Morgunblaðið - 01.11.1988, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988
Enn er hitastillta bað-
blöndunartækið frá
Danfoss nýjung fyrir
mörgum. Hinir sem til
þekkja njóta gæða
þeirra og undrast
lága verðið.
= HÉÐINN =
VÉLAVERSUJN, SÍMI 624260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER
Sovéskir
dagar
Árlegir Sovéskir dagar
MÍR, að þessusinni
sérstakiega helgaðir
Sovétlýðveldinu Kirgizíu,
verða settir í Félagsheimili
Kópavogs miðvikudaginn
2. nóvember kl. 20.30.
Fluttverða ávörp
og listafólkfrá Kirgizíu
skemmtir með söng, dansi
og hljóðfæraleik.
Aðgangurókeypis
og öllum heimill.
MÍR
PAILA-
LYFTIIR
HESTAMENN
39. þings Landssambands
hestamanna veröur
haldið í boöi Hestamanna-
félagsins Fáks
á Hótel Sögu, Súlnasal
laugardaginn 5. nóv. nk.
og hefst kl. 19:00
með cocktail.
Veislustjóri
Ólafur Örn Pétursson
Kvöldverður
Flosi Ólafsson flytur ræðu
Gamanmál flutt af
hestamönnum
Þuriður, Ellý og
Ragnar Bjarnason
Hljómsveit hússins
leikur fyrir dansi
til kl. 03:00.
Miðar veröa seldir
á skrifstofu Fáks,
í versluninni Ástund og
Hestamanninum.
Einnig á Hótel Sögu
n.k. þriðjudag og
miðvikudag kl. 17—19.
Borð tekin frá á sama tíma.
Hestamenn
notið þetta tækifæri
til að hitta vini og
kunningja og
skemmta ykkur saman í
glæsilegum húsakynnum
Hótei Sögu.
Hestamannafélagið Fákur
TJöfðar til
XI fólks í öllum
starfsgremum!
Jtiirgw Ú [nhib
3 Meiraenþúgeturímyndadþér! co
Birgir heimsmethafi ásamt rifflinum góða sem er hans eigin smíði og hönmm. A myndinni má
einnig sjá bikar og heiðursskjal sem fylgdi sigurlaununum. Birgir heldur á skífunni og á henni má
sjá götin ef myndin prentast vel.
Byssusmiður í Þorlákshöfii setur heimsmet:
Áhugi á byssum
vaknaði snemma
- segir Birgir Sæmundsson
Þorlákshöfn.
Einn örfárra byssusmiða á íslandi, Birgir Sæmundsson frá Þor-
lákshöfn, vann það einstæða afrek að bæta 20 ára gamalt heimsmet
í nákvæmnisskotfimi á alþjóðlegu stórmóti sem haldið var í Banda-
ríkjunum i ágúst í sumar. Þar sem byssusmíði og nákvæmnisskot-
fimi er lítt þekkt hér á landi fannst Morgunblaðinu ástæða til að
heimsækja Birgi og fræðast nánar um þessa sérstæðu iðju hans.
Birgir sagði að áhugi hans á
byssum hefði vaknað mjög
snemma og rifflamir hefðu unnið
hug hans allan. „Það var á árunum
1974 og 1975 að ég byijaði fyrir
alvöru að skjóta þá kom strax
áhuginn fyrir nákvæmninni.
I fyrstu notaði ég venjulega
fjöldaframleidda riffla eins og
Sako og Remington. Fljótlega bytj-
aði ég að vinna að því að auka
nákvæmnina eins og hægt var.
Mikið var hægt að laga þessa riffla
frá upprunalegri nákvæmni en að
því kom að lengra varð ekki kom-
ist með þessi tæki því varð annað
og meira að koma til svo sem betri
hlaup og lásar. Það var svo 1977
að ég keypti nokkra sérsmíðaða
keppnisriffla frá Bandaríkjunum
sem fljótlega skiluðu betri árangri.
Ýmislegt var hægt að betrum-
bæta í þessum rifflum og end-
ursmíðaði ég þá alla til að ná sem
bestum árangri.
A þessum árum var ég við nám
í Vélskóla íslands og hjálpaði nám-
ið mjög mikið við að stunda þetta
hugðarefni mitt. Þó námið sæti oft
á hakanum fyrir áhugamálinu
tókst mér samt að ljúka IV. stigi
Vélskólans.
Pyrsta keppnin erlendis
Á þessum árum æfði ég mest á
æfingasvæði Skotfélags
Reylqavíkur í Leirdal. Aðstaða til
nákvæmnisskotæfinga var engin í
byijun og fáir sem höfðu áhuga
þannig að ég varð sjálfur að byggja
upp alit frá grunni markskífur,
sérstök borð og stóla í nágrenni
Þorlákshafnar.
Það var árið 1978 að ég fór
fyrst á mót erlendis, það var IBS
Championship í Pensilvaníu,
Bandaríkjunum. I þessari keppni
náði ég minnsta fimm skota klas-
anum í allri keppninni, sá klasi
mældist 0,124“ (3.15 mm). Keppn-
in var í Light Varmint flokki, en
þar er skotið af 100 yarda færi
fimm skotum. Mælingin fer þannig
fram að mælt er mesta bil milli
miðju þeirra skota sem eru fjærst
hvort öðru.
Klasi er götin sem koma á
skífuna eftir skotin fímm sem skot-
ið er í röð á sjö mínútum.
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Hér stendur Birgir við renni-
bekkinn sem hann er búinn að
eyða ómældum tíma við og er
ómissandi við byssusmíðina.
Byssusmíðanámið
í þessari fyrstu keppnisferð
minni byijaði ég hið eiginlega
byssusmíðanám. Eg lærði hjá Ró-
bert W. Hart & son Inc. sem er
einn af virtustu byssusmiðum
Bandaríkjanna til keppni og náms.
Árið 1981 keppti ég aftur á IBS
Champions-mótinu sem þá var
haldið í New York-fylki. Þá keppti
ég í Heavy Varmin-flokki en þar
er skotið af 200 yarda færi fimm
skotum á sjö mínútum. Vel gekk
til að byija með, fyrsta sætið blasti
við eftir §órar umferðir af fimm
en í síðustu umferðinni urðu mér
á mistök sem urðu til þess að 18.
sætið varð raunin af 170 keppend-
um.
Það var svo í keppnisferð minni
í sumar að ég lauk námi mínu í
byssusmíði hjá Róbert W. Hart &
son Inc. eftir nær samfellt tíu eða
tólf ára nám. Byssusmíðanámi lýk-
ur að vísu aldrei því þessi grein er
í stöðugri framþróun og þeir sem
gera kröfu um mestu gæði og
sætta sig aðeins við það besta, eru
stöðugt að bæta við sig.
Heimsmetið slegið
Þegar keppni hófst í Intema-
tional Bench Rest Championship
þann 22. ágúst síðastliðinn voru
saman komnar allar bestur skyttur
og byssusmiðir (þeir keppa líka)
heimsins. Keppnin skiptist í flokka
sem kallast: Heavy Bench, Light
Varmint, Heavy Varmint og Sport-
er.
Keppnin gengur út á það að ná
sem mestri nákvæmni út úr riffli
og keppanda. Riffilinn verður að
smíða með mestu nákvæmni og
með bestu tækjum sem til eru
hveiju sinni. Skotfæri og hleðslu-
tæki eru smíðuð með sömu ná-
kvæmni með tiliiti til riffilsins.
Allir keppendur verða að hlaða
skothylki sín á staðnum milli riðla.
Til að keppandi fái fullt traust
á riffli sínum og vissu um bestu
nákvæmni er að mörgu að hyggja
sem of langt mál væri að fara í hér.
Ytri aðstæður sem keppandinn
verður að glíma við eru síbreytilegt
veðurfar, vindur og regn, tíbrá og
mismunandi birta,“ sagði Birgir.
í þessari keppni náði Birgir að
vinna það afrek að bæta 20 ára
gamalt heimsmet í Heavy Bench-
fiokki. Gamla metið var 0,298
tommur en nýja metið er 0,275
tommur. Þessar tölur eru fundnar
með því að mæla mestu íjarlægð
milli miðju þeirra tveggja skota
sem eru fjærst hvort öðru, í 10
skota hrinu sem skotið er af 200
yarda flarlægð á 12 mín.
Birgir sagði að heimsmetið væri
mikill sigur fyrir sig. Þetta sann-
aði sér að öll vinnan sem hann
væri búinn að leggja á sig væri
einhvers virði, því öll smíði og
hönnun á skotfærum og riffli væri
hans eigin verk.
Kostnaður
„Keppnisferðalög af þessu tagi
eru að sjálfsögðu mjög kostnaðar-
söm og þann kostnað hef ég að
mestu greitt sjálfur. Þess ber þó
að geta að Skotsamband íslands
og Skotfélag Reykjavíkur veittu
mér ferðastyrk og kann ég þeim
bestu þakkir fyrir, einnig langar
mig til að þakka Landsbanka ís-
lands í Þorlákshöfn veitta fyrir-
greiðslu," sagði hann.
Birgir segist alls ekki vera að
leggja árar í bát, áfram skal hald-
ið á mót erléndis og að ári er önn-
ur eins keppni og þar er jú titill
að veija.
„Byssusmíðin sjálf ásamt við-
gerðum hafa ekki fengið þann tíma
sem skildi undanfarið en nú er
hugmyndin að bæta úr því og von-
andi á allt þetta nám eftir að gefa
eitthvað í aðra hönd. Til hvers
væri allt þetta nám ef ekki væri
hægt að nýta sér það,“ sagði Birg-
ir að lokum.
- J.H.S.