Morgunblaðið - 14.10.1988, Blaðsíða 12
12 B
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14 OKTÓBER 1988
Franskt múdurf
breskt klúður
Nokkuð forvitnilegir atburðir
hafa nýlega verið að gerast í
bresku og frönsku sjónvarpi sem
er vel þess virði að rekja hór.
í tilraun til að mæta harðnandi
samkeppni réð aðalstöð franska
ríkissjónvarpsins, Antenne 2, til
sín nýjan aðalfréttamann fyrir
skömmu, konu að nafni Christine
Ockrent, sem var hjá einkastöð-
inni TF1 og er þekktasti frétta-
skýrandinn á skjá Frakkanna. En
fáir sáu fyrir þau vandræði er
spunnust af launamálum hennar.
Flún gerði samning uppá um 11
milljónir ísl. króna á ári (kannski
ekkert óheyrilegt miðað við 141
milljón ísl. sem bandarískir aðal-
fréttamenn fá) og það blés þegar
í gamlar glæður launadeilna inn-
an stöðvarinnar auk- þess sem
ráðningin vakti deilur um að
hverju franskt ríkissjónvarp ætti
að stefna.
Starfsmenn Antenne 2 gengu
út og áður en vika var liðin hafði
verkfallið náð til allra fjögurra
sjónvarps- og útvarpsstöðva
ríkisins. Flestir sneru fljótlega
afturtil starfa en sósíalistastjórn-
in hefur sem minnst viljað skipta
sér af málinu. Ástæðan: Ef laun
starfsmanna útvarps- og sjón-
varpsstöðvanna hækkuðu, yrði
þá ekki að hækka laun annarra
opinberra starfsmanna?
„Þetta fólk skilur ekki að
tímarnir hafa breyst," segir Ockr-
ent. „Stefnan er sú að losa um
tak stjórnvalda á sjónvarpinu."
Laun hennar eru aðeins helming-
ur þess sem aðalfréttamaður
einkastöðvarinnar, TF1, fær.
Ockrent samþykkti að lækka
launin sín um tæpar f imm milljón-
ir ísl. kr. Málinu er þar með alls
ekki lokið því starfsmenn hyggj-
ast fara aftur í verkfall um miðjan
þennan mánuð og væntanleg er
ráðstefna, sprottin af deilum
þessum, sem fjalla á um hlutverk
opinberrar sjónvarpsþjónustu í
Frakklandi í framtíðinni.
Og frá Frakklandi hverfum við
til Bretlands. í nýlegum frétta-
Christine Ockrent; ráðningin
vakti miklar deilur.
skýringaþætti Thames-sjón-
varpsstöðvarinnar um dráp bre-
skra sérdeildarhermanna á
þremur IRA-mönnum á Gibraltar,
sem mjög hefur verið í fréttum,
var ýjað að því að stefna stjórn-
valda væri að drepa IRA-hryðju-
verkamenn. Skyldmenni IRA-
þremenninganna sögðu að
hryðjuverkamönnunum hafi aldr-
ei verið veitt tækifæri til að gef-
ast friðsamlega upp en í þættin-
um var það sjónarmið stutt og
vitni sagðist svo frá að IRA-
mennirnir hefðu reynt að gefast
upp. í áhrifamesta kafla þáttarins
lýsir bankastarfsmaður að nafni
Kenneth Asquez þvi þegar sér-
deildarhermaður steig á einn
hryöjuverkamanninn og dritaði á
hann úr byssu sinni.
Eina vandamálið var að As-
quez laug. Hann sagði seinna
fyrir rannsóknarrétti sem fjallaði
um Gíbraltarmálið, að allt sem
hann hefði sagt í þættinum vær-
i„uppspuni frá rótum". Þetta
vakti mikla reiði í Bretlandi og
Thames-sjónvarpsstöðin setti
þegar í gang rannsókn á eigin
fréttaöflunaraðferðum. Asquez
sagðist hafa skáldað frásögn
sína vegna þrýstings frá ráðgjafa
Thames-stöðvarinnar. „Ég skrif-
aði vitnisburð minn niður til að
losna við hann," sagði Asquez.
-ai.
Bíóin í borginni
BÍÓBORGIN
Óbærilegur léttleiki tilverunnar ★
★ ★ ★
Bandaríski leikstjórinn Philip Kauf-
man hefur fest ástarsögu Tómasar
og Teresu úr samnefndri bók Milan
Kunderas á filmu á sérstaklega
fallegan, erótískan og Ijúfsáran
hátt með ólgandi vorið í Prag í
bakgrunni. Leikurinn er með ein-
dæmum góður og þegar best læt-
ur er Léttleikinn óvenju sterkt,
óvenju áhrifamikið kvikmyndaverk.
-ai.
D.O.A. ★ ★ ★
Prófessor Cornell er byrlað ban-
vænt eitur og hefur 24 stundir til
að finna morðingja sinn í þessari
ágætu endurgerð Headroom-leik-
stjóranna Mortons og Jankels með
Dennis Quaid í hlutverki hins
dauðadæmda. Hraðar klippingar,
skakkir myndrammar, litir og
svarthvítt - næstum hver taka og
sjónarhorn er merkt film noir.
Glettileg, skemmtileg og spenn-
andi. -ai.
Foxtrot ★ ★ ★
Foxtrot brýtur ekki blað í sögu
íslenskrar kvikmyndagerðar, held-
ur hefur það tekist skínandi vel
sem til stóð; að gera nútímalega
spennumynd með lævi blöndnu
andrúmslofti. Það er óhætt að taka
ofan fyrir öllum hennar aðstand-
endum. -sv.
Örvænting ★ ★ ★
Beinskeytt leikstjórn Polanskis og
leikandi létt sögumennska hans
gerir myndina að einstakri, slípaðri
afþreyingu við allra hæfi. Hér upp-
lifum við Bíó með stórum staf í
þess orðs bestu merkingu. -sv.
STJÖRNUBÍÓ
Vort föðurland ★ ★
Michael Cacoyannis fjallar hér um
ástandið í Chile eftir valdaránið
1973 en myndin líður mjög fyrir
slappan leik og þreytandi melódr-
ama. -ai. hvers eina von er Demi
Moore sem sýnir að hún hefur
fleira til að bera en fallegt andlit.
Langdregin, dularfull og fag-
mannleg. -sv.
Von og vegsemd ★ ★ ★1/2
Geta stríð veriö skemmtileg?
Breska leikstjóranum John Boor-
man þótti seinni heimsstyrjöldin
einhver skemmtilegasti tími lífsins
og hefur endurskapað þá upplifun
sem striðið var fyrir hann sem
krakka í Bretlandi í þessari frá-
bæru, einstaklega skemmtilegu
gamanmynd studdur úrvalsleikur-
um og dásamlegum minningum.
-ai.
BÍÓHÖLLIN
Nico ★ ★
Það er fátt sem skilur Nico frá
öðrum formúluhasarmyndum af-
þreyingariðnaðarins. Seagal er
hinn vörpulegasti með hárið sleikt
aftur á hnakka og sýnir einkar
góða takta í bardagaíþróttum.
CIA-Silva er fæddur í óþokkahlut-
verkin. -ai.
Ökuskírteinið ★ ★
Les stelur stífbónuðum Kadda
pabba síns og líður af stað inní
hið greiðfæra land kvíða og angist-
ar er geymir alla þá sem ein-
hverntíma hafa óttast það að
skemma bíl pabba síns. Sæmileg-
asta afþreying. -ai.
Að duga eða drepast ★ ★ ★
Edward James Olmos fer á kostum
í hlutverki stærðfræðikennara sem
gefur nemendum sínum von og
tækifæri til að rífa sig uppúr fá-
tækrahverfinu. Fyndin, skemmti-
leg og spennandi. -ai.
Góðan daginn, Víetnam
★ ★ ★ ★
Meira en skemmtileg — líka mann-
leg og skynsamleg, drifin áfram
af ofurkrafti Robins Williams og
Barry Levinsons og matarmiklu
handriti. Besta mynd ársins til
þessa. -sv.
Beetlejuice ★ ★ ★
Þessi draugagamanmynd býður
uppá gersamlega ómótstæðilegan
hræring af vinalegum draugum og
vondum, heilu partýi af sérstökum
tæknibrellum og Michael Keaton
óborganlegum í hlutverki Bjöllu-
djússins. -ai.
Foxtrot. Sjá Bíóborgin.
REGNBOGINN
Amerískur Ninja 2 1/2
llla gerð leiðindi. -ai.
Fyrirheitna landið ★ ★ ★
Kiefer Sutherland og Meg Ryan
vinna svolitla leiksigra í þessari
ágætu og yfirlætislausu en dapur-
legu lýsingu á fólki sem alltaf tapar
i lífinu. Hún á skilið að fá svolitla
athygli þessi. -ai.
Örlög og ástríður ★ ★ 1/2
Ástin er að sjálfsögðu aðalefni
þessarar frönsku unglingamyndar,
sterk og ólgandi og brjáluð. Mynd-
in kynnir okkur nýja kynslóð fran-
skra leikara og hún er mjög efni-
leg. -ai. Leiðsögumaðurinn
★ ★ ★
Leiðsögumaðurinn er á margan
hátt velheppnuð mynd, hröð og
spennandi, segir sterka sögu sem
getur höfðað til allra og gerist í
hrjóstrugu og snjóhvítu umhverfi
Sama. Helgi Skúlason er frábær í
óþokkahlutverkinu. -ai.
Krókódíla-Dundee II ★ ★ ★
Dundee er ein jákvæðasta og geð-
þekkasta hetja hvíta tjaldsins um
árabil og nær til ailra aldurshópa.
Heilbrigður, hrekklaus og um-
gengst glæpalýð stórborganna líkt
og eiturkvikindi merkurinnar og
afgreiðir hann af eðlishvöt náttúru-
barnsins. Enda alinn upp af dul-
úðugum frumbyggjum. -sv.
Klíkurnar ★ ★ ★
lllúðleg, athyglisverð og hreinskilin
mynd um baráttu löggunnar við
ofbeldisfullar götuklíkurnar í Los
Angeles. Hopper hefur engu
gleymt og Sean Penn og Robert
Duvall eru góðir saman. -sv.
HÁSKÓLABÍÓ
Hún á von á barni ★ ★ ★
Kevin Bacon fer á kostum í hlut-
verki stráks sem þráast við að full-
orðnast og taka á sig ábyrgð og
skyldur í þessari bráðgóðu John
Hughes-mynd. Hún er ein af bestu
myndum fjöldaframleiðandans
Hughes sem skapar glettilega
góða frásögn á mörkum draums
og veruleika, ofskynjana og ótta-
legra hugsýna Bacons, studdur
góðum leikarahóp. -ai.
LAUGARÁSBÍÓ
Uppgjörið ★ ★ 1/2
Það er góð keyrsla í þessari hasar-
mynd um spilltar löggur og dóp-
sala og Weller og Elliott eru góðir
í félagahlutverkunum en lokin eru
fullótrúleg. -ai. Þjálfun í Biloxi
★ ★ ★
Neil Simon heldur áfram að rekja
skemmtilegar minningar sinar á
hvíta tjaldinu, nú með ómetanlegri
aðstoð Matthews Brodericks og
Mike Nichols. Góður texti, góð
leikstjórn, góður leikur. -ai.
MYIMPBÓIMD Á MARKAÐNUM
Sæbjörn Valdimarsson
DIRTY DANCING ★ ★ ★
Ég spái að þessi óvænti afþrey-
ingarsmellur síðasta árs eigi eftir
að tröllríða myndbandstækjum
landsmanna næstu mánuðina.
Eldhress tónlist og dansinn stiginn
• af nautn. Swayze fremstur í flokki
ágætra leikara.
NO MERCY ★ ★ ★
Engin náð í New Orleans þar
sem þessi spennandi og grófi þrill-
er gerist að mestu leiti. Gere
kemst þokkalega frá hlutverki
Chicago-löggu sem heldur til borg-
arinnar í hefndarhug og lendir í ill-
um útistöðum við litríkan undir-
heimalýð, Akadíumenn, kuklara.
En Jeroen Krabbe stelur senunni
sem mikilúðlegur höfuöpaur morð-
varga hinnar seiðandi Suöurríkja-
borgar.
ROXANNE ★★★
Cyrano de Bergerac á léttu nót-
unum, eða einsog Steve Martin
getur einn afgreitt hann. Vel skrif-
að, hnyttið handrit, Martin fer á
kostum, eins Rossovich í hlutverki
þöngulhaussins og Hannah er hin
æsilegasta. Ánægjuleg afþreying.
BEVERLY HILLS COP II
★ ★
Nánast endurgerð fyrri myndar-
innar, aðeins örlitlar breytingar á
leikurum í aukahlutverkum, tæpast
mælanlegar á handriti né töku-
stöðum. En áhorfendur eru greini-
lega ekki búnir að fá nóg af Alex
Foley. Fyrir aðdáendur Eddie
Murphy.
RAISING ARIZONA ★★★
Cohen-bræður (Blood Simple)
fara óhikað ótroðnar leiðir og út-
koman er frumleg, bráðfyndin
uppákoma um lánleysingja í þjóð-
félaginu sem taka það til bragðs
að ræna kornabarni þegar önnur
úrræði bresta! Hunter (Broadcast
News) og Cage eru óborganleg í
aðalhlutverkum. Ósvikin skemmt-
un.
AMAZING STORIES
III ★★V2
Þessi þriðja spóla af sjónvarps-
þáttunum gefur þeim fyrri ekkert
eftir. Óvenju haldgott skemmtiefni
um atburði á mörkum draums og
veruleika.
iLlirt;! stai •i)öilr,}i.: t
MALONE ★★
Þokkaleg afþreying, byggð á
sígildum söguþræði. Reynolds
nokkuð líflegur en góður hópur
leikara í aukahlutverkum mun
betri. Nokkuð hröð atburðarás og
vel unnin átakaatriði.
ISHTAR ★ ★1/2
Ein kunnari mistök síðari ára í
sögu kvikmyndanna. Heildarmynd-
in gengur alls ekki upp, en með
jákvæðu hugarfari má hafa gaman
af mörgum, einstökum köflum
myndarinnar; New Vork-þættin-
um, Hoffman í túlkshlutverkinu og
Grodin og blinda kameldýrið eru
bráðfyndin.
SECRET OF MY
SUCCESS ★★1/2
Ungur sveitastrákur á uppleið —
með öllum ráðum — í stórborg-
inni. Þunnur þrettándi en Michael
J. Fox er einstaklega aðlaðandi
leikari og bjargar myndinni fyrir
horn.
ONE FLEW OVER THE
CUCKOO’S NEST ★ ★ ★ ★
Hef verið oftar spurður um þetta
sígilda meistaraverk en nokkuð
annað myndband. Hélt það vera
horfið af markaðnum, en það er
a.m.k. eitt eintak til hjá Mynd-
bandaleigu kvikmyndahúsanna,
Skipholti. En það á ekki langt eftir!
BURGLAR ★★
Goldberg og Goldwaith ofleika
af kappi í heldur klónni gaman-
mynd um ólánlega innbrotsþjófa.
BLIND DATE ★ ★ ★
Edwards stýrir þeim Willis og
Basinger af gamalkunnu öryggi
framhjá blindskerjum farsans. Will-
is virðist hafa alla burði til þess
að slá í gegn á tjaldinu sem á skján-
um.
HAUNTED HONEY-
MOON ★★
Þreytt og klisjukennd hryllings-
skopmynd sem á þó sin augnablik.
Gene Wilder ræður tæpast við að
vera bæði bíll og bílstjóri, en hann
leikstýrir, skrifar handrit og leikur
aðalhlutverkið án umtalsverðra til-
þrifa.
THE BIG EASY ★★★
Saksóknarinn Ellen Barkin er
send niður til New Orleans til að
kanna misferli innan lögreglunnar.
Fær Dennis Quaid, sem ekki telst
hvítþveginn engill, sér til aöstoöar.
Þau fara bæði á kostum, borgin
myndast vel og spennan er mögn-
uð frá upphafi til enda, þrátt fyrir
losaralegan söguþráð.
SIKILEYINGURINN +'h
Enn ein mistök hjá Cimino, en
þessi á víst að skrifa að miklu leiti
á taugaveiklaða og óþolinmóða
framleiðendur. Hvað sem því líður
er myndin hvorki fugl né fiskur,
hörmulega klippt, Lambert leikur
hroðalega og leikhópurinn álika
Sikileyskur-og breska þingið. Efn-
inu klúðrað en eitt og eitt atriði
stendur uppúr og kvikmyndatakan
er góð.
BIG SHOTS ★ ★ ★
Þessi óvenjulega mynd um tvo
drengsnáða sem fara í hlutverk
fullorðinna hörkutóla í slömm-
hverfum Chicago, kemur virkilega
á óvart. „Óttaleg vitleysa", segja
sjálfsagt margir, en meginmálið
er að hún er bráðfyndin og á það
ekki síst að þakka þeldökka strákn-
um sem er óborganlegur og
glúrnu, fáránlegu handriti.
OTTO 2 ★★1/2
Ottó, þetta stórundarlega,
Frísneska fyrirbrigði á vænan hóp
aðdáenda hérlendis og hlýtur það
að segja nokkuð um hæfileika
þessa farsaleikara.Mynd sem
kemur fýlupúkum í enn verra skap,
(ef það er hægt). Aörir kveikja á
móttöku fyrir (oft) hressilegri aula-
fyndni.
i.iii [
l