Morgunblaðið - 01.11.1988, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, VIDSKIPnAIVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988
Iðnaður
Skipasmíðastöðvar vinna að
stjórnunarlegum endurbótum
Nú um nokkurt skeið hefur
Landssamband iðnaðarmanna stað-
ið að átaki fyrir skipasmíðastöðvar,
sem snýst um að bæta áætlanir um
verk og verkefni. Nú eru nokkrar
skipasmíðastöðvar að taka tölvu-
búnað í notkun í þessu skyni og
taka þátt í námskeiði, sem þessa
dagana er haldið, sem liður í þessu
átaki. Morgunblaðið náði tali af
Bjama Einarssyni, stjórnarform-
anni Skipasmíðastöðvarinnar
Njarðvíkur, sem fyrstur kom á
framfæri hugmyndinni sem þetta
átak byggist á, og einnig af Sigur-
bergi Björnssyni hjá Landsambandi
iðnaðarmannaog.
Bjarni var fyrst spurður hvað
hafi orðið til að vakti athygli á
mikilvægi þess að farið væri inn á
þessari brautir.
Nýta upplýsingar nýs
launakerfis
„í byijun þessa áratugar tóku
innlendar skipasmíðastöðvar upp
nýtt launakerfi, sem miðaði að því
að auka afköst starfsmanna með
( bónusgreiðslum," sagði Bjarni.
„Launakerfíð gerir kröfur til að
verkefnum stöðvarinnar sé skipt
niður í nákvæmlega skilgreindar
einingar. Auk þess styðst þetta
kerfi við flokkunarkerfi SFI, sem
er norskt að uppruna. Það er sér-
staklega ætlað til þess að flokka
niður skipasmíði í kostnaðareining-
ar eftir skipshlutum og/eða búnaði.
Bónuskerfið er hinsvegar alíslenskt
og er smíðað af Rekstrarstofunni í
Kópavogi. í þessi ár, sem bónus-
; og flokkunarkerfin hafa verið í
gangi, hafa safnast upp mikilvægar
upplýsingar um umfang verka og
mannafla, sem þarf til þess að vinna
þau. Vegna bónuskerfisins eru
þessar upplýsingar mjög ýtarlegar
og nákvæmar í íslenskum skip-
asmíðastöðvum og gefa mikla
möguleika í stjórnunarlegum um-
bótum.“
Bjarni segir að það hafí því legið
í hlutarins eðli að næsta skref hjá
skipasmíðastöðvum væri að nýta
sér þessar upplýsingar til bættrar
stjómunar. Því hafi hann leitað til
Sigurbergs Bjömssonar verkfræð-
ings hjá Landssambandi iðnaðar-
manna til aðstoðar við að finna
♦ hentugar lausnir fyrir skipasmíða-
iðnaðinn, þar sem nýjustu tækni á
þessu sviði væri beitt, enda hafi
Sigurberg sinnt ráðgjöf hjá Lands-
sambandi iðnaðarmanna og unnið
mikið með t.d. verkbókhald. Niður-
staðan hafí síðan orðið tölvuvædd
CPM/PERT - verkáætlanagerð.
„CPM- og PERT-áætlanagerð
eru tvær örlítið mismunandi aó-
ferðir við gerð verkáætlana,“ sagði
Sigurberg, þegar hann var spurður
um áætlunargerðina. „CPM var
þróað hjá stórfyrirtækjunum Du-
Pont og Remington Rand til þess
að greina röðun tímafrekustu verk-
þátta verks. M.ö.o. að finna hina
bundnu leið (Critical Path) verks-
ins. Ef einhver verkþátta í hinni
bundnu leið verksins seinkar, þá
seinkar öllu verkinu samsvarandi.
A hinn bóginn er hægt að hagræða
framkvæmd smærri verkþátta, sem
ekki falla inn í „krítísku" röðina á
sem heppilegastan hátt, sérstaklega
ef fleiri en eitt verk eru í gangi.
PERT-áætlanagerð var á hinn
bóginn þróuð hjá bandaríska sjó-
hemum við þróun Pólaris-eldflaug-
anna. Með þessari aðferð er fengist
við aðstæður þar sem tímalengd
verkþátta er óviss. Hér er stuðst
við úrvinnslu á gefnu svartsýnis-,
bjartsýnis- og líklegasta mati á
tímalengd verkþáttar."
Sigurberg segir þéssar aðferðir
hafa þróast undanfarin ár og verið
bætt inn í þær ýmsri úrvinnslu. „1
dag eru þessar aðferðir við áætlana-
gerð nær eingöngu notaðar með
hjálp tölvuforrita, enda nýtist tölvan
vel I þessu sambandi. Sem dæmi
um úrvinnslu má nefna teikningu
af „krítískri" vinnuröð verkþátta,
stólparit yfír áætlaða notkun að-
fanga vegna verka, teikningu af
vinnuröð verka, stólparit yfir sam-
anburð á framgangi verks og áætl-
unar, línurit yfír fjárbindingu vegna
verka og sjálfvirka jöfnun vinnu-
magns.“
Margvíslegur ávinningnr
En hvað ávinnst með notkun
verkáætlana?
„Markmiðið með því að gera
verkáætlanir er einkum að bæta
skipulagningu og röðun verkefna í
fyrirtækinu svo þau geti betur stað-
ið við dagsetningar.
Einnig að finna flöskuhálsa við
verk, að meta áhrif breytinga á
afhendingartíma og meta mögu-
leika við að bregðast við þeim.
Ennfremur að hafa betra yfírlit
yfir verkefnastöðu fyrirtækisins og
vera betur í stakk búinn að stýra
álagi á fyrirtækið.
Loks að miðla upplýsingum um
verk til annarra stjórnenda með
gröfum og skýrslum í skýru og
aðgengilegu formi."
„Ég vil bæta tveimur atriðum við
þessa upptalningu,“ segir Bjarni.
„Annað er að með virkri stjórnun
byggða á upplýsingum, sem verká-
ætlanir gefa, getum við bætt sam-
skipti útgerða og skipasmíðastöðva.
Yfirleitt er það svo að mjög skamm-
ur fyrirvari er á viðgerðum, jafnvel
stórum endurnýjunum. Þegar út-
gerðarmenn eru tilbúnir, þá fyrst
koma þeir og vilja fá hlutinn gerðan
Strax, helst í gær. Nú höfum við
tæki í höndunum, þar sem við get-
um sýnt þeim fram á hagræðið af
því að skipuleggja endurnýjunar-
verkefni og stærri viðgerðir með
góðum fyrirvara. Það er alltaf hag-
kvæmara á allan hátt fyrir báða
aðila. Utgerðarmennirnir fá ódýrari
og betri þjónustu og verkefnin hjá
okkur koma jafnt og þétt inn, en
ekki í gusum. Skiladagsetningar
verða auk þess öruggari.
Hitt atriðið er að verkáætlanir
geta tvímælalaust hjálpað til með
stór samvinnuverkefni. Þau gætu
t.d. unnist í mörgum skipasmíða-
stöðvum og jafnvel á þann veg að
einstakar einingar s.s. stýrishús
yrðu öll smíðuð í einni stöðinni á
meðan aðrar yrðu smíðaðar á öðrum
stöðum. Slíkar vinnuaðferðir krefj-
ast mikillar samhæfingar og ná-
kvæmni í tímasetningu. Þá er nauð-
synlegt að hafa góð verkfæri fyrir
slíkt í höndunum.
Hvernig er verkáætlunum háttað
í dag hjá íslenskum skipasmíða-
stöðvum?
„Að sjálfsögðu er þetta misjafnt
eftir fyrirtækjum," svarar Sigur-
bergur. „Nokkur þeirra eru með
þetta í handvirku formi í dag. Samt
sem áður tel ég yfirleitt að gerð
og notkun áætlana hafi verið í lág-
marki í íslenskum fyrirtækjum til
þessa dags. Það er skiljanlegt í ljósi
þess að handgerðar áætlanir eru
mjög tímafrekar og litlar breytingar
á forsendum kalla á gífurlega vinnu
við endurmat áætlananna. Auk þess
hefur efnahagslegt umhverfí verið
óstöðugt, sem gerir slíkar áætlanir
erfíðari. Nú er hins vegar öldin
önnur. Tölvur henta mjög vel til
áætlanagerða. Þær eru fljótar að
endurreikna miðað við breyttar for-
sendur og geta gefið skýrar teikn-
ingar og skýrslur um niðurstöðu
áætlana og framvindu, sem eru
aðgengilegar fyrir alla stjórnendur
fyrirtækisins. Tölvur henta því sér-
staklega vel til áætlanagerðar, ekki
síst þegar efnahagsástandið er
óstöðugt, eins og það er enn í dag.
Því má segja að meginmarkmið
átaksins sé að byggja upp daglega
stjómun, sem styðst við áætlanir,
sem eru endurmetnar stöðugt og
bornar saman við framvindu
verka."
ÁLFABORG KAUPIR NÝBORG —— Fyrirtækið Álfaborg hf. hefur keypt húsgagnaverslun
Nýborgar hf. sem staðsett var í sama húsnæði að Skútuvegi 4 að því er segir í fréttatilkynningu. Álfaborg
hóf rekstur sinn á haustmánuðum 1986 er það keypti byggingavörudeild Nýborgar hf. Fyrirtækið hefur fram
til þessa verslað með ákveðnar byggingavörur þ.a.m. vegg- og gólfflísar ásamt hreinlætistækjum. Eigendur
Álfaborgar eru Össur Stefánsson og Asdís Samúelsdóttir.
Á markaðinum
Ný gólfhreinsivél
tekin ínotkun
FYRIRTÆKIÐ Bomanite á ís-
landi sf. hefúr keypt til landsins
sérstaka vél til að hreinsa gólf
til að tryggja að undirvinna und-
ir gólfefhin sé eins vel unnin og
kostur er á. Að sögn forráða-
manna fyrirtækisins eru algeng-
ustu skemmdir á lökkuðum og
öðrum gólfefnum þau, að efnin
losni frá undirlaginu vegna þess
að gólfefhið fær ekki nægjan-
lega festu.
Vélin lemur upp efsta lag gólfs-
ins með því að þeyta stálkúlum með
miklu afli í gólfið og ryksugar síðan
jafnóðum bæði gólfefnið sem kúl-
urnar losa og kúlurnar af gólfínu,
að því er segir í fréttatilkynningu.
Hreinsunin sé lokað kerfi og því sé
hægt að fjarlægja gólfefni án þess
að ryka upp eða valda öðrum óþæg-
indum.
Fyrirtækið hefur undanfarin ár
steypt og mynstrað stéttar og gólf
samkvæmt framleiðsluleyfi frá
Bandaríkjunum.
Fyrirtæki
Dregið hefur veríð íríðla
- í samnorrænu stjórnunarkeppninni
DREGIÐ hefur verið í riðla í
undanúrslit fyrir samnorrænu
stjórnarkeppnina, sem fram fer
í Kaupmannahöfh í apríl á næsta
ári. Keppnin gengur út á það að
líkt er eftir markaðsaðstæðum
fyrir framleiðslufyrirtæki sem
framleiðir tvær gerðir af færa-
vindum fyrir báta. Fyrirtækin
keppa síðan í hveijum riðli fyrir
sig og reyna að öðlast sem mest-
an hagnað. Hvert fyrirtæki getur
verið á allt að þrem mörkuðum,
Islandi, Þýskalandi og á Banda-
ríkjamakarði.
Riðlarnir eru eftirfarandi:
Riðill x:
Alm. Tryggingar hf.
Félagsstofnun stúdenta
Eimskip hf.
Þróun hf.
Olís hf.
Skeljungur hf.
Prentsmiðjan Oddi hf.
Riðill y:
Hewlett Packard
SKÝRR
Iðntæknistofnun Islands
Víðir Finnbogason hf.
Lýsi hf.
Stöð 2
Johan Rönning hf.
Riðill z:
Sparisjóður Hafnarfíarðar
Kaupþing hf.
Nói Síríus hf.
ÍSAL hf.
Smörlíki Sól hf.
Landsbanki íslands
Uppamir (Stúdentalið)
Það fyrirtæki vinnur sem öðlast
mestan hagnað yfir 5 tímabil. AI-
ESEC (Alþjóðasamtök viðskipta-
og hagfræðinema) sér um fram-
kvæmd keppninnar fýrir íslands
hönd, en hún fer fram með sama
sniði á hinum Norðurlöndunum.
Tölvur
Raimagnsleysi veldur
tióniá tölvubúnaði
TÖLVUKERFI nokkurra fyrir-
tækja hlutu skaða af rafínagns-
leysinu sem hijáði landsmenn um
miðjan október. Þau fyrirtæki
sem urðu fyrir tjóni og Morgun-
blaðið heftir haft spurnir af eru
Brunabót, Tollvörugeymslan og
Almennar Tryggingar. Ekki munu
þessi fyrirtæki þó hafa tapað
gögnum, heldur mun helsti skað-
inn felast í vinnutapi.
Guðmundur Örn Ragnarsson for-
stöðumaður tölvudeildar hjá Bruna-
bót sagði í viðtali við Morgunblaðið
að tjón þeirra hefði verið þríþætt. í
fyrsta lagi hefðu seguldiskar í tölvu-
kerfínu skemmst, þá hefðu minnis-
spjöld skaðast og að lokum hefði
tengistykki eyðilagst. Hann sagði að
vinnutapið hjá Brunabót næmi allt
að §órum dögum, en svo illa vildi
til að tölvukerfi þeirra varð fyrir
annari bilun meðan á viðgerð stóð.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins var skaði Tollvörugeymslun-
ar af svipuðum toga pg tjón það sem
varð hjá Brunabót. Hins vegar mun
módald hafa skemmst hjá Almennum
Tryggingum.
L
tt t ^r*ASs&*5'*** i. i. 4*** 11 i-t * Ítjííín * * ** i £ * & *J[-*:* I*•. £ ft« t * *..*.*■*# tm
jBÍKfi 0001 BPidvri & BmÍHÍÍd I i
'ÍTIB8
íTfT9
ÖBÍÍV