Morgunblaðið - 14.08.1988, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 14.08.1988, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 1988 B 5 Jóhannesi skírara, Pétri og Páli og heilögum Ágústinusi. Ostatollurinn Við vígslu klaustursins gaf Skálholtsbiskup, Magnús Gis- surarson, bróður Þorvaldar, klaustrinu allar biskupstekjur milli Botnsár og Hafnarfjarðar. En biskupi sýndist „rekstargrundvöll- ur“ klaustursins ekki fulltryggður; þá um sumarið var að ráði biskups og Snorra Sturlusonar gerður sá máldagi, að hver búandi milli Botnsár og Reykjaness skyldi á hausti hverju gjalda til Viðeyjar- klausturs „osthleif slíkan sem þar er gjör“. Síðar gerði klaustrið til- kall til osthleifa af stærra svæði. ritaði Ólafs sögu helga. Viðeyjar er líka getið í Sturl- ungu fyrir það að þar fundust þeir Þorgils Böðvarsson skarði og Gissur Þorvaldsson árið 1252 og „fór með þeim álitlega". Þorgilsi virtist samt „eigi svo fastlegur trúnaður af Gissuri". Klaustrið sem Þorvaldur Giss- urarson stofnaði var af Ágústínus- arreglu og var svo álitið að biskup umdæmisins væri hinn rétti yfir- maður þess eða ábóti, þótt því væri stjómað af næstræðanda eða príor. Fljótlega var farið að kalla stjómandann í Viðey ábóta. Árið 1344 aftók Jón Sigurðsson Skál- holtsbiskup regluhald Ágústínus- arbræðra í Viðey en setti þess í Sauóhúsavör I YIÐEY Virkisfjara FlúðmarCj VIÐEYJARSTOF Hulduvön Helguhóll Nafimar Hrossanes \ Óahadys Abótasæti f iiíkaííöt I.íkahóll 'vottáhóll Bcejarvör Norður- \bakkar VESTUREY Bæjarsker,y C> Suðuu' bakkar K.amburinn Kattartunga Flesjarnar HEIMAEY Norður- n klappirnar Hrafnssandur Norðurklettar AUSTUREY Drápsnes Sundbakki Þórsnes Morgunblaðið/ GÓI FRAMHALDS NÁM KÖFUIM Námskeið fyrir þá sem stunda köfun innan björgunar- og hjálparsveita, verður haldið í Hafnarfiriði. Námskeiðið stendur í 8 daga og hefst föstudaginn 26. ágúst og lýkur föstudaginn 2. september. Námskeiðið er bæði verklegt og bóklegt. Þessar kröfur eru gerðar til þátttakenda: 1) Aldurstakmark er 20 ár. 2) Þátttakendurverða að hafa stundað köfun fyrir námskeiðið. 3) Þátttakendur verða að skila inn læknis- vottorði. 4) Krafist er skyndihjálparkunnáttu. Réttindi: Standist þátttakendur próf, fá þeir réttindi til að starfa sem björgunar- kafarar (P.S.D.- Public Safety Divers). Leiðbeinendur verða Stefán Axelsson, Hafnarfirði og Kjartan Hauksson, ísafirði. Þátttökutilkynningar berist skrifstofu LHS, Snorrabraut 60, sem fyrst og þar eru einnig veittar allar nánari upplýsingar ísíma91-621400. Tilboð óskast í Ford Broncq XLT árgerð 1980 og Fiat Ritmo árgerð 1988, sem verða á útboði þriðjudaginn 16. ágúst, ásamt fleiri bifreið- um, á Grensásvegi 9 frá kl. 12-15. Tilboð verða opnuð sama dag kl. 16. Sala varnarliðseigna Frá Krýsuvík og alla leið upp í Andakíl. Eins og stundum vill brenna við með ýmis gjöld og innheimtur varð þessi tollur ekki vinsæll. Til er bréf frá árinu 1433: „ ... og sér- deilis um þann osttoll sem vor for- faðir biskup Magnús, góðrar minn- ingar, og aðrir dándimenn fyrr- greindu klaustri gefið, skipa eður unnt hafa sem fyrr segir, forbjóð- um vér öllum og hverjum manni fyrir sig undir krafti heilagrar hlýðni að gjöra fyrrgreindu klaustri og bræðrum nokkuð ólög- legt eður óskjallegt hindur og mótmæland þar út í, svo framt sem þeir vilja forðast heilagrar kirkju hæsta banns pínu og hörðustu refsing." Viðeyjarklaustur þurfti ekki lengi að treysta eingöngu á bisk- upstekjur og ostatoll. Klaustrið reyndist_ fengsælt til jarða og ítaka. Átta árum eftir stofnun klaustursins á það m.a. land á Korpúlfsstöðum og Blikastöðum, Elliðavatn hálft og allt land að Vatnsenda og laxveiði í Elliðaám að helmingi. Um siðaskiptin mun klaustrið hafa átt 116 jarðir. í klaustrum var stunduð sú þrifnaðariðja að rita bækur. Viðey- jarklaustur er ekki orðlagt fyrir handrit og bókmenntir að því frá- töldu a6 Styrmir Kárason hinn fróði var annar príor í Viðey. Hann átti hlut að ritun Landnámu og • stað regluhald Benediktinga og vígði 6 bræður undir það. Þessi rástöfun biskupsins mun hafa þótt gerræði. 1352 endurreisti Gyrðir biskup ívarsson Ágústínusarregl- una i eyjunni og hélst svo fram til siðaskipta. Ögmundur Pálsson, síðasti kaþ- ólski biskupinn í Skálholti, var ábóti í Viðey 1515-21. Svo er frá honum greint að hann hafi verið mikill maður að vexti, bæði hár og þykkur en geðmenni mikið og þótti nokkuð harðfenginn, stórráð- ur og álagasamur. I ábótatíð hans var klaustrinu enn sem fyrr gott til fanga og náði hann eignahaldi á mörgum jörðum fyrir klaustrið. Síðasti ábóti í Viðeyjarklaustri var Alexíus Pálsson. Honum er svo lýst að hann hafi verið mikill mað- ur að vexti og afli, en mjög gæfur í skapi. Alexíus var af sumum uppnefndur Áli. Alexíus varð ábóti um 1531. Árið 1536 komst Kristján kon- ungur þriðji til ríkis í Danaveldi og með honum kom hinn nýi siður sem kenndur er við Lúter. Kristján Danakonungur sendi hingað sem hirðstjóra þýskan mann, Claus von Merwitz. Hann varð skjótt mjög óþokkasæll af alþýðu manna. Von Merwitz hafði sér til ráðuneytis annan Þjóðveija ættaðan frá Ham- borg, Diðrik von Minden að nafni. SJÁ BLS. 6B. EF ÞU HEFUR HÆFILEIKANA - ÞÁ BJÓÐUM VIÐ UPPÁ KENNSLUNA ★ Snyrtifræði - Cidesco og fleiri rétt- indi (andlits- og líkamsmeðferðir) ★ Líkamsnudd ★ Varanleg háreyðing (Electrolysis) ★ Nuddmeðferð með ilmolíum (Aromatherapy) ★ Lýtahyljun ★ Sjónvarps-, kvikmynda-, Ijós- mynda-, leikhús- og framúrstefnu- förðun - Cidesco og fleiri réttindi ★ Hárgreiðsla ★ Hárkollugerð ★ List og hönnun Gjörið svo vel og sendið eftir upplýsingabæklingi okkar núna um mögulega námsáfanga. ★ Karlmenn og kvenmenn, allir aldurshópar velkomnir ★ Alþjóðlegur sérskóli með fjölskyldulegu andrúmslofti ★ íslensk og skandinavísk stjórnvöld hafa veitt námslán fyrir okkar viðurkenndu námsáfanga ★ Allir námsáfangar gefa starfsréttindi Fyrirspurnir á ensku sendist til: The Principal, Dept. I.S., Storcroft House, London Road, Retford, Notts DN22 7EB, England Sími: England/777-707371 eða 703077.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.