Morgunblaðið - 01.11.1988, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988
27
Lestá lest ofan
Tvær járnbrautalestir fóru út af sporinu í norðvesturhluta Lund-
únaborgar á fóstudag með afleiðingum, sem sjá má á þessari
mynd. Fóru þær út af á sama stað. Sú fyrri rann niður brekku og
út á hraðbraut en sú seinni staðnæmdist ofan á fyrri lestinni.
Slys urðu engin á mönnum í óhappinu.
Bretapnns gagnrýnir
nútíma byggingarlist
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frimannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
KARL Bretaprins gagnrýndi
harkalega nútíma byggingarlist
í rúmlega klukkustundarlöngum
þætti í Breska ríkisútvarpinu,
BBC, síðastliðið föstudagskvöld.
Mikill meirihluti almennings
styður skoðanir prinsins.
Karl Bretaprins hefur áður farið
hörðum orðum um arkitektúr .sam-
tímans. Hinn 1. desember í fyrra
sagði hann til dæmis, að þýski flug-
herinn hefði ekki skaðað London
jafnmikið í heimsstyijöldinni síðari
og arkitektar samtímans hefðu
gert. Á föstudagskvöld sagði hann,
að þjóðleikhúsið, sem stendur á
suðurbakka Thames-ár, væri eins
og kjarnorkuver í miðborg London.
Karl hefur látið sig varða um-
hverfí Pálskirkjunnar, sem stendur
við City, fjármálahverfl London.
Hann hefur áður lagst gegn áform-
um um uppbyggingu í kringum
kirkjuna. Hann sagði um nýjar til-
lögur um slíka uppbyggingu, að
byggingamar litu út eins og út-
varpstæki frá fjórða áratugnum.
Hann sagði, að hlutar af miðborg
Birrningham væru stórslys.
í skoðanakönnun í Sunday Mirr-
orsíðastliðinn sunnudag kom fram,
að 67% aðspurðra sögðust sammála
Bretaprinsi.
Orð Karls hafa haft áhrif í þá
átt, að tillögur, sem hann heflir
gagnrýnt, hafa verið dregnar til
baka. Peter Palumbo, ijármálamað-
ur, sem stendur fyrir uppbyggingu
nálægt Pálskirkjunni, sagði um
þáttinn: „Guð blessi prinsinn af
Wales, en Guð forði okkur frá dóm-
um hans um byggingarlist."
Ýmsir talsmenn nútíma
arkitektúrs hafa brugðist hart við
orðum Karls og sakað hann um að
vera utangátta. Nútíma arkitektar
hafl lært af mistökum síðustu
þriggja áratuga og séu nú hug-
myndaríkari en nokkru sinni áður.
Akærur
í Tékkó-
slóvakíu
Vln. Reuter.
TÉKKNESK yfirvöld hafa hafið
málssókn á hendur nokkrum
hópi manna, sem ætlaði að efiia
til ólöglegs útifundar í Prag sl.
föstudag. Var skýrt frá þessu í
gær í málgagni kommúnista-
fiokksins, Rude Pravo.
Sagði í blaðinu, að fólkið, sem
ætlaði að koma saman í tilefni af
því, að 70 ár eru liðin frá því Tékkó-
slóvakía. varð sjálfstætt ríki, yrði
kært fyrir undirróður og fyrir að
hafa ráðist á opinberan starfsmann.
Voru um 100 manns handteknir en
ekki er vitað hve margir verða
ákærðir.
Árás Bandaríkja-
manna á Líbýu:
Gaddafi seg-
ist hafa ver-
ið varaður við
Róm. Reuter.
MUAMMAR Gaddafi Líbýufor-
seti sagði í viðtali við ítölsk
dagblöð á fimmtudag að hann
hefði lifað af loftárás Banda-
ríkjamanna á Líbýu 1986, af því
að hringt hefði verið í hann
nokkrum stundum fyrir árásina
frá Möltu og hann varaður við.
„Það var forsætisráðherra
Möltu, sem hringdi til okkar og
sagði okkur, að árásin væri í undir-
búningi," sagði Gaddafi í viðtali
við eitt blaðanna,/y Giornale.
„Möltumenn höfðu þetta frá
Itölum."
ítölsku blöðin hafa eftir
Gaddafl, að hann hafi þá haft sig
á brott frá herstöðinni og búið um
sig í tjaldi þar skammt frá. „Það
er ástæðan fyrir því, að þeim tókst
ekki að ná til mín.“
■ ■■
\f/
ERLENT
Atvimiuleysisbætur tekn-
ar upp í U ngverj alandi
UNGVERJAR hyggjast, fyrstir kommúnistaríkjanna austan járn-
tjaldsins, taka upp atvinnuleysisbætur að því er segir í frétt breska
dagblaðsins The Independeut. Kemur þetta í kjölfar nýrrar áætlun-
ar um úrbætur í efnhagsmálum sem mun leiða til þess að allt að
100.000 manns munu missa atvinnu sína á næsta ári.
Málgagn ungversku ríkisstjórn-
arinnar Magyar Hirlap skýrði frá
því í síðustu viku að ákveðið hefði
verið að taka upp beinar atvinnu-
leysisbætur frá og með 1. janúar
1989. Fram til þessa hafa stjóm-
völd eingöngu greitt tímabundnar
bætur til þeirra sem em í atvinnu-
leit.
Enn hefur ekki verið ákveðið
hversu háar bæturnar verða en
embættismenn leggja áherslu á að
þær megi ekki verða til þess að
almenningur geri sér að góðu að
vera á framfæri hins opinbera. Imre
Karacs, fréttaritari The Independ-
ent í Búdapest, segir að þetta geti
einungis þýtt að bætumar verði það
lágar að þær nægi tæpast til fram-
færslu. Samkvæmt nýja kerfinu
munu þeir sem missa störf sín fá
umtalsvert hærri upphæð en þeir
sem segja upp af fúsum og fijálsum
vilja. Hinir atvinnulausu munu ein-
ungis fá bætumar greiddar í eitt
ár. Þeir sem hætta námi munu ekki
eiga rétt á bótum og verður þeim
þess í stað gefinn kostur á ýmis
konar starfsþjálfun.
Þar til fyrir tveimur ámm var
litið svo á að atvinna til handa öllum
væri stórkostlegasta afrek sósíal-
ismans í Ungveijalandi. Efnahags-
ástandið tók þá að versna til muna
og fjölda fyrirtækja, einkum í norð-
austurhluta landsins hefur verið
lokað. Þúsundir manna hafa misst
atvinnu sína. Stjómvöld reyndust
ekki reiðubúin til að viðurkenna
þessa staðreynd, sem talin er ein-
kennandi fyrir hin kapítalísku ríki
Vesturlanda. Þess í stað tóku ung-
verskir hagfræðingar að ræða og
skýra hugtakið „tímabundið at-
vinnuleysi".
Nú þykir á hinn bóginn ljóst að
ástandið er varanlegt. Um 20.000
manns era nú án atvinnu og fjöldi
þeirra fer vaxandi. Nýlega sam-
þykkti ungverska ríkisstjómin áætl-
un um róttækar umbætur á sviði
efnahagsmála, sem krefjast munu
fóma. Gert er ráð fyrir því að
50.000 til 100.000 manns missi
vinnu sína á næsta ári. Þannig
munu fimm prósent þjóðarinnar
skyndilega verða án atvinnu. Fjöl-
margir hagfræðingar hafa látið í
ljós það álit að mun fleiri Ungveijar
muni þurfa að sætta sig við atvinnu-
leysi á næsta ári. Ef til vill er það
af þessum sökum sem ákveðið hef-
ur verið að lögleiða verkföll frá og
með 1. janúar næstkomandi jafn-
framt því sem atvinnuleysisbætur
verða teknar upp.
MERKIÐ SEGIR ALLT UM GÆÐIN
campos
SKÆÐI LAUGAVEGI - SKÆÐI KRINGLAN - SKÓVERSLUN KÓPAVOGS
SKÓBÚÐ SELFOSS - KAUPSTAÐUR MJÓDD - SKÓBÚÐIN KEFLAVÍK
VERSLUNIN NÍNA AKRANESI - SKÓBÚÐ SAUÐÁRKRÓKS
FÍNAR LÍNUR AKUREYRI - SKÓHÖLLIN HAFNARFIRÐI
SJONVARPSBINGO A STÖÐ 2
föstudagskvöldið 28.okt. 1988.
Vinningar í fyrri umferð þegar spilað var um eina
lárétta línu.
SPILAÐ VAR UM 10 AUKAVINNINGA:
10 Olympus AZ-300 Super Zoom frá Nesco í Kringl-
unni hver að verðmæti 24.900 kr.
EFTIRFARANDI TÖLUR KOMU UPP:
90, 66, 41, 33, 75, 18, 5, 21, 54, 89, 61, 16, 48, 2,
52, 20, 64.
Þegar talan 64 kom upp var HÆTT að spila um auka-
vinningana.
Þegar spilað var um SUBARU BÍLANA frá Ingvari
Helgasyni, komu eftirfarandi tölur upp.
Spilað var um þrjár láréttar línur, (eitt-spjald):
19, 6, 85, 39, 65, 15, 76, 63, 80, 49, 56, 25, 4, 37,
40, 67, 78, 23, 86, 13, 59, 7, 79, 31, 88, 55, 71, 47,
32, 11, 24, 70.
i1™
STYR KTA R FK l.AG
SlMAR 673560 OG 673561