. En það er eðlifegt á þessum tíma, bæði liðin hafa æft án bolta að undanfómu og leikmennimir era þreyttir. Snerp- an var ekki til staðar og mínum mönnum gekk illa með skot fyrir utan, en ég er ánægður með sigur- inn.“ Rauchfuss dómari „Leikurinn var ágætur á köflum og auðdæmdur. Ruddaskapur sást ekki, en greinilegt er að leikmenn- imir geta gert mun betur." Kristjón Arason „Spánveijar keppa um verðlauna- sæti í Seoul, en leikur þeirra bar þess ekki merki. Þeir vora þreytt- ir eins og við enda eðlilegt miðað við æfingamar undanfamar vik- ur, en þeir börðust betur. Við gerðurn sumt vel og reynum að læra af mistökunum." Þorgils Óttar Mathlesen „Liðið er í mótun. Menn era að reyna að spila saman og þora ekki að taka áhættu, en leikgleðin var ekki til staðar — sennilega vegna þreytu. Þetta er vandamál, sem við þurfum að takast á við. Spánveijamir vora ekki heldur sannfærandi og ljóst er að bæði liðin geta betur." Siguröur Gunnarsson „Það er alltaf leiðinlegt að tapa, sérstaklega gegn Spánverjum, en það var synd að vinna ekki, þvf þeir vora þungir og ólikir sjálfum sér. Við vorum það einnig, hug- myndasnauðir og skutum illa. Láð- in era á svipuðu róli í undirbún- ingnum fyrir Ólympíuleikana, en undir eðlilegum kringumstæðum eigum við að sigra þá." Ólafur Jónsson, fararstjórí „Ég átti von á eins eða tveggja marka tapi. Liðið er þreytt eins og við er að búast og verður það áfram á næstunni. Hins vegar era úrslitin jákvæð þegar upp verður staðið í haust, þvi þetta mót er til að átta sig á stöðunni — sjá hvað þarf að bæta. Ég veit af eigin reynslu með Bogdan að yfir- leitt gengur ilia þar til hlutimir skipta öliu og Bogdan hefur ekki tapað, þegar á hefur réynt.“ Ísland-Spánn 19 : 23 Irun - Spánarmótið í handknattleik, miðvikudaginn 3. ágúst 1988. Gangur leiksins: 0:1, 2:1, 2:2, 8:2, 3:3, 4:3, 4:4, 6:4, 6:5, 7:5, 7:6, 8:6, 8:8, 10:8, 10:9, 11:9, 11:10, 11:11, 12:11, 12:13, 13:13, 14:14, 14:16, 16:16, 17:17, 17:21, 18:21, 19:22, 19:23. Mörk íslands: Alfreð Gíslason 5/2, Atli Hilmarsson 3, Kristján Arason 2, Bjarki Sigurðsson 2, Sigurður Gunn- arsson 2, Geir Sveinsson 2, Þorgils óttar Mathiesen 1, Guðmundur Guð- mundsson 1. Varin skot: Einar Þorvarðarson 15/1, Brynjar Kvaran 3. Utan vallar: 8 mínútur. Mörk Spánar: Munoz 5/3, Serrano 5/3, Ruiz 4, Reino 3, Caanas 3, Puig 3. Varin skot: Zuniga 11. Utan vallar: 4 mínútur. Dómarar: Rauchfuss og Buchda frá Austur-Þýskalandi voru heimadómar- ar. Áhorfendur: 2000-2500. Sovétmenn og A-Þjóðvevjar skildujafnir Sovétmenn og A-Þjóðveijar gerðu jafntefli 15:15 áSpánar^ mótinu í handknattleik í gær. Sókn- arleikur liðanna einkenndist af mis- tökum en vamarleikurinn var góður eins og tölumar bera með sér. A-Þjóðveijar byijuðu betur og höfðu yfír 10:6 í hálfleik en eftir það tóku Sovétmenn við sér og tókst að jafna leiknn. Leikur liðanna bar þess merki, að þau era ekki í topp- formi um þessar mundir og munu bæta við sig fram að Ólympíuleikum á sama hátt og íslendingar. ÍHtíMR FOLK ■ CLAES HAIIgren, markvörð- urinn gamalkunni, er kominn í sænska landsliðshópinn á nýjan leik. Hann á 198 landsleiki að baki. ■ S VÍAR bára sigurorð af Spán- veijum í vináttulandsleik í hand- knattleik á mánudaginn, 23:22®* Leikurinn var „upphitun" fyrir Spánarmótið. ^ ■ TVEIR íslendingar gerðu sér ferð frá Madríd í gær til að fylgj- ast með landsleiknum. Það er sex klukkustunda akstur frá Madrid til Irun. ■ ALLY McCoist skrifaði í gær undir nýjan fímm ára samning við lið sitt, Glasgow Rangers. „Það hefði kostað okkur ríflega tvær ■■■ milljónir punda að FráBob kaupa leikmann í Hennessy stað McGoists hefði iEnglandi hann farið," sagði Graeme Souness, stjóri Rangers í gær og lýsti yfir ánægju sinni með samningimlM' McCoist hefur verið markahæsti leikmaður félagsins undanfarin ár. ■ EDDIE May hætti í gær sem þjálfari utandeildarliðsins Newport á Englandi þar sem félagið gat ekki leyst ^árhagsvandræði sín. Hann yfirgaf sem kunnugt er KS i sumar til að taka við starfí sínu hjá Newport. I REIKNINGAR meistara Li- verpool vora lagðir fram í gær og þá kom í ljós að félagið greiddi alls tæpar þijár milljónir punda í laun á síðasta ári: 2.923.000 pund, seq jafíigildir um 237 milljónir ísl. króna. Einn launþega hjá félaginu, sá sem hafði mest upp úr krafsinu, fékk 200.000 pund fyrir tímabilið, sem er um 16 milljónir ísl. króna. Talið er víst að það sé Kenny Dalglish, leikmaður og fram- kvæmdastjóri liðsins. Þeir sem næstir komu, sem voru átta, höfðST" um 100.000 pund hver fyrir árið, eða um 8 milljónir króna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.