Morgunblaðið - 14.10.1988, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14 OKTÓBER 1988
B 5
Rás 1;
Veistu svarið?
■H í dag byijar á Rás 1
25 þáttur með gamal-
kunnu nafni. Það er
Helga Thorberg sem leggur
spurningar Páls Líndal um
sögu lands og þjóðar fyrir þau
Jóngeir Hjörvar Hlynason hag-
fræðing og Guðbjörgu Snót
Jónsdóttur guðfræðinema, í
spumingaþættinum Veistu
svarið? Þau Jóngeir Hjörvar
og Guðbjörg Snot fá að spreyta
sig á tuttugu spumingum, tíu
í hvorri umferð og kemur það
í hlut Páls að kveða upp úr
um rétt svör og röng. Sá sem
kann rétt svör við fleiri spum-
ingum mætir svo til leiks
næsta sunnudagsmorgun á mó
Helga Thorberg.
;i nýjum mótheija.
Rás 1;
Maðurinn í ríki náttúrunnar
■I í dag verður flutt á
30 rás 1 dagskrá um
finnska Nóbelsskáld-
ið FVans Emil Sillanpáa (1888—
1964) í tilefni aldarafmælis hans
í síðasta mánuði. Dagskráin
nefnist Maðurinn í ríki náttú-
runnar. Timo Karlsson, finnskur
sendikennari, tók hana saman
og talar um skáldið. Þórdís Am-
ljótsdóttir les kafla úr þrem sög-
um eftir Sillanpáa sem þýddar
hafa verið á íslensku. Það eru -
Skapadægur, Silja, frægasta
saga höfundar og Sólnætur. Þá
segir séra Siguijón Guðjónsson
frá heimsókn til skáldsins árið
1938 og leikin verður fínnsk
tónlist. Sillanpáá ritaði sögur sem með skáldlegum hætti lýsa sam-
spili manns og náttúru, eða öllu heldur órofa tengslum mannsins
við alit iífríki náttúrunnar þar sem sólin er miðpunktur. Sillanpáá
var þjóðskáld Finna á sinni tíð og hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels
árið 1939.
Stöð 2:
Ken Russell og
bresk tónlist
OO 25 manna-
' skálanum
á Stöð 2 í kvöld er
þáttur sem fjallar um
breska tónlist allt frá
Benjamin Britten til
Bítlanna og frá pönki
til Purcells. Kvik-
myndaleikstjórinn
Ken Russell sér um
þáttinn en í yfir
þijátíu ár hefur hann
gert margar bestu
tónlistakvikmyndir
sem hafa verið fram-
leiddar og í seinni tíð
hefur hann t.d. framleitt myndbönd með Elton John og Bananarama.
í þættinum bregður hann sér í mörg gervi til að ná fram andrúms-
lofti þeirrar tónlistar sem fjallað er um og heimsækir nokkrar óþekkt-
ar hljómsveitir. Meðal þeirra sem fram koma eru Julian Lloyd Webb-
er, Nigel Kennedy og Evelyn Glennie.
Ken Russeil fjallar um breska tónlist í
Listamannaskálanum á Stöð 2 í kvöld.
Stöð 2=
A la carte
■■■■ í þætti Skúla Hansens, A la carte, á Stöð 2 í dag verða
1 ^7 30 þess'r réttir matreiddir:
* Nautafillet með blómkáli
„au gratin“ (fyrir 4)
800 gr nautafíllet (hreinsað)
Krydd: Season all, svartur pipar, Dijon sinnep, púðursykur (olía til
steikingar).
Blómkál „au gratin“
Meðalstórtblómkálshöfuð, 2. dl ijómi, 100 gr ostur, hvítvín (Mósel).
Krydd: Svartur pipar, estragon, jurtakrydd.
Sósa: 1 dl ijómi, 1 dl rauðvín (Piat eða óáfengt), 200 gr sveppir.
Krydd: Svartur pipar, estragon, jurtakrydd, Dijon sinnep, púðursykur.
HVAÐ
ER AÐ0
GERAST í
Hafnargallerí
Helgi Jónsson sýnir vatnslitamyndir í
Hafnargalleríi, Hafnarstraeti 4, dagana
4. til 15. október. Opið erá verslunartima
og frá kl. 9 til 13 á laugardögum.
Katel
í sal Verslunarinnar Katel er sölusýningu
á plakötum og eftirprentunum eftir
Chagall. Salurinn ertil húsa að Lauga-
vegi 29 (Brynju-portið). Sýningin eropin
virkadaga kl. 10—18.
ICjarvalsstaðir
Á Kjarvalsstöðum standa yfir tvær mynd-
listasýningar i vestursal. Guðrún Gunn-
arsdóttir sýnir textilverk og Sigrún Eldjárn
sýnirolíumálverk. I austursal Kjarvals-
staða sýnir Sverrrr Ólafsson sýnir skúlpt-
úra. Sýningarnar eru opnar daglega kl.
14—22 og standa yfir til 23. október.
Krókur
í Gallerí Krók sýnir Daniel Þorkell fvlagn-
ússon myndverk. Krókur er að Laugavegi
37 og eropinn á verslunartíma.
Menningarstofnun
Bandaríkjanna
Menningarstofnun Bandarikjanna, Nes-
haga 16, opnar sýningu á nokkrum verka
Roberts Dell á laugardag kl. 14.00. Ro-
bert Dell er fæddur í Nyack, New York
árið 1950 og stundaöi myndlistamám við
rikisháskólann i New York fylki og hlaut
hann mastersgráðu sina í listnámi
(M.F.A.) frá New Paltz árið 1975. Hann
hefur sýnt viða i Bandaríkjunum, m.a.
hjá The Maryland Arts Institute og í Ever-
son safninu. Robert Dell dvelur um þess-
ar mundir á íslandi, en hann hlaut rann-
sóknarstyrk frá Fulbright til þess að þróa
myndastyttu, sem felur í sér að jarð-
varmaorka er sett i samband við verkið.
Nýtur hann dyggrar aöstoöar Hitaveitu
Reykjavikur við þetta verkefni. Sýninginn
eropinvirkadaga kl. 11.30—17.30 og
um helgar kl. 13—17 og stendur yfir til
3. nóvember.
Nýhöfn
j Nýhöfn, Hafnarstræti 18, stenduryfir
sýning BorghildarÓskarsdóttur. Ásýn-
ingunni eru 11 verk unnin i leir og gler
á þessu ári. Þetta er fjórða einkasýning
Borghildar en hún hefur einnig tekið þátt
i fjölda samsýninga hér heima og erlend-
is. Sýningin, sem ersölusýning, eropin
virka daga frá kl. 10 til 18 og um helgar
frá kl. 14 til 18. Sýningunni lýkur 26.
október.
Nýlistasafnið
i Nýlistasafninu, Vatnsstig 3b, stendur
nú yfir sýning í tilefni 10 ára afmælis
Nýlistasafnsins. Sýningin ersamvinna
Nýlistasafnsins og Listasafns (slands og
eru verk erlendra listamanna sýnd í Ný-
listasafninu en verk íslenskra listamanna
í Listasafni (slands. Sjá nánarum sýning-
una undir Listasafn (slands.
Sparisjóður Reykjavíkur
j Sparisjóð Reykjavíkur, Álfabakka 14,
stenduryfiirsölusýning á málverkum eft-
ir Jóhannes Geir. Sýningin er opin frá kl.
9.15—16, mánudaga til fimmtudaga og
á föstudögum til kl. 18. Á sýningunni eru
20 myndir. Sýningin stenduryfirtil 25.
nóvember. Aðgangur er ókeypis.
Hafnarborg Hafnarfirði
í Hafnarborg, Strandgötu 34, Hafnarfirði,
stendur yfir málverkasýning Gunnars Á.
Hjaltasonar, gullsmiðs. Gunnar lærði
gullsmíði hjá Guðmundi Guðnasyni og
Leifi Kaldal 1943-1947. Árið 1933-
1942 stundaði hann nám við teikniskóla
Bjöms Björnssonarog Marteins Guö-
mundssonar og tók einnig þátt i nokkrum
námskeiðum á vegum Handiðaskólans.
Gunnar hefur haldiö nokkrar einkasýning-
ar og tekiö þátt í samsýningum. Sýning-
in stendur yf ir til 23. október og er opin
daglega kl. 14—19.
Vinnustofa og
sýningarsalur
j vinnustofu og sýningarsal Rikeyjar Ingi-
mundardóttir að Hverfisgötu 59 eru til
sölu verk hennar; málverk, postulinslág-
myndir, styttur og minni hlutir úr leir og
postulíni. Ríkey málar og mótar verk eft-
ir óskum hvers og eins. Opið er á verslun-
artima.
Gallerí Allrahanda
Akureyri
Galleri Allrahanda er til húsa að Brekku-
.; !.ti I
götu 5 á Akureyri. Opnunartimi er
fimmtudaga kl. 16—19,föstudaga kl.
13—18og laugardaga kl. 10—12. Aðrir
tímar eftir samkomulagi. Galleríið er á
efri hæð og eru þartil sýnis og sölu leir-
munir, grafík, textil-verk, silfurmunir,
myndvefnaöur og fleira.
Alþýðubankinn
Akureyri
Menningarsamtök Norðlendinga og Al-
þýðubankinn hf. á Akureyri kynna mynd-
listakonuna Dröfn Friðfinnsdóttur. Á list-
kynningunni eru 12 verk unnin með akrýl-
litum á strika. Dröfn stundaði nám við
Myndlistaskólann á Akureyri og þaðan
útskrifaðist hún úr málaradeild 1986.
Árið 1987 var hún við nám í Lahti lista-
skólanum í Finnlandi. Kynningin er i úti-
búi Alþýðubankans hf., Skipagötu 14,
og lýkur henni 4. nóvember.
Leiklist
Alþýðuleikhúsið
Alþýðuleikhúsið sýnir leikritið Elskhuginn
eftir enska rithöfundinn Harold Pinter.
Sýningamar eru i Ásmundarsal við
Freyjugötu laugardag kl. 20.30 og
sunnudag kl. 16. Síðustu sýningar.
Leikfélag Reykjavíkur
Leikfélag Reykjavikur sýnir gamanleikritið
Sveitasinfónia eftir Ragnar Amalds. Leik-
stjóri er Þórhallur Sigurðsson. Sýningar
eru á laugardag og sunnudag kl. 20.30
í Iðnó. Hamleg verður sýndur á föstudag
kl. 20.00 í Iðnó en harmleikurinn um
Hamlet Danaprins var frumsýndur í Iðnó
í april sl. vor og urðu sýningar alls 14 á
síöasta leikári.
Miðasala er opin alla daga frá kl. 14—19.
Sími 16620.
Þjóðleikhúsið
Á Litla sviði Þjóðleikhússins er sýnt verk-
ið Ef ég væri þú, eftir Þorvarð Helgason.
Sýningar eru á fimmtudag, laugardag og
þriðjudag kl. 20.30. Miðasalaeropin
alla daga nema mánudaga kl. 13—20.
Sími 11200.
Frú Emilía
Leikhúsið Frú Emilia stendur fyrir leik-
lestri helstu leikrita Antons T sjekhov í
Ustasafni islands við Frikirkjuveg. Á laug-
ardag og sunnudag kl. 14.00 veröur flutt
verkið Vanja fræni. Leikstjóri er Eyvindur
Erlendsson. Aögöngumiðasala er í Lista-
safni íslands laugardag og sunnudag og
hefstkl. 12.30.
Gríniðjan hf.
. Gríniöjan hf. sýnir gamanleikinn NÖRD
(Nær öldungis ruglaður drengur) i Gamla
Bfói. Leikritiöereftirbandariska leikarann
og leikritahöfundinn Larry Shue. Leikarar
eru: Randver Þorláksson, SigrúnWaage,
Július Brjánsson, Edda Björgvinsdóttir,
Björgvin Franz Gislason og Þórhallur Sig-
urösson auk Gísla Rúnars Jónssonar sem
einnig leikstýrir. Sýningar eru föstudag
og laugardag kl. 20.30. Sýningarfjöldi er
takmarkaður. Miðasala er i Gamla Blói
frá kl. 16.30, simi 11475.
Leikfélag
Mosfellssveitar
Leikfélag Mosfellssveitar hefur hafið sýn-
ingar á leikritinu Dagbókin hans Dadda
eftir breska höfundinn Sue Townsend.
Verkiö hefur verið staðfært, en það gerði
Guðný Halldórsdóttir. Þýðingu annaðist
Ragnar Þorsteinsson og leikstjórar eru
þær Svanhildur Jóhannesdóttir og Soffia
Jakobsdóttir. Sýningar eru i Hlégarði, fé-
lagsheimili Mosfellinga.
Leikfélag Hafnarfjarðar
Leikfélag Hafnarfjarðar sýnir leikritið
Emil i Kattholti eftir Astrid Undgren laug-
ardag og sunnudag kl. 16 í Bæjarbiioi i
Hafnarfirði. Miðasala eropnuðtveimur
timum fyrir sýningar en hægt er að panta
miða i sima 50184 allan sólarhringinn.
Leikfélag Akureyrar
Leikfélag Akureyrar sýnir leikritið Skjald-
bakan kemst þangaö líka eftirÁma Ibs-
en. Leikstjóri er Viðar Eggertsson, leik-
mynd og búninga gerði Guðrún Svava
Svavarsdóttir, tónlist ereftir Lárus H.
Grimsson og um lýsingu sér Ingvar
Björnsson. Leikarar eru Theodór Júlíus-
son og Þráinn Karisson. Leikrit fjallar um
skáldin Esra Pond og William Carlos
Williams og eru sýningar á föstudag og
laugardag kl. 20.30.
Nemendaleikhúsið
Nemendaleikhúsið frumsýnir á sunnudag
sýninguna Smáborgarakvöld. Þetta eru
einþáttungarnirSmáborgarabrúðkaupið
eftir Bertholt Brecht og Sköllótta söng-
konan eftir E. lonesco. Leikstjóri er Bríet
Héðinsdóttir. Sýningareru á sunnudag,
þriðjudag og fimmtudag kl. 20.30 i Lind-
arbæ. Miðasala eropin allan sólarhring-
inn í síma 21971.
Ferðalög
Upplýsingamiðstöð
Upplýsingamiðstöö ferðamála er með
aðsetur sitt að Ingólfsstræti 5. Þar eru
veittar allar almennar upplýsingar um
ferðaþjónustu á (slandi. Opið er mánu-
daga til föstudaga kl. 10—16, laugardaga
kl. 10—14ogsunnudagakl. 11—14.
Síminner 623045.
Tónlist
Dómkirkjan
Reider Hauge, organleikari frá Kongs-
berg i Noregi heldur orgeltónleika i Dóm-
kirkjunni i Reykjavík sunnudaginn 16.
október kl. 17. Á efnisskrá eru verk eftir
Bach, Walter, Mendelssohn, einnig ensk,
amerísk og norsk orgeltónlist.
Útivera
Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Fristunda-
hópsins Hana nú í Kópavogi verður laug-
ardaginn 15. október. Lagt verður af stað
frá Digranesvegi 12 kl. 10.00. Markmið
göngunnar er samvera, súrefni og hreyf-
ing. Nýlagað molakaffi. Gönguklúbbur
Hana nú er öllum opinn.
Ferðafélag íslands
Ásunnudag býður Feröafélag (slands
upp á tvær gönguferðir. Fyrri ferðin er á
Hengilinn, en hann er hæsta fjall I ná-
grenni Reykjavíkurað Esjunni undanskil-
inni 803 m. Afarvíðsýnt er af Skeggja í •
góðu skyggni, Skeggi er hæsti partur
Hegilsins. Lagt er af stað kl. 10 að
morgni og komiö aftur milli kl. 17 og 18.
Kl. 13 er svo boðið upp á gönguferð í
Innstadal, en hann er einn af dölunum,
iem afmarkast af Húsmúla, skarðmýrar-
fjalli og Henglinum. (Innstadal er heit
laug. Það er nokkuð létt ganga i Innstad-
al en á Hengilinn er gangan lengri og
brattari.
Útivist
Á sunnudag kl. 10.30 veröur boðið upp
á nýja ferð hjá Útivist. Ætlunin er að aka
meöfram strandlengju Reykjanesskag-
ans og fylgja þeirri leið sem gengin var
í „Strandgöngu Útivistar í landnámi Ing-
ólfs". Ekið verður um Óseyrarbrú austur
í Flóa og siöan farið í létta strandgöngu
um hluta Flóans að Þjórsárósum. Brott-
för er frá BSÍ, bensinsölu og hægt er að
taka rútuna á leiðinni, t.d. á Kópavogs-
hálsi og við Sjóminjasafnið í Hafnarfirði.
Kl. 13 á sunnudag verða tvær ferðir sam-
kvæmt dagskrá. 1: Maríuhöfn-Búða-
sandur-kræklingafjara. Léttganga og
kræklingatinsla í Laxárvogi. Minjar um
kaupstaðfrá 14. öld skoöaöar. 2: Esja.
Gengið verðurfrá Mógilsá á Þverfells-
horn og þaðan á Kerhólakamb. Brottför
frá BSi, bensínsölu. Kl. 8 á sunnudags-
morgun er fyrirhugað að fara í helgarferð
í Mörkina. Nánari upplýsingar á skrifstof-
unni.
Viðeyjarferðir
Hafsteinn Sveinsson er með daglegar
ferðir út i Viöey. Fyrsta ferð er farið kl.
13.00 og er fariö á heila timanum frá
Reykjavík og á hálfa timanum frá Viðey.
Mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga
fer siðasta ferð frá Viöey kl. 18.30 en
aðra daga kl. 23.30. Aukaferðireru farn-
ar með hópar sem panta sérstaklega.
Kirkjan í Viöey er opin og veitingar fást
i Viðeyjarnausti. Bátsferöin kostar 300
krónurfyrirfullorðna, 100 krónurfyrir
böm að 14 ára aldri en fritt er fyrir börn
5 ára og yngri.
Hreyfing
Keila
I Keilusalnum i Öskjuhlíð eru 18 brautir
undir keilu, á sama stað er hægt að
spila billjarð og pinu-golf. Einnig er hægt
að spila golf i svokölluðum golfhermi.
Sund
i Reykjavík eru útisundlaugar i Laugar-
dal, við Hofsvallagötu og við Fjölbrauta-
skólann í Breiðholti. Einnig eru útisund-
laugar á Seltjarnarnesi, á Varmá og viö
Borgarholtsbraut i Kópavogi. Innisund-
laugar á höfuöborgarsvæöinu eru við
Barónsstig og við Herjólfsgötu i Hafnar-
firöi. Opnunartima þeirra má sjá i dag-
bókinni.
n.