Morgunblaðið - 04.08.1988, Side 48

Morgunblaðið - 04.08.1988, Side 48
 SÓLARMEGIN fflrgtntfrliiMfe upplýsingar um vörur og FIMMTUDAGUR 4. AGUST 1988 VERÐ I LAUSASOLU 70 KR. Slysavaldar í umferðinni: 100-200 ökumenn árlega endurkrafðir um bætur •• Olvunar- og hraðakstur algengar ástæður endurkröfu ÁRLEGA er 1-200 ökumönn- um gert að endurgreiða tryggingafélögum, að hiuta eða að fullu, bætur sem greiddar hafa verið vegna umferðarslyss sem þeir hafa valdið af stórkostlegu gáleysi eða ásetningi. Að sögn Egils Sigurgeirssonar hæstaréttar- lögmanns, formanns endur- Að sögn Egils er ölvunarakstur algengasta ástæða þess að til end- urkröfu kemur en hraðakstur og hvers konar gáleysi í umferðinni getur einnig orðið tilefni endur- kröfu. Egill Sigurgeirsson sagði, að frá því að endurkröfunefnd tók til starfa hafi hún kveðið upp úr- skurð um endurkröfu yfir 2480 ökumönnum. „Ég held að ungum ökumönnum sé ekki gerð nægilega skýr grein fyrir þessu lagaákvæði, það þarf að brýna það fyrir mönn- um að þeir eru alls ekki lausir undan fjárhagsábyrgð ef þeir valda slysi með háskaakstri. Slíkt getur ekki einungis haft í för með Haukadalur í Dölum: Minjar fundust urnjám vinnslu HÓPUR fornleifa- og jarð- fræðinga fann um síðustu helgi minjar um forna járn- gerð í landi Ytri Þorsteins- staða í Haukadal í Dölum. Að sögn Guðmundar Ólafssonar, fornleifafræð- ings, var í fyrstu talið að einungis væri um kolagröf að ræða en við nánari rann- sókn kom í ljós að þarna eru merkar minjar af járn- vinnslu til forna. Það var fyrir tveimur árum að sumarbústaðareigandi, sem var að grafa fyrir tijám í landi Ytri Þorsteinsstaða, kom niður í miðjan kolabing. Þorleifur Einarsson, jarðfræðingur, var fenginn til að athuga hvað þama væri á ferðinni og varð úr að hann fékk fleiri í lið með sér. Að sögn Guðmundar Ólafssonar fékkst styrkur úr Þjóðhátíðarsjóði til rannsókn- arinnar. Jarðvegssýni hafa nú verið send til aldursgreiningar erlendis og munu nokkrar vik- ur líða þar til niðurstöður ber- ast um aldur þeirra. Auk Guð- mundar voru í rannsóknar- hópnum Guðrún Sveinbjamar- dóttir, fomleifafræðingur, Þor- leifur Einarsson og Grétar Guðbergsson, jarðfræðingar. kröfunefndar, sem starfað hefur samkvæmt ákvæðum umferðarlaga frá árinu 1966, eru algengar upphæðir end- urkrafna 100-500 þúsund krónur. Hæsta upphæð kröfu í úrskurði nefndarinnar á síðasta ári var hátt á aðra milljón króna. sér refsingu og ökuleyfismissi," sagði Egill Sigurgeirsson. „Nefnd- in getur ákveðið að ökumaður skuli endurgreiða tryggingafélagi sínu alla þá upphæð sem það hef- ur innt af hendi hans vegna ef um ásetning eða stórkostlegt gáleysi er að ræða.“ Undir stórkostlegt gáleysi fellur bæði ölvunarakstur og hvers konar vítaverður akstur. I endurkröfunefnd eiga sæti þrír menn, samkvæmt 96. grein umferðarlaga. Einn er tilnefndur af viðurkenndum vátryggingafé- lögum, einn eftir tilnefningu lands- samtaka bifreiðaeigenda og einn, formaðurinn, án tilnefningar. Við- komandi tryggingafélag innheimt- ir kröfu sína að fenginni niður- stöðu endurkröfunefndar og ef hinn brotlegi ökumaður sinriir ekki greiðsluáskorun er höfðað mál til staðfestingar kröfunni. Að fengn- um dómi er krafan aðfararhæf. Egill Sigurgeirsson kvaðst ekki vita til þess að við meðferð fyrir dómi hafi úrskurði nefndarinnar nokkru sinni verið hnekkt. Að sögn Egils Sigurgeirssonar koma einatt til lækkunar endur- kröfu ástæður sem tilgreindar eru í 95. grein umferðarlaga um efna- hag og sök tjónvalds, fjárhæð tjónsins og ungan aldur. Þó sagði hann að á starfstíma nefndarinnar hefðu henni borist nokkur mál þar sem sannað þótti að ökumaður hefði af ásetningi valdið öðrum eigna- eða líkamstjóni í umferð- inni. í þeim tilfellum hefðu tjón fallið óskipt á þann seka. Morgunblaðið/ Kristján Þ. Jónsson Búið um sovéska sjómanninn í þyrlukörfunni um borð í olíuskipinu Innfelldu myndina tók Júlíus við Borgarspítalann, þegar komið var með manninn þangað. Þyrla sækir sovéskan sjómann ÞYRLA Landhelgisgæslunnar sótti í gærmorg- un veikan sovéskan sjómann um borð í olíu- skip sem var á leið til landsins. Skipið var statt á Selvogsbanka á leið til lands- ins þegar hjálparbeiðnin barst. Maðurinn kenndi sér meins innvortis og lenti þyrlan með hann við Borgarspítalann um hádegisbilið. Rfldð greiddi 80 millj. vegna vanskila á orlofsgreiðslum RÍKIÐ brúaði í vor 80 milljón króna halla á Orlofssjóði, sem er í vörslu Póstgíróstofunnar. Sjóðurinn á þessa upphæð útistand- andi hjá ýmsum fyrirtækjum, sem ekki hafa staðið í skilum með greiðslur orlofsfjár. Launþegar hafa samt sem áður fengið orlof sitt útborgað og í vor kom upp sú staða, að Póstgíróstof- an þurfti að standa skil á þeim greiðslum, þótt innborganir til sjóðsins hefðu stöðvast vegna breyttra orlofslaga. Þann fyrsta maí síðastliðinn tóku gildi ný lög um orlofsgreiðsl- ur. Aður sá Póstgíróstofan um varðveislu alls orlofsíjár í Orlofs- sjóði. Nú er orlofíð geymt í rekstri fyrirtækjanna sjálfra, eða á sér- stökum orlofsreikningum laun- þega í bönkum og sparisjóðum. Af þessu leiðir, að fjárstreymi til sjóðsins hefur stöðvast. Þegar breytingin tók gildi átti Orlofssjóður 80 milljón króna skuldir útistandandi hjá ýmsum fyrirtækjum. Þau höfðu ekki stað- ið í skilum með greiðslur til sjóðs- ins, en lögum samkvæmt fá laun- þegar orlof sitt greitt, jafnvel þótt um slík vanskil sé að ræða. Forráðamenn Póstgíróstofunn- ar stóðu því frammi fyrir því vandamáli, að þurfa að greiða þessar 80 milljónir án þess að fá neinar nýjar innborganir í sjóðinn til að mæta þeim útgjöldum. Síðasta vor var svo tekin ákvörðun um að ríkissjóður legði fram þá upphæð sem á vantaði, til þess að sjóðurinn gæti staðið skil þess- um greiðslum. Að sögn Gunnars Valdimars- sonar póstgíróstjóra er undir hæl- inn lagt hvemig gengur að inn- heimta skuldir fyrirtækjanna við Orlofssjóð. „Hér er einkum um að ræða fyrirtæki í sjávarútvegi, sem eiga í fjárhagsörðugleikum. Yfir- Ieitt hafa þau borgað skuldir sínar smám saman og gert þær upp áður en nýtt orlofsár hefst.“ Gunnar sagði að í nýju lögunum væri ekki gert ráð fyrir því, að Póstgíróstofan hefði hlutverki að gegna í orlofsmálunum. Hins veg- ar hefði Félagsmálaráðuneytið óskað eftir því að stofnunin sæi um að afgreiða mál frá því fyrir gildistöku laganna, eins og hér væri um að ræða. í hinum nýju lögum er miðað við að orlof launþega sé geymt í rekstri fyrirtækjanna sem þeir starfa hjá og atvinnurekandinn beri ábyrgð á útborgun þess. Ríkið ábyrgist hins vegar greiðslu or- lofslaunanna, í þeim tilvikum, þar sem um vanskil er að ræða af hálfu launagreiðenda. Heimild er í lögunum fyrir því, að stéttarfélög og atvinnurekend- ur semji við bankastofnanir um varðveislu orlofsins. Borgar þá launagreiðandinn orlofið inn á bankareikning, sem er á nafni launþegans. Þegar samningar af þessu tagi hafa verið gerðir fellur ríkisábyrgð á greiðslu orlofslauna niður, en bankinn verður ábyrgur gagnvart eiganda reikningsins. Mörg fjölmennustu stéttarfélögin í landinu hafa nú farið þessa leið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.