Morgunblaðið - 01.11.1988, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988
fclk f
fréttum
GARRÍ KASPAROV
rr
Keypti föt á kærustuna sem
býr í Moskvu
Daginn áður en Garrí Kasparov
yfirgaf landið eftir frækinn
sigur á Heimsbikarmóti Stöðvar 2
fór hann í skoðunarferð til Þing-
valla, Laugarvatns og Hveragerðis
í fylgd Óttars Felix Haukssonar,
aðstoðarframkvæmdastjóra móts-
ins. Á Þingvöllum hitti heimsmeist-
arinn sr. Heimi Steinsson þjóð-
garðsvörð að máli og ræddu þeir
dijúga stund um sögu og trúmál.
Kom í ljós að heimsmeistarinn er
vel að sér í þeim fræðum ekki síður
en í skákfræðunum.
Þegar í bæinn var komið, var
farið í íslenskan heimilisiðnað þar
sem skákmeistarinn keypti föt á
unnustu sína í Moskvu og móður
sína í Bakú. Hann varð sér einnig
úti um forláta fóðruð leðurstígvél
fyrir vetrarkuldana í Sovétríkjun-
um. Kasparov keypti líka smærri
gjafír handa bömum ættingja og
vina og nemendum í skákskóla
sínum í nágrenni Moskvu.
Að skilnaði gaf heimsmeistarinn
Óttari Felix dýrindis skáktölvu sem
þakklætisvott fyrir aðstoð á meðan
hann dvaldist hérlendis. Heims-
meistarinn gat þess einnig að ísland
væri sérlega hentugur vettvangur
heimsmeistaraeinvígis. Þess _er því
e.t.v. ekki langt að bíða að íslend-
ingar fái að njóta snilldar hans á ný.
Jens Ormslev
Heimsmeistarinn Garrí Kasp-
arov (t.v.) og Óttar Felix Hauks-
son, aðstoðarframkvæmdastjóri
Heimsbikarmóts Stöðvar 2.
I
Litið á
ljós-
mynd-
arann
Hún Emily litla
Evans fékk að
fara með mömmu
sinni á tískusýningu
sem haldin var í góð-
gerðarskyni. Móðirin
var ein sýningar-
stúlkna en allar eru
þær húsmæður í Eng-
landi. Myndin er tekin
baksviðs þar sem
skipt er um klæðnað
og mátti sú stutta til
með að gægjast milli
fótleggjanna, á ljós-
myndarann.
Sylvester Stallone
með nýja kærustu
Slá margumtalaði Sylvester
Stallone hefur löngum sést
með langlegggjuðum ljóskum. Ný-
lega gerði hann hlé í kvennamálum
en það hefur nú spurst út að aftur
sé hann kominn á kreik. Jennifer
Flavin heitir stúlkan sem heimsæk-
ir hann oftar en aðrar og sést með
honum opinberlega. Hún er sögð
líkjast valkyijunni Brigitte Nielsen
talsvert í útliti en ekki í skapgerð.
Það er einnig sagt að hún sé ekki
ein af þeim mörgu sem hafa einkum
hrifíst af auðævum hans og frægð
og hafi Stallone fljótlega komist að
því að konan sé einlæg í ást sinni.
Það hefur lengi verið vitað að ekki
sé það tekið út með sældinni að
vera tröllríkur og frægur þegar
ástamálin eru annars vegar. Á
myndinni sést parið og sonur Stallo-
nes af fyrsta hjónabandi, Sage, 12
ára gamall.
GÍRAFFAKÓNAN
Gæludýrin sem menn
eiga og binda ástfóstri
við eru af ýmsu tagi. Al-
gengara er að menn kjósi
fremur að hafa kött en
gíraffa, af skiljanlegum
ástæðum. Leslie nokkur
Melville sem býr í Kenya,
Afríku er hinsvegar mjög
hrifín af gíröffúm. Hún
gengur undir nafninu
„Gírafiakonan" en hún á,
ásamt eiginmanni sínum,
nokkur af þessum hálslöngu
dýrum sem þau hafa á eigin
lóð við hús sitt. Hún gefúr
þeim að borða af annarri
hæð hússins og á myndinni
má sjá eftirlætisdýrið, hana
Daisy, þakka húsmóður
sinni fyrir matinn!
BRETLAND
Aframleikari látinn
London. Reuter.
Gamanleikarinn Charles
Hawtrey, sem frægur varð
fyrir leik sinn í Áfram-kvik-
myndunum, Iést síðastliðinn
fímmtudag 73 ára að aldri.
Hawtrey lék yfírleitt sérvitringa
í gamanmyndum og aðalsmerki
hans voru kringlótt jámspangar-
gleraugu og skræk rödd. Hann taldi
sig aldrei hafa öðlast þá frægð sem
honum fannst hann verðskulda og
lifði einsetumannslífi þegar andlátið
bar að.
Kvikmyndaferill Hawtreys hófst
á fj'órða áratugnum og hann lék í
50 kvikmyndum áður en fyrsta
Áfram-myndin var gerð.
_ Hawtrey lék f 23 af þeim 28
Afram-myndum sem framleiddar
voru frá árinu 1958. Það er ekki
síst hans framlagi að þakka að
þessar gamanmyndir skipa nú veg-
legan sess innan breskrar kvik-
myndahefðar.