Morgunblaðið - 01.11.1988, Page 45
45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988
Minning:
JÓN FRIÐRIK
MA TTHÍASSON
Fæddur 23. ágúst 1901
Dáinn 22. október 1988
Þegar tengdafaðir minn leggur
frá landi í hinsta sinn þá leitar
margt á hugann. Mín fyrstu kynni
af Jóni Friðrik voru veturinn 1962,
ég var vð nám í Noregi og mér var
send til afþreyingar bókin Hús
málarans. Jón var samtímis íslensk-
um listamönnum í Kaupmannahöfn
um 1930 í þeim mikla lífsins ólgu-
sjó.
Um jólin 1964 kynnti Bella mig
fyrir Jóni sjálfum. Náið samband
tengdasonar og tengdaföður fylgir
oft farsælu hjónabandi. Pipar-
sveinninn yfirgefur hús sinna for-
eldra og gömlu félagana en fær
einn allsheijar félaga með góðu
samþykki makans. Þannig minnist
ég Jóns.
Jón var fæddur i Haukadal í
Dýrafirði 23. ágúst 1901 og var
9. barn af 15 börnum Marsibil Ól-
afsdóttur og Matthíasar Ólafssonar
alþingismanns. Eftir fermingu flutti
hann til foreldra sinna í Reykjavík
en kenndi einn vetur í Keldudal í
Dýrafirði eftir Hvítárbakkaskóla.
1917 og frostaveturinn 1918 gekk
Jón á Hvítárbakkaskóla, lærði síðan
loftskeyti og var farmaður yfir
þijátíu ár. í Halaveðrinu mikla var
Jón í brú b.v. Ara og tilkynnti það
skip í höfn. Eftir að Gullfoss gamli
var kyrrsettur í Kaupmannahöfn í
byijun stríðs komst Jón um Petz-
amo til Islands og var í siglingum
öll stríðsárin á skipum Eimskipafé-
lags íslands. Ég nálgaðist Jón alltaf
með virðingu vegna þessarar miklu
lífsreynslu hans.
Jón kvæntist 29. janúar 1927
eftirlifandi konu sinni, Jónínu Jó-
hannesdóttur, og eru 10 böm þeirra
öll á lífi. Þau eru: Jóhannes Helgi,
kvæntur Margréti Guttormsdóttur,
Björg Sigríður, gift Jóni Guðmunds-
syni, Hlega Elsa, gift Birni Bjart-
marz, Hrönn, gift Grími Magnús-
syni, Matthildur, gift Bolla Gústafs-
syni, Marsibiþ gift Ferdinand Ferd-
inandssyni, Ölafur, kvæntur Jó-
hönnu Einarsdóttur, Ingibjörg, gift
Ingólfi Hjartarsyni, Elín, gift Elíasi
B. Jónssyni og Matthías Jón,
kvæntur Maríu Erlingsdóttur.
Af fimmtíu og þremur niðjum
hans er einn látinn. Þetta mikla
bamalán var sá auður sem var hon-
um efst í huga. Hann heilsaði hveij-
um niðja með sama áhuga, ekki var
verra að nafni gæti verið á ferð-
inni. Þegar barnið fór að halda
höfði var spiladósin trekkt upp og
trallað með hinn nýja fjölskyldu-
meðlim, þar til nýr tók við.
Til að framfleyta þessari stóru
fjölskyldu reyndi mikið á sjómanns-
konuna, en oft urðu úrræði Jóns
einnig þekkt. Ég hef rekist á þá
sögu að Jon hafi látið fjögur böm
af fimm leika sér í gamla kirkju-
garðinum þegar hann leit á nýja
leiguíbúð við Sólvallagötu. Hús-
næðið fékk þegar hann gat um
hvar börnin væm.
Gísli Josepsson,
Isafírði — Minning
Fæddur 22. mars 1942
Dáinn 12. október 1988
Þann 22. október fór fram útför
föður okkar, Gísla Jósepssonar, frá
Isafjarðarkapellu. Okkur langar til
að minnast hans.
Gísli var fæddur 22. mars 1942
á ísafirði, sonur hjónanna Sigríðar
Gísladóttur og Jóseps Hálfdánar-
sonar. Faðir okkar ólst upp í stómm
systkinahópi en þau systkinin vom
8. Þau em Guðbjörg, sem var
tvíburi á móti Gísla, Kristín, Jó-
hanna, Þórður, Svanhildur, Fjóia
og Jósep en hann lést mjög ungur.
Heimili afa og ömmu var íslenskt
alþýðuheimili og skiptust á skin og
skúrir eins og á svo mörgum öðmm
alþýðuheimilum. Sorgin barði að
dymm föður okkar er faðir hans
lést 1962 aðeins 49 ára, og enn
einu sinni er móðir hans lést 1967.
Faðir okkar fór snemma að vinna
fyrir sér 15 ára gamall fór hann
að vinna í Félagsbakaríinu, þar sem
hann lærði bakaraiðn,. síðan vann
hann um skeið í Gamla bakaríinu.
Svo lá leið hans á sjóinn og var
hann matsveinn á Páli Pálsyni frá
komu hans til Isafjarðar og til árs-
ins 1984. Vann hann stuttan tíma
í landi en gerðist svo matsveinn á
Víkingi III frá ísafirði og var þar
til að hann lést.
Faðir okkar var handlaginn mjög
og var sama hvað hann snerti á,
hann virtist geta flest það sem hann
tók sér fyrir hendur. Hann var snill-
ingur við "matargerð, saumaði á
saumavél og vélar alls konar gat
hann gert við. Hann var mjög góð-
ur og skilningsríkur faðir, sem við
gátum leitað til hvenær sem var
og hvar sem var. Hann átti alltaf
einhveija lausn á öllu.
Árið 1963 kvæntist hann móður
okkar, Önnu Ingimarsdóttur, og
hófu þau búskap í Fjarðarstræti 21,
en fluttu síðan í Hrannargötu 3,
þar sem þau bjuggu með afa okk-
ar. Við systkinin erum ijögur. Jósep
fæddur 9. desember 1962, og á
hann eina dóttur Hugrúnu. Guð-
björg fædd 7. apríl 1965, býr hún
með Stefáni Tryggvasyni og eiga
þau eina dóttur, Guðrúnu. Sigríður
fædd 6. október 1967, býr hún með
Grétari Björgvinssyni á Flateyri.
Ólöf fædd 13. febrúar 1971, hún
býr í foreldrahúsum.
Við kveðjum pabba með hjartans
þökk og söknuð í hjarta. Við hitt-
umst öll í landinu fyrirheitna.
Eg átti svo gott að eiga þig
sem allt vildir gera fyrir mig.
Ef allt í heiminum breyttist, brást,
þín breyttist þó aldrei föðurást.
Þú íyrirgafst öll mín bamabrek,
þín biðlund og hógværð gaf mér þrek.
(Úr ljóðmælum V-íslendingsins Jónasar A.
Sigurðssonar)
Við viljum þakka öllum þeim sem
þátt tóku í leitinni að föður okkar.
Guð launi ykkur öllum.
Systkinin Hrannargötu 3.
Pétur Grétar
Steinsson — Minning
'iiomastofa
Friðfinm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
til kl. 22,- elnnig um helgar.
Skreytingar við Öll tilefni.
Gjafavörur.
Fæddur 31. mars 1919
Dáinn 4. október 1988
Þegar æskuárin eru rifjuð upp,
þá er einn staður mér alveg sérstak-
lega minnisstæður, staður sem iðaði
af lífi og fjöri, en það var Áhalda-
hús vita- og hafnarmála í Kópavogi.
Nú er hann farinn á betri stað
en minningin situr eftir, minning
um yndislegan mann sem stráði
góðvild í kring um sig.
Ég og fjölskylda mín sendum
ástvinum hans, okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Helga Hilmarsdóttir
Steinefnaverksmiðjan
Helluhrauni 14, sími 54034,
222 Hafnarfjörður
Þær eru góðar minningarnar,
sem gleymast seint, að fara í vinn-
una til pabba og hitta alla karlana
sem unnu þar. Þar var einn maður
sem mér fannst alveg sérstakur,
hann Pétur Steins. Alltaf var mikill
hlátur í kring um Pétur en hann
gat sagt svo skemmtilega frá og
gat séð spaugilegu hliðina á öllum
málum. Oft kom hann á heimili
foreldra minna og þá sótti maður
að fá að vera með og hlæja en aldr-
ei var það á kostnað annarra.
Legsteinar
HARGAR GERÐIR
Mmorex/Gmít
Sjálfstæðisbarátta Jons var hörð
þar sem hann var enginn jábróðir,
sósíalisti og aristokrat. Hann var
launamaður en enginn launþegi og
barðist sem slíkur fyrir verðgildi
lífs sín. Hriflu-Jónas móðgaði hann
fyrir lífið að kalla áhættufé sjó-
manna hræðslupeninga. 1944 fluttu
þau hjón í sína eigin íbúð. Átthag-
amir voru Jóni kærir svo unun var
að ferðast með honum um Vest-
fírði. Hann hafði mikla ánægju af
að ferðast og var skemmtilegur
ferðafélagi. Þegar ferð var ákveðin
var hún undirbúin svo sem um
meiri háttar leiðangur væri að
ræða. Endurminningum var haldið
við eftir velheppnaða ferð. Hveijum
stað var tengd saga og Jón hafði
yndi af því að segja sögur.
Ein af eftirminnlegri ferðum var
ferð á Djúpavog þjóðhátíðarárið.
Bifreiðin var sú lægsta undir öxul
í þá tíð. en á heimleið hófst ferð
án fyrirheita um Fjallabaksleið. Frá
Landmannalaugum runnu allar
leiðir út í sandinn á hálendinu. Þeg-
ar til byggða var komið með nafn-
ana, barnið og gamla manninn,
blasti við skilti að Dómadalsleið
væri ófær. Vegagerð ríkisins merkti
annan endann en ferðafélagamir
sigldu heim eins og þeir hefðu losað
skip sitt sjálfír af strandstað.
Nú er lífsleið Jon á enda og tími
að þakka fyrir sig. Heilsan var búin
en andlegt þrek óbrotið. Jón hrædd-
ist mest að brotna andlega, en dauð-
inn hræddi hann ei. A hinsta degi
gekk hann frá pöntun sinni í KRON
og kvaddi. Hann hafði allt á hreinu
eins og Sverrir konungur forðum.
Megi Jón hvíla í friði.
Ferdinand
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
MAGNÚSÍNA JÓNSDÓTTIR
Njálsgötu 54,
verður jarösungin frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 2. nóvember
kl. 15.00.
Sigurður Runólfsson, Fjóla Ágústsdóttir,
Runólfur Runólfsson, Margrét Jóna Finnbogadóttir,
Vilborg Runólfsdóttir, Guðmundur H. Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega samúðarkveðjur og hlýhug við andlát og jarðar-
för eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu,
GUÐMUNDÍU BERGMANN,
Keldulandi 21.
Jón Franklin,
Sigrún Jónsd. Franklín, Úlfar Guðmundsson,
Rósamunda Jónsd. Franklín, Þórarinn Andrésson
og barnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför bróður okkar,
SIGURÐAR ELÍASSONAR,
garðyrkjumanns,
fró Saurbæ, Holtahreppi.
Ingibjörg Elíasdóttir,
Þórður Elíasson,
Hjörtur Elfasson,
Hjaltl Elfasson.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför eiginmanns
míns, -föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
HERBERTS PÁLSSONAR (HEINBERT BETHKE),
Álfheimum 56.
Svava Björnsson,
Ingvar Herbertsson, Svanborg Danfelsdóttir,
Örn Herbertsson, Lilja Þorbergsdóttir,
Úlfar Herbertsson, Guðrún Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Færum öllum innilegar þakkir, sem heiðruöu minningu
ÓSKARS SIGURÐSSONAR
bónda,
Hábæ,
Þykkvabæ,
og vottuðu okkur samúð við fráfall hans.
Ágústa Árnadóttir,
Halldóra Óskarsdóttir, Tómas Guðmundsson,
Jóna Birta Óskarsdóttir, Gfsli Jónsson,
Sigurlfn S. Óskarsdóttir,
Ragnhildur Óskarsdóttir, Svavar Guðbrandsson,
Elsa Tómasdóttir, Vatdimar Jónsson.
Lokað
í dag þriðjudag frá kl. 13.00-18.00 vegna jarðarfarar
ÁGÚSTAR B. BJÖRNSSONAR.
Scanex hf.