Morgunblaðið - 01.11.1988, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988
35
Þingsályktunartillaga um sparnaðarátak:
Peningasparnaður
þyrfti að vera 40-45%
af landsframleiðslu
Vaxtagreiðslur til útlendinga milli 6
og 7 milljarðar króna 1987
„Væri peningalegur sparnað-
ur hér á landi 40-45% af lands-
framleiðslu, i stað rösklega 30%
eins og nú er, væri hann 20
milljörðum meiri. Með þessari
Qárhæð mætti grynnka á erlend-
um skuldum þjóðarbúsins um
fjórðung og létta á vaxtagreiðsl-
um til útlendinga um rúma tvo
milljarða, en þær námu á síðast-
liðnu ári 6-7 milljörðum króna.
Oðrum kosti gæti ríkissjóður
fengið þessa fjárliæð að láni og
gert upp alla skuld sína við Seðla-
bankann og haft ærið fé afgans
i hinn nýja „sjúkrasjóð atvinnu-
veganna“.“
Þannig segir í greinargerð með
tillögu til þingsályktunar um sparn-
aðarátak, sem Friðrik Sophusson
(S/Rvk) leggur fram á Alþingi. Til-
lagan felur „ríkisstjórninni að gera
átak til að efla frjálsan sparnað í
landinu með fræðslu um þá sparn-
aðarkosti sem fyrir hendi eru og
með því að stuðla að nýjum leiðum
til að draga úr eyðslu og hvetja til
sparnaðar".
I greinargerð segir að halli á
ríkissjóði og fjárfestingar umfram
innlendan spamað birtist í við-
skiptahalla og auknum erlendum
skuldum. í það stefni, að óbreyttu,
að erlendar skuldir vaxi enn að til-
tölu við landsframleiðslu. Mikilvægt
er því að efla peningasparnað, m.a.
með því að eyða óvissu vegna yfír-
lýsinga ráðamanna um skattlagn-
ingu fjármagnstekna og breytinga
á verðtryggingu fjárskuldbindinga.
Ella gæti sparifé horfíð úr peninga-
stofnunum eins og á 8. áratugnum.
í greinargerð er og lögð áherzla
á fræðsiu í skólakerfínu um tilgang
og kosti sparnaðar.
Verði tillagan samþykkt „er eðli-
legt“, segir í greinargerðinni, „að
viðskiptaráðuneytið hafi yfirumsjón
með átakinu í samvinnu við fjár-
málaráðuneytið og menntamála-
ráðuneytið og leiti liðsinnis þeirra
sem hafa milligöngu um sparnað
og miðlun fjár“.
___________ Myndin sýnir á hvern veg fyrirhugað er að byggja ráðhúsið við Tjörnina.
Guðmundur H. Garðarsson um stöðvunartillögu á ráðhúsið:
Aðför að Reykjavík og
sjálfstæði sveitarfélaga
Staðsetning- ráðhúss við Tjörnina á aðalskipulagi
frá 1976, sagði Þorvaldur Garðar Kristjánsson
„Meira iyrir minna“:
Útboð
opinberra
rekstrar-
verkefina
„Alþingi ályktar að fela Qár-
málaráðherra í samráði við aðra
ráðherra að gera athugun á því
á hvaða sviðum í ríkisrekstri sé
hagkvæmt að efha til útboða.
Skulu niðurstöður lagðar lyrir
Alþingi í formi skýrslu þegar
að athugun lokinni."
Þannig hljóðar tillaga til þings-
ályktunar, sem Friðrik Sophusson
(S/Rvk) hefur lagt fram. í greinar-
gerð segir að opinberar fram-
kvæmdir hafi lengi verið boðnar
út. Sá háttur hafi í senn flýtt fram-
kvæmdum og sparað umtalsvert
Qármagn. Mun minna hafi verið
gert af því að bjóða út einstök
rekstrarverkefni til einkaaðila þótt
færa megi veigamikil rök að því
að útboð á sérhæfðum verkefnum
séu bæði eðlileg og hagkvæm. í
sumum tilfellum dragi skattaregl-
ur úr áhuga opinberra aðila og
stórfyrirtækja á útboðum.
Aðrar þjóðir hafi hinsvegar auk-
ið útboð á rekstrarverkefnum.
Eðlilegt sé að gerð verði athugun
á hagkvæmni slíkra útboða hér
með það fyrir augum að nýta bet-
ur skattfé borgaranna.
„Með staðfestingu aðalskipu
lags Reykjavíkur frá 1967 var
stigið það skref að ákveða stað-
setningu ráðhúss við norðurenda
Tjarnarinnar, það er sunnan Von-
arstrætis. Á þeim rúmum 20 árum
sem síðan eru liðin veit ég ekki
til þess að Alþingi hafí nokkru
sinni gert athugasemd við þessa
ákvörðun eða mótmælt henni.
Þegar fram fór samkeppni um
gerð og skipulag nýbyggingar [á
vegum Alþingis], samkvæmt
þingsályktun frá 1981, var gert
ráð fyrir ráðhúsi á þeim stað þar
sem það nú er ráðgert."
Þetta sagði Þorvaldur Garðar
Kristjánsson, fyrrverandi forseti
Sameinaðs þings, i umræðu um
tillögu Stefáns Valgeirssonar,
þingmanns fyrir Norðurlands-
kjördæmi eystra, þess efíiis, að
„stöðvaðar verði án tafar fram-
kvæmdir í Reykjavíkurtjörn . . .
og forsetum Alþingis falið að láta
vinna að því fyrir dómstólum að
stöðva framkvæmdirnar þar til
ótvírætt liggur fyrir að fram-
kvæmdirnar séu löglegar", eins
og segir i tillögutextanum.
Lögbrotin yfirskyggja
allt annað
Stefán Valgeirsson, þingmaður
úr Norðurlandskjördæmi eystra fyrir
Samtök um jafnrétti og félags-
hyggju, hefur flutt tillögu til þings-
ályktunar um athugun á lagalegu
réttmæti byggingar ráðgerðs ráð-
húss við Tjörnina í Reykjavík. Tillag-
an gerir ráð fyrir því að þeim tilmæl-
um verði beint til borgarstjórnar að
framkvæmdir verði stöðvaðar án
tafar, ella beri forsetum Alþingis að
vinna „að því fyrir dómstólum að
stöðva framkvæmdir þar til ótvírætt
liggur fyrir að framkvæmdirnar séu
lögmætar".
Stefán telur ráðhússbygginguna
spilla Tjörninni, þrengja að náttúru
og dýralífí, takmarka möguleika
Alþingis til að byggja yfír starfsemi
sína og ganga þvert á lög. Hann lét
í ljós undrun á því að Jóhanna Sig-
urðardóttir, félagsmálaráðherra,
hefði endanlega samþykkt ráðhúss-
bygginguna.
Tiilagan þjappar
Reykvíkingum saman
Ásgeir Hannes Eiríksson
(B/Rvk) kvaðst vera andvígur ráð-
hússbyggingunni „í þijá ættliði".
Hann sagði miðbæinn mora af skipu-
lagsslysum og nefndi m.a. sem dæmi
Morgunblaðshúsið og Seðlabanka-
byggingu.
Hinsvegar væri tillaga Stefáns
Valgeirssonar þannig úr garði gerð,
því miður, að hún þjappaði Reyk-
víkingum saman að baki Davíðs
Oddssonar, borgarstjóra. Hann
hvatti þingheim til að hafna tillögu
Stefáns en veita annarri tillögu, sem
hann myndi mæla fyrir innan tíðar,
brautargengi.
Tillagan vart þinghæf
Guðmundur H. Garðarsson
(S/Rvk) tók undir það að tillaga
Stefáns Valgeirssonar þjappaði
Reykvíkingum saman um byggingu
ráðhúss Reykjavíkur og styrkti stöðu
borgarstjórans. Guðmundur sagði
tillöguna sýna óvild í garð Reyk-
víkinga. Hún feli það í sér að Reyk-
víkingar eigi ekki og megi ekki ráða
því sjálfír, hvort þeir byggi ráðhús
eða hvem veg þeir standi að slíkri
byggingu. Tillagan er atlaga að
sjálfstæði sveitarfélaga. Það sem þó
er alvarlegast er það, að þingmaður-
inn vill beita valdi Alþingis gegn
hagsmunum Reykvíkinga og sjálfsá-
kvörðunarrétti 'sveitarfélags. Hann
vill ónýta lögmætar ákvarðanir
borgarstjómar og koma í veg fyrir
lögmætar framkvæmdir. Um þetta
mál var nokkur ágreiningur, en
ákvörðun var tekin með lögmætum
hætti.
Þessvegna er þingsályktunartil-
lagan furðulegt plagg, einsdæmi í
sögu Alþingis, ólýðræðisleg, og vart
þinghæf. Varðandi þetta atriði
nefndi þingmaðurinn til ákvæði til-
lögunnar um að forsetar þingsins
skuli vinna að því fyrir dómstólum
að stöðva löglega ákvarðaðar fram-
kvæmdir sveitarfélags. Það er eins-
dæmi í sögu Alþingis að leggja til
að dómstólum sé stefnt með þessu
móti á tiltekið sveitarfélag. Enn-
fremur nefndi Guðmundur þau efnis-
atriði í greinargerð, sem felast í stað-
hæfingu um meint lögbrot. Þær að-
dróttanir varði ekki aðeins borgar-
stjórn Reykjavíkur, heldur ekki síður
Jóhönnu Sigurðardóttur, félags-
málaráðherra, sem veitt hefur tilskil-
in leyfi, svo ráðhússbyggingin megi
rísa.
Guðmundur mótmælti harðlega
þeim ásökunum á hendur borgar-
stjórn og borgarstjóra, sem felizt í
tillögunni. Hann hvatti þingheim til
að hrinda þessari ógeðfelldu aðför
að sjálfstæði sveitarfélaga.
Leyfið skal óhaggað standa
Jóhanna Sigurðardóttir, fé-
lagsmálaráðlierra, vitnaði til úr-
skurðar síns, sem félagsmálaráð-
herra, frá 29. júní sl., þess efnis,
að byggingarleyfí fyrir ráðhúsi við
Tjömina skuli óhaggað standa.
Ekkert það hefur komið fram,
síðan þessi úrskurður var gefinn,
sagði ráðherra, sem gefur tilefni til
að breyta niðurstöðunni. Málinu er
lokið af hálfu ráðuneytisins, sagði
ráðherra.
Ráðherra sagði hinsvegar að
ráðuneytið hafi tvisvar orðið að fella
úr gildi veitt byggingarleyfi í
Reykjavík. Það út af fyrir sig bendi
til þess að borgaryfirvöld þurfi að
endurskoða starfshætti sína í skipu-
lagsmálum. Ráðuneytið hafí að
þessu leyti talið ástæðu til að gera
athugasemdir við vinnubrögð borg-
aryfirvalda, sem á stundum hafí
vakið undrun, sagði Jóhanna.
Alþingi flutt á
Fljótsdalshérað?
Hjörleifúr Guttormsson
(Abl/Al) sagði félagsmálaráðherra
gefa skipulagsyfirvöldum
Reykjavíkur kléna einkunn.
Hjörleifur taldi að borgaryfirvöld
hefðu þrengt að starfsemi þingsins
með ákvörðunum og framkvæmdum
í ráðhússmálum sínum, með því að
troða niður ráðhúsi við Tjörnina.
Við þurfum að skoða það í fullri
alvöru, sagði Hjörleifur efnislega,
hvort ekki á að flytja starfsemi
þingsins í eitthvert vinsamlegra
umhverfí en hér er til staðar í sveit-
arfélaginu Reykjavík. Hann lét að
því liggja að flytja mætti Alþingi 5
annan landshluta, til dæmis austur
á Fljótsdalshérað. Þannig mætti og
rétta við að nokkru skertan hluta
landsbyggðar gagnvart Reykjavík.
Fáheyrt ofstæki
Geir Haarde (S/Rvk) sagði hug-
leiðingar Hjörleifs Guttormssonar
um að flytja Alþingi austur á Fljóts-
dalshérað vegna þess að lögleg borg-
aryfirvöld hafi tekið lýðræðislega
ákvörðun um byggingu ráðhúss,
sýna fáheyrt ofstæki.
Sama mætti og segja um tillögu-
flutning Stefáns Valgeirssonar, sem
fæli í sér að beita sveitarfélagið
Reykjavík ofbeldi.
Geir sagði að Stefán Valgeirsson
gæti, teldi hann við hæfi, farið með
þetta mál fyrir dómstóla eða flutt
frumvarp til laga um að banna Reyfcf'
víkingum að byggja ráðhús. Það
væri í raun það sem fælist í málflutn-
ingi hans.
Hann sagði og þessi málabúnaður
allur væri Alþingi ekki samboðin,
væri reyndar þinginu til skammar.
Ákvörðun frá 1967
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
(S/Vf) , fyrrverandi forseti Samein-
aðs þings, sagði m.a. að með stað-
festingu aðalskipulags Reykjavíkur
1967 hafi staðsetning ráðhúss við
Tjörnina þegar verið ákvörðuð. Al-
þingi hafí aldrei gert athugasemd
þar við, né einstakir þingflokkar eða
þingmenn.
Þorvaldur Garðar sagði jafnframt
að þegar fram fór samkeppni um
nýbyggingu Alþingis 1981 hafi verið
gert ráð fyrir ráðhúsi Reykjavíkur-
borgar á þeim stað þar sem það er
nú ráðgert, án athugasemda frá
þingheimi.
Það sem næst gerist í þessu máli,
að því er Alþingi varðar, er það, að
því berst bréf þar sem því er gefínn
kostur á því að tjá sig um fyrir-
hugaða ráðhússbyggingu á lóðinni
nr. 11 við Tjarnargötu.
Forsetar leituðu m.a. álits húsa-
meistara ríkisins, en embætti hans
hefur umsjón með húseignum Al-
þingis. Húsameistari gaf það álit að
ráðhúsið og umhverfi þess væru í
samræmi við skipulag Alþingisreits-
ins.
Varðandi grenndarrétt sagði
húsameistari:
„Ekki verður þvi annað séð en að
hagsmunir Alþingis á lóðum þess
og reitum milli Vonarstrætis, Tjarn-
argötu, Kirkjustrætis og Templara-
sunds séu tryggðir og bygging ráð-
húss á nágrannalóð sunnan Vonar-
strætis hafi engin veruleg áhrif á
hugmyndir Alþingis um nýtingu lóða
sinni. Núverandi tillaga að ráðhúsi
er öllu hagstæðari fyrir hagsmuni
Alþingis en vænta mátti eftir stað-
festingu aðalskipulags Reykjavíkur
1967. Undirritaður telur því ekki að
Alþingi hafí sérstaka ástæðu til þess
nú að gera athugasemd við byggingu
nýs ráðhúss við norðurenda Tjarnar-
innar í Reykjavík".
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
sagði að lokum að tillaga Stefáns
Valgeirssonar væri naumast þing-
hæf.
Umræðunni lauk ekki og verður
væntanlega fram haldið fljótlega.