Morgunblaðið - 01.11.1988, Síða 25
25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988
Reuter
Imelda Marcos, umkringd einkalífvörðum, sést hér ganga út úr hót-
eli sínu í New York til að mæta fyrir rétti. Marcos-hjónin er ákærð
fyrir að hafa stolið filippínsku almannafé og notað það m.a. til að
kaupa fasteignir i Bandarikjunum.
Imelda Marcos fyrir
rétt í New York
New York. Reuter.
IMELDA, eiginkona Ferdinands Marcos, fyrrum forseta Filippseyja,
kom fyrir rétt í New York á mánudag en þau hjónin hafa verið
ákærð fyrir svik og fjárdrátt auk þess sem þau eru sökuð um að
hafa fest kaup á skrifstofiibyggingum í Bandaríkjunum með óleyfi-
legum hætti fyrir filippínskt almannafé. Imelda Marcos neitaði öllum
sakargiftum og segja lögfræðingar hjónanna að þeir ætli að fara
fram á að ákærur verði felldar niður. Yfirvöld ákváðu að Ferdinand
Marcos, sem er 71 árs að aldri, yrði ekki dreginn fyrir rétt sökum
hrakandi heilsu.
Er Marcos kom til dómshússins
var þar fyrir þröng manna, aðallega
fréttamenn. Kona ein, klædd bún-
ingi er minnti á blóðsugu, hélt á
spjaldi með áletruninni:„Imelda,
blóðsuga filippinsku þjóðarinnar." I
dómshúsinu voru tekin fingraför
frúarinnar ásamt ljósmyndum' af
henni eins og venja er í slíkum
málum. Krafist var fimm milljón
dala tryggingar og stóðu lögfræð-
ingar Marcos-hjónanna í stappi við
saksóknara; sögðu upphæðina of
háa. Var því haldið fram að Marc-
os-hjónin hefðu orðið að lifa á lán-
um síðan þau komu til Banda-
ríkjanna. Dómarinn sagðist ekki
myndu leyfa forsetafrúnni fyrrver-
andi að fara aftur til Hawaii fyrr
en búið væri að greiða trygginguna
og gaf lögmönnum hennar frest
fram á fimmtudag.
Frúin, sem er 59 ára að aldri,
kom með einkaþotu til New York
frá Hawaii þar sem hjónin hafa
búið síðan þau hrökkluðust frá völd-
um á Filippseyjum. í New York
beið hennar bifreið sem flutti hana
á Waldorf-Astoria hótelið á Man-
hattan, eitt glæsilegasta hótel New
York-borgar. í för með Imeldu eru
10 aðstoðarmenn þar af tvær hjúkr-
unarkonur, katólskur prestur og
lögfræðingur. Síðar um daginn sótti
forsetafrúin fyrrverandi messu í
dómkirkju heilags Patreks sem er
skammt frá hótelinu.
Lögfræðingur Imeldu, John
Bartok, sagði að veisluhöld og versl-
unarleiðangrar væru ekki á dagskrá
hennar að þessu sinni en frú Marc-
os var á árum áður eftirsóttur við-
skiptavinur í glæsiverslunum New
York-borgar. „Hún hefur ekki vikið
frá eiginmanni sinum í þijú ár og
hefur miklar áhyggjur af heilsu
hans," sagði Bartok.
Sovétríkin:
Kremlverja greinir
á um Solzhenítsyn
Sakharov verði 1 framboði í þingkosningum
Moskvu. Reuter, Daily Telegraph.
Á ráðstefiiu 600 sovéskra
menntamanna, félaga í Minnis-
varðahreyfingunni, sem berst
fyrir mannréttindum í Sov-
étríkjunum, var á sunnudag
samþykkt tillaga um að eðlis-
fræðingurinn og Nóbelsverð-
launahafinn Andrej Sakharov
yrði í framboði í þingkosningum
í apríl á næsta ári. „Sakharov
hefúr fórnað sér algjörlega
fyrir mannréttindi og frelsi í
landi okkar og hefúr fyllilega
unnið til þess að verða fúlltrúi
fólksins í æðstu löggjafarsam-
kundunni," segir í tillögunni.
Einnig kom fram tillaga um að
Nóbelsverðlaunahafínn Alex-
ander Solzhenítsyn, sem nú er
í útlegð i Vermont í Banda-
ríkjunum, fengi borgararéttindi
að nýju i Sovétríkjunum. Hins
vegar bendir margt til þess að
upp hafi komið ágreiningur
meðal valdhafanna í Kreml um
það hvort Solzhenítsyn skuli fá
uppreisn æru og væna aftur-
haldsöfiin í kommúnistaflokkn-
um útlagann um að hafa eitt
sinn verið útsendari lögreglunn-
ar.
Atkvæðamiklir umbótasinnar
innan sovéska kommúnistaflokks-
ins hafa með stuðningi mennta-
og andófsmanna barist fyrir því
að Solzenítsyn fái uppreisn æru.
Þeir vilja að hann verði opinber-
lega viðurkenndur sem einn af
mestu rithöfundum Sovétríkjanna
og krefjast þess að rit hans um
Gúlageyjaklasann, sem fjallar um
ógnarstjóm Stalíns, verði gefið út
í Sovétríkjunum þar sem það sé
meistaraverk sem gefí sanna
mynd af myrkri sögu Sovétríkj-
anna. Æðsti hugmyndafræðingur
Sovétríkjanna, Vadím Medvedev,
er hins vegar sagður algjörlega
mótfallinn því að rit Solzhenítsyns
verði gefin út eða honum leyft að
snúa heim úr útlegð.
Orðrómurinn um að
Solzhenítsyn hafi verið útsendari
lögreglunnar á líklega rætur sínar
að rekja til þess að rithöfundurinn
sjálfur viðurkenndi að þegar hann
hefði verið pólitískur fangi árið
1946 hefði hann verið neyddur til
þess að undirrita skjal þar sem
Andrej Sakharov Reuter
hann hefði fallist á að gefa lögregl-
unni upplýsingar um samfanga
sína.
Ábyrgð Leníns á
ógnarsfjórn Stalíns
Á ráðstefnu Minnisvarðahreyf-
ingarinnar, sem hefur fengið leyfi
til að reisa minnisvarða úm fórnar-
lömb Stalíns, komu berlega í ljós
þær hættur sem felast í því að
leyfa óheftar umræður um stalín-
ismann. Á ráðstefnunni var ekki
eingöngu fjallað um Solzhenítsyn
heldur einnig um ábyrgð Leníns á
ógnarstjóm Stalíns og persónu-
dýrkuninni sem átti sér stað á
Stalínstímanum.
Rithöfundur nokkur gagnrýndi
Lenín á þinginu fyrir að hafa
stofnað fyrirrennara leyniþjón-
ustunnar KGB og skapað sovéska
fangabúðakerfíð, sem nefnt hefur
verið Gúlagið. Hann hélt því einn-
igfram að Lenínshchina, sem er
neikvætt orð yfir valdatíma
Leníns, bæri að rannsaka og end-
urskoða rétt eins og valdatíma
Stahns,Stalínshchína.
Þótt Gorbatsjov hafi sent skeyti
á ráðstefnuna, þar sem hann lýsti
yfír stuðningi við Minnisvarða-
hreyfinguna, er næsta öruggt að
hann hafni kröfum um svo viða-
mikla athugun á rótum allra þeirra
glæpa sem framdir vom i nafni
kommúnismans. Umbótasinnamir
Alexander Solzhenítsyn
í Kreml eiga á hættu að víðtækari
umræða gæti grafið undan
kommúnismanum í Sovétríkjun-
um. Gorbatsjov skírskotar gjaman
til Leníns sem uppsprettu allrar
visku og gæti aldrei liðið að reynt
yrði að kenna Lenín um fjölda-
morð og efnahagsleg mistök
kommúnista.
Fórnarlamba Khrústsjovs
og Brezhnevs verði minnst
Tíu dögum fyrir ráðstefnuna um
helgina hafði Sakharov, sem
nefndur hefur verið „faðir sovésku
mannréttindahreyfingarinnar,“
verið lq'örinn í stjómamefnd sov-
ésku vísindaakademíunnar. Á ráð-
stefnunni var samþykkt tillaga um
að hann yrði í framboði í þing-
kosningum í apríl næstkomandi.
Samkvæmt nýjum kosningalög-
um, sem kynnt voru í síðustu viku,
geta sovéskar mannréttindahreyf-
ingar kjörið nokkra félaga á nýtt
Þing fulltrúa fólksins, þar sem
2.250 menn munu eiga sæti. Full-
trúar fólksins greiða síðan at-
kvæði um það hveijir þeirra taki
sæti í þingi landsins.
Andrej Sakharov, sem er annar
af tveimur forsetum Minnisvarða-
hreyfingarinnar, hélt því fram á
ráðstefnunni að ekki ætti aðeins
að minnast fómarlamba Stalíns
heldur einnig fórnarlamba
Krústsjovs og Brezhnevs.
ÚRVAL - GÆÐI - ÞJÓNUSTA
EGILL
ÁRNASON HF., PARKETVAL
ÁRMÚLA 8 - REYKJAVÍK - SÍMI 91 82111.
jjjufiiolsw ici3-i ifct i:^{»ltb(nj3i« iéa
. Hja inl}-
nnBri Bid iBJ; i
BxIaiiBoasd nuilánmlxiBV tóaons ia