Morgunblaðið - 01.11.1988, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988
19
Brunavörnum víða ábótavant:
Trassaskapur og
óforsjálni viðgengst
víða á vinnustöðum
Aðeins tímaspursmál hvenær næsti
stórbruni verður, segir Ingi R. Helga-
son, forstjóri Brunabótafélagsins
BRUNATJÓN námu 25% meira en iðgjöld á nýliðnu tryggingaarári
hjá Brunabótaféiagi íslands, en því lauk 14. október síðastliðinn.
Kom þetta fram í erindi sem Ingi R. Helgason, forstjóri BÍ, flutti á
vetrarfundi Sambands íslenskra rafveitna á fostudaginn. Sagði Ingi
að aðeins væri tímaspursmál hvenær næsti stórbruni verður, því
ástand varðandi brunavarnir væri víða mjög slæmt. Á mörgum vinnu-
stöðum viðgengist mikill trassaskapur og óforsjálni, bæði forráða-
manna og starfsfólks. Forráðamenn fyrirtækja sniðgengju lög, og
virtu að vettugi fyrirmæli um lagfæringar og kæmust upp með það.
Ingi R. Helgason sagði að meðal
ástæða fyrir því að illa gengi að
láta forráðamenn í atvinnurekstri
fylgja réttum varúðarreglum væri,
að kostnaður við breytingar, lag-
færingar og viðhald, sem gera
þyrfti, væri látinn sitja á hakanum.
Jafnvel hið opinbera véki sér undan
þessum kostnaði varðandi sínar
eignir, og ætti það jafnvel við um
sannkallaðar dauðagildrur. Annar
þáttur, sem oft bættist ofan á þenn-
an, væri að í sumum tilfellum væri
að ræða helsta atvinnufyrirtæki
byggðarlags, sem gera þyrfti end-
Leiðrétting:
Barnabók
eftir ÓlafM.
Jóhannesson
I frétt af útgáfubókum Æskunn-
ar í ár er bók Ólafs M. Jóhannesson-
ar „Óvænt ævintýri" sögð unglinga-
bók. Þetta er ekki rétt bókin er
ætluð börnum á aldrinum þriggja
til ellefu ára.
urbætur á. Lokun á því hefði í för
með sér minnkandi vinnutekjur og
hagsmunaárekstra við fjölda aðila
og yfirvöld.
Varðandi greiðslur brunabóta við
þær aðstæður, þar sem "húseigandi
væri sannur að því að hafa bæði
sniðgengið lagafyrirmæli og hunds-
að kröfur eldvamareftirlits og raf-
magnseftirlits, og sýnt væri að elds-
voði hefði ekki orðið ef eftir settum
fyrirmælum hefði verið farið, sagði
Ingi að ekki væri hægt að neita
bótum á forsendum trassaskapar.
Ástæðan fyrir því væri sú, að þar
til bærum yfirvöldum og eftirlits-
mönnum bæri að knýja á um lag-
færingar með lögmætum hætti áður
en tjón yrði.
I erindi Inga R. Helgasonar kom
fram að tjónabætur vátryggingafé-
laganna vegna brunatjóna á árinu
1987 var 408 milljónir króna, en
það var um 30% af heildartjóni sam-
félagsins á því ári vegna eldsvoða.
Nefndi hann að einn eldsvoði, þegar
heilt frystihús brann til grunna fyr-
ir 11 mánuðum síðan, hefði kostað
helminginn af öllum iðgjöldum árs-
ins hjá Brunabótafélagi Islands,
sem voru 122 milljónir króna, en
þetta eina tjón nam 60 milljónum
króna.
Ertu ibílahugleiðingum?
SPÓRT
Ódýrast alvöru jeppinn á
markaðinum og hefur 10ára
reynslu að baki, viðþær
margbreytilegu aðstæður
sem íslensk náttúra og vega-
kerfi búayfir.
Velduþann kost,
sem kostar minna!
Blfreiðarog
landbúnaðarvólar hf.
Ármúla 13,
Suðurlandabraut 14.
Sfml681200.
^AlJglýsinga-
síminn er 2 24 80
TÖLVUSKÓLI GJJ
Námskeið
XEROX VENTURA PUBLISHER
7.-11. nóv., kl. 13.00 -17.00
Skráning og upplýsingar í síma 641222
GÍSLI J. JOHNSEN L!liiJ
Nýbýlavegi 16, Kópavogi Sími 641222
NÆSmtAUGARDAG
BÓNUSTALA: 37
VinningstÖlurnar 29. okt. 1988.
Heildarvinningsupphæð: Kr. 4.057.864,-
Þar sem enginn var með 5 réttar tölur á laugardaginn var,
færist 1. vinningur kr. 1.867.421,- yfir á 1. vinning á laugardag-
inn kemur.
BÓNUSTALA + 4 tölur réttar kr. 324.544,- skiptast á 2 vinn-
ingshafa, kr. 162.272,- á mann.
Fjórar tölur réttar kr. 559.774,- skiptast á 86 vinningshafa,
kr. 6.509,- á mann.
Þrjár tölur réttar kr. 1.306.125,- skiptast á 3.225 vinnings-
hafa, kr. 405,- á mann.
Sölustaðirnir eru opnir frá
mánudegi til laugardags
og loka ekki fyrr en 15 mínútum
fyrir útdrátt.
Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111
NVRBÍLLFRÁ
KR.167.80Q
(Staögreiösluverö)
Viö rýmum til fyrir '89 árgeröinni og seljum
sem til er af Skoda 105 L og 120 L ’88 á
sérstöku útsöluverði.
Cóö greiöslukjör: 25% útborgun og
afgangurinn á 12 mánuðum.
JÖFUR -ÞECAR ÞÚ KAUPIR BÍL