Morgunblaðið - 01.11.1988, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988
43
Morgunblaðið/Ingiberg J. Hannesson
Unnið er að því af miklum krafti að fullgera íþróttahúsið á Laugnm
og gera það tilbúið til notkunar.
Dalasýsla:
Nýtt íþróttahús á Laug-
um að verða fullbúið
Hvoli, Saurbœjarhreppi.
UNNIÐ er hörðum höndum við að fullgera iþróttahúsið á Laugum
í Dalasýslu. Er lokafrágangur verksins vel á veg kominn og ráðgert
er að hægt verði að taka húsið í notkun í byiýun desember.
Um er að ræða íþróttahús fyrir
Laugaskóla, sem er heimavistar-
skóli fyrir sjö sveitarfélög í Dölum,
og eru nemendur skólans nú 100
talsins. Léleg íþróttaaðstaða hefur
hingað til verið þar en með tilkomu
þessa nýja húss mun ástandið batna
til mikilla muna í þessum efnum.
Jafnframt er reiknað með því að
húsið verði til notkunar fyrir
íþróttaaðila í Dölum og aðra áhuga-
menn, enda byggt með það fyrir
augum að vera vettvangur íþrótta-
iðkana fyrir héraðsbúa alla eftir því
sem aðstæður leyfa.
Iþróttasalurinn er 405 fermetrar
að stærð, búningsaðstaða verður
góð og er hún ætluð jafnframt fyr-
ir útisundlaug sem áformað er að
byggja við hliðina á íþróttahúsinu
í framtíðinni. Til er á staðnum nær
sextíu ára gömul sundlaug, sem
notuð er enn, og var hún byggð á
sínum tíma fyrir forgöngu áhuga-
manna um íþróttaiðkun í héraði og
Ungmennasambands Dalamanna.
En þörf er á endurbótum í þessum
efnum, sem þó munu bíða fyrst um
sinn meðan núverandi sundlaug
gegnir sínu hlutverki.
Miklar vonir eru bundnar við til-
komu nýja íþróttahússins og nú sjá
menn sem sé hilla undir lokaáfanga
verksins. Verktaki þessa áfanga er
Agúst Magnússon í Búðardal. Arki-
tektar hússins sem og annarra
bygginga flestra á Laugum eru
þeir Ormar Þór Guðmundsson og
Ómólfur Hall.
- IJH
TOLVUSKEYTING
MEÐ
CROSFIELD
MYNDAMÓT HF
Guðlaugur Eyjólfs-
son — Afmæliskveðja
Séð heim að skólasetrinu á Laugum í Sælingsdal. Þar eru nú við
nám hundrað nemendur sem búa í heimavist skólans.
í dag, 1. nóvember, er 70 ára
Guðlaugur Eyjólfsson, Akraseli 37,
Reykjavík. Hann fæddist 1. nóvem-
ber 1918 í Merkinesi Höfnum, Gull-
bringusýslu. Yngstur 8 barna þeirra
heiðurshjóna Helgu Gísladóttur og
Eyjólfs Símonarsonar. A yngri
árum var Guðlaugur til sjós á
síldveiðum og var margar vertíðir
í sinni heimabyggð, Vestmannaeyj-
um, og víðar um landið. Snemma
beygist krókurinn. Guðlaugur er
dagfarsprúður, velvirkur, giaður og
hefur komið mörgu góðu til leiðar,
enda er hann elskaður og virtur af
öllum sem hann þekkja.
Guðlaugur Eyjólfsson kom til
Reykjavíkur árið 1946 og hefur
búið þar síðan. Eiginkona Guðlaugs
er sæmdarkonan Margrét S. Jóns-
dóttir frá Stykkishólmi, dóttir hjón-
anna Katrínar Guðmundsdóttir og
Jóns Sveinbjörns Péturssonar. Börn
þeirra hjóna Guðlaugs og Margrétar
eru tvö, Helga Eygló, gift Reyni
Garðarssyni, og Jón Sveinbjörn,
kvæntur Jóhönnu Bjarnadóttur.
Barnabörn Guðlaugs og Margrétar
eru 6, allt myndar- og efnileg börn
og eins og að líkum lætur eru þau
í miklu uppáhaldi hjá afa og ömmu,
enda er stutt á milli húsanna.
Guðlaugur hefur verið starfs-
maður hjá sælgætisgerðinni Opal í
25 ár og hafa þeir sagt mér báðir
framkvæmdastjórarnir í Opal, Jón
Guðlaugsson og núverandi fram-
kvæmdastjórahjón Anna Lilja
Gunnarsdóttir og Einar Olafsson,
að Guðlaugur væri ómissandi
starfsmaður, vissi allt og væri
ábyggilegur og orðheldinn.
Ertu íbílahugleiðingum?
/’II.ÆifOZx
'am,
SKUTBÍLL
Daglegt amstur gerir ólíkar
kröfurtil bifreiða. Lada
station sameinar kosti fjöl-
skyldu- og vinnubíls, ódýren
öflugurþjónn, sem mælir
með sérsjáífur.
Veldu þann kost,
sem kostar minna!
verð:
23l-Ooo,
Opið 9-18,
laugard. 10-16.
Bifreiðarog
landbúnaðarvélar hf.
Ármúla 13,
Suðurlandsbraut 14.
Sími 681200.
Ég veit að, það munu margir
senda afmælisbarninu góðar
heillaóskir á þessum merku tíma-
mótum í lífi hans því afmælisbarnið
sjálft gerir alla sem honum kynnast
að góðu og vel þenkjandi fólki.
Guðlaugur og Margrét eru nýkomin
frá Spáni.
Við hjónin óskum Guðlaugi Eyj-
ólfssyni og konu hans til hamingju
og allra heilla í nútíð og framtíð
og að niðjar þeirra lifi heilir og
lengi.
Þess óskar
Regína Thorarensen
Guðlaugur er að heiman.
Tölvuskóli GJJ
NÁMSSKRÁ
HAUSTIÐ 1988
KL. 830-1250
KL. 13°°-1700
KL. 9°°-1600
NÁMSSKEIÐ KLST. X^T. Xr NÓV. DES.
tölvuþjAlfun 60 \5.-23.n v 3.-21. 7.-25.
crunnnAmskeið 6 2&V 14. 19.
DOS STÝRIKERFI 1 12 27-2&V 18-\^ 15.-16 20.-21.
DOS STÝRIKERFI 2 6 11.
OS/2 STÝRIKERFI 18 2.-4.
WINDOWS 6 23 \ 25.
WORDPERFECT 16 \5.-8. 'Xo-'iS' 7-10. 12.-15.
WORDPERFECT frh. 12 2bV^8. 5.-7.
WORD 16 19.-2V 21.-24.
WORD frh: 12 Sjl.- -2. 8.-9.
WORKS 12 \21. 8.-9
PLANPERFECT 12 15.-1&V 17.-18.
MULTIPLAN 12 \j2.—14. . 23.-25.
MULTIPLAN frh. 12 28.-30.
EXCEL 16 27.-3Í>V 31.-\ -3
EXCEL frh. 16 12.-15.
LOTUS 123 16 \30. 15.-18.
LOTUS 123 frh. 12 5.-7.
PR0JECT 12 28.-29.
FRAMEWORK 20 \ 12.-16.
VENTURA PUBLISHER 20 12.--\ 7.-11.
DBASE 16 \20.-23 28,- -1.
DBASE FORRITUN 16 l\l. 19.-22.
CACNADlS 16 25.-2\
Opus fb 6 12. \$4. 5.
Opus vm 6 X \ 6.
ÖPUS BI/SALA 6 \ 26 7.
ÓPUS INNFL. 6 \ J/
Allar nánari upplýsingar eru
veittar f síma 641222.
Athugið möguleika ykkar á að sækja
um styrk fyrir námskostnaði úr
starfsmenntunarsjóði, ef þið
tilheyrið stéttarfélagi.
%
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
Hverfisgötu 33. sfmit 62-37-37
GISLI J. JOHNSEN M1
Nýbýlavegi 16, Kópavogi Sími 641222
ítcilsfcar stcílv’örur
Gott verö
SILFURBUÐIN
KRINGLUNNI—REYKJAVÍK SÍMI 689066