Morgunblaðið - 01.11.1988, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988
Gosflöskur
að kveðja?
VERSLANIR Hagkaups hafa
nú hætt að taka á móti gos-
flöskum úr gleri og að greiða
fyrir þær skilagjald.
„í flestum tilfellum eru fram-
leiðendur hættir að selja gos í
gleijum sjálfir," sagði Karl f sam-
tali við Morgunblaðið. Glerin eru
að syngja sitt síðasta og verða
væntanlega lítið á markaðnum
eftir áramótin. Við erum bara
aðeins fyrr í þessu en aðrar búð-
ir. Fólk er líka hætt að safna
þessu upp sjálft, það er helst að
það komi með gömul gler eftir
tiltekt í bílskúmum."
„Kók heldur áfram að vera í
gleri eins og verið hefur," sagði
Lýður Friðrjónsson hjá Vífilfelli.
„Kók selst mjög vel í glerflöskum
og nú á harðnandi tímum á ég
von á að glerið muni öðlast end-
umýjaðar vinsældir vegna skila-
gjaldsins. Þeir sem þurfa að hugsa
um peningana kaupa frekar litla
kókflösku en dós, það er miklu
Viðskiptavinir ATH!
Frá og með 17. október n.k.
hætiir Hagkaup að taka á
móti tómuni glerfum.
Vci'sUinArstJtórt
hagkvæmara og sumum finnst
það hreinlega bragðbetra."
Ragnar Birgisson, forstjóri
Sanitas, sagði að fyrirtækið væri
nú þegar nánast alveg hætt að
framleiða gosdrykki í glerflösk-
um. „Við höfum tekið þá ákvörðun
að klára birgðir sem við eigum
af gleijum, miðum og slíku, en
við munum alveg hætta að vera
með gosdrykki í glerflöskum
nema eftirspum eftir þeim vakni
að nýju. Bjórinn verður hins vegar
í glerflöskum," sagði Ragnar.
„Hagkvæmustu gosdrykkjakaup-
in eru í stóru plastfiöskunum; ef
menn kaupa tvo lítra af gosi í
plastflösku fá menn hálfan lítra
ókeypis."
Dreifbýlisstyrkur framhalds-
skólanema hækkar um 100%
Nú fá 2.100 nemendur 50 m.kr. í styrki
Dreifbýlisstyrkur til framhaldsskólanema mun hækka um 100%
með nýju Qárlagafrumvarpi, að því er Svavar Gestsson, menntamála-
ráðherra, skýrði frá á fúndi á Akureyri um helgina. Alls munu um
2.100 nemendur fá dreifbýlisstyrk, en heildarupphæð þessara styrkja
hefúr verið 25 milljónir króna, sem hækkar þá upp í um 50 milljón-
ir króna. Dreifbýlisstyrkur mun ekki hafa hækkað síðan árið 1982.
Samkvæmt upplýsingum Her-
manns Jóhannssonar í mennta-
málaráðuneytinu hefur styrkþegum
fækkað nokkuð eftir því sem fjöl-
brautaskólum úti á landi hefur
§ölgað, en styrkþegar voru 2.800
í upphafí. Styrktegundir eru þijár:
ferðastyrkur, dvalarstyrkur vegna
húsnæðis og fæðisstyrkur. Nem-
endur fá þó misháan styrk eftir
aðstæðum og er helsta viðmiðið
fjarlægð frá búsetustað til næsta
staðar sem hægt er að stunda nám-
ið. Flestir fá styrk til náms í al-
mennu bóknámi, en nemar í sérskól-
um, svo sem Fósturskólanum og
Myndlista- og handíðaskólanum
hafa aðgang að Lánasjóði íslenskra
VEÐUR
/ DAG kl 12.00:
Heimild: Veðurstofa íslands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
námsmanna.
„Menntamálaráðuneytið hefur
lagt fram tillögur á hveiju ári um
verulegar hækkanir í sambandi við
fjárlagagerð, þær hafa bara aldrei
náð fram að ganga, hvorki í gegn-
um fjármálaráðuneytið né í gegnum
fjárveitinganefnd," sagði Birgir
Isleifur Gunnarsson, fyrrverandi
menntamálaráðherra, er hann var
spurður hvers vegna styrkurinn
hefði ekki hækkað í svo langan
tíma. „Ég gerði til dæmis tillögu
um verulega hækkun í sambandi
við fjárlög fyrir ’88 og ég man að
Sverrir Hermannsson gerði sams
konar tillögu í fyrra sem ég reyndi
að fylgja eftir, en náði ekki fram
að ganga. Hins vegar var skipuð
sérstök nefnd til að endurskoða lög-
in um jöfnun á námskostnaði og
hún skilaði nýju frumvarpi um
hvemig að þessu skyldi staðið
stuttu áður en ég fór úr ráðuneyt-
inu. Svavar hefur það í höndunum
núna til að meta hvað hann vill
gera við það.“
Ekki náðist í Svavar Gestsson í
gær, en samkvæmt upplýsingum
sem Morgunblaðið fékk í mennta-
málaráðuneytinu er nú beðið um-
sagnar skólamanna og fleiri aðila
um frumvarpsdrögin.
Sjá ennfremur á Akureyrar-
síðu, bls. 34.
Arfgeng heilablæðing:
The Lancet birt-
ir grein eftir ís-
ienska vísindamenn
BRESKA læknatímaritið The Lancet hefúr birt grein um rann-
sóknir íslenskra og sænskra vísindamanna á arfgengri heilablæð-
ingu. Rannsóknirnar hafa borið þann árangur að nú er unnt að
greina sjúkdóminn á 7.-8. viku meðgöngu.
Að rannsóknunum stóðu
Ástríður Pálsdóttir erfðafræðing-
ur, Leifur Þorsteinsson ónæmis-
fræðingur, Alfreð Ámason erfðæ-
fræðingur, öll við erfðarann-
sóknadeild Blóðbankans, og Ólaf-
ur Jensson, yfirlæknir Blóðbank-
ans, í samvinnu við starfsmenn
Almenna sjúkrahússins í Malmö,
þá ísleif Ólafsson lífefnafræðing,
Magnus Abrahamson lífefnafræð-
ing og Anders Grabb dósent við
háskólann í Lundi.
Tímaritið The Lacet er annað
tveggja virtustu tímarita hefths á
þessu sviði og fást fæstar þeirra
greina sem þangað era sendar
birtar.
Að sögn Ólafs Jenssonar
var grein þeirra sjömenninganna
birt án athugasemda. Ólafur sagði
það afrakstur rannsóknanna að
arfgeng heilablæðing væri nú
komin í hóp örfárra sjúkdóma sem
unnt sé að greina snemma á fóst-
urstigi. Sá árangur gefí góðar
vonir um árangur í meðferð sjúk-
dómsins.
VEÐURHORFUR í DAG, 1.NÓVEMBER
YFIRLIT í GÆR: Yfir Austur-Grænlandi er 1027 mb hæð, en um
500 km austur af Langanesi er 1003 mb lægð á leiö austsuö-
austur. Heldur minnkandi 1030 mb hæð er yfir Bretlandseyjum.
Veður fer kólnandi í bili.
SPÁ: Suð-austan gola eða hægviöri. Skýjað, en að mestu úrkomu-
laust sunnan- og vestanlands, en bjartviðri í öðrum landshlutum.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Suðlæg átt og fremur hlýtt í veðri. Rign-
ing um sunnan- og vestanvert landiö, en þurrt á NorÁ-austurlandi.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Suðvestan-átt og nokkuð kólnandi veð-
ur. Skúrir eða stydduél á Suður- og Vesturlandi en þurrt og víða
léttskýjað á Norður- og Austurlandi.
Ragnarsbakarí hf:
Þrotabúið auglýst til sölu
Keflavík.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hlti veAur
Akureyri 1 skýjaö
Reykjavík 6 skúr
Bergen 5 alskýjað
Helsinki 0 hálfskýjað
Kaupmannah. 7 lóttskýjað
Narssarssuaq 2 rigning
Nuuk 2 slydda
Osló 7 skýjað
Stokkhólmur -t-2 skýjað
Þórshöfn 7 rigning
Algarve 22 hálfskýjað
Amsterdam 10 rigning
Barcolona 19 léttskýjað
Chicago +2 heiðskirt
Feneyjar 11 láttskýjað
Frankfurt 7 slcýjað
Gtasgow 4 reykur
Hamborg 9 léttskýjað
las Palmas vantar
London 9 léttskýjað
Los Angeles 16 helðskírt
Luxemborg 6 láttskýjað
Madnd 14 þoka ígrennd
Malaga 24 skýjað
Mallorca 25 léttskýjað
Montreal ■s4 léttskýjað
NewYork 2 léttskýjað
París 9 léttskýjað
Róm 13 rignlng
San Diego 15 heiðskfrt
Winnipeg +1 alskýjað
KAUPSAMNINGI þeim sem
Pétur Björasson og Ármann
Reynisson gerðu fyrir hönd
Ávöxtunar sf. um kaup á eign-
um Ragnarsbakarís hf. þann
5. desember sl. hefúr verið rift
og heftur Ingi H. Sigurðsson
hdl. bústjóri auglýst til sölu
tæki f verksmiðju ásamt inn-
réttingum í þremur sölubúðum
sem reknar voru í tengslum við
bakaríið.
Ingi H. Sigurðsson hdl. sagði í
samtali við Morgunblaðið að
áhersla yrði lögð á að selja baka-
ríið sem eina heild þannig að það
gæti haldið áfram starfseminni og
hann hefði þegar fengið nokkrar
fyrirspurnir.
Mál þetta er orðið allflókið, því
Ragnarsbakarí hf. var í leiguhús-
næði sem þeir Pétur og Ármann
keyptu nokkru eftir að þeir höfðu
eignast þrotabúið. Björgvin
Víglundsson keypti síðan bakaríið
af þeim Ávöxtunarmönnum ásamt
húsnæðinu, en nú hefur þeim
samningi verið rift. Ingi sagði að
reynt yrði að selja þrotabúið þann-
ig að tækin nýttust í núverandi
húsnæði.
Bakaríinu var lokað fyrirvara-
laust 17. oktöber og þá misstu um
50 manns atvinnuna.
——- BB
Pólýfónkórinn:
Mikil aðsókn að
hljómleikum
SÖNGVARAR og hfjóðfieraleik-
arar bæði frá Evrópu og
Ameríku koma til landsins nú í
vikunni og bætast í hóp flytjenda
á hátiðahljómleikum Pólýfón-
kórsins i Háskólabfói 10. nóvem-
ber n.k. Nærri uppselt mun vera
á tónleikana og hefúr verið
ákveðið að endurtaka þá laugar-
daginn 12. nóvember kl. 14.30.
Samtals verða flytjendur á hljóm-
leikunum um 200 talsins og er Sin-
fóníuhljómsveit íslands styrkt og
aukin um nærri 20 manns umfram
venjulegan fjölda.
Að sögn forráðamanna kórsins
verða hljómleikarnir ekki fleiri og
óvíst að Pólýfónkórinn láti framar
til sfn heyra.- í afmælisriti Pólýfón-
kórsins, „í ljósi líðandi stundar“,
kemur fram að kórinn hefur alls
flutt um 200 tónverk eftir rúmlega
70 tónskáld, á um 400 tónleikum
hér á landi og erlendis.