Morgunblaðið - 01.11.1988, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988
47
PERÚ
Barn fínnst í svínastíu
Hann er kallaður Jesus drengur-
inn litli sem ólst upp meðal
svína. Þegar hann fannst var hann
líkari svíni en manni, skreið á fjórum
fótum, rumdi og var algerlega ótal-
andi. Samkvæmt læknum þeim sem
annast hafa drenginn síðan hann
fannst þykir augljóst að hann hafi
verið mjög ungur er hann var borinn
út. Ekki er vitað neitt um uppruna
hans.
Drengurinn var ófær um að stíga
í fætuma og hafði myndast sigg
bæði í lófum hans og hnjám. Lækn-
ir hans Dr. Chiappe á sjúkrahúsinu
í Líma, Perú, segir að drengurinn
hafi verið algerlega vannærður og
ekki fær um að neyta matar öðru-
vísi en að reka nefið ofan í matinn.
Hann hafi verið langt á eftir í þroska,
tennur hans bendi til þess að hér
sé um 7-8 ára bam að ræða en hins-
vegar sé líkamlegur vöxtur hans á
við þriggja ára bam.
Drengurinn fannst í september
síðastliðið ár og var hann þá meðal
svína á ruslahaug. Hann var færður
yfirvöldum og honum síðan komið
fyrir á sjúkrahúsinu þar sem dreng-
urinn dvelur nú. Samkvæmt heimild-
um hefur hann tekið gífurlegum
framfömm, getur borðað með skeið,
segir örfá orð og hefur nú nýlega
lært að standa á fótunum en gengur
ekki óstuddur.
Ymis vandamál komu upp í bytj-
un. Jesus litli neitaði að ganga í
fötum, og beit hann þá sem honum
líkaði ekki við eða reyndu að fá
hann til þess að klæðast. Hinsvegar
er hann sagður mjög ástríkur, klapp-
ar og kyssir litla vini sína á sjúkra-
húsinu og faðmar og strýkur öllum
sem honum fellur í geð. Hinsvegar
hefur öðmm börnum á sjúkrahúsinu
þótt atlot hans yfirþyrmandi og snið-
ganga þau hann þegar sá gállinn er
á honum.
Drengurinn er að mestu í umsjá
sömu fóstmnnar fyrir utan starfslið
lækna og hjúkmnarfólks og kallar
hann hana „mömmu". Eins og gefur
að skilja þarf bamið mikla um-
hyggju og ástúð ekki síður en lækn-
isfræðilega meðhöndlun og þjáist
hann meðal annars af flogaveiki.
Læknir hans, Dr. Chiappe, segir að
drengurinn hafi tekið ótrúlegum
framfömm á þessu ári, sjálfur hafi
hann aldrei vitað neitt tilfelli þessu
líkt.
% ‘
SUNTRONIC
rafmeðferð
Vilt þú bæta útlit þitt?
Eftirtaldar stofur bjóða upp á árangursríka andlitslyftingu
án óþæginda, svo og meðferð við örum, bólum, rauðri
húð og sliti (t.d. á maga, brjóstum o.fl.).
Meðferðin er hættulaus og án aukaverkana.
Auk þessa bjóðum við upp á alla almenna snyrtiþjónustu.
Snyrtistofan ANDROMEDA, Iðnbúð 4, Garðabæ, sími 43755
Snyrtistofan EVA, Ráðhústorgi 1, Akureyri, sími 25544.
Snyrtistofan GIMLI, Miðleiti 7, Reykjavík, sími 686438.
Snyrtistofan MANDÝ, Laugavegi 15, Reykjavík, sími 21511.
Snyrtistofan DANA, Hafnargötu 49, Keflavík, sími 13617.
Snyrtistofan FEGRUN, Búðargerði 10, Reykjavík, sími 33205.
Snyrtistofa Jónu, Laugavegi 168, Reykjavík, sími 29988.
Snyrtistofan YRJA, Klausturshv. 15, Hafnarfirði, sími 651939.
Stjórnunarfélag íslands
Ánanaustum 15, Reykjavik, sími91-621066.
Verslmrekstur
Athugið!
VR og starfs-
menntunarsjóður
BSRBstyrkjafé-
lagsmenn sína til
þátttöku í nám-
skeiðum SFÍ.
Nýtt námskeið fyrír
starfsmenn
og eigendur versiana
Á námskeiði þessu verður m.a. fjallað um:
0 Búðarkassa: Möguleika og lög.
0 Vörumerkingar: Mismunandi gerðir og reglur um vöru-
merkingar.
0 Tölvur: Möguléikar á mismunandi hug- og vélbúnaði.
0 Framkoma og þjónusta, útstillingar og uppstillingar.
0 Rýrnun og hvernig bregðast á við henni.
Námskeiðið verðurhaldið fjóra morgna frá kl. .8.30-12.30
Þátttakendur: Námskeið þetta er ætlað öllum sem starfa
við verslunarrekstur, bæði eigendum, verslunarstjórum
og öðrum starfsmönnum, sem og þeim sem hyggja á
verslunarrekstur.
Leiðbelnendur:
Sveinn Áki Lúðvíks-
son, framkvæmda-
stjóri hjá Sameind
hf. og Tryggvi Þórð-
arson, forritari hjá
Hugbúnaði hf.
Á námskeiðið munu
koma gestafyrirles-
arar.
Tíml og staður:
8.-11. nóvember kl. 8.30-12.30 í Ána-
naustum 15.
nmB/LVANGUB Sf=
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
Umboðsmenn: Borgarnesi, Bílasala Vesturlands - Isafirði, Vélsmiðj-
an Þór hf. - Sauðárkróki, Nýja Bilasalan - Akureyri, Véladeild KEA -
Reyðarfirði, Lykill - Vestmannaeyjum, Garðar Arason.
ITLeKp/g^*!
Isuzu sendi-og vörubflar eru framleiddir
af stærsta vörubflaframleiðanda Japans.
Isuzu verksmiðjurnar eru nú annar stærsti
útflytjandi í heimi á vöru- og langferðabifreiðum.
Við bjóðum Isuzu sendibflana frá þessum traustu
framleiðendum á sérstöku kynningarverði.
Sendibflar með bensín eða dísilvél,
afturhjóladrifi eða fjórhjóladrifl.
Þrælsterkir vinnuþjarka.
Góð greiðslukjör.