Morgunblaðið - 14.08.1988, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 1988
B 7
Einnig á hún Viðeyjarbiblíu, þá
sem prentuð var í Viðey 1841.
Hún var gefín til minningar um
hjónin Louísu Tómasdóttur og
Asgrím Gíslason, er bjuggu um
tíma í Viðey. Gefendur voru börn
þeirra. Núna eru böm Skafta Þor-
lákssonar og Önnu K. Jónsdóttur,
þau Geirlaug, Svava og Þorlákur,
að gefa kirkjunni altarisdúk úr
handofnu damaski eftir Sigríði
Jóhannsdóttir og Leif Breiðfjörð.
Leifur er einnig að smíða altaris-
kross og tvo stjaka tíí minningar
um Ólaf Stephensen stiftamtmann
og Sigríði Magnúsdóttir' konu
hans. Nokkrir afkomendur þeirra
hjóna taka sig saman um þá gjöf.
Örlygur Hálfdánarson og kona
hans Þóra Jónsdóttir gefa minn-
ingartöflu úr marmara til minn-
ingar um Skúla fógeta og verður
hún sett upp í kirkjunni. Dómkirkj-
an gefur einnig altarisbækur,
Biblíu, sálmabók og Helgisiðabók.
Viðeyjarkirkja á frá fyrri tíð tvo
stjaka frá þessari öld sem Harald-
ur Sigurðsson píanóleikari í Kaup-
mannahöfn mun hafa gefið kirkj-
unni. Það var því miður svo að
stundum á vetrum meðan ekki var
búið í eynni var farið rænandi og
ruplandi um staðinn. Einu sinni
var stjökunum stolið, að mér er
sagt, og þeir seldir fornsala hér í
bæ. Fomsalinn lánaði frú einni
sem sá um brúðkaupsveislur stjak-
ana. Og þama í veislunni komu
stjakamir einhveijum brúðkaups-
gesta kunnuglega fyrir sjónir og
kirkjan endurheimti sitt góss.
Að sjálfsögðu verður svo hægt
að skíra böm i Viðey. Ég hef feng-
ið lánað gamalt skírnarfat frá
Þjóðminjasafninu. Það er álíka
gamalt og kirkjan. — Og að end-
ingu, núna fær kirkjan lítið vandað
pípuorgel sem vígt verður í hátí-
ðarmessunni.“
— Nú er innrétting kirkjunnar
sérkennileg, predikunarstóllinn
yfir altarinu?
„Já, en ég veit um þetta fyrir-
komulag víðar, svo sem í Vest-
mannaeyjum, á Reynistað í Skaga-
firði og fleiri stöðum.
— Hvenær komst þú fyrst í
Viðey?
„Eg kom ekki fyrr en 1972
þótt frændi minn ætti hana. Á
mínum bemskuárum var ekki svo
auðvelt að fara út í Viðey. Eftir
að búskapur lagðist niður í eynni
fór öllu að fara aftur og Stephen-
sensætt er mjög glöð yfir hve
myndarlega Reykjavíkurborg
stendur að þessari endurbygg-
ingu.“
Ostatollur
— Nú þarf peninga til flestra
hluta. Hvemig á fjármagna stað-
inn, með ostatolli?
„Ætli slíkur skattur yrði ekki
jafn óvinsæll nú og þá.Eg er
hræddur um að ostamar sem veit-
ingamaðurinn í stofunni hann
Bjarni I. Amason fengi, yrðu í
smærra lagi. Athugaðu að í upp-
hafi var talað um „slíkan hleif sem
þar er gjör“. Ég hef grun um að
ostarnir hafí ekki stækkað á bæj-
unum við slíkar álögur. - En
Reykjavíkurborg hefur staðið
höfðinglega að framkvæmdum og
ég verð var við mjög hlýjan hug
til staðar og kirkju víða að.
Nú þegar er farið að gefa kirkj-
unni og fólk gefur einnig gamla
hluti sem tengjast Viðey. Ég er
t.d. búinn að taka við sófa miklum
og voldugum sem Magnús Steph-
ensen flutti til landsins 1805 og
áður var Reykjavíkurborg búin að
eignast borð sem var í búi Skúla.
Jafnframt munu Þjóðminjasafnið
og Dómkirkjan lána Viðeyjarstofu
og kirkjunni ýmsa gripi til lengri
eða skemmri tíma. Viðeyjarstofu
er ekki hugsað að verða safn en
það getur verið gaman að sýna
fáeina gripi um nokkurn tíma í
einu.“
HAUSTNÆTUR
30. september - 7 dagar - 7 nœtur
erðaskrifstofan Farandi gefur nú ferðalöngum kost á að upplifa
rómantík Parísar í haustbúningi.
JljL eimsótt verða meðal annars: Söfn, Versalir, Rauða myllan,
Lídó, Eiffelturninn að ógleymdum fjölda veitingastaða sem bjóða
upp á gómsætar máltíðir með tilheyrandi vínum.
ist verður á Hótel Residence, sem er þægilegt og heimilislegt
hótel í Níunda hverfi.
Fararstjóri verður Þröstur Brynjarsson
Nánari upplýsingar á skrifstofu okkar.
Ferðaskrifstofan
faiandi
Vesturgötu 5, Reykjavík, slmi: 622420
Farandaferð er öðruvísi ferð l
VEGNA MIKILLAR AÐSOKNAR,
FRAMLENGJUM VIÐ ÚTSÖLUNA
og... 50. hver kaupandi
fær áfram tækifæri á að
kaupa vasatæki á 50,- kr.
og 100. hver kaupandi
Nordmende geislalpilara á
aðeins 100,- kr.
Lýkni á föstudag!
GEISLASPILARAR
VASAÚTVARPSTÆKI
SÍMAR
ÚTVARPKLUKKUR
SJÓNVARPSTÆKI
HLJÓMTÆKJASTÆÐUR
0. FL. O. FL.