Morgunblaðið - 01.11.1988, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988
31
Eiður Guðnason um tillögu Áma Gunnarssonar:
Tillagan betur oflutt
Þing^menn ekki á eitt sáttir um kórónu Kristjáns IX
Eiður Guðnason (A/Vl) sagði m.a. á Alþingi í gær að tillaga Árna
Gunnarssonar (A/Ne) um að taka niður merki Krisljáns níunda Dana-
konungs af Alþingishúsinu hefði gjarnan mátt vera óflutt. Þorvaldur
Garðar Kristjánsson (S/Vf) sagði m.a. að forsetar þingsins hafi ákveð-
ið, fyrr á þessu ári, að láta fara fram vandlega athugun á ásig-
komulagi þessa minnismerkis á þinghúsinu, með tilliti til viðhalds
þess, sem að væri unmð.
Ámi Gunnarsson (A/Ne) mælti í gær
fyrir tillögu sinni til þingsályktunar,
þessefnis, að „forsetar þingsins láti
taka niður merki Kristjáns níunda
Danakonungs, sem nú er á norður-
hlið Alþingishússins, og láti koma
þar fyrir íslenzka skjaldarmerkinu
frá 1944 ásamt skjaldberum: grið-
ungi, bergrisa, gammi og dreka“.
Ámi mælti fyrir samþykki tillög-
unnar. Hann sagði þó, að ef hún
mætti mikilli andstöðu í þinginu,
mætti athuga, að koma fyrir skjald-
armerki lýðveldisins, stóru og fal-
legu, á svölum þinghússins.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
(S/Vf) mælti gegn tillögunni. Hann
vitnaði til greinar Þórs Magnússon-
ar, þjóðminjavarðar, sem mælir gegn
því að fjarlægja kórónuna, en Al-
þingishúsið er friðlýst, samkvæmt
lögum, enda merkasta byggingar-
sögulega hús landsins. Og hvað kem-
ur á eftir, ef hér verður rasað um
ráð fram, spurði Þorvaldur Garðar.
Verður skjaldarmerki með kórónu á
safnahúsinu næst brotið niður. Síðan
gæti mönnum dottið í hug að mátu-
legra væri að setja styttu af ein-
hveijum stjómmálamanni í stað
styttunnar af Kristjáni konungi
framan við stjómarráðshúsið.
Eiður Guðnason (A/Vl) sagðist
ekki minnast þess að þingflokkur
Alþýðuflokksins hafi tekið afstöðu
til tillögu Árna. Að sínu mati væri
þessi tillaga betur óflutt. Hinsvegar
væri það góð ákvörðun að lagfæra
minnismerkið.
Skúli Alexandersson (Abl/Vl) tók
hinsvegar undir með Áma Gunnars-
syni og taldi fara vel á því að fjar-
lægja hina dönsku kórónu af Al-
þingishúsinu.
Að lokinni umræðu gekk tillagan
til skoðunar hjá allsheijamefnd
Sameinaðs þings.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 31. október.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 55,00 32,00 37,07 94,781 3.513.080
Undlrmál 17,00 16,00 16,40 1,523 24.977
Ýsa 74,00 34,00 57,94 12,413 719.195
Undirmálsýsa 13,00 12,00 12,18 0,974 11.867
Ufsi 14,00 12,00 13,97 5,332 74.488
Karfi 15,00 15,00 15,00 0,211 3.165
Steinbítur 31,00 10,00 12,63 0,440 5.555
Langa 29,00 29,00 29,00 0,439 12.731
Lúöa 295,00 110,00 235,17 0,277 65.256
Keila 18,00 18,00 18,00 0,956 17.208
Skötuselur 280,00 280,00 280,00 0,004 1.260
Samtals 37,91 117,361 4.449.444
Selt var aöallega úr Otri HF, Stakkavík ÁR og Steinunni SH. (
dag verða meðal annars seld 60 tonn, aöallega af þorskl, úr
Otri HF, 5 tonn af þorski frá Sundi sf. á (safirði og 5 tonn af
þorski frá Dröfnum hf.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 43,00- 35,00 35,26 88,828 3.132.466
Þorskur(ósl.) 30,00 30,00 30,00 0,147 4.410
Undirmál 14,00 14,00 14,00 3,111 43.552
Ýsa 81,00 35,00 46,90 9,098 426.699
Ýsa(ósl.) 67,00 50,00 62,28 1,340 83.450
Ýsa(smá) 20,00 14,00 17,11 0,209 3.576
Hlýri 21,00 21,00 21,00 0,072 1.512
Ufsi 16,00 15,00 15,46 20,299 313.849
Lúöa 180,00 130,00 167,60 0,150 25.140
Samtals 32,73 123,254 4.034.655
Selt var úr Ásbirni RE. I dag veröur meðal annars seldur þorsk-
ur úr Ásbirni RE.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 52,50 44,50 47,34 11,149 527.823
Ýsa 84,50 37,00 66,76 5,013 334.660
Ufsi 17,00 17,00 17,00 0,166 2.822
Langa 27,00 18,00 20,57 1,400 28.800
Blálanga 15,00 15,00 15,00 0,740 11.100
Lúöa 240,00 145,00 200,88 0,017 3.415
Síld 7,48 7,48 7,48 50,170 37.271
Karfi 27,00 27,00 27,00 7,687 207.549
Keila 12,00 12,00 12,00 2,010 24.120
Öfugkjafta 18,00 18,00 18,00 0,343 6.192
Skata 82,00 82,00 82,00 0,406 33:293
Skötuselur 300,00 95,00 158,40 0,097 15.365
Samtals 19,83 79,203 1.570.484
Selt var aðallega úr Má GK, Guöfinni KE, Þorsteini Gíslasyni
GK og Kópi GK. í dag veröa meðal annars seld 35 tonn af ufsa
og 7 tonn af karfa úr Bergvík KE. Selt verður úr dagróðrabátum
ef á sjó gefur.
SKIPASÖLUR í Bretlandi 24.- 28. október.
Þorskur 83,39 176,910 14.752.751
Ýsa 72,46 47,480 3.440.470
Ufsi 42,00 12,520 525.817
Karfi 45,96 4,150 190.746
Koli 50,43 39,090 1.971.252
Blandaö 45,27 13,655 618.112
Samtals 73,17 293,805 21.499.148
Selt var úr Álftafelli SU í Hull á mánudaginn, Unu í Garði GK í
Grimsby á mánudaginn, Þrymi BA i Grimsby á þriðjudaginn og
Bjarti NK í Grimsby á fimmtudaginn. í þetta yfirlit vantar sölu
úr Hafnarey SU í Hull á föstudaginn.
GÁMASÖLUR í Bretlandi 24,- 28. október.
Þorskur 70,51 456,590 32.192.686
Ýsa 73,79 311,510 22.984.784
Ufsi 46,19 30,595 1.413.289
Karfi 43,89 8,000 351.156
Koli 67,35 171,635 11.558.933
Grálúöa 101,69 0,835 84.908
Blandað 79,34 59.961 4.757.347
Samtals 70,58 1.039,13 73.343
SKIPASÖLUR i í Vestur-Þýskalandi 24.- 28. október.
Þorskur 65,20 26,797 1.747.078
Ýsa 74,74 1,618 120.936
Ufsi 51,65 55,589 2.871.147
Karfi 55,50 464.708 25.790.727
Grálúða 46,59 21,771 1.014.411
Blandaö 41,77 18,301 764.365
Samtals 54,87 588,784 32.308.662
Selt var úr Viöey RE í Bremerhaven á mánudaginn, Hólmatindi
SU í Bremerhaven á miðvikudaginn og Kolbeinsey ÞH í Bremer-
haven á föstudaginn.
Morgunblaðið/Þorkell
Sigrún Júlíusdóttir, félagsráðgjafi, Guðnin Agnarsdóttir, læknir og alþingismaður, Jónatan Þórmunds-
son, prófessor og nefndarformaður og Ásdís J. Rafiiar lögmaður.
Tillögur nauðgunarmálanefiidar:
N eyðarmóttaka
fyrir fómarlömb
NAUÐGUNARMALANEFND, sem skipuð var samkvæmt ályktun Al-
þingis 1984, hefúr lokið störfúm og kynnti tillögur sínar blaðamönnum
í gær. í þeim er meðal annars gert ráð fyrir neyðarmóttöku fyrir
fórnarlömb kynferðisafbrota og að lögum verði breytt til að tryggja
stöðu fórnarlamba við meðferð málsins hjá lögreglu og dómstólum.
Einnig leggur nefiidin til að með breytingum á almennum hegningar-
lögum verði refsivernd barna- og ungmenna styrkt frá því sem nú er
og einnig að ýmsar kynferðisathafiiir verði lagðar að jöfiiu við sam-
farir. í gögnum nauðgunarmálanefiidar kemur einnig fram að að
meðaltali líða um 14 mánuðir frá kæru og þar til dómur gengur í
undirrétti. Meðferð fyrir Hæstarétti tekur aðra 14 mánuði að meðaltali.
Neyðarmóttaka fyrir
fórnarlömb
Nauðgunarmálanefndin telur
brýnt að komið verði á neyðarmót-
töku fyrir fómarlömb kynferðis-
borta, líkamsárása og annarra of-
beldisbrota í stað þeirrar ófullkomnu
og lítt samræmdu þjónustu sem
þessir aðilar eigi nú völ á. Hlutverk
móttökunnar verði að veita fóm-
arlömbum samræmda og markvissa
þjónustu og verði hún alltaf opin og
mönnuð þjálfuðu fólki. Einnig verði
þannig gengið frá tengslum neyð-
armóttöku og lögreglu að hvor aðili
viti nákvæmlega hvert hlutverk hans
og réttarstaða sé. Nefndin vill að
ráðin verði að móttökunni forstöðu-
maður í fullt starf og að auki félagsr-
áðgjafi eða sálfræðingur í hluta-
starfi. Nefndin telur heppilegast að
móttakan verði rekin í tengslum við
slysadeild Borgarspítalans og hjúk-
runarfræðingar og ritarar hennar
sinni meðfram störfum við neyðarm-
óttökuna.
Réttarvernd fórnarlamba
verði bætt
Þá vill nefndin að hegningarlögum
verði breytt, þannig að kynferði
fórnarlamba skipti ekki máli, gerð
verði gleggri skil milli nauðgunar
og annarrar kynferðislegrar nauð-
ungar og refsivernd verði aukin með
því að leggja ýmsar kynferðisathafn-
ir að jöfnu við samræði. Þá miða
tillögumar að því að styrkja refsi-
vemd bama og ungmenna frá því
sem nú er.
Nefndin telur einnig brýnt að
breyta lögum um rneðferð opinberra
mála á þann veg að þolendur kyn-
ferðisbrota öðlist skilyrðislausan rétt
til aðstoðar löglærðs talsmanns allt
frá upphafi rannsóknar og þar til
meðferð máls lýkur. Einnig leggur
nefndin áherslu á að horfið verði frá
fijálsu sönnunarmati varðandi fyrri
kynhegðun brotaþola og að hún verði
ekki dregin inn í málið nema hún
teljist hafa vemlega þýðingu. I við-
talskönnun sem Sigrún Júlíusdóttir,
sem sæti átti í nefndinni, átti við
fómarlömb nauðgana kom fram að
margar þeirra höfðu, hjá lögreglu
og fyrir dómi, verið spurðar nær-
göngulla persónulegra spurninga um
fýrri kynlífsreynslu, notkun getnað-
arvama o.s.frv, sem nefndin telur
að engu ætti að skipta varðandi
rannsókn málsins.
Réttað fyrir luktum dyrum
- fréttabann
Þá er talið nauðsynlegt að setja
tæmandi reglur um hvenær ríkissak-
sóknara sé heimilt að falla frá sak-
sókn. Á rannsóknartímabilinu sendi
RLR 84 mál til saksóknara en ákært
var í 48 tilfellum. Nefndin vill að
saksóknara verði gert skylt að
rökstyðja ákvörðun um niðurfellingu
saksóknar og tilkynna hana ýmsum
aðilum, þar á meðal fórnarlambinu.
Þá vill nefndin að fórnarlömbum
verði veittur réttur til að krefjast
þess að réttað verði í þessum málum
fyrir luktum dyrum og til að gefa
skýrslu fýrir dómi án þess að brota-
mað’urinn sé viðstaddur. Talið er
nauðsynlegt að sett verði fortaks-
laust fréttabann á persónulegar upp-
lýsingar um fómarlömbin og kom
fram hjá formanninum, Jónatan
Þórmundssyni prófessor, að dæmi
væru þess að fréttaflutningur af
persónulegum málum fórnarlamba
hefði skaðað málsmeðferð og félags-
lega stöðu viðkomandi.
Rikið ábyrgist
bótagreiðslur
Nefndin telur einnig nauðsynlegt að
ríkissjóður tryggi fómarlambi
greiðslu þeirra bóta sem dómstólar
ákveða og sjái ríkissjóður síðan um
að endurkrefja hinn dæmda. I máli
nefndarmanna kom fram að einung-
is um 30% dæmdr nauðgara hefðu
reynst borgunarmenn fýrir skaða-
bótum, sem miðað við lánskjaraví-
sitölu í janúar sl. vom á bilinu
14- 343 þúsund krónur og aðeins
dæmdar í um helmingi málanna.
Loks telur nefndin brýnt að efna til
sérstakra námskeiða fyrir lögreglu-
menn og starfsfólk heilbrigðisþjón-
ustu þar sem farið veðri yfir áhrif
kynferðisbrota á fómarlömb og
rannsóknir málanna. Þá vill nefndin
að þeirri kunnáttu verði haldið við
með endurmenntun.
114 kærðir 1126 málum
Nauðgunarmálanefnd kannaði
allar nauðgunarkæmr sem bámst
til RLR, frá því stofnunin var sett
á fót 1977 og til ársloka 1983. Alls
var um 126 kæmr að ræða. Við
sögu komu 114 karlar, níu vom
kærðir tvisvar og 2 þrisvar eða oft-
ar. 66% kærðra vom á aldrinum
15- 29 ára og var meðalaldur 27,8
ár. 65% hinna kærðu vom atvinnu-
lausir eða ófaglærðir. 16% höfðu
ekki áður gerst brotlegir við lög en
45% verið dæmdir fyrir 1-3 afbrot,,
26% höfðu fengið á sig 4-10 refsi-
dóma og aðrir fleiri. Aðeins 5% höfðu
áður verið dæmdir fyrir kynferðis-
brot og 12% fyrir önnur ofbeldis-
brot. 7% hinna kærðu vom taldir ♦
eiga við félagsleg eða geðræn vanda-
mál að stríða og 3% vom líkamlega
fatlaðir.
Y ng'sta fórnarlamb 10 ára
- elsta61 árs
Kærendur nauðgananna 126 vom
121 kona, sú yngsta 10 ára en sú
elsta 61 árs. Ein kona kærði þrisvar
og fjórar tvisvar. 75% kvennanna
vom á aldrinum 15-29 ára. 25%
kvennanna átti brotaferil að baki,
þar af 12% vegna umferðarlaga.
Nefndin bar saman tíðni nauðgun-
arbrota á íslandi og öðmm Norðurl-
öndum. Tíðnin er svipuð í öllum lönd-
unum að Noregi undanskildum en ”
þar em hlutfallslega landfæstar
nauðganir kærðar.
Viðtalstímar
alþingismanna
Sjálfstæðisflokksins
Alþingismenn Sjálfstæðisflokksins efna til viðtalstíma
íValhöll, Háaleitisbraut 1, ínóvember.
Allirvelkomnir.
Miðvikudaginn 2. nóvember kl. 10-12 eru til viðtals
Ólafur G. Einarsson, þingmaður Reyknesinga og Eg-
ill Jónsson, þingmaður Austfirðinga.