Morgunblaðið - 01.11.1988, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988
41
Ljáðu mér eyra
eítir Hilmar Biering
Gamalt orðtak segir „ljáðu mér
eyra“ ef einhver er beðinn að hlusta.
Þessi orð fá tvöfalda merkingu þeg-
ar þeim er beint til Heyrnar- og
talmeinastöðvar íslands og f]ár-
málayfirvalda ríkisins. Heyrnar-
stöðin hefur léð mörgum heymar-
tæki svo að þeir megi heyra en fjár-
málayfirvöld ættu að ljá heymar-
skertum eyra og hlusta á kvartanir
þeirra.
Það gerir það enginn að gamni
sínu að ganga með heyrnartæki en
mörgum er það ill nauðsyn til þess
að geta notið samneytis við aðra
og gegnt störfum sínum. í fimmtu
grein laga nr. 35/1980, sem Al-
þingi setti, segir að Heyrnar- og
talmeinastöð Islands skuli „annast
útvegun á hverskonar hjálpartækj-
um fyrir heymarskerta og málhalta
sem yfirlæknir stofnunarinnar úr-
skurðar nauðsynleg". Til þess að
leggja áherslu á þessi orð er einnig
rétt að vitna til reglugerðar Heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneyt-
isins nr. 160, sem gefin var út 17.
mars 1986, en hún hefst á þessum
orðum: „Allir landsmenn skulu eiga
rétt á heymartækjum."
Nú mundi einhver ætla að vel
væri fyrir öllu séð með svo ótvíræð-
um lögum og reglugerð en því mið-
ur fer því víðs fjarri þar sem í þessu
eins og svo mörgu öðru em pening-
ar afl þess sem gera skal og fé
skortir til þess að standa við þessi
fyrirheit. Skjólstæðingar Heymar-
og talmeinastöðvar íslands líða fyr-
ir fjárskort stofnunarinnar og þurfa
að bíða jafnvel mánuðum saman
eftir heymartækjum sem Innkaupa-
stofnun ríkisins getur ekki leyst úr
tolli vegna fjárskorts.
í ijárlögum ársins 1988 em rúm-
ar 40 milljónir króna ætlaðar
Heymar- og talmeinastöð íslands
og af þeirri upphæð em ætlaðar
18 milljónir og 400 þúsund til
tækjakaupa fyrir einstaklinga, sam-
tök og heimili. í sumum tilfellum
greiðir ríkissjóður hluta af verði
heymartækja og í öðmm tilfellum
greiða þeir sem tækin þurfa að
nota fyrir þau að fullu. Vegna þeirra
Hilmar Biering
„ Skj ólstæðingar Heyrn-
ar- og talmeinastöðvar
Islands líða fyrir §ár-
skort stofiiunarinnar
og þurfa að bíða jafiivel
mánuðum saman eftir
heyrnartækjum.“
heymartækja sem ríkissjóður greið-
ir niður að hluta eða öllu ber ríkis-
sjóður vissulega nokkum kostnað.
En fyrir þessar 18 milljónir hljóta
að fást mörg tæki svo að ótrúlegt
er að fjárveitingin sé uppurin og
jafnvel þó að svo væri ætti fjármála-
ráðherra að sjá sóma sinn í þvi að
leysa úr vanda heyrnarskertra.
„Guð gaf mér eyra, svo að ég
mætti heyra,“ segir í þulunni en
þessi guðsgjöf er því miður gölluð
hjá mörgum. Ef heymartæki getur
bætt úr þessum galla ætti fjárskort-
ur ekki að standa þar í vegi þótt
lofsverður spamaður og aðhald í
opinbemm rekstri séu orð dagsins.
Höfitndur er deildarfulltrúi ÍFjár-
mála-og hagsýsludeild Reylyavik-
urborgar.
DRÁTTARVÉUN
-súmestselda
TÖLVUSKÓLI GJJ
Námskeið
LOTUS1-2-3
15.- 18. nóv., kl. 13.00 -17.00
Skráning og upplýsingar i síma 641222
GÍSLI J. JOHNSEN
Nýbýlavegi 16, Kópavogi
Sími 641222
SPARAÐU ALLT AB
60% MED ÞVÍ AD
REISA ALDEK
SKEMMU
Ef þú þarft að byggja skemmu, t.d. fyrir véla-
eða birgðageymslu, þá skaltu kynna þér
Aldek. Aldek hús eru miklu ódýrari en
skemmur sem byggðar eru samkvæmt hefð-
bundnum byggingaraðferðum. Þrátt fyrir það
slærðu ekki af kröfunum því að Aldek hús
þola mjög vel verstu veður, eru auðveld i
uppsetningu og efnið í þeim er eldþolið. Góð
reynsla hefur hlotist af Aldek á íslandi.
Sími: 91-686644
Stjórnunarfélag íslands
Ánanaustum 15, Reykjavik, sími91-621066.
FrmleMustjérnmog
kostméar
eftirlit
(meðtöim)
CB
62&
Er fjármagnskostnaðurað sliga
fyrirtækið?
Einn stærsti liðurinn í veitufé framleiðslufyrir-
tækja erbirgðir. Háir raunvextir krefjast virk-
ara eftirlits með birgðahaldi og framleiðslu til
að auka veltuhraða birgða og losa um hluta
afþví fjármagni sem í þeim er bundið.
Markmið þessa námskeiðs erað kenna undir-
stöðuatriði birgða- og framleiðslustýringar og
kynna nokkrar helstu aðferðir sem beitt er.
Fjallað verður sérstaklega um það sem lýtur
að tölvuvæðingu á þessu sviði.
Efni:
O Þáttur birgðaeftirlits og framleiðslustjórnunar
við heildarstjórnun fyrirtækis.
O Undirbúningur skipulegs birgðahalds.
O Birgðaákvarðanir við mismunandi skilyrði.
O Áætlanir um efnisnotkun og innkaup (Material
requirements planning - MRP)
O Tölvuvæðing framleiðslu- og birgðastýringar.
Þátttakendur: Námskeiðið erætlað stjórnendum
framleiðslufyrirtækja, framleiðslustjórum og öðrum
starfsmönnum þeirra sem bera ábyrgð á þessum
þætti í starfseminni.
Lolðbolnendur:
Ingjaldur Hannibals-
son framkvæmdastjóri
Útflutningssráðs Is-
lands og Gunnar Ingi-
mundarson, viðskipta-
fræðingur, fram-
kvæmdastjóri Hugar
hf.
Tíml og staður:
8.-11. nóvemberkl. 8.30-12.30
íÁnanaustum 15.
það hressir
7
J
r
j
j